Dagblaðið - 10.04.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979.
3
GÆÐAMAT A
ÍBÚÐUM
NAUÐSYN-
I —áðurenþær
LEhVI I erufullgerðar
Húseigandi hringdi:
„Þann 30. marz sl. lét ég í mér
heyra í lesendadálknum í sambandi
við hornskökku veggina, skökku
hurðirnar og skakka gólfið í íbúð
minni. Kom fram í svari Gunnars
Sigurðssonar byggingarfulltrúa
Reykjavíkurborgar með þeirri grein
að erfitt væri að hafa nákvæmt eftir-
lit með slíku.
Hér er að mínu áliti verið að gera
hlutina flóknari en þeir þurfa að
vera. Vitanlega er ekki hægt að fylgj-
ast nákvæmlega með uppbyggingu
hverrar íbúðar. Á Norðurlöndunum
og í Bandaríkjunum leysa þeir þetta
vandamál á þann hátt að gera nokk-
urs konar úttekt á nokkrum íbúðum
og geta þá verktakar búizt við eftir-
litsmönnum hvenær sem er og hafa
þar af leiðandi nokkuð gott aðhald.
Hér væri t.d. hægt að senda mats-
menn í eina ibúð af hverjum 15 sem
byggðar eru og ef eitthvað virðist
ekki í lagi er það verktakans höfuð-
verkur en ekki kaupandans eins og er
í dag. Þá væri hægt að koma í veg
fyrir að fjöldi manns sæti uppi með
svona hornskakkar íbúðir. Ég er
sannfærður um að ef verktakar eiga
það yfir höfði sér að fá gæðamat á
verk sitt hvenær sem er þá hættum
við kaupendur að fá í hendurnar gall-
aðar íbúðir.”
Það fer ekki á milli mála að svona mikill mökkur getur skyggt á sólina.
Svört og stór ský
—dregur fyrir sólu við brunaæf ingar
slökkviliðsins
Gunnlaugur Valdimarsson hringdi:
„Hve mörgum tonnum af skít og
óþverra ætli Slökkviliðið spýti út í
loftið við brunaæfingar sínar við
HeimHis-
íæknir
Raddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heimil-
islæknir svarar" í síma
27022, ki. 13-15 alla
virka daga.
Reykjavíkurflugvöll? Ég vinn hér i
nánd við svæðið og verð oft illilega
var við að stór og svört ský dregur
fyrir sólu vegna æfinganna. Og mér
finnst þessir menn nota allt of oft
sólardaga og gott veður til þessara
æfinga. Nú þegar sífellt er verið að
fjalla um mengun og vandamál sem
koma upp í sambandi við hana finnst
manni að stemma ætti stigu viö þess-
ari eitrun.”
Raddir
lesenda
Það virðist vera nauðsynlegt að koma á einhvers konar gæðamati á ibúðum.
Flauefísbuxur kr. 9.500.
Gafíabuxur kr. 8.900.
Fataverzlun
Hamraborg 14 Kópavogi
Spurning
dagsins
Hvað ætlar þú að
borða um páskana?
Skafti Stefánsson bilaviðgeröamaður:
Konan ræður því alveg en maður hefur
náttúrlega sínar óskir og ég verð að
segja að svinasteikin finnst mér alltaf
bezt.
Kolbeinn Kolbeinsson nemi: Mig
langar mest í grillaða kjúklinga með
frönskum kartöflum og salati.
Sveinn Sævar Helgason vclvirki: Ég
geri ráð fyrir að borða svínakótelettur
og kjúklinga. Annars hef ég matseðil-
inn ekki handbæran.
Tryggvi Ingólfsson, vinnur á gröfu:
Ætli það verði ekki svinakiöt.
Villi Þór rakari: Svínakjöt, hangikj.
hamborgarhrygg og Orabaunir. Áður
en ég geng til matar þá verð ég að vera
mjög vel snyrtur af sjálfum mér.
Kristín Jónsdóttir hárskeranemi: Ég
ætla að borða kjúkling, einhvern pott-
rétt, hrygg og læri og svo ætla ég að
drekka kók með öllu saman.