Dagblaðið - 18.04.1979, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979.
1 Arkitekt
Þróunarstofnun Reykjavíkurborgar óskar að
ráða arkitekt til starfa hið allra fyrsta. Æski-
legt er að viðkomandi hafi starfsreynslu á sviði
skipulagsmála. Umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf skulu hafa borizt
Þróunarstofnuninni Þverholti 15 eigi síðar en
30. apríl nk. og eru nánari upplýsingar veittar
þar.
Þróunarstofnun Raykjavikuiborgar.
Tilkynning um
lóðahreinsun í Reykjavík,
vorið 1979.
Samkvæmt ákvæðum heilbrigðisreglugerðar,
er lóðaeigendum skylt að halda lóðum sínum
hreinum og þrifalegum og að sjá um að lok séu
á sorpílátum.
Umráðamenn lóða eru hér með minntir á að
flytja nú þegar brott af lóðum sínum allt sem
veldur óþrifnaði og óprýði og hafa lokið því
eigi síðar en 14. maí nk.
Að þessum fresti liðnum verða lóðirnar
skoðaðar og þar sem hreinsun er ábótavant
verður hún framkvæmd á kostnað og ábyrgð
húseigenda, án frekari viðvörunar.
Þeir sem kynnu að óska eftir sorptunnum og
lokum, hreinsun, eða brottflutningi á rusli, á
sinn kostnað, tilkynni það í síma 18000 eða
13210.
Úrgang og rusl skal flytja á sorphauga við
Gufunes á þeim tíma sem hér segir:
Alla virka daga frá kl. 8.00 — 21.00
Á helgidögum frá kl. 10.00 —18.00
Rusl sem flutt er á sorphauga skal vera í
umbúðum eða bundið.
Ekki má kveikja í rusli á sorphaugunum og
hafa ber samráð við starfsmennina um losun.
Sérstök athygli skal vakin á því, að óheimilt er
að flytja úrgang á aðra staði í borgarlandinu.
Verða þeir látnir sæta ábyrgð sem gerast brot-
legir í því efni.
Gatnamélastjórinn (Reykjavfk.
Hreinsunardeild
Deildar meiningar
um þorskveiðibanniö
Eins og greint hefur verið frá í
fréttum hefur sjávarútvegsráðuneytið
ákveðið að frá og með 1. maí nk.
verði afturkölluð öll þorskfiskneta-
veiðileyfi á svæðinu frá Eystrahomi
vestur og noröur um að Horni.
Afturköllun þessi á leyfum tekur til
allra báta sem veiðar stunda fyrir
Suður- og Vesturlandi á vertíðinni á
svæðinu frá Eystrahorni og að Horni
án tillits til þess hvaðan þeir eru
gerðir út. Samkvæmt ákvörðun þess-
ari er síðasti veiðidagur þessarar
netavertíðar 30. apríl nk. á svæðinu
fyrir Suður- og Vesturlandi. Dag-
biaðið hafði samband við nokkra
talsmenn útvegsmanna og innti þá
álits á þessari ákvörðun ráðu-
neytisins, en fram hefur komið að um
hana eru deildar meiningar.
-GAJ-
Ekki skynsamlega
að þessu staðið
— segir Stefán Guðmundsson, formaður
Útvegsmannafélags Norðurlands
„Mér finnst að ekki hafi verið
skynsamlega að þessu staðið,’.’ sagði
Stefán Guðmundsson, formaður Út-
vegsmannafélags Norðurlands, í viðtali
við fréttamann DB í gær.
„Ég held að þaö hafi verið mis-
skilningur að gefa loðnubátunum þessa
heimild til þorskveiða á sama tíma og
stöðva veröur önnur skip. Ég held að
það hefði verið skynsamlegra að stöðva
á hrygningartímanum.
Én hér er auðvitað um meira en
veiðarnar að ræða. Það er ljóst að
byggðarlög eru mjög misjafnlega undir
þetta búinatvinnulegaséð.
Það er ljóst að menn verða náttúr-
lega að taka þessu stoppi. En það má
líka hafa huga hvað búið er að gera í
friðunarmálum. Hér fyrir Norðurlandi
er til dæmis búið að friða heilu haf-
svæðin, sem eru lokuð allt árið.
Stækkun möskvanna er heldur engin
smáfriðun og fækkun erlendra skipa.
Allt er þetta gífurleg friðun. En mér
finnst ekki hafa verið rétt að þessu
staðiö núna,” sagði Stefán.
-GAJ-
Kemur illa
við alla
— segirGuðmundur
Guðmundsson,
formaður
Útvegsmannafélags
Vestfjarða
„Við tökum þessu bara eins og að
höndum ber,” sagði Guðmundur
Guðmundsson, formaður Útvegs-
mannafélags Vestfjarða.
„Við erum búnir að klára þetta
vikustopp okkar. Þetta kemur
auðvitað illa við alla, en við eigum
stærsta hlutann eftir, þ.e. sjötíu daga í
sumar. Það verður bara að koma í ljós
hvemig þetta fer,” sagði Guðmundur
ogvildiekkihafaumþaðfleiri orð.
-GAJ-
Allir vilja
f riða en
enginn
vill spara
við sig
— segirJóhann Sig-
urðsson, formaður
Utvegsmannafélags
Austfjarða
„Ég held að dellan hafi fyrst og
fremst verið að setja loðnubátana á
hrygningarstofninn,” sagði Jóhann
Sigurðsson, formaður Útvegsmanna-
félags Austfjarða.
„Þetta varð til þess að gera marga
óánægða. Þetta voru bátar, sem yfir-
leitt voru búnir að fiska mjög vel.
Annars held ég að málið sé það að allir
vilja friða en enginn vill spara neitt við
sig. Annars er þetta mál orðið svo
flókið milli landshluta að það er erfitt
um það að ræða. Ég hef lýst því yfir
áður að ég tel að komast hefði mátt
hjá öllum þessum regiugerðum ef tíma-
bilið hefði verið miðað við 1. maí og út
september og aðeins dagvinna leyfð í
hverju húsi. Þá hefði skömmtunin
komið af sjálfu sér,” sagði Jóhann.
-GAJ-
Mölvuðu allt
mélinu smærra
„Að koman aö féiasheimilinu að
Staðarfelli var vægast sagt subbuleg,”
sagði Kristinn Jónsson lögreglumaður
á Skaröi í viðtali við fréttamann DB í
Búðardal, önnu Flosadóttur.
Aðfaranótt mánudagsins höfðu
innbrotsþjófar fundið sér járnkarl fyrir
utan félagsheimilið að Staðarfelli á
Fellsströnd og brutu þeir útidyrahurð í
spað. Þegar inn var komið hófust þeir
handa um að mölbrjóta hurðir, salerni
og rúður. Ljósabúnaður var slitinn úr
stæðum og þau jafnvel höfð á brott.
Húsmunum var grýtt út um allt og
þeir brotnir. Síöan kórónuðu þeir
ósómann með því að gera þarfir sínar í
pottana í eldhúsinu og á öðrum frum-
legum stöðum.
Lögreglan á Akranesi handsamaði i
fyrrinótt tvo pilta sem grunur leikur á
að hafi verið þarna að verki.
-AF/BS.
19 keppa
um titil
skóiaskák-
meistara
fslandsmótið í skólaskák hófst i gær
á Kirkjubæjarklaustri og keppa þar nú
nítján grunnskólanemar um titiiinn
skólaskákmeistari ísiands 1979.
Keppnin nú er lokaspretturinn í langri
keppnisröð.
Keppninni lýkur á föstudag en
keppt er í tveimur flokkum.
-ÓV.