Dagblaðið - 28.04.1979, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979.
2
ENGIN FYRIRSTAÐA
— hjá starfsmönnum Vegagerðarinnar
Sleingrímur hringdi:
Mánudaginn 23. apríl las ég i Dag-
blaðinu frásögn manns er hafði orðið
veðurtepptur í Skagafirði föstu-
daginn langa vegna þess að Vegagerð
ríkisins ruddi ekki Öxnadalsheiði. Út
úr svari Hjörleifs Ólafssonar get ég
ekki annað lesið en að starfsmenn
Vegagerðarinnar hafi ekki viljað
ryðja veginn. Ég var farþegi í lang-
ferðabíl Norðurleiðar og varð veður-
tepptur þarna á sama stað. Öku-
maður langferðabílsins hringdi á
ýmsa staði til þess að fá veginn
ruddan og hafði m.a. samband við
einn starfsmann Vegagerðarinnar á
staðnum og virtist engin fyrirstaða
vera hjá þeim að ryðja. Aftur á móti
gekk ekkert að fá yfirboðara þessara
manna til þess aðlátaundan.
Það er erfitt að komast leiðar sinnar f miklum snjó
FENGU EKKERT KALL
AÐ SUNNAN
—en vildu vinna
Óskar Stefánsson hringdi: sonar hjá Vegagerðinni í sambandi
Mig langar til þess að gera við ferðalanga sem tepptust í Skaga-
athugasemd við svar Hjörleifs Ólafs- firði fyrir páskana. Það vill svo til að
ég var bifreiðarstjóri langferðabílsins
frá Norðurleið sem tepptist þarna. Ég
hafði oftar en einu sinni samband við
vegagerðarstarfsmenn á Akureyri og
voru þeir reiðubúnir til hjálpar og
biðu eftir kalli að sunnan frá Vega-
gerðinni. Það kall kom aldrei, þess
vegna sátum við föst, ekki vegna þess
að starfsmenn Vegagerðarinnar vildu
ekki vinna þennan dag.
Óheyrileg hækkun olíuverðs
— svlðsettblekking
Magnús Gíslason Háaleitisbraut
skrifar:
Það er ekki alveg laust við að
nokkuö verði vart við yfirdrepsskap
í afstöðu sumra fjölmiðlanna þegar
fréttir berast um að nýjar hækkanir á
olíunni séu bara sjálfsagður hlutur,
án þess að rætt sé um orsök eða af-
leiðingar. Það er eins og hlakki í
sumum og málið gjarnan afgreitt
með þvi að allt sé þetta bara
aröbunum að kenna. Svo einfalt er
þó málið ekki og hér er, eins og í svo
mörgum málum öðrum, um sviðsetta
blekkingu að ræða gagnvart almenn-
ingi.
íslenzka ríkið, eitt allra ríkja hér
á Vesturlöndum, leggur nú hvorki
Raddir
lesenda
meira né minna en nær 60% ofan á
bensínverðið og eftir því sem heims-
markaðsverð þessarar vöru hækkar,'
verður hlutur rikisins meiri sam-
kvæmt hinu neikvæða prósentulög-
máli sem hér gildir og er nú raunar að
eyðileggja okkar efnahagskerfi.
Það skyldi þó aldrei vera að
sitthvað mætti líka finna sem betur
mætti fara hjá sölu- og dreifingar-
aðilum hér á þessari nauðsynjavöru.
Ekki verður i fliótu brapði scð nð þar
gæti sparnaðar eða aðhalds þó
allt sé sagt á siðasta snúningi með að
bera sig. Góðar og vandaðar ilælur,
sem sýndust fullkomlega þjóna sínu
hlutverki, eru teknar úr notkun, og
nýjar tölvustýrðar settar i staðinn
sem kosta jafnvel tugi milljóna og
kunnugir starfsmenn segja að spari
síður en svo vinnukraft. Nýjar af-
greiðslustöðvar eru settar niður þar
sem þeirra sýnist engin þörf sem ber
vott um óeðlilegt bruðl á fjármunum
og hreina sóun. Einhver spurði nú á
dögunum svo fávíslegrar spumingar:
Hver fylgist með því magni sem fyrir
er af olium og bensíni þegar þessar
vörur koma með stórhækkuðu verði
eftir nokkra daga, verða það ekki
bara trúnaðaraðilar sjálfra
olíufélaganna? Spyr sá er ekki veit.
Mér er til efs að það þekkist í
nokkru siðuðu landi að hinn almenni
bíleigandi sé féflettur á jafnskefja-
lausan hátt og nú er gert hér á landi.
Fyrst er fólk matað með þrotlausum
auglýsingaáróðri til að leggja nú fé
sitt í kaup á rándýrum, marg-
tolluðum og skaltlögðum bílum,
scm eru kontnir óralangt frá
‘annvirði og án þess að til komi
skynsamlegt mat á aðstæðum. Það er
vitað að stöðugt eru fluttir inn í land-
ið bílar sem aldrei hafa átt hér heima
enda ekki gerðir fyrir hérlendar
aðstæður. En frelsið skal gilda á’
meðan það þjónar gróðahyggju
fárra.
í skjóli þess að bíllinn er nú
orðinn eitt hið nauðsynlegast tæki
mörgum einstaklingnum, gjarnan
forsenda þess að hann geti uppfyllt
helztu nútíma samfélagskröfur,
virðist sem hinir opinberu aðilar
neyti allra ráða til skattpíningar. Er
nú ekki annað að sjá en hinir
almennu bifreiðaeigendur í landinu
Markús B. Þorgeirsson fyrrv. skipstjóri
Markús B. Þorgeirsson
hlaut viðurkenningu
—f rá öryggiseftirliti ríkisins
Sv. Ó. hringdi:
í morgun, 26. apríl, hlustaði ég á
Morgunpóstinn hjá þeim Páli
Heiðari og Sigmari B. Haukssyni.
Þættir þeirra hafa vakið athygli
mína og kom þessi þáttur mér til þess
að hugsa til sjómannsins fyrrverandi í
Hafnarfirði, Markúsar B. Þorgeirs-
sonar, sem hefur i áratugi, svo lengi
sem ég þekki til hans starfa á sjónum,
verið hvassasti og jafnframt drengi-
legasti málsvari á sviði öryggismála á
landi ogásjó.
Á blaðsíðu 13 i Þjóðviljanum í
morgun er þess getið að Markús hafi
fengið viðurkenningu frá öryggis-
eftirliti ríkisins fyrir handavinnu sina
sem á að nota við skipshlið og í skip-
um til að minnka farmtjón. Það
sem vakti athygli mína var þegar
þeir Sigmar og Páll Heiðar lásu af
þessari blaðsíðu að þeir Kristján frá
Djúpalæk og Þorkell Sigurbjörnsson
hefðu hlotið viðurkenningu úr Tón-
menntasjóði kirkjunnar. Þess var
þá ekki getið að Markús hefði hlot-
ið þessa viðurkenningu frá
Öryggiseftirlitinu. Ég þekki til starfa
Markúsar sem skipsfélaga á
togurunum um árabil og ég hef þá trú
að sorgarstundum í kirkjunum
myndi fækka ef öryggismálum hans
væri meiri gaumur gefinn í fjöl-
miðlunum en gerl er. Þá yrði engin
molla i því morgunútvarpi eða matar-
uppskriftir misjafnlega tilreiddar ef
Markús ætti smástund með slíkum
höfðingjum sem þeir Páll Heiðar og
Sigmar B. eru. Þessu er hér með
komið á framfæri með þökkum fyrir
Raddir lesenda í Dagblaðinu sem ég
ann mikið sem einn af kaupendum
blaðsins.
UTfiAH
LITRAR
Er ekki þegar orrtinn munaður að eiga bil?
verði nauðbeygðir innan tíðar að hagsmunamál ef þeir vilja rétta hlut
hugsa fyrir öfiugri samstöðu um sín sinn.
■ o NýkomnirHÖGC 5DEY FAR
iHlt 1 eftirtaldar bif reidir: BR0NC0, BLAZER, CHEROKEE, L. ROVER, RANGE ROVER, HUNTER, CORTINA, MINI, MOSKVITCH, MAZDA, ESCORT, AVENGER, TAUNUS VOLGA, RAMBLER, 17M, COMET, CHEVROLET, V0LV0, V W, VIVA, FIAT DODGE, M. BENZ O.FL.
ulll' G- S« varahiutir Ármúla24— Símí36510 Póstsendum