Dagblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 7
Eitt og hálft kílógramm af heróíni
var gert upptækt á Kastrupflugvelli
við Kaupmannahöfn fyrir nokkrum
dögum. Fannst það i fórum tveggja
ungra ítalskra manna, sem voru
handteknir á flugvellinum og síðar
úrskurðaðir í allt að sextíu daga
gæzluvarðhald. Heróínið sem fannst
er sagt af beztu tegund og talið virði
fimmtán milljóna danskra króna á
svörtum markaði í Danmörku. Er
það jafnvirði um það bil eins
milljarðs íslenzkra króna.
Báðir mennirnir hafa neitað sök
sinni en annar þeirra hefur þó viður-
Erlendar
fréttir
kennt ólöglegan flutning á fíkni-
efnum og skartgripum.
Svo virðist sem upp um heróí i-
smyglið hafi komizt við vanabundna
leit í farangri farþega, sem voru að
koma frá Thailandi til Kastrup.
Leitað var hjá nokkrum farþegum og
á botni handtösku annars ítalans
fannst hið ólöglega efni. Sá segist
hafa tekið að sér að flytja einhverja
tösku frá Thailandi til Kaupmanna-
hafnar. Hafi honum verið lofað jafn-
virði rúmlega þriggja milljóna
íslenzkra króna fyrir og hafi slegið til
þar sem hann var atvinnu- og
peningalaus.
ítalinn, sem var gripinn á
Kastrupflugvelli skýrði svo frá að
hann hafi skipt á tösku við mann einn
í Thailandi. Lét hann af hendi tösku,
sem hann fékk afhenta í Milanó þar
sem hann hóf ferð sína. Átti hann
síðan að millilenda í Kaupmanna-
höfn en halda síðan áfram til Ítalíu
aftur.
Uganda:
Idi Amin
hressítali
Idi Amin er nú kominn til Jinja
iðnaðarbæjar i austurhluta Uganda. Er
hann þar í fylgd með hermönnum
sínum og aðstoðarmönnum frá Líbýu.
Segist hann hvergi banginn og ætla að
sigra innrásarliðið fráTansaníu.
íran:
Bardagar milli
stjórnarhers
og Turkomana
Miklir bardagar hafa brotizt út í
Gonbad Kavus borg í íran nærri landa-
mærum Sovétríkjanna. Er þetta aðeins
tæpum sólarhring eftir að tilkynnt
hafði verið um að vopnahlé hefði
komizt á milli hermanna Khomeinis
trúarleiðtoga og manna af Turkoman
ættflokki. Nú virðist bæði vélbyssum
og handsprengjum vera beitt í bar-
dögum þessara aðila.
Skæruliða-
flutningaskip
tekið
ísraelsmenn segjast hafa tekið
flutningaskip skráð i Kýpur á
Miðjaðarhafi. lnnanborðs hafi verið
félagar í pa!e:;i’nskum skæruliðahópi,
sem hafi verið á leið til skemmdarverka
í ísrael.
Danmörk:
Úrvals heróín fyrír
einn milljarö króna
—tveir ítalir gripnir á Kastrup með eitt og háif t kflógramm
af efninu á botni handtðsku
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979.
£3»'
Hinn ftalinn, sem handtekinn var
á flugvellinum, var ekki með neitt af
ólöglegum efnum í fórum sínum.
Segjast Ítalirnir heldur ekkert þekkja
hvor til annars. Hinn fyrrnefndi
segist aðeins hafa skipzt á nokkrum
orðum við hinn og þá eingöngu vegna
þess að þar voru landar á ferð. Sá
síðarnefndi er sagður vera heróín-
sjúklingur, sem viljað hafi nota sér
tækifærið og kaupa ódýrt heróín í
Thailandi fyrst ferðin þangað bauðst
á ódýran hátt.
Danska lögreglan telur að hans
hlutverk í málinu hafi verið að hafa
eftirlit með hinum ítalanum.
Þessi pakki með 1,5 kílógrammi af heróíni hefði fært eigendum sinum jafnvirði eins
milljarös islenzkra króna ef tekizt hefði að selja hann á svörtum markaði i
Danmörku.
Varð ástfangin af myndar-
lega Suðurríkjamanninum
—sagt fráköf lum úr endurminningum Margrétar Trudeau
fyrrum eiginkonu f orsætisráðherra Kanada
Margrét Trudeau reyndi að rista
sig á hol með eldhúshníf fyrir fimm
árum eftir að eiginmaður hennar
Pierre Trudeau forsætisráðherra
Kanada hafði komizt að því að hún
hafði fellt hug til bandarisks manns,
að því er segir í The Toronto Star,
kanadisku dagblaði.
Er þar vitnað i óútgefnar
endurminningar forsætisráðherra-
frúarinnar fyrrverandi. en knflar úr
þeim munu birtast í blöðum víðs-
vegar um heiminn í þessari viku.
Ekki eru sögð nánari deili á Banda-
ríkjamanninum en hann sagður
áhrifamikill og myndarlegur Suður-
ríkjamaður. Á Margrét, sem nú
stendur á þrítugu, að hafa kynnzt
honum á tenniskeppni í New York
árið 1974 en þá virtist hjónaband
hennar og hins kanadlska forsætis-
ráðherra vera í bezta standi.
Tilraun Margrétar til að stinga sig
með eldhúshnífnum á að hafa verið
gerð, er hún kom til Ottawa frá New
York og eiginmaðurinn hafði komizt
að ævintýrinu með hinum myndar-
lega Suðurríkjamanni. Samkvæmt
ráðleggingu sálfræðings fór Margrét
Trudeau til Bandarikjanna til fundar
við hinn nýja vin sinn til þess að
vinna bug á ást sinni til hans. Ekki
fór það að öllu leyti eins og áætlað
var en ekki eru frekari skýringar
gefnar á niðurstöðu ferðarinnar i
greininni í The Toronto Star.
í greininni segir frá að Margrét
hafi hitt Trudeau á Tahiti árið 1967.
Þá hafi hún verið mjög ung og
rómantísk og henni hafi þá fundizt
Pierre mjög gamall. Hann er nú 59
ára að aldri og í miðju kafi að undir-
búa kosningabaráttu i Kanada en þar
á að kjósa hinn 22. maí næstkom-
andi.
í ereinirini er vitnað í frásögn
Margieiar þar sem hún segir frá
Maroi t' dvöl 0,>ni þar sem hún hafi
neytt vmissa fíkniefna þar á meðal
ofskynjunarlyfsins LSD.
í Marokkó hafi hún í fyrsta skipti
brotizt undan hinum sterku og
ströngu uppeldisaðferðum foreldra
sinna. Þó hafi hún að líkindum
aldrei hagað sér ver en venjuleg
amerísk stúlka á hennar reki. í
Marokko hafi hún i fyista skipii lært
að umgangast karlmenn sem jafn-
ingja og tekizt að lifa með þeim á
þann hátt sem henni hafði ekki verið
auðið áður vegna strangs og
siðavands uppeldis.
INNHVERF IHUGUN
TRANSCENDENTAL MEDITATION
Almennur kynnlngarfyrirlestur
verður í kvöld kl. 20.30 að Hverfisgötu 18 (gegnt Þjóðleikhús-
inu).
Innhverf íhugun er andleg tækni, auðlærð og auðstunduð. Hún
losar um djúpstæða streitu ogspennu ogstyrkir hugsunina. Þetta
staðfesta vísindarannsóknir. —Allir velkomnir.
ÍSLENSKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ
J)