Dagblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 1
f
i
i
i
5. ÁRG. - LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979 - 96. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Öryggisgæzlan ístakasta lagi á Vellinum:
TASKAN UMSVIFALAUST
SPRENGD í TÆTLUR
—og gamall landflótta Tékki situr með sárt ennið
Öryggismál þjóðar okkar hafa oft
verið til umræðu að undanfömu og
margar sögur sagðar af vasklegri
framgöngu okkar manna og
aðstoðarmanna við varnir landsins.
Nokkurrar taugaveiklunar getur þó
gætt í varnaraðgerðum og vandséð
hver millivegurinn er á stundum eins
og sagan sýnir.
Landflótta Tékki á sjötugsaldri
sem búið hefur í Noregi frá því að
innrásin var gerð og hefur norskt
vegabréf tók sér far með Flugleiðum
um Keflavík til Bandaríkjanna fyrir
skömmu.
Gamli maðurinn ætlaði að hitta
fyrir ættingja og vini í Bandaríkjun-
um, en var lítt fær um að tjá sig á
enska tungu og alls ekki vanur
neinum ferðalögum, né kunnugt um
alls kyns reglur í sambandi við þau.
Er komið var til Chicago kom í ljós
að hann hafði ekki vegabréfsáritun
og slíku taka þeir þar ekki léttilega.
Var gamla manninum umsvifalaust
snúið út í þotu Flugleiða á ný, öll
skilríki hans afhent flugstjóranum og
mátti hann prísa sig sælan að sleppa
með það.
Hann hlaut þó góða aðhlynningu
um borð í vélinni, enda kenndu menn
i brjósti um þennan umkomulausa
gamla mann.
Er komið var til Keflavíkur hafði
þotan varla stöðvazt er yfirmaður í
Tollgæzlunni vindur sér inn og spyr
með þjósti hvar hann sé! Hvar hann
sé, þessi hættulegi? Hvort hann hafi
mikið verið „á fartinni” í vélinni,
mikið farið á klósett og þess háttar?
Embættismanninum var bent á
gamla manninn sem þegar var færður
til yfirheyrslu hjá yfirvöldum á Vell-
inum. Þar tók ekki betra við.
Taska hans hafði í ógáti verið tekin
af þotunni í Keflavík og orðið þar
eftir. Brátt tóku menn að veita henni
eftirtekt og þ>að sem meira var: menn
heyrðu ekki betur en frá henni bærist
,,tikk, tikk”!
Tollgæzlumaðurinn viðhafði engin
vettlingatök, kallaði til sprengjusér-
fræðinga og aðra fræðinga hersins og
skotliðasveit. Eftir litlar vangaveltur
var taskan drifin út í skafl fyrir utan
og skotin þar í tætlur!
Ekkert kom í Ijós sem skaðlegt
hefði reynst (nema tætlur af vekjara-
klukku), en samkvæmt upplýsingum
DB reynist erfitt fyrir Flugleiðir.ið
bæta gamla manninum tjónið. Þarna
voru horfnar persónulegar eigur og
myndir af ættingjum.
HP.
A
Vestmannaeyjar:
Miklir
mjólkur-
flutningar
með f lugi
ígær
Það hefur verið mikið um það að
undanförnu að menn hafa verið að
birgja sig upp af vörum en engin
könnun hefur verið gerð á vöru-
skortinum. Við munum um helgina
skoða hvaða leiðir eru færar,” sagði
Páll Zóphöníasson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, í samtali við DB
síðdegisígær.
,,í dag hafa verið flutt hingað 18
tonn af vörum, aðallega mjólkur-
vörur og það dugar væntanlega
eitthvað fram í næstu viku. Við
vorum heppnir að það var flug í dag.
Veðrið var hagstætt. Annars hefði
útlitið ekki verið glæsilegt,” sagði
Páll. -GAJ-
v:
-te ■
Áhöfnin á Benzinum eftir viðkomu í útibúi þjóðarvcrzlunarinnar.
DB-mynd RagnarTh.
Með Camus við lærið
— kaupstaðarferð Flensborgara ídimmission
Það var dimmission hjá krökkunum
í Flensborg og mikið um dýrðir, svo
sem vænta mátti. Þeir gaflarar
heimsóttu höfuðborgina í tilefni
dagsins og spókuðu sig í sól og
vorviðri.
Klæðnaðurinn var með ýmsu móti'
og í skrautlegra lagi. Þar fóru trúðar,
nunnur og ýmislegt fleira af mektar-
slekti.
Dagblaðið hitti fyrir áhöfn á
dýrindis Benz sem m.a. átti viðkomu á
Snorrabraut, þar sem vitjað var útibús
þjóðverzlunarinnar. Eitthvað var þar
höndlað við faktorinn og búðarlokur
hans.
Ferðinni var siðan heitið í
miðbæinn, þar sem m.a. sáust
karlnunnur á ferð með Camus koníaks-
fleyg, bundinn við lærið ofanvert.
Gleðilegar prófannir krakkar, eða
gleðilega rest eins og skáldið sagði.
-JH.
Karlnunnur með Camus fleyg við lærið
ofanvert.
DB-mynd Sv. Þorm.
t