Dagblaðið - 09.04.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1979.
" ' 1
Eltingaleikur lögreglunnar við
ölvaðan ökumann:
ÓK TVISVAR Á
LÖGREGLUBÍUNN
í fyrrinótt veittu lögreglumenn og barst leikurinn vestur áMela.
athygli óeðlilegu aksturslagi bíls og Lögreglan hagaði eltingaleiknum
ákváðu að kanna málið nánar. þannig að ekki kæmi til ofsaaksturs,
Er ökumanni varð ljóst að en þrátt fyrir það hafði maðurinn
lögreglan var í nánd beitti hann ekið tvisvar utan í annan lögreglubíl-
ótrúlegustu brögðum til að snúa hana inn áður en yfir lauk.
af sér, enda á mun liprari bil en Hann var ekki verulega drukkinn,
lögreglan. en gaf þá skýringu á framferði sínu
Var annar lögreglubíll kallaður til að hann hafi lagt þetta á sig til að
aðstoðar en þrátt fyrir það tókst missa ekkiökuleyfiðíannaðsinn.
manninum enn að sleppa undan þeim -GS.
v V
Faxaflói:
ÞRÍR BJÖRGUÐUST
ÚR SÖKKVANDIBÁTI
Þrír menn, eða öll áhöfn vélbátsins
Kristrúnar ÍS, björguðust í gúmmí-
bát er skyndilegur leki kom að
bátnum á Faxaflóa í fyrradag, svo
hann sökk.
Kristrún, sem var 29 tonna
trébátur, var aö koma frá ísafirði
með viðkomu á Rifi, þaðan sem hún
fór kl. 7,30 á laugardagsmorgun.
Hafði hún barizt í slæmu veðri
V
þangaö, en veður var gengið niður er
húnhéltáfram.
Um kl. 3 á laugardag sendu skip-
verjar út neyðarkall er báturinn var
um 16 sjómílur vest-norðvestur af
Ákranesi og sögðu mikinn leka kom-
inn aö bátnum.
Varðskip var þá f 35 til 40 mínútna
siglingarfjarlægð og hélt strax í átt til
staðarins. Laust eftir neyðarkallið
yfirgáfu skipverjar bátinn og fóru í
gúmmíbát, sem flugvél sá skömmu
síðar úr lofti og varðskipsmenn
stundu síðar. Um kl. 15,45 hafði
varðskipið tekið skipverja um borð
heila á húfi. Þá var Kristrún löngu
sokkin. Ekki er enn ljóst hvað olli
hinum skyndilega leka.
-GS.
Úraþjófar
féllu á tíma
f fyrrinótt var brotizt inn í úra-
verzlun aö Laugavegi 96 og stolið
þaðan nokkrum dýrindisúrum sem þar
voru til sýnis og í gangi.
Lögreglunni barst fljótlega vitneskja
um málið og hóf þegar tilraunir til að
hafa uppi á þjófunum.
Þrátt fyrir að mátt hefði ætla að
timinn ynni með þjófunum þar sem
margar klukkur tifuðu í vösum þeirra
vannst þeim þó ekki tími til að komast
á hlaupum nema upp að Austurbæjar-
apóteki, þar sem lögreglumenn
gómuðu þá, 15 og 16 ára gamla.
-GS.
Páskaeggja-
þjófaráferð
Þrátt fyrir að páskaegg hafi hækkað
minna en mörg önnur vara frá því i
fyrra sáu þó einhverjir aðilar í Reykja-
vík sér ekki annað fært nú um helgina
en stela sér páskaeggjum.
Brotizt var inn í stórverzlun SS í
Suðurveri og stolið páskaeggjum og
einhverju af tóbaki. Þá var brotiztinn í
verzlunina Foss i Bankastræti og þar
var einnig stolið páskaeggjum. Þjóf-
arnir eru ófundnir.
-GS.
ölvun og ölvunarakstur
með mesta móti
um helgina:
Einn bfl-
stjórinn
stóð ekki
ílappirnar
,,Það er orðið langt síðan ég hef séð
jafndrukkinn ökumann,” sagði
Magnús Magnússon, varðstjóri i
Reykjavík í viðtali við DB í gær, er
hann lýsti ástandi eins ölvaða
ökumannsins af þeim 25 sem teknir
voru um helgina.
Það er óvenjuhá tala ölvaðra öku-
manna og sá er Magnús lýsti hafði ekki
betra vald á bíl sínum en svo að
lögreglumenn þurftu lengi að sæta lagi,
til að komast í veg fyrir hann án þess að
hann æki utan í lögreglubílinn.
Það voru fleiri en ökumenn sem
skvettu í sig um helgina, því óvenju
mikið var um útköll vegna vandræða af
drykkjuskap, víða í borginni. -GS.
/i/allteitthvaö
gott í matinn
■ STIGAHLIÐ 45-47 SÍMI 35645
Glæsileg
ferðatilboð
Júgóslavía
Portoroz - hinn heillandi ferðamanna-
staður við Adríahafið. Einungis 1. flokks
hótel með sundlaugum, snyrtistofum,
kaffistofum, verslunum, veitingastofum
o.fl. Einkabaðströnd fylgir hótelunum.
Heilsuræktarstöðin í Portoroz í Júgó-
slavíu verður til afnota fyrir farþega Sam-
vinnuferða-Landsýnar. Dr. Medved bíður
þar íslenskra viðskiptavina sinna og hefur
þegar sannað tvímælalausa hæfni sína.
Leitið upplýsinga á skrifstofunni - verðið
er ótrúlega hagstætt og árangur undan-
farinna ára langt framar vonum bjart-
sýnustu manna.
Spánn
Costa del Sol - vinsælasti ferðamanna-
staður fslendinga. Glæsileg íbúðarhótel,
sundlaugar, baðstrendur, veitingasalir,
næturklúbbar og dansstaðir; - Allt í
seilingarfjarlægð.
írland
Sérstæðar, óvenjulegar ferðir í ósvikna
írska sveitasælu og stórborgarlíf í sama
vetfanginu. Kynnumst frændum okkar
írum og hinu ómengaða þjóðlífi þeirra.
Samvinnu-
Rútuferðir um
Rínarlönd
ferðir-
Landsýn
kynna sumar-
ferðaáætlun
með fjöl-
breyttara sniði
en nokkru
Ekið um hin óviðjafnanleeu föKru héruð
Rínarlandanna ogkomið viðá fjölmörgum
frægum og nafntoguðum stöðum. Við
kynnumst þjóðlífi og menningu margra
landa í þessum bráðskemmtilegu og þraut-
skipulögðu ferðum um Kinarlönd.
Um allan heim
Kanada, Norðurlönd, London, K«>m og
Rivieran, Innsbruck, Munehen, Zurieh.
Eeneyjar, Leningrad og ótal fleiri staðir á
dagskrá í hinni glæsilegu ferðaáa'tlun
okkar.
Malta
Tveggja vikna ferð til Möltu ogsíðan viku-
dvöl í Kaupmannahöfn í gla'silegum
sumarhúsum. Upplögð ferð fyrir fjiil-
skyldur.
Jamaica
Nýr möguleiki fyrir íslenska ferðalanga.
Heillandi eyríki með suðra*nni stemningu
og nútíma þægindum sem hvergi gerast
betri fyrir erlenda ferðamenn.
Hafið samband við
skrifstofuna og aflið
upplýsinga.
sinni fyrr.
Samvinnuferdir-Landsýn
Austurstræti 12 - sími 27077