Dagblaðið - 09.04.1979, Blaðsíða 21

Dagblaðið - 09.04.1979, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR9. APRÍL 1979. Iþróttir Iþróttir Þorsteinn meiddist og La Louviere fékk skell —tapaði 5-0 gegn Waregem. Þorsteinn Bjarnason meiddist og varð að fara út af „Rétt einu sinni varð ég fyrir meiðsl- um. Náði knettinum, en þrátt fyrir að aðvífandi leikmanni befði verið i lófa lagið að stökkva yfir mig renndi bann sér á mig. Fékk takkana beint i brjóst- ið, og fingurinn fór aftur úr sambandi, svo mildð var stuðið að hanzkar mínir tættust í sundur,” sagði Þorsteinn Bjarnason, islenzld landsiiðsmark- vörðurinn hjá La Louviere eftir ósigur La Louviere, 0-5, gegn Waregem. Þegar Þorsteinn meiddist var staðan 1- 0 Waregem i vil. Þorsteinn stóð i mark- inu fram að leikhlél — en kom eldd til siðari hálfleiks og La Louviere fékk skeU. „Maður fær ákaflega litla vöm hér hjá dómurum. Dómararnir heima á íslandi eru miklu betri en hér — aðeins einn góður dómari hér í Belgíu,” sagði Þorsteinn ennfremur. „Annars gekk okkur flest í óhag. Skömmu fyrir leik- inn veiktist Þjóðverjinn Roth og gat ekki leikið. Einhvem veginn náði liðið sér aldrei á strik,” sagði Þorsteinn. Þá kom fram hjá Þorsteini að varamark- vörður La Louviere er einnig meiddur svo númer 3 fór í markið og hann fékk á sig mark þegar í fyrsta skoti á mark. „Hann er ekki góður,” sagði Þor- steinn. Þorsteinn Bjarnason, meiddist og varð að fara út af. En úrslit í Belgíu urðu: Anderiecbt — FC Brujjge Beershot — Molenbeek Winterslag — Berchem Charleroi — Standard Liege Waregem — La Louviere Beringen — Antwerpen KR sigraði Þrótt — íReykjavíkurmótinu íknattspyrnu KR sigraði Þrótt, 2—1 i Reykja- vikurmótinu i knattspyrau á laugardag. Þar með hafa Reykjavikurmeistarar KR unnið tvo fyrstu leild sína, áður sigrað Fylki 2—1. Veður var hið ákjósaniegasta á Melaveliinum og leikurinn fór sannarlega vel af stað — þegar eftir 15 mínútna leik höfðu verið skoruð þrjú mörk. Sverrir Herbertsson náði forustu fyrir KR, eftir skot Vilhelms Fredriksen hafði verið háif- varið. Og KR komst síðan í 2—0, þá skoraði Erlingur Sigurðsson. Þróttur náði síðan að minnka muninn með marki Þorvalds Þorvaldssonar, 2—1. Góð byrjun — en eftir þetta dofnaði mjög yfir leiknum og hann varð þóf- kenndur. Fleiri mörk voru ekki skoruð — og enn hefur ekkert lið hreppt auka- stig í Reykjavíkurmótinu. En það hlotnast ef skoruð eru þrjú mörk. Taktu myndavélina með þér í samkvæmi og ferðaiög, því: “Glöggt er gests augað”. Enn gleggra fáirðu myndina rétt framkailaða. Ný framköllunar- og kóperingaraðferð fyrir litmyndir, sem gefur þriðjungi stærri myndir en þessar venjulegu, litlu. Þá verður hvert smáatriði myndarinnar líka þriðjungi stærra og skýrara. gleggra en ella. sland vann hinn fyrri Dönum. í þremur fyrstu leikjunum hafði f sland ekki fengið á sig meir en 75 stig — en í fjórða leik íslands urðu stigin hins vegar99. ,,En ég er bjartsýnn. Tim Dwyer stóð sig mjög vel sem landsliðsþjálfari, hafði gott lag á strákunum og andinn varð mjög góður í liðinu,” sagði Stefán ennfremur. í vor eru 20 ár síðan fsland lék sinn fyrsta landsleik en það var ein- mitt gegn Dönum. Þá sigruðui Danir 43—37 — sömu tölur og nú er skorað í einum hálfleik. Svona langt hafa þessar þjóðir náð í dag, þó ennþá eigi þær langt i land með að skipa sér á bekk meðal beztu. ísland sigraði í fyrri leik þjóðanna með 21 stigs mun. 21 Iþróttir Grindavík sigraði ÍBK — og þvíþarf aukaleik í 2. deild kvenna um sæti í 1. deild Handknatttolcur, 2. dald kvanna, Grindavlc - IBK.1MIS-4) Ljóst er nú að það verður annað- hvort Grindavik eða ÍBK sem leikur i 1. deild kvenna á næsta leiktímabili, en aukaleikur á milli þessara aðila verður að skera úr um hver hreppir hnossið, þvi bæði liðin eru með 17 stig. Draumur ÍBK um 1. deildar sætið hefði getað orðið að veruleika i Njarð- vik á laugardaginn, með jafntefli ein- mitt gegn Grindavikurstúlkunum og í byrjun virtist allt benda til þess að svo ætlaði að verða. Keflavikurvalkyrjura- ar með Helgu Guðmundsdóttur sem aðaldriffjöður, skoruðu þrjú mörk gegn einu Grindvikinga, sem voru eins og svefngenglar á vellinum framan af hálfleiknum. En skömmu fyrir hlé vöknuöu þær af dvalanum, léku reyndar aldrei mjög hratt heldur yfirvegað, og skoruðu hvert markið af öðru. Jöfnuðu og voru svo einu marki yfir í hléi, 5-4 .Þrátt fyrir að ÍBK reyndi að „taka úr um- ferð” tvær skæðustu UMFG-stúlkurn- ar, þær Sjöfn Ágústsdóttur og Ágústu Gisladóttur, juku Grindvíkingar for- skotiö og sigruðu örugglega. Var góður leikur þeirra Hildar Gunnarsdóttur og Ólafiu Jensdóttur þar þungur á metun- um, en konan á bak við sigurinn var Rut Óskarsdóttir, sem varði af mikilli snilld, þar á meðal fjögur vítaköst í leiknum, en eitt skot geigaði. Fimm vítaköst fóru því í súginn hjá ÍBK, en betri nýting þeirra hefði fært þeim fyrstu deildar sætið þegar á marka- muninnerlitið. Þórforðaði sérfráfalli — með sigri gegn Breiðablik Þór, Akureyri, bjargaði sér endan- iega frá falli i 2. deild Islandsmótsins i handknattleik kvenna með öruggum sigri á Breiðabliki í Garðabæ, 19-11, á föstudagskvöldið. Sigur Þórs var aldrei i hættu en Þór komst f 13-1 fyrir leikhlé og sigraði síðan örugglega, 19-11. Á laugardag mætti Þór síðan FH — og FH sigraði þar örugglega 23-12 eftir að hafa haft 10-5 í leikhléi. Það sem var merkilegast við þann leik var að hvorki fleiri né færri en 22 víti voru dæmd — og öU eða að minnsta kosti flest að verðleikum! í gærkvöld lék Þór svo við Val og aftur tapaði Þór, nú 14-12 — en sætið i 1. deild var tryggt. Mjög góður enda- sprettur í lok mótsins tryggði það en lengst af vermdi Þór neðsta sæti 1. deildar með ekkert stig — en stóð uppi í lokin með átta stig. Staöan í 1. deUd kvenna er því nú: Fram FH Valur Haukar KR Þór BreiðabUk Víkingur 14 14 13 14 13 14 13 13 12 0 9 1 9 7 165-113 22 200-160 19 173-162 150-157 141-125 10 176-184 10 119-179 10 123-172 19 15 14 8 5 4 Víkingur mætir BreiðabUk í síðasta leik sínum og er það hreinn úrsUtaleik- ur liðanna um að forðast faU i 2. deUd. 150 þúsund sáu Pele leika Næstum 150.000 áhorfendur mættu á knattspyrnuleik i Buenos Aires á laugardag til aö sjá kappann Pele leika. Þetta var fjáröflunarleikur fyrir þá, sem misstu allt sitt í flóðum 1 Brasiliu nýverið. Pele, sem er 38 ára og hættur keppni fyrir tveimur árum, lék með meistaraliði Rio — Flamengo — gegn Atletico Mineiro á risavellinum Maracana. Flamengo sigraði 5—1. Pele lék aðeins i f.h. Varð að hætta rétt fyrir hálfleikinn vegna skurðar, sem hann hlaut á vinstri fæti. Hann skoraði ekki i leiknum og sýndi litið af þvi sem gerði hann að konungi knattspyraunnar á árum áður. Ágóði af leiknum nam um 400 þúsund dollurum eða tæpum 150 milljónum isl. króna.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.