Dagblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979.
DB á ne ytendamarkaði
130 króna verðmunur
Neytendasíðunni berast sífellt á-
bendingar um hina ýmsu verðlagn-
ingu sömu vörutegunda og er málið
oft anzi furðulegt þegar grannt er
skoðað.
Þannig var okkur bent á mismun-
andi verð á blómlaukum.
Við fórum á stúfana og litum inn í
nokkrar blómabúðir og könnuðum
málið.
Jú, mikið rétt, það er verðmismun-
ur á blómlaukum og hann tölu-
verður.
Við völdum af handahófi begóníu-
lauka og spurðumst fyrir um hvað
þeir kostuðu.
í Alaska við Miklatorg kostaði
laukurinn 460 kr. stk. og í Alaska í
Breiðholti kostar hann 450 kr. Hins
vegar kostar hann 330 krónur í
Blómavali, í BlómahöUinni i Kópa-
vogi, í blómabúðinni Dögg og víðar.
Viö fengum þá skýringu á þessum
verðmismun að þeir hjá Alaska hefðu
fengið sína lauka senda hingað til
lands frá HoUandi með flugi og flutn-
ingskostnaður væri svona mikUl.
Sömu begóniulaukarnir: A og C frá Alaska-verzlununum tveimur og B frá Blómavali.
* „GEFÐU MG FRAM í BÚÐINNI, B.K.”
Benedikt Kristjánsson, kjötiðnaöar-
maöur hjá Einari Guðfinnssyni hf.,
Bolungarvík, skrifar:
Vegna skrifa BK frá Bolungarvík í
blaðinu 24. marz sl. vil ég leyfa mér
að koma með athugasemdir við þessi
skrif fyrrnefnds aðila.
BK þessi segir að vöruverð sé mun
dýrara hér en í Reykjavík. Það kann
vel að vera að svo sé á vissum vöru-
tegundum. Verð á kjötvörum sem
Seðillinn
fyrir marzmánuð
Nú er kominn nýr mánuður, eins
og flestum ætti að vera orðið ljóst, og
þá er að drífa inn upplýsingaseðlana!
Þátttaka lesenda Dagblaðsins í því
að senda inn seðlana er ánægjulega
mikil eins og fram hefur komið og í
síðasta mánuði bárust seðlar frá 30
stöðum víðast hvar af landinu.
Það er skemmtilegt og gagnlegt
fyrir fólk að geta borið sig saman við
aðra í sambandi við það hvað miklir
peningar fara í mat og hreinlætis-
vörur í hverjum mánuði.
Eins er skemmtilegt að bera saman
tölur frá hinum ýmsu stöðum.
En sem sagt, hér er fyrsti seðillinn
fyrir marzmánuð sem þið skuluð
fylla út og senda til okkar, merkt
Dagblaðið á neytendamarkaði, Síðu-
múla 12, Reykjavík.
Og ekki sakar að fá frá ykkur
nokkrar línur um málið!
Nýjasta tækm'í pípuhgningum
fíotostock hentar bæði fyrir ný/agnir og viðhald
Fyrir hús, skip, gróðurhús og allar aðrar pípulagnir
auðvelt f flutningum, aðeins 16 kg. I handtösku.
Iðnnotendur
Rotostock er meðal annars, notaði pipulagningaiðnaði:
Hitadreifingu og loftræstingu + raflugningar + viðhaldi og
viðgerðum + skipaiðnaði + vatnsveitum og vatnsveituvirkjun-
um + jarðvinnsiu + byggingariðnaði + úðun + kælikerfum
+ iðnaði og o.s.jrv.
SÚLUSKÁLINN ARNBERGI
í!ll.
800 SELFOSS — P.O. BOX 60
SlMAR 1685 - 1888
Byggung Kópavogi
Aðalfundur félagsins verður haldinn að
Hamraborg 1, 3. hæð fimmtudaginn 5. apríl
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga stjórnar um framhaldsaðalfund.
3. önnur mál.
Stjómin.
seldar eru í verzlun Einars Guðfinns-
sonar hf. í Bolungarvík er ekki hærra
en í Reykjavík.
Þær kjötvörur sem eru á boðstól-
um í áðurnefndri verzlun eru allar
unnar í eigin kjötvinnslu og því eng-
inn flutningskostnaður lagður á þá
vöru.
BK kvartar yfir litlu úrvali kjöt-
vara hér, segir að aðeins sé til álegg í
loftþéttum umbúðum. Þetta er alls
ekki rétt. Við sem vinnum við fram-
leiðslu á kjötvörum hér leggjum
ávallt metnað okkar í að hafa kjötúr-
val sem fjölbreytilegast og höfum
aldrei fengið orð um annað en að það
væri gott. Við höfum margsinnis
fengið orð fyrir gott úrval kjötteg-
unda og kjötborðið sé ávallt snyrti-
legt og gott, enda koma ísfirðingar
og aðrir Vestfirðingar mjög oft
hingað í verzlunarerindum.
Við leggjum okkur ávallt fram við
að veita sem bezta þjónustu í sam-
bandi við kjötúrval og reynum að
gera öllum til hæfis.
Ef einhver viðskiptavinur vill fá
eitthvað sérhannað eða sérrétt þá
erum við ávallt reiðubúnir að gera
allt sem við getum til þess að full-
nægja óskum viðkomandi.
Gaman þætti mér að þessi BK gæfi
sig fram í verzluninni svo ég fái tæki-
færi á að gera honum eða henni til
hæfis.
Raddir neytenda
Upplýsingaseöill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlegast sendið okkur þennan svarseðil. Á þann hátt verðið þér virkur þátttakandi í
upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu
af sömu stærð og yðar.
Kostnaður í marzmánuði 1979
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö kr.
Alls kr.
w i m tv
Fjöldi heimilisfólks