Dagblaðið - 09.04.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1979.
9
Wales:
Lostnir
eldingu
Knattspyrnumanni í borginni
Caerleon i Wales er vart hugað líf og
tíu aðrir eru slasaðir, eftir að eldingu
laust niður á fótboltavöll, þar sem
þeir voru að leik í gær í þrumuveðri.
Fjórir lágu á sjúkrahúsi með
brunasár og taugaáfall og einn var
ennþá talin í lífshættu er síðast
fréttist.
Egyptaland:
Þjóðaratkvæði
um friðar-
samninginn
Samkvæmt frétt í blaðinu Al-
Ahram i Kairó mun Sadat
Egyptalandsforseti ætla að bera friðar-
samninginn við ísrael undir þjóðarat-
kvæði.
Segir í frétt blaðsins að Sadat
myndi biðja þjóðina að segja já eða nei
við samningunum, og myndi hann
tilkynna þetta í ræðu, sem hann heldur
eftir að umræðum um samninginn
lýkur á þingi.
í ræðu sinni mun Sadat einnig til-
kynna vissa rýmkun á nokkrum at-
riðum stjórnarskrárinnar, svo sem að
starfsemi stjómmálaflokka verði leyfð
á ný, „innan takmarka þjóðareiningar,
friðar og sósíalísks lýðræðis”.
Skoðanakannanir í Englandi:
GÍFURLEG
FYLGISAUKNING
ÍHALDSFLOKKSINS
Ef að líkum lætur verður Margaret Thatcher formaður thaldsflokksins fyrsta
konan sem gegnir embætti forsætisráðherra f sögu Bretlands.
Brezki Íhaldsflokkurinn hóf kosn-
ingabaráttu sína á Bretlandseyjum í
gær, með því að út komu niðurstöður
skoðanakönnunar sem sýna, að
flokkurinn færi nú með sigur af
hólmi í kosningum með miklum
meirihluta atkvæða.
Fylgi flokksins er talið verða rúm-
lega 21 % meira en fylgi Verka-
mannaflokksins, sem er meiri
munur en nokkum tíma síðan
skoðanakannanir um fylgi flokkanna
hófust fyrir 40 áram.
Blaðið Observer, sem birti niður-
stöðurnar, segir þó að taka verði töl-
urnar, sem tölur um fylgi flokkanna
eins og það er í dag, margt geti
breytzt þar til kosningarnar fara fram
3. mai nk.
Niðurstöðurnar koma þó heim og
saman við aðrar minni háttar skoð-
anakannanir, sem allar benda til
þess, að fylgi verkamannaflokksins
sé með allra minnsta móti siðan
stjórn hans var felld á þingi með van-
trauststillögu.
AUar sýna niðurstöðumar mikið
fylgi íhaldsflokksins, sem lofað hefur
lægri sköttum á alla, einnig þá efn-
aðri, og mun meiri aðstoð til handa
þeim efnaminni við að eignast þak
yfir höfuðið.
Hefur flokkurinn lagt þessi mark-
mið fram sem kosningaagn, en eigin-
leg stefnuskrá hans í kosningunum
mun komaút nk. miðvikudag.
Aftökulistinn lengist íTehran:
Tveir hershoföingjar,
fyrrum ráðherra
og lögregluforingi
tekniraflífi ínótt
Tveir hershöfðingjar, fyrmm
ráðherra og fyrrum lögregluforingi,
vom teknir af lífi í Teheran í nótt
sftir leynileg réttarhöld sem fram
fóm yfir þeim, sagði í tilkynningu út-
varpsins þar i borg.
Mennirnir voru Amir Housin
Rabi’i, yfirmaður flughers landsins
þar til fyrir tveim mánuðum,
Mohammad Khajeh hershöfðingi,
Manouchahr Azmon, fyrrum at-
vinnumálaráðherra, og fyrrum lög-
regluforingi, að nafni Balai.
Rabi’i hershöfðingi lét af
stuðningi við keisarann á siðustu
dögum valdatíma hans í febrúar og
var afstaða flughersins hvað veiga-
mestur þáttur í valdataflinu síðustu
vikurnar.
Ekki er greint frekar frá réttar-
höldunum, en talið er að þau hafi
farið fram í Qasr-fangelsinu, þar sem
aftökur hafa farið fram að undan-
fömu. 68 manns hafa nú verið teknir
af lífi síðan réttarhöld byltingar-
dómsstóla hófust og þar af 19 sfðan
réttarhöldin hófust á ný eftir nokkurt
hlé.
ÖLDUNGADEILDAR-
MENN FA VUVÖRUN
Harold Brown vamarmálaráðherra um takmörkun vígbúnaðar. Varaði
Bandarikjanna sagði í gær að aðeins hann öldungadeildarþingmenn við að
væri tímaspursmál hvenær sam- fella slíkt samkomulag því það gæti
komulag mundi nást við Sovétmenn haft ófyrirsjáanlegar afieiðingar.
r
Til Ijósmyndara
Bréf O ^
db
KENTMERE PAPPÍR
David Pitt & Co. h.f
Klapparstíg 16, Sími 13333, Pösthólf 1297, Reykjavik.
Enska fyrirtækið KENTMERE hóf framleiðslu 1jósmyndapappxrs
fyrir meira en hálfri öld, og er því brautryðjandi á þessu sviði.
KENTMERE pappír hefur náð gífurlegri útbreiðslu meðal atvinnu-
ljósmyndara vegna einstakra gæða sinna, en nú gefst áhugamönnum
kostur á að kaupa þennan frábæra pappír á ótrúlega hagstæðu verði.
Markmið okkar er að bjóða bestu fáanlegu efni á viðráðanlegu
verði, og nú fæst KENTMERE pappír x öllum algengustu stærðum,
áferðum og herzlum.
Útsölustaðir eru Gevafótó, Austurstræti 6, Ljósmyndaþjónust-
an MATS, Laugavegi 178 og Pedromyndir, Akureyri. Sölumenn okkar
eru ætið reiðubúnir að veita yður nánari upplýsingar um þessa
vörutegund.
Með kveðju,
.. n.
David Pitt.
1’
>IK
>%#C Kentmere
J
Verkföll
á Costa
delSol
Þúsundir starfsfólks á hótelum,
veitingastöðum og börum á sólar-
ströndinni Costa del Sol á Spáni
boðuðu skyndilega til verkfalls í gær,
sem talið er að varað geti yfir alla
páskahelgina.
Vill fólkiö með þessu leggja
áherzlu á kröfur um hærri laun og
bættan aðbúnað á vinnustöðum, en
þessi vika er ein annasamasta ferða-
mannavika ársins á Spáni.
OVIÐJAFNANLEGIR---------------
TVÍVIRKIR - STILLANLEGIR - VIÐGERANLEGIR
HÖGGDEYFAR
Útsölustaöir
Reykjavfk:
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf.
Bilaborg hf.
Veltirhf.
Akureyri:
Bilasalan hf.
Húsavík:
Bifreiðaverkstæði Jóns Þorgrímssonar
SMYRILL H/F ARMULA 7 SIMI (91)84450 H