Dagblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979. 5 Loftmengunin í Njarðvík: Ekki hægt að standa lengur móti háværum kröfum — segir Albert K. Sanders bæjarstjóri íNjarðvík ,,Við viljum að forráðamenn Fisk- iðjunnar hf., standi við góð orð og loforð sem þeir gáfu á fundi síðastliðið haust um að fullnægjandi hreinsitæki yrðu komin upp fyrir vorið,” sagði Albert K. Sanders bæjarstjóri í Njarð- vík í samtali við DB í gær. Hann sagði að staðið hefði í stríði um lyktmengun frá loðnubræðslunni í mörg ár og rekstur hennar ávallt verið á undanþágu alveg frá þvi árið 1974, þeg- ar hún var lokuð i nokkra mánuði vegna þessa. Þá hefðu forráðamenn fyrirtækisins lofað úrbótum en mikill dráttur orðið á því að staðið væri við þau fyrirheit. „Þessi samþykkt bæjarstjórnar Njarðvikur, þar sem skorað var á heil- brigðisnefnd að leyfa ekki vinnslu á hráefni sem bærist til verksmiðjunnar eftir 15. maí næstkomandi, var gerð vegna þess að okkur sýnist að dráttur verði á að hreinsitækin verði komin í gangið,” sagði Albert K. Sanders. „Bæjarstjórn Njarðvíkur telur á- stæðurnar fyrir þeim drætti mál for- ráðamanna Fiskiðjunnar og telur sig ekki geta lengur staðið á móti háværum kröfum íbúa um úrbætur.” Bæjarstjórinn var spurður hvort nokkuð væri kunnugt um að loft- mengun frá loðnubræðslunni hefði valdið fólki beinu heilsutjóni. „Nei, mér er ekki kunnugt um slíkt,” sagði Albert K. Sanders. „Hins vegar hef ég það eftir þeim hús- mæðrum, sem fremstar stóðu fyrir aðgerðum og undirskriftasöfnun í lok marz síðastliðsins, vegna mengunar frá bræðslunni, að ástandið hafi í vetur verið þannig langtímum saman að ekki hafi verið viðlit að setja ungböm út fyrir hússinsdyr.” Bæjarstjórinn sagði að norðan- og 1» Fiskiðjan í Njarðvík spýr mekkinum — eins og bræðslumar gera víða um land- ið. Nú hafa ibúar kaupstaðarins hins vegar fengið nóg. DB-mynd ÁPJ. norðaustanátt hefði verið mjög iðjunni því verið mjög þrálátur yfir ríkjandi í vetur og reykurinn frá Fisk- byggðinnií Ytri-Njarðvík. -ÓG. Höfum unnið sleitulaust að úrbótunum — eftir því sem fjármagn hefur leyft — segir Gunnar Ólafsson forstjóri Fiskiðjunnar hf. í Njarðvík „Við hugleiddum þann möguleika að stöðva alla bræðslu á úrgangs- loðnu frá frystihúsunum hér í ná- grenninu, þegar loðnufrysting hófst, en töldum ekki stætt á því,” sagði Gunnar Ólafsson forstjóri Fisk- iðjunnar hf. í Njarðvík í viðtali við DB í gær. Bæjarstjórn Njarðvíkur samþykkti fyrir páska áskorun til heilbrigðisnefndar kaupstaðarins um að leyfa ekki vinnslu á hráefni sem bærist eftir 15. mai til Fiskiðjunnar h/f, sem er loðnubræðsla. Er það vegna mikillar loftmengunar sem hefur angrað íbúa Njarðvíkur og Keflavíkur, þegar vindur stendur á byggðirnar. „Úrgangsloðnan frá frystihúsunum lyktar mun verr en önnur loðna, auk þess sem mun erfiðara er að vinna hana,” sagði Gunnar Ólafsson. ,,Við töldum aftur á móti ekki stætt á að neita að taka á móti henni vegna þess að við töldum ekki bætandi á slæmt ástand at- vinnufyrirtækjanna hér á Suður- nesjum. Þó svo kannski megi losna við almennan fiskúrgang annað I bræðslu hefðu frystihúsin ekki getað komið frá sér þeirri loðnu sem gekk af við frystinguna og Suðurnesin því að mestu misst af þeirri búbót sem sú vinnsla er.” Gunnar Ólafsson sagði að sér fyndist skrýtið að frétta af slíkum samþykktum, sem bæjarstjórn Njarðvíkur gerði og vörðuðu fyrir- tækið svo mjög, fyrst í útvarpi. Taldi hann það nokkuð sýna þau vinnu- brögð sem opinberir aðilar hefðu beitt í þessum mengunarmálum gagnvart Fiskiðjunni. Sagði hann slikum aðferðum hvergi hafa verið beitt annars staðar. „Við höfum unnið að úrbótum sleitulaust í þrjú ár eins og fjármagn hefur leyft og erum nú um það bil hálfnaðir með framkvæmdir sem munu kosta á milli 700 og 800 milljónir. Sú leið sem ákveðið var að fara hjá okkur var að taka upp gufu- þurrkun á mjölinu og siðan brenna þann litla úrgang sem eftir verður. Er þetta aðferð sem reynzt hefur vel i Noregi og Danmörku. Pantaður hefur verið gufuþurrkari og nýr gufu- ketill vegna þessa. Afhending hefur aftur á móti dregizt nokkuð vegna fjármagnsskorts en framkvæmdum á að öllu óbreyttu að verða lokið næsta haust, það er að segja ef ekki verður búið að loka fyrirtækinu.” Gunnar Ólafsson forstjóri sagðist vilja benda á að lokum að vegna þess- ara nýframkvæmda hefði orðið að sameina tvær fyrri framleiðslulínur í eina og hefð það valdið á milli 20 og 30% framleiðslurýrnun. -ÓG. jiiv e rp leikfanga verzlun LAUGAVEG118 FLUG- DREKAR GLÆSI LEGT ÚRVAL LEIK- FANGA FYRIR ALLA ALDURS FL0KKA B0LTAR SIPPUBÖND FÖTUR 0G SKÓFLUR 0GMARGT MARGT FLEIRA Mikið úrvalaf leikföngum til sumargfafa i/ p rp a ol' LAUGAVEG118 SIMAR: 11135 0G14201

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.