Dagblaðið - 09.04.1979, Qupperneq 35
DAGBL\ÐI^MÁNUDAGU^^PRÍM979j^^^^^^^^^^^
Fiðlarinn á þakinu
áHusavík
Um þessar mundir tekur Leik-
félag Húsavíkur fyrir 2. verkefni sitt
á leikárinu 1978—79 — sem er
Fiðlarinn á þakinu , sem margir
kannast við eftir að hafa kynnst
verkinu bæði í kvikmyndahúsum, og
á sviði Þjóðleikhússins. Fiðlarinn á
þakinu er söngleikur, saminn af
Joseph Stein, víðfrægum söngleika-
höfundi, upp úr sögu eftir Rússann
Scholom Aleichem, sem var
gyðingur. Ég hætti mér ekki út í
lengra tal um höfunda þessa verks
sem nú er á fjölunum hér, en þar sem
Leikfélagið var svo rausnarlegt að
bjóða mér á frumsýninguna, sem
fréttaritara Dagblaösins, má ekki
minna vera en þakka svolítið fyrir sig
ásíðum þess.
Vinur minn einn sagði við mig
skömmu áður en til þess kom að sjá
Fiðlarann að við „gagnrýnendur”
hérsæjumekkert nema gott hjá leik-
listarmönnum okkar, samanber fyrri
skrif og fór ég því með því hugarfari'
á sýningu þessa að finna nú
hressilega að einhverju hjá þeim.
En því miður er mér alveg
ómögulegt að gera umræddum vini
mínum til geðs í þessu máli, því
sýningin var ekki fyrr hafin en ég fór
að fylgjast með og hlusta næstum því
Leiklist
v /
frá mér numinn, og svo mun hafa
farið fyrir flestum frumsýningargest-
um.
Giftingar-
hugleiðingar
Mjólkurpósturinn Tevye varð
manni strax kær í höndum Sigurðar
Hallmarssonar. Golda kona hans
varð vinkona manns og dætur þeirra
allar sömuleiðis. Hrefna Jónsdóttir,
sem leikur og syngur Goldu, hefur
ekki komið hér fram á sviði áður svo
mér sé kunnugt um, en stendur uppi í
hárinu á sjálfum Sigurði Hallmars-
syni hvað snertir að skila hlutverki
sinu. Gjafvaxta dætur þeirra þrjár
leika þær Anna Ragnarsdóttir, sem
fer með hlutverk Tzeitelar, sem
Tevye reynir árangurslaust aö gifta
slátraranum Lazer Wolfe, sem Bjarni
Sigurjónsson túlkar vel, Sigrún
Harðardóttir leikur Hodel, sem
einnig giftir sig i blóra við pabba sinn
en fær þó blessun hans og Maria
Axfjörð leikur Chava sem gerir for-
eldra sína afar sorgmædd ogsvoreið
með vali sínu á þeim útvalda, að
a.m.k. Tevey telur hana ekki lengur i
lifenda tölu.
Einar Njálsson fer með hlut-
35
verk Metels klæðskera, sem reyn-
ist góður eiginmaður Tzeitelar,
Kristján Jónasson leikur Perchik stú-
dent sem stingur af með Hodel og
Friðjón Axfjörð verður til þess að
nema Chava á brott. Efnið er mest-
megnið barátta Tevyes mjólkurpósts
í hjúkskaparmálum dætra sinna, sem
hann bæði tapar og vinnur. Hann
þarf býsna oft að leita álits hins
almáttuga á efri hæðum, en fær
heldur dræm svör. Hann vitnar þó
oft í hina helgu bók, en það verður
þó oftast að leiðrétta hann, eins og
gengur.
Rússneskir
hetjutenórar
Þau sem ég hef nú nefnt og fara
með stærstu hlutverkin í Fiðlaranum
gera það öll vel. Söngur Sigrúnar og
Kristjáns er með ágætum, og eitt af
því merkilega við þessa sýningu er
það að Ingimundi Jónssyni (söng-
stjóri) hefur tekist á undrastuttum
tíma að koma upp þessum fína
blandaða kór og hinir ólíklegustu
menn syngja eins og rússneskir
hetjutenórar. Ágæt hljómsveit situr
úti í einu homi samkomusalarins og
spilar undir þannig að söngurinn og
flutningur hljómhluta sýningarinnar
tekst með ágætum. AUur þessi skari
flytjenda Fiðlarans, samtals um 40
manns, veldur því að áhorf-
andinn/áheyrandinn Finnur sig mitt í
hópnum, enda eru leikararnir úti um
allan sal, prestar og draugar em mitt
á milli okkar. Á troðfullri senunni
fremja ungir menn ótrúlegustu
, .akrobatik” svo maður er
dauðhræddur um að slys hljótist af,
og mitt í þessu öllu syndir Tevye
mjólkurpóstur tneð áhyggjur sínar og
syngur fyrir okkur ,,Ef ég væri
ríkur” alveg snilldarlega. Senan þar
sem hann hefur illur draumfarir og
fer að rifja upp drauminn vi'ð konu
sína er með glæsibrag í sínum
óhugnanleik.
í löngu máli væri hægt að tala um
sýningu Leikfélags Húsavíkur á
Fiðlaranum á þakinu. En ég ætlaði
bara að þakka fyrir mig. Leikstjórn
Einars Þorbergssonar, kornungs
manns, sem er kennari við gagn-
fræðaskólann hér, er verk sem ekki
margir geta leikið eftir við þær
aðstæður sem við búum við héma.
Það versta er að líklega verður erfið-
leikum bundið að fara með Fiðlarann
til sýningar annars staðar, þó ekki
væri nema vegna þess að baksviðið
i er óafmáanlega málað á einn af
veggjum samkomuhússins af Sigurði
, Hallmarssyni.
Slík voru
þrengslin
Lok leiksins eru áhrifamikil, þar
sem Tevye fer með allan sinn söknuð
á bakinu og dót fjölskyldu sinnar í
mjólkurbörunum til nýrra heim-
kynna, sem hann ekkert þekkir til, á-
samt konunni sinni og dætrunum
tveim, sem enn em of ungar til þess
að vera horfnar honum, og
Fiðlarinn, leikinn af Húnboga Vals-
syni, spilar angurvært lag til farar-
heilla. Fólkið var einfaldlega rekið á
braut af einhverjum valdsmönnum.
Gestir frumsýningarinnar sýndu
flytjendum söngleiksins mikla þökk í
lokin.
Það var táknrænt , að stúlkurnar,
sem vildu færa hljómsveitinni blóm i
þakklætisskyni fyrir sinn þátt í hinni
ágæta flutningi áttu í erfiðleikum
með að finna hana.eða að minnsta
kosti að komast að henni, slík voru
þrengslin!
r
v
llVJA Kodak
TRA22EF
myndavélin™
MEÐ INNIBYGGÐU
EILÍFÐARFLASSI
Þessi nýtízkulega hannaða myndavél
meó handfanginu er með innibyggðu
eilífðarflassi, þannig að þú stillir
á flassmerkið og styður svo á takkann
og tekur allar þær myndir sem þig langar til.
Handfangið gerir vélina stöðugri
og hjálpar þér til að taka skarpari myndir.
PETERSEN HP
GLÆSIBÆ AUSTURVERI
S: 82590 S:36161
Umboðsmenn um land allt
HANS
BANKASTRÆTI
S: 20313
Verð á vél í gjafaöskju
með 2 rafhlöðum og einni filmu:
Kr. 24.700.00
Sala á lausum miðum hafín
NÝTT HAPPDRÆTTISÁR 79-80
MIÐIER MÖGULEIKI
Endurnýjun flokksmiöa og ársmiöa hefst 18. apríl.