Dagblaðið - 18.04.1979, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. APRlL 1979.
13
Hafrannsóknastofnun:
ÍSLENZKIR FISKIFRÆB-
INGAR ATVINNULAUSIR
íslendingar mega verulega fara að
gæta sín ef þeir eiga ekki að fara að
dragast aftur úr nágrannaþjóðunum
hvað varðar tæknilegan útbúnað til
fiski- og hafrannsókna. Hingað til
hefur framlag íslands í rannsóknum
á þessum sviðum fyllilega verið
þolanlegt en nú telja sérfræðingar
Hafrannsóknastofnunar að hætta sé
á að við drögumst aftur úr og þá á
tæknisviðinu.
Þetta kom fram í orðum þeirra
Jóns Jónssonar forstjóra Hafrann-
sóknastofnunarinnar og Svend Aage
Malmbergs haffræðings á fundi með
blaðamönnum í gær.
Einnig upplýstist að stofnunin
hefur ekki fengið leyfi til að ráða nýtt
starfsfólk um árabil og staðreyndin
mun vera sú að nú ganga islenzkir
fiskifræðingar um atvinnulausir. At-
vinnuhorfur þeirra sem nú nema
haf- og fiskifræði munu því ekki
verða taldar góðar. Einkum mun það
lakara hjá þeim sem nema greinar
sem ekki fjalla beint um veiðar og
vinnslu hráefnis, sem beinan hagnað
gefa. Þar mun þó kannski vera mest
þörfin að áliti forráðamanna Haf-
rannsóknastofnunar.
Sérfræðingar hjá Haf-
rannsóknastofnun eru nú 22 og
rannsóknarmenn einnig 22. Jón
Jónsson forstjóri sagði á fundinum í
gær að hann teldi ekki óeðlilegt að
rannsóknarmenn væru um það bil
tveir á hvern sérfræðing hjá stofn-
unni til að sem mestur árangur yrði af
störfum þar.
Svend Aage Malmberg haf-
fræðingur benti á að raunverulega
væri bæði rými á skipum Haf-
rannsóknastofnunar og í húsakynn-
um stofnunarinnar við Skúlagötu
—á meðan við drög-
umst tæknilega
aftur úr nágranna-
þjóðunum og
rannsóknaverk-
efnin bíða íhafinu
umhverfis landið
fyrir fleiri starfsmenn. Fyrir þáværu
næg verkefni við að rannsaka þessa
mestu auðlind okkar Islendinga sem
hafið með botni og öllum lífverum á
honum og i sjónum væri. Til þess
skorti aftur á móti fjármagn og bætt-
an tækjabúnað.
Á fundinum kom Iram að sum
rannsóknaskip Hafrannsókna-
stofnunar væru verr búinn fiskleitar-
tækjum en venjulegur islenzkur
fiskibátur. -ÓG.
Sumardagurinn fyrsti:
Útihátíð og tívolí í
miðbæ Reykjavíkur
Skátar munu standa fyrir útihátíð
og „tívolí” í miðborg Reykjavíkur á
sumardaginn fyrsta. Dagskráin, sem
verður nokkuð fjölbreytt, hefst að
venju með skrúðgöngum og verður
gengið frá Hlemmi og Melaskóla að
Lækjartorgi. Skrúðgöngurnar hefjast
kl. 13.45 og útiskemmtun hefst síðan á
pöllum á Lækjartorgi, Hallærisplani
og Austurvelli ki. 14.30.
Þar skemmta m.a. Tóti trúður,
Baldur Brjánsson, Barnasönghópurinn
og fl. Félagar úr hestamannafélaginu
Fáki koma síðan í heimsókn og gera
smásprell á hestum sínum. Þá koma
menn úr Fornbílaklúbbnum og i
heimsókn og vænta má að þar verði
mikið um glæstar drossíur.
Á pallinum við Austurvöll verður
síðan danssýning og ýmis skemmtiat-
riði, m.a. leikur Lúðrasveit Árbæjar og
Breiðholts. Tívolí verður með
svipuðum hætti og í fyrra. Ýmislegt
fleira verður til skemmtunar, m.a.
uppákoma áTjörninni.
Fyrir skrúðgöngunum fara Lúðra-
sveitin Svanur og Lúðrasveit verka-
lýðsins. Ef vel viðrar má gera ráð fyrir
að hátíðahöldin i Reykjavík standi til
Húnavaka hálfnuð:
„Þeir eru slyngir Húnvetningar...”
f kvöld, síðasta vetrardag, stíga þeir
Húnvetningar dans fram eftir nóttu í
félagsheimilinu á Blönduósi en það er
fyrsti dansleikurinn á Húnavöku sem
nú hefur staðið frá því á laugardag
fyrir páska.
Dansleikurinn hefst kl. 22.00 en fyrr
í kvöld munu Vökumenn, karlakór,
samkór o. fl. syngja en Húnvetningar
hafa löngum verið þekktir fyrir að geta
tekið stemmur fyrirhafnarlítið.
Á morgun, sumardaginn fyrsta,
verður sumarskemmtun barnaskólans
kl. 14.00 og kl. 20.30 sýnir Leikfélag
Blönduós leikritið Ég vil fá minn
mann. Leikritið var frumsýnt 10. marz
við mikla hrifningu. Kl. 21.00 verður
svo unglingadansleikur í félags-
heimilinu og leikur hljómsveitin
R.O.P. fyrir dansi.
Á föstudag verður aftur leiksýning
og dansleikur um kvöldið en á laugar-
dag rennur upp lokadagur vökunnar.
Kl. 15.00 verður Ungmennasamband
Austur-Húnvetninga með skemmtun:
Glens og gaman, og er hún sérstaklega
ætluð börnum og unglingum. USAH
verður einnig með bændavöku kl.
20.30 um kvöldið. Þar verður meðal
efnis erindi Ólafs Sverrissonar kaup-
félagsstjóra, Ómar Ragnarsson fer með
gamanmál, Grímur Lárusson frá
Grimstungu og Magnús Jóhannsson,
báðir í kvæðafélaginu Iðunni, kveða og
fluttur verður Húnavökuhúmor.
Hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar leikur á lokadansleiknum sem
hefst kl. 22.00.
Alla daga vökunnar verða opnar
tvær sýjúngar. Samband austur-
húnvetnskra kvenna er með listsýningu
í kvennaskólanum og Magnús
Þórarinsson frá Hjaltabakka með mál-
verkasýningu I fundarherbergjum á efri
hæð félagsheimilisins. Þær eru opnar
frá kl. 14.00 til 22.00alladagana.
-HP.
! » á ijl jHl mmm
JMJ m. >!U
Tilboð óskast
í utanhússmálningu á Hvassaleiti 6, 8 og
10. Nánari upplýsingar eftir kl. 8 í kvöld
og næstu kvöld í síma 37342.
HÚSTRÉ S/F
Ármúla 38, Reykjavík. Sími81818. Póstsendum um landallt