Dagblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 03.04.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979. 15 Tvær dömur, fulltrúar tveggja kynslóða, mætast fyrir framan þriðju, Dömuna, verzlun sem ber það nafn og leggur konum á öllum aldri til þann fatnað sem gefur þeim nafnið dama, því eins og einhvers staðar segir þá skapa fötin manninn. DB-mynd Hörður. I Innlend imyndsjá Pétur Jónsson RE strandaði fyrir skömmu við Seyðisfjörð, eins og DB greindi frá. Strandferðaskipið Esja dró loðnubátinn af strandstað skömmu siðar. DB-mynd Jón Guðmundsson. Ékki virðist trúin i að verðbólgan vé að minnka vera mikil, að minnsta kosti aetlar pilturínn að borða siaa seðla sjalfur, en lita ekki verðbólguna éta þi upp smiu og smitt. DB-mynd Hörður. Leysingakaflinn um daginn var nógu langur til að framkalla fyrsta ..vorboðann", — nefnilega djúpar og hvassbrýndar holur í malbikið viða um götur. Venjulega bregða bæjar- og borgarstarfsmenn skjótt við og laga slikt eftir föngum, en eftir að fór að frjósa aftur er slíkt tilgangslaust og því ástæða til að vara ökumenn við, þar sem bílar geta skemmzt talsvert sé ekið ógætilega í þessar holur. DB-mynd R.Th. Bjartar vonir manna um daginn í þá veruna að vorið væri i nánd með hlákunni þi eru að engu orðnar með norðanáttinni undanfarið. Víða um land hefur mikið skafið undanfarna daga, en hin sterka norðanátt er huggun harmi gegn, þvi snjó festir lítt á vegum í blæstrinum. Þessi mynd er tekin á Suðurlandsveginum, skammt fyrir neðan Lögberg. DB-mynd Hörður. Ekki vitum við hvort veriö er að tilkynna lögreglunni um einhvern stóratburð þarna en hitt vitum við að hefði dregið til stórtíðinda þama fyrir utan þá var hann Haraldur Kornelíusson gullsmiður og badmintonkappi i lykilaðstöðu til að gefa allar upplýsingar um þann atburð, þar sem hann stendur við gluggann og fylgist með iðandi mannlifinu á götunni fyrir neðan. DB-mynd Hörður.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.