Dagblaðið - 18.04.1979, Page 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979.
2
r
hArgreiðslustofan
■ ■
OSP
MIKLUBRAUT
OPNUM FÖSTUDAG
HEFUR OPNAÐ ÞAR SEM AÐUR VAR
Hin heilaga krossferð gegn kláminu í sjónvarpinu gæti reynzt nokkuð erfið.
BETRITÍÐ
— með klámlaus blóm íhaga
SMJÖFL
JOR
►M/ÖR
M/ÖR
Enginn stimplll er á smjörumbúðun-
um, sem gefur tU kynna hvenær
síðasti söludagur sé. Skyldi það ekki
vera smjörfjaUinu góða að kenna?
AUKK) FITUINNIHAU)
minna geymsluþol
Kjartan Björnsson hringdi:
„Éggat nú bara ekki orða bundizt
þegar ég sá auglýstan nýjan 36%
rjóma. Hingað til höfum við keypt
33% rjóma, en nú hefur fitu-
innihaldið verið aukið til þess að
auðveldara sé að þeyta hann. En því
meiri fitu sem mjólkurvara
inniheldur því hættara er henni við
að þrána og skemmast.
Einnig langar mig til þess að
spyrja hvemig standi á því að smjör-
framleiðendur eru ekki skyldugir til
að stimpla síðasta söludag á um-
búðirnar. Ég hef keypt smjör í þeirri
góðu trú að það væri ætt. Þegar ég
hins vegar ædaði að fara að borða
það, reyndist það byrjað að þrána.
Nú er svo komið að ég kaupi
hreinlega ekki smjör heldur bara
smjörlíki.
Mér datt því í hug þegar ég sá
auglýst kryddsmjör að tekið væri upp
gamalt og þrátt smjör og það krydd-
Svefnherbergishúsgögn — Mesta úrvalið
INGVAR OG GYLFI
GRENSÁSVEGI3 108 REYKJAVÍK, SÍMI: 81144 OG 33530.
Sérverzlun með rúm
að til þess að breiða yfir þráa-
bragðið. Getur það verið?
Við verðum að athuga það að til
þess að mjólkurvara þráni ekki
verðum við að geyma hana við mjög
lágt hitastig.”
HARGREIÐSLUSTOFA ASLAUGAR OLAFSDOTTUR
SIMI24596
RAGNHILDUR BJARNADÓTTIR
HJÖRDÍS STURLAUGSDÓTTIR
N2Í^
opið m r
( SÍÐASTA VETRARDAG )
KVI IMl .'l VI TI IÍ
.. IM*
FOGVUM SUMRI
J.G. skrifar:
Þriðjudaginn 20. marz birtist í DB
(Raddir lesenda) grein um sjónvarps-
dagskrána, undirrituð: Lesandi á
Norðurlandi. Þar segir m.a.: „Síðan
sá frægi atburður er Kvikmyndahátíð
nefnist heiðraði höfuðborgina á sl.
ári hefur ekki sézt klám á
skerminum, oger þaðvel....”
Það hafa vafalaust fleiri en ég og
Norðlendingurinn staðið í þeirri sælu
trú, þá er klámalda sjónvarpsins
hjaðnaði, að nú væri runnin upp
betri tíð með klámlaus blóm í haga.
En Adam var ekki lengi í Paradís. í
gærkvöldi, 31. marz, gaf að iíta á
skerminum karlkyns humar gera ljótt
með humarkerlingu, þ.e.a.s. kven-
kyns humri, og þetta var sýnt í eins
stækkaðri mynd og tækni og tækja-
kostur sjónvarpsins framast leyfði.
Sorinn og ódámshátturinn áttu svo
sem að komast rækilega til skila.
Á klámöldutímabili sjónvarpsins
var oft á það drepið í lesendadálkum
blaðanna hversu oft væri erfítt að
svara spurningum saklausra barna og
unglinga um það hvað væri eiginlega
að ske'á skjánum þegar viðbjóðurinn
óð þar uppi með tilheyrandi stunum
og breimahljóðum. Þetta fengum við
hjónin að reyna í gærkvöldi, því
auðvitað fóru krakkarnir að spyrja
hvað krabbinn væri að brölta. ,,Ja,
sjáið þið til greyskörnin mín,” sagði
ég, „þetta er líklega, sko, eins og
þegar býflugan er að spígspora á
blóminu, og....” Hér greip konan
fram í og skipaði mér að leggja niður
svoddan dónatal við blessuð börnin.
Síðan sagði hún krökkunum að fyrir
mörgum árum hefði hún lesið grein
um krabbadýr í einhverju blaði og
þar hefði verið sagt að kvenkyns
humra klæjaði oft sérdeilislega dátt
á maganum og nú væri sköpulag
þeirra þannig að þær hefðu engin
tök á að klóra sér og þá hlypi karl-
humarinn undir bagga og klóraði
kerlu sinni á maganum og þetta gæti
hann ekki nema að bera sig til eins og
sýnt var á skerminum. Og þá dundi
reiðarslagið yfir. Næsta spurning sem
krakkaormarnir lögðu fyrir móður-
myndina sína benti ótvírætt til þess
að þau hefðu komist i allnáin kynni
við skráargatið á hurð hjónaher-
bergisins.
Ég ætla ekki að lýsa þeim orða-
skiptum seni á eftir fóru, en þegar
þeim loksins lauk sór ég við skegg
spámannsins að ég skyldi eftirleiðis
beita mínum vesölu kröftum til að
berjast gegn sjónvarpskláminu. Við
öll sem höfðum siðsamar artir og
ekki erum ofurseld óhollum vessum
verðum að sameinast í þessari bar-
áttu. Ég trúi ekki öðru en að í röðum
okkar andklá.uinga finnist einhver sá
Khomeini sem geti verið leiðtogi
okkar og lei: okkur til sigurs í hinni
heilögu krossferð gegn kláminu i
sjónvarpinu.
VIDEO
kynnir TOP 20 - vinsœldalista
ÓDALS.
Láttu sjá þig
Jörðin Flaga í Breiðdal
er til sölu nú þegar og laus til ábúðar um
næstu fardaga.
Nánari upplýsingar gefur Sigurbjöm Gíslason
Flögu, sími um Breiðdalsvík.
Til sölu
•vörubílar og Massey Ferguson traktorsgrafa.
Uppl. í síma 44174 eftir kl. 7 á kvöldin og til
hádegis laugardaginn 21. apríl nk.