Dagblaðið - 09.04.1979, Blaðsíða 39

Dagblaðið - 09.04.1979, Blaðsíða 39
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1979. Utvarp . Sjónvarp tflNARGJÖFIN — sjónvarp í kvöld kl. 21.10: GUINNES FER Á KOSTUM Alec Guinness leikur aðalhlutverkið í brezku sjónvarpsleikriti sem_ sýnt verður í kvöld. Leikritið nefnist Vinar- gjöfin og er eftir hinn afkastamikla höfund John Osborne sem við höfum séð mikið af verkum eftir undanfarið. Guinnes ér sá leikari Breta sem þekktastur er í kvikmyndum ef frá er talinn sir Laurence Olivier. Myndir sem hann hefur leikið í hafa oftá tíðum náð miklum vinsældum og þá ekki sízt vegna leiks Guinnes. Guinness er fæddur árið 1914 og hefur verið nær stöðugt á toppnum síðastliðin 25 ár, þó heldur sé stjarna hans farin að lækka. Áður en Guinness sneri sér að kvik- myndum var hann búinn að ná miklum vinsældum á leiksviði. Umboðsmaður frá Hollywood sá hann á sviði árið 1941 og bauð honum að koma vesturog reyna sig í kvikmyndum. En vegna stríðsins og herskyldunnar sá Guinness sig tilneyddan til að neita. 1946 lék hann í brezku myndinni Glæstar vonir sem gerð var á nútímalegan hátt á þeim tíma. Myndin var byggð á sögu Dickens og er sögð cin allra bezta kvikmynd sem gerð hefur verið á Bret- landi og er þá mikið sagt. Eftir þennan mikla sigur bað Guinn- ess um að fá að leika Fagin 1 myndinni um Oliver Tvist. Þrátt fyrir vantrú framleiðanda á því var samt ákveðið að reyna Guinness. Skemmst er frá þvl að Alec Guinness og Michael Gough I hiutverkum sinum i Vinargjöfinni. segja að hann var eins og klæðskera- saumaður í hlutverkið og sló i gegn i Bretlandi. í Bandaríkjunum náði myndin hins vegar mjög takmörkuðum vinsældum vegna hinna sterku gyðingahópa sem á þeim tíma voru enn í sárum eftir stríðið. En Guinness átti eftir að koma þeim í opna skjöldu og núna hin síðari ár má varla á milli sjá hvort hann er vinsælli í Bretlandi eða Bandaríkjunum. -DS. J iiiv mi\ Við erum ekki aðeins stórir í METSÖLUBÓKUM Á EIMSKU heidur einnig tímaritum á ensku, dönsku ogþýzku {WSaprfivAaKfcsnHnB; ALEX HALEY I ^SUHUSIÐ LAUGAVEG 178. SÍMI 86780. GLÆSIBÆ — SÍMI83210 Broyt X 2 til sölu, árgerð 1969, með frámoksturtæki (hægt að út- vega bakgröfu). Hagstætt verð. Upplýsingar í símum (91) 19460 og (91) 32397 (kvöld- og helgarsími). —| WÝ SENDING |— BASTLAMPAR EINNIG NÝJAR SENDINGAR AF BORÐLÖMPUM SENDUMI PÓSTKROFU LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJOS & ORKA Suðurlandsbraut 12 simi 84488 y

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.