Dagblaðið - 03.04.1979, Síða 2

Dagblaðið - 03.04.1979, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979. 2 Oryggi Akraborgar er tryggt — reynslan er ólygnust Friðrik Þorvaldsson skrifar: Mér brá í brún er ég sá frétt með stóru letri þvert yfir forsíðu Dag- blaðsins um það, að Akraborgin teldist ekki haffær og hefði vegna bilunar hrakizt undan veðri, svo að hún var aðeins 100 m frá strandi. Þessi frétt vakti mikla athygli og ótrú, a.m.k. hafa margir spurt um álit mitt. Ég hefi bent á það, að sjóhæfni skipsins sé vafalaust hin sama og þegai það kom í hina fyrstu ferð, enda væri reynslan ólygnust. Þá vil ég fullyrða, að ásakanir i garð út- gerðarstjórnar eru ómaklegar en hafa þó þann tilgang, að væru þær sann- ar, sem ekki er, myndi öllu borgið ef úr væri bætt að þessu leyti. Tvö akkeri En málið er ekki svona einfalt. Ég man, að þegar Akraborg eldri missti eitt sinn annað akkerið var þess krafizt samstundis, sem vonlegt var, að nýtt yrði sett í staðinn. Þar sem akkeri var ekki til i landinu þurfti að' panta það og munaði minnstu, að þetta lipra og aflsterka skip yrði ss'iK haffærisskírteini fyrir að hafa aðeiru, eitt akkeri um stundarsakir. Frá þessu sjónarmiði hefir Akra- borgin verið ósjófær þegar hún var keypt og er það enn. Við venjulegt veðurfar fer vel um farþega í skipinu, en í veðraham bregður út af því. En við því er séð. Hjálpar þar til að sjóleiðin er örstutt, góð veðurþjón- usta og afburða skipstjórnarmenn vita hvað skipið þolir, svo ekki er lagt úr höfn nema í einsýnu. Reynslan hefir þannig tryggt fyllsta öryggi. Fá ár eftir Þótt segja megi, að vel sé fyrir öllu séð hér og nú hvað Akraborg snertir þá eiga allir dagar sér kvöld. Hún eldist og slitnar og á aðeins fá ár eftir. Samgöngur eru ekki happa- og glappamál. Þær þurfa yfirsýn. Hf. Skallagrímur ól sig upp við hið forna spakmæli. ,,Allt með gætni ger ávalt grant um endann hugsa skalt.” Fyrstu 19 árin gat félagið starfað án ríkisstyrks og átti stundum drjúgan afgang. Þá hófst merkur kafli í samgöngusögu landsins með hinum svonefndu Hraðferðum Rvk/Akur- eyri um Borgarnes. Slíkar ferðir komust á til og frá Ólafsvík, Stykkis- hólmi, Búðardal, Hólmavík, Kinnar- stöðum, Blönduósi og innanhéraðs. Ég álit það tómlæti að láta skeika að sköpuðu. Hvar á að gripa upp milljarða til að starfrækja viðhlitandi ferjukerfi Akran / Rvk ásamt for- svarandi aðstöðu í höfnum? Sams konar spurning er tiltæk ef setja á ferjur á Hvalfjörð og nothæfar bryggjur beggja vegna með nauðsyn- legum mannafla þar nótt og dag, samhliða því að gera hraðbraut inn fyrir fjarðarbotn. Brú yfir Hvalfjörð Með sterkum rökum hefir verið sýnt fram á það, að ódýrast og beinast liggi við að brúa Hvalfjörð, t.d. um Laufagrunn eða út af Hval- eyrinni. Þetta er raunar þáttur í nútíma vegagerð, en um slika fram- kvæmd hefir verið ógæfuhljótt. Brúin gæti verið fullgerð nú ef ráða- menn hefðu þekkt vitjunartímann. En þeir áttu ekki innangengt í sína öld og virtust sjá fjandann sjálfan uppmálaðan á hverju skýi. Ef brúin væri komin nú mætti gera sér í hugarlund brennslusparnaðtnn. Það hefir margur orðið doktor fyrir minna en að reikna það út. Ferja er bílastæði, sem sjálf getur eytt i brennslukostnaði jafnmiklu og hún sparar þeim bílum, sem hún rogast með. Nú kostar far Akran/Rvk. 1800 kr. og 900 kr. fyrir bíl. Á Reykjanesbraut er fargjaldið 200 til Straumsvíkur, sem að vísu er snertispöl styttra. Fjárhagsleg blóðtaka Ég vil ekki vera beizkyrtur, en ég spyr þó. Eru ráðamenn Reykjavíkur og þingmenn svefngenglar. Það er þeim að kenna en ekki mér ef þeir skynja ekki hvílik fjárhagsleg blóðtaka ferðalög norður um frá Rvk eru. Vegna rangrar stefnu í samgöngumálum er það algerlega óþarft. Það er einnig þeirra gáleysi ef þeir rumska ekki við þá staðreynd, að af bílaflutningi Akraborgar hafa R- bílar náð allt að 63%. En nú dregur að þáttaskilum í þessum samgöngumálum. / . Lengst af ævi minnar var kapp- kostað að hafa eitthvað til að lifa fyrir. Nú fer mikið sýsl í það að hnotabítast um að hafa eitthvað til að lifa af og snýst þá stríðið eðlilega um fleiraen kaloríur. Klamrit og myndir — og áhrif þeirra á börnin okkar Fokreið 3ja barna móðir hringdi: Ég á þrjú börn á aldrinum 6—12 ára og er bókstaflega að missa taum- haldið á uppeldinu og að gefast upp vegna þess að á boðstólum i þessu blessaða þjóðfélagi okkar eru sorprit sem mín böm eins og önnur komast í, sérstaklega þau eldri. Hvaða skoðanir haldið þið að börnin fái á konunum er þau sjá myndir af þeim í alls kyns ljótum stellingum í þessum blöðum? Þau hlæja og flissa yfir þeim og það er sama hvað ég reyni að gera. Ég útskýri fyrir þeim að konan sé nú bara einu sinni svona sköpuð. En það er ekki nema eðlilegt að þeim detti ekkert annað en ógeðslegt í hug i sambandi við konur þegar svona myndir eru hafðar fyrir þeim. Hvað er verra en að gera konuna, móðurina, hlægilega í augum barn- anna? Þetta er ekki hægt lengur. Eitt- hvað verður að gera til þess að stöðva þennan ósóma. Eða hvernig eiga blessuð börnin að geta borið virðingu fyrir móðurinni og hlutverki hennar þegar siík blöð eru alls staðar á glám- bekk? Mikið úrval af klimritum er ó boðstólum hér og ekki öllum til ónægju og yndisauka. Raddir lesenda Heimilis- iæknir Raddir lesenda taka við skilaboðum til umsjónar- manns þáttarins „Heimil- islæknir svarar" í síma 27022, ki. 13-15 alla virka daga.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.