Dagblaðið - 09.04.1979, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1979.
Suður-Ameríka:
KVIKMYNDAGERDARMENN
MYRTIR OG PYNTAÐIR
Eins og kunnugt er af fréttum
sténdur nú yfir kvikmyndahátíð her-
stöðvaandstæðinga. Á hátíðinni eru
sýndar margar myndir frá
Rómönsku-Ameríku. Hér er ekki
ætlunin að fjalla um sjálfar
myndirnar, heldur verður fjallað um
örlög fólksins sem gerði sumar
þessara mynda. Eins og flestir vita
reis upp mjög byltingarsinnuð kvik-
myndagerð í Suður-Ameríku fyrir
um það bil 15 árum. Hún náði að
öðlast alþjóðaviðurkenningu og hafa
flestar merkilegustu myndir þessarar
heimsálfu verið sýndar hér á landi.
Valdhafarnir skynjuðu fljótt
hættuna, sem þeim stafaði af slíkri
kvikmyndagerð sem einbeitti sér að
því að upplýsa fólkið um ranglæti og
eðli þess þjóðskipulags sem það bjó
við. Á allra síðustu árum hefur vald-
höfum tekist með ofbeldi ogdjöfuls-
skap að drepa niður allar raddir
gagnrýni. Flestir þeir kvikmynda-
gerðamenn sem fremstir stóðu eru
nú annaðhvort í fangelsum, útlegð
eða hafa hreinlega verið myrtir.
Carmen Bueno
Carmen Bueno heitir chilensk
leikkona sem þekktust er l'yrir hlut-
verk sitt í Fyrirheitna Landinu sem
sýnd var á kvikmyndahátíð Listahá-
tíðar í fyrra. Henni var rænt af
DINA, leyniþjónustu Chile, sem er
byggð upp á svipaðan hátt og
Gestapo nasista. Þessi atburður átti
sér stað 29. nóv. 1974 og síðan hefur
ekkert frést frá henni en fyrrverandii
fangar segja hana í haldi í tortíming-
arbúðum rétt fyrir utan Santiago.
Einn fyrrverandi fangi segist hafa séð
hana í mjög slæmu líkamlegu ástandi
þar sem tveir menn báru hana á milli
sín. Annar vitnar að hún hafi þurft
að ganga gegnum viðbjóðslegt
pyntingarprógram þar sem hún var
m. a. barin og henni gefið raflost.
Einnig hafi hún fengið sérstaka með-
myndatökumaður sem vann ma. viö
Fyrirheitna landið og Orustan um
Chile, semsýnd erá kvikmyndahátíð
herstöðvaandstæðinga. Honum var
einnig rænt af DINA 1974 og hefur
þurft að þola hinar viðbjóðslegustu
pyntingar að sögn fyrrverandi fanga.
Hvorugt þeirra vill herforingja-
stjómin kannast við að hafa fang-
Carmen Bueno, chilenska leikkonan
sem er i haldi hjá herforingja-
stjóminni i Chile.
ferð hjá pyntingarmeisturum SIFA
(flugherinn) þar sem hún var tekin
daglega i langa pyntingartíma sem
fólust m.a. í því að henni var
nauðgað hrottalega.
Jorge Muller
Jorge Muller er chilenskur kvik-
Jorge Muller kvikmyndatökumaflur
sem saknað hefur verið siðan 27.
nóv.1974.
elsað. Nafn Carmenar birtist þó á
lista yfir 119 ChUebúa sem höfðu ver-
ið drepnir utan Chile. Sagt var að
hún hefði verið drepin í innbyrðis
deUum á milli öfgahópa tU vinstri.
Þessi listi herforingjanna var alger tU-
búningur og New York Times hafði
t.d. birt áður Usta með nöfnum sem
herforingjastjómin viðurkenndi að
Kvik
myndir
Friðrik Þ. Friðriksson
hafa í haldi. Mörg nöfn voru á
báðum listunum.
Raymundo Glayzer
Á kvikmyndahátíð herstöðvaand-
stæðinga er sýnd myndin Mexico,
frosin bylting. Hún er gerð af
Raymundo Gleyzer, sem hefur getið
sér gott orð fyrir heimUdarmyndir
og unnið tU margra alþjóðlegra
verðlauna. í maí 1976 var Gleyzer i
New York til þess að ganga frá
málum i sambandi við gerð myndar
fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Síðan
skrapp hann til Buenos Aires til þess
að heimsækja fjögurra ára gamlan
son sinn. Hann hafði ekki verið nema
einn dag í Argentínu þegar honum
var rænt af vopnaðri lögreglu.'
TUraunir fjölskyldu hans tU þess, að
frétta um örlög hans hám engan
árangur. Kvikmyndagerðarmemi um
aUan heim mótmæltu handtöku
Gleyzers og kostuðu lögfræðing til
þess að rannsaka málið en yfirvöld í
Argentínu neituðu að hafa Gleyzer í
haldi. HeimUdir frá Argentínu herma
að hann sé hafður í haldi í tortíming-
arbúðum nálægt Ezeiza, alþjóðlega
flugveUinum. Þessar heimildir herma
að hann, ásamt fleiri föngum, hafi
þurft að þola margvíslegar pyntingar
t.d. raflost, bruna og á morgnana
verið dreginn út alsnakinn (hitastig
oft undir frostmarki) og barinn.
Margir hafa
verið myrtir
Margir aðrir kvikmyndagerðar-
menn hafa hlotið svipuð örlög. Til
dæmis Julio Troxler sem leikur í
Stund brennsluofnanna. Hann var
skotinn til bana af hægrisinnuðum
samtökum AAA (Argentine Anti-
kommúnist AUiance). MarceUo
Romo sem leikur í Sjakalanum frá
Nahueltoro sem sýnd er á kvik-
myndahátíð herstöðvaandstæðinga,
var handtekinn og pyntaður en hefur
verið látinn laus. Hans Herman hét
argentískur kvikmyndagerðarmaður
sem var skotinn til bana í ChUe.
Hann kvikmyndaði raunar dauða
sjálf sín og þetta einstæða atriði má
sjá í Orustunni um Chile. Bandaríski
kvikmyndagerðarmaðurinn Charles
Horman var tekinn af heimili sínu í
Chile og fluttur á hinn allræmda
þjóðaríþróttavöll, þar sem hann var
skotinn til bana. FuUvíst er talið að
leyniþjónusta Bandaríkjanna CIA,
hafi pantað morðið. Þetta er ekki
nema brot af þeim listamönnum, sem
orðið hafa fyrir ofsóknum fasismans
í Suður-Ameríku. Einnig þykir rétt
að minna á að listamenn eru aðeins
brot af þeim tugþúsundum semhafa
þurft að sæta ofbeldi fyrir skoðanir
sínar.
(Heimild: fréttabréf nefndar til varnar kvikmynd-
agerðarmönnum í Suður-Ameríku sem starfar í
Ðandaríkjunum.)
: .
r
■
.
3
nU UflNDSMWNB BUURB
ll„ FLUQUElDUtl
. 6MN flUDVEUDBRH BD
NU E* TIN U^U
NOTfl HIN un t
FBRQJUUC pvMKBDfiR'
FERWC ^f, 6-30 DRGHo fiFRRM
mEQB STHNDH unTT(jB uiu JDS
*%&£*£***
oo UUÆHBORUHR- _fLuguEIDIr'
Reglur um „almenn sérfargjöld“ hafa verið
rýmkaðar. Áður voru „almenn sérfargjöld"
8-21 dags fargjöld, sem þýðir að ferðin mátti vara
styttst í 8 daga og lengst í 21 dag - nú eru „almenn
sérfargjöld" hins vegar 6-30 daga fargjöld.
Þessi breyting gerir enn fleirum kleift að notfæra sér
þessi hagstæðu fargjöld sem gilda til nær 60 staða í
Evrópu. Afslátturinn geturorðiðalltað40% frá
venjulegu fargjaldi og jafnvel enn hærri, ferðist
fjölskyldan saman til Norðurlandanna,
Luxemborgar eða Bretlands því þá fæst
fjölskylduafsláttur til viðbótar.
FLUGLEIDIR