Dagblaðið - 10.04.1979, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979.
Umferðarlögin ekki í hávegum höfð meðal ökumanna:
Nær helmingur kæra vegna
vanvirts umferdarréttar eða
aftanákeyrslu [
—Og öll þessi brot stafa af tillitsleysi
oggáleysi ökumanna
)
15932 kærur voru gefnar út vegna
umferðarlagabrota árið 1978 í
umdæmi lögreglunnar í Reykjavík.
Auk þess voru 80 þúsund kæruseðlar
vegna stöðumælasekta og 2800
skýrslur voru skrifaðar vegna
umferðarslysa.
Þessar upplýsingar gaf Óskar Óla-
son yfirlögregluþjónn á ráðstefnu
FÍB um umferðarmál. Sagði Óskar
að slysum og óhöppum og ólöglegum
aksturstilfellum mætti stórlega
fækka með aukinni iöggæzlu.
Lögregluþjónar þyrftu að vera sem
víðast til leiðbeininga. Áður fyrr
hefðu gangandi lögregluþjónar unnið
mikið og gott starf í „sínum hverf-
um” og skapað góða samvinnu við
borgara. Með örri fjölgun bíla og
útþenslu borgarinnar hefði þessi
þáttur lögreglustarfsins horfið, því
fjölgun í lögreglunni væri ekki í
nokkru samræmi við útþenslu
borgarinnar og aukna umferð.
Árið 1943 voru 2 lögreglumenn í
Reykjavík á hverja 1000 íbúa, eða
einn á hverja 25 bíla. Ættu þeir nú að
vera 370 ef sama hlutfall væri miðað
Á ráðstefnu FÍB
um umferðarmál
J
við ibúafjölda og 1852 á Stór-Reykja-
víkursvæðinu ef sama hlutfall ætti að
vera miðað við bílafjölda. En
lögreglumenn í Reykjavík eru 232 og
nær öllum beiðnum um fjölgun
þeirra er neitað, sagði Óskar.
„Til að fækka slysum og ólög-
legum aksturstilvikum þarf stóraukið
bifhjólaeftirlit, stóraukið radareftir-
lit og helzt þyrlur til eftirlits á vegum.
Mjög aukið eftirlit þarf við
umferðarljós og mjög hert eftirlit
við stöðvunarskyldu- og biðskyldu-
merkin. Lögreglan þarf að hafa yfir-
ráð yfir kranabíl til að flytja á brott
ökutæki sem ólöglega er lagt og
herða þarf eftirlit með gangandi veg-
farendum og kæra þá sem ekki fara
að settum reglum. Lögregla þyrfti að
vera á bílastæðum allra vínveitinga-
húsa þegar lokað er til að koma í veg
fyrir og stöðva akstur undir áhrifum
áfengis,” sagði Óskar, ,,en flest af
þessu er nú óframkvæmanlegt vegna
mannfæðar í lögregluliðinu.”
Óskar kvað það alvarlega stað-
reynd að af umferðalagabrotunum í
fyrra hefðu 15,7% verið vegna þess
að aðalbrautarréttur var ekki virtur,
19%vegna þess aðumferðarréttur var
ekki virtur og 11,5% vegna aftan-
áaksturs „Þarna eru 46% umferðar-
lagabrotanna sem öll má rekja til
tillitsleysis í umferð og gáleysis við
stýrið — brot sem ekki ættuaðvera
til,” sagði Óskar. -ASt.
Á þvottaplönunum varð fljótt nóg að gera — enda nóg til að þvo.
DB-mynd Ragnar Th. Sig.
Vonarneistinn rættist vei
— og skmandi bflar leyndust undir saltmenguðum rykhaugnum
Vatnsveitustjórinn stóð vel og ræki-
lega við það loforð sem hann gaf bíleig-
endum í Dagblaðinu á laugardaginn.
Þá lét hann í það skína að bilaþvotta-
plön fengju vatn í sína krana eftir
helgina. Og það varð í gær — og ekki
stóð á fólkinu að taka til við bílþvott-
inn. Þykkt lag ryks, tjöru og salts rann
af bílunum og í ljós komu fallegir litir
þeirra og gljáandi bílar. Þð birti yfir
umferðinni og vorið færðist nær.
Vikum saman hefur bílaþvottur
verið bannaður á bílaþvottaplönum í
Reykjavík. Hefur þetta að nokkru
stafað af vatnsskorti en einnig hefur
frost og funi sett strik í reikninginn. En
nú eru vandræðin úr sögunni. Og nú er
engin afsökun fyrir því að aka á
söltugum bíl.
-ASt.
Smurbrauðsgerðar
list í
Yngsta og nýjasta brauðstofan í
bænum hefur nýlega verið opnuð í
Grímsbæ við Efstaland. Stofan heitir
því einfalda nafni Brauðstofan
Grímsbæ. Mun þetta eina brauðstofa
höfuðborgarinnar sem ekki selur
brauð til neyzlu á staðnum, heldur
aðeii s til heimflulnings.
Dagblaðsmonnuin galsi tækifæri
að smakka á framleiðslunni og er
skemmst frá því að segja að hvergi er
af slegið í henni.
Eigandi stofunnar Ingibjörg
Stefánsdóttir, en hún hefur um langt
árabil unnið við að smyrja brauð í
Ingólfsbrunni. Brauðið þaðan er
viðfrægt fyrir að vera vel úti látið og
gott.
Nú hefur lngibjörg látið af þvi að
smyrja á ábyrgð annarra en hafið
brauðstofurekstur í eigin nafni og
flytur brauðgerðarlistina með sér í
Fossvogshverfið, miðsvæðis á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Þar eru á
boðstólum allar áleggstegundir og
brauðsneiðar til allra hugsanlegra
tilefna, snittur, hálfar og heilar
sneiðar og brauðtertur af ýmsum
Ingibjörg með sýnishorn af framleiðslu
sinni.
DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
stærðum. Verðinu virðist stillt í
meðalhóf en gæðin svíkja engan.
-ASt.
A A- sam
25ára
Um þessar mundir hafa AA-
samtökin á íslandi starfað í
aldarfjórðung. Hinn 16. apríl
1954 komu fjórtán manns saman
i samkomusal Vélsmiðjunnar
Héðins i Reykjavík og stofnuðu
Reykjavíkurdeild AA. Nú eru
AA-deildirnar orðnar 47 þar af 20
í Reykjavík einni. í tilefni af 25
ára afmælinu efna AA-samtökin
á íslandi til afmælismóts um
bænadagana. Fjölbreytilegir
fundir verða fyrir AA-félaga
þessa daga. Aðalfundur
samstarfsnefndar samtakanna
verður haldinn á skírdag og opið
hús verður fyrir AA-félaga og
gesti þeirra í AA-húsinu að
Tjarnargötu 5b þá um kvöldið.
Hátíðarfundur verður síðan í
Háskólabíói að kvöldi föstu-
dagsins langa og hefst hann kl.
20.30. Aðalræðumaður verður
Dr. Milton Maxwell, stjórnar-
formaður General Service Board
of Alcoholics Anonymous í New
York. Fundurinn er öllum opinn.
-GAJ-
Húsavík:
Fyrstu skíðagest-
irnirkomnir
Mjög gott skíðafæri er nú á Húsavík
og aðstaða öll hin fullkomnasta til
skíðaiðkana. Ht elið er fullbókað yfir
páskana og áttu fyrstu gestirnir að
koma i gær. Að sögn Ásmundar
Bjarnasonar fréttaritara DB á Húsavík
er heldur bjartara yfir heimamönnum í
augnablikinu þar sem ísinn er horfinn
úr höfninni og bátar hafa notað tæki-
færin og skotizt í netin. Hafa þorsk-
veiðibátar fiskað vel en grásleppubátar
hafa hins vegar ekkert getað hreyft sig.
Setja Húsvíkingar nú allt traust sitt á
að þorskveiðibanni verði aflétt fyrir
Norðurlandi.
-GAJ-
„Sögualdarbær-
inn” aflahæstur
„Sögualdarbærinn”, eins og elsta
skipið í flotanum fyrir vestan er kallað i
gamni, hefur fært mestan afla á land
það sem af er vertíðinni, eða samtals
939 tonn af vænsta þorski, mest einnar
náttar. Réttu nafni heitir báturinn
Garðar, BA 64, 160 smálestir að
stærð, smíðaður árið 1912, en skip-
stjóri er aflaklóin Jón Magnússon. í
fyrradag lönduðu þeir 40 tonnum á
Patreksfirði, en mestur afli í lögn er 42
tonn. Aðallega hefur aflinn fengizt á
Breiðafirðinu og verið landað á
Patreksfirði að undanskildum
nokkrum tugum tonna á Rifi. Næst
aflahæst á netavertíðinni er Sigurbjörg-
in með 870 tonn. Garðar reri í morgun,
seinustu ferðina fyrir veiðibannið.
J.Stef.
Myndbrot
Fjórir Akureyringar halda mynd-
listarsýningu í Safnahúsinu á Húsavík
um páskana. Þeir eru Aðalsteinn Vest-
mann, Guðmundur Árnason, Ragnar
Lár og Örn Ingi. Sýningin verður
á Húsavík
opnuð kl. 16 á skirdag og verður opin
daglega frá 16—22. Sýningunni lýkur
annan páskadag. Á sýningunni verða
40 myndir, unnar I olíu, akryl, vatns-
Iiti, pastel, kol og túss. -JH.
Húsfyllir á
Sjö stelpum
Húsfyllir var hjá Litla Leikfélaginu í
Garðinum í gærkveldi á frumsýning-
unni á Sjö stelpum eftir sænska
höfundinn Eric Thorsteinsson. Leik-
stjóri var Sigmundur örn Arngríms-
son, sem jafnframt hefur þýtt leikinn.
Var leikendum vel fagnað í lokin og
bárust leikstjóranum blóm og auðvitað
páskaegg. Með aðalhlutverk fara Ásta
Magnúsdóttir og Inga Sigríður Stefáns-
dóttir en aðrir leikendur eru: Kristín
Eyjólfsdóttir, Ingibjörg Eyjólfsdóttir,
Þórný Jöhannsdóttir, Jóhanna Helga-
dóttir, Guðný Helga Jóhannsdóttir,
Guðrún Steinþórsdóttir, Sigfús
Dýrfjörð, Sigurjón Kristinsson og
Þórarinn Eyfjörð. Næsta sýning verður
á þriðjudagskvöldið í samkomuhúsinu
I Gerðum.
B.Þ.
Efnahagsfrumvarpið:
Eðvarð f jarstaddur
. Alþýðubandalagsmennirnir Kjartan
Ólafsson og Svava Jakobsdóttir
greiddu atkvæði gegn verðbótakafla
efnahagsfrumvarpsins við lokaaf-
greiðslu þess á laugardag. Eðvarð
Sigurðsson var fjarstaddur atkvæða-
greiðsluna.
Sjálfstæðismenn greiddu atkvæði
gegn frumvarpinu við síðustu atkvæða-
greiðsluna. Frumvarpið var samþykkt
sem lög með 20 atkvæðum gegn 13
atkvæðum sjálfstæðismanna.
-HH