Dagblaðið - 10.04.1979, Page 1
5. ÁRG.- ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL1979 - 85. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
„Dimission” hjá menntskælingum
Nemendur Menntaskólans í Hamra-
hlíð voru að „dimitera” í góða veðr-
inu í morgun, þ.e. að fagna því að síð-
asti kennsludagurinn þeirra í skólanum
var runninn upp. Á slíkum degi þykir
við hæfi að klæðast 4 óvenjulegan hátt,
og þessi mynd var tekin við Shell-
bensínstöðina á Miklubraut en þar
höfðu tvær skrautlega klæddar fylk-
ingar verðandi stúdenta mælt sér mót
laust fyrir kl. 9 í morgun. Þaðan var
svo gengið fylktu liðið að skólanum þar
sem kennarar skyldu kvaddir.
- GAJ / DB-mynd Hörður
Flugleiðir:
Eigenda-
skiptí á
ir/ohluta-
bréfa?
— óf ormlegar kannanir í gangi
Formlega hafa engin hlutabréf i
Flugleiðum, í því magni sem nú hefur
heyrzt, verið boðin til sölu, sam-
kvæmt heimildum, sem DB telur
áreiðanlegar.
Samkvæmt sömu heimildum, hafa
eigendur hlutabréfa að nafnverði
rúmlega 200 milljónir króna, leitað
hófanna við Eimskipafélag íslands
hf. um hvort þar væri áhugi á slíkum
kaupum. Þá munu fleiri aðilar hafa
sýnt kaupunum áhuga, en Eimskipa-
félagið ekki gefið jákvætt svar við
umleituninni. Félagið á um 20%
hluta.
Óstaðfest er að hér sé um að ræða
hlutabréf í eigu Sveins Valfells og
Sigurðar Helgasonar forstjóra.
Formlegt framboð á hlutabréfum
verður aðeins með þeim hætti að
stjórn Flugleiða hf. fyrir hönd
félagsins séu boðin hlutabréf, enda á
félagið forkaupsrétt á þeim.
Þá hefur heyrzt, að starfsmanna-
félög hafi sýnt áhuga á að kaupa
einhver hlutabréf. Nú hafa félagar í
Starfsmenn hf., sem er félag Flug-
félagsstarfsmanna, sem stofnað var
1966, ákveðið að leggja það niður og
skipta þá félagar með sér hlutabréfa-
eign þess.
Orlofsdvöl hf. er svo félag fyrrver-
andi Loftleiðastarfsmanna. Ekki er
talið að það félag hafi bolmagn til
hlutabréfakaupa í þvi magni, sem hér
er talað um. Það mun nema um 11 %
alls hlutafjár Flugleiða hf.
-GS.
Stjórnarkjör Flugleiða í dag:
Stjórnarformaðurinn
gef ur ekki kost á sér
Kristján Guðlaugsson, stjórnarfor-
maður Flugleiða hyggst ekki gefa
kost á sér við stjómarkjör í félaginu í
dag, og sömuleiðis Svanbjörn
Frímannsson fyrrv. bankastjóri. Þá
mun Thor R. Thors forstjóri ekki
gefa kost á sér í varastjórn. Fyrir-
hugað er að fækka um 2 i aðalstjóm
og 1 í varastjórn.
Orðrómur hefur verið uppi um að
Örn O. Johnsson, aðalforstjóri,
hygðist ekki gefa kost á sér, en í
viðtali við DB i morgun sagði hann
það tilhæfulaust nú, þótt hvarflað
hafi að honum að draga sig í hlé.
-GS.
*
\
STEINULL HF. H0FÐAR MAL
— gegn Innkaupastof nun Reykjavíkur
Steinull hf. í Hafnarfirði hefur
ákveðið að höfða mál gegn Inn-
kaupastofnun Reykjavíkur vegna
ólögmætra aðferða við tilboðaöflun í
einangrunarefni til Hitaveitu Reykja-
víkur. Aðalkrafa stefnanda verður
sennilega um skaðabætur vegna
þeirra aðferða, sem beitt var ti! þess
að hafna tilboði lægstbjóðanda,
Steinullar hf., eftir venjulegt útboð.
Hinar meintu ólöglegu aðferðir
bitnuðu á viðskiptahagsmunum
Steinullar hf. en stjórn Innkaupa-
stofnunarinnar ákvað að leita eftir
þessum viðskiptum hjá SÍS /
ELKEM, samkvæmt undirboði frá
þeim, nokkru eftir að tilboð sam-
kvæmt útboði voru opnuð og ljóst
var hvernig lægsta tilboð var.
- BS
......
Tilraunir til að koma Einari S. f rá bíða skipbrot:
Björn Fr. neitar að fara í framboð
„Nei, ég hef ekki léð máls á því að
gefa kost á mér sem forseti Skáksam-
bands íslands,” sagði Björn Fr.
Björnsson fyrrum sýslumaður er DB
hafði samband við hann í morgun.
Hann sagði að þess hefði verið farið
á leit við hann en afstaða hans væri
þessi og hún væri endanleg. Hann
mundi ekki gefa kost á sér. Vitað er,
að Birni hafði verið aflað töluverðs
stuðnings innan skákhreyfingar-
innar, og var talið að Björn hefði
gefið kost á sér. Nú hefur hann hins
vegar tekið af skarið um að svo er
ekki. Hafa menn innan skák-
hreyfingarinnar haft á orði, að frétt
DB í gær hafi komið á mjög óheppi-
legum tíma og dregið verulega úr
líkunum á að tækist að koma Einari
S. Einarssyni forseta Skáksam-
bandsins frá. En fyrir því berjast
ákveðnir hópar innan hreyfingar-
innar.
-GAJ-
JonVoightog
JaneFonda
hlutu bæði
óskarsverðlaun
— Sjá erl. f réttir
á bls. 6-7