Dagblaðið - 28.04.1979, Page 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1979.
a
23
I
Útvarp
Sjónvarp
NÚTÍMASTÚLKAN millie
— sjónvarp í kvöld kl. 21.55:
I biðilsleit
í stórborginni
Dans- og söngvamyndir eru sjald-
gæfar í sjónvarpinu, sem betur fer
segja margir þeir sem fengu meira en
nóg af þeim á árunumeftirseinna stríð,
því miður segja hinir. Lina rekur á
fjörur okkar i kvöld, myndina Nútíma-
stúlkan Millie, og er söngvamynda-
stjarnan Julie Andrews í aðalhlutverki.
Myndin er frá árinu 1967 og var sýnd
hér í Laugarásbíói fyrir nokkrum árum
undir nafninu Tízkudrósin Milli. Á
frummáli heitir myndin Thoroughly
Modern Millie.
Myndin greinir frá Millí litlu, sak-
lausri sveitastúlku sem kemur til stór-
borgarinnar á þriðja áratugnum. Hún
ætlar að ná sér i eiginmann og hann
ríkan. En keppinautarnir eru margir.
Loksins sér hún einn sem hún verður
ástfangin af en til þess að ná í hann
verður hún að beita öllum sínum töfr-
um og læra að verða sönn nútíma-
stúlka.
Myndin er í gamansömum tón og
nær þvi á köflum að verða virkilega
fyndin. Julie Andrews fellur mjög inn í
myndina af hinni saklausu sveitastúlku
sem er að kynnast undrum stórborgar-'
innar. Mary Tyler Moore, sem við
þekkjum sem Stúlku á réttri leið (fáum
að sjá þann þátt aftur næsta laugar-
Millí virðist þarna hafa tekizt að draga
þann útvalda upp að altarinu. James
Fox og Julie Andrcws i hlutverkum sín-
um.
dag), leikur stúlkuna sem segir Millí til í
stórborginni og fer með hana til kaupa
á viðeigandi fötum til eiginmannsveið-
anna. James Fox leikur hinn útvalda og
í öðrum stórum aukahlutverkum eru
Carol Channing og Beatrice Linnie.
Kvikmyndabiblían gefur myndinni
þrjár og hálfa stjörnu af fjórum og
segir hana vera kvikmynd fyrir alla
fjölskylduna með skemmtilegum
söngva- og dansatriðum. - DS
SVARTI-BJÖRN — sjónvarp annað kvöld kl. 22.10:
Hin dularfulla Anna Rebekka
Nýr framhaldsmyndaflokkur hefur
göngu sína í sjónvarpinu annað kvöld
og nefnist hann Svarti-Björn. Þátta-
syrpan sem er i fjórum hlutum er gerð í
samvinnu Svía, Norðmanna, Finna og
Þjóðverja. Handritin gerðu Lars Löf-
gren og Ingvar Skogsberg sem einnig er
leikstjóri. Aðalhlutverk leika Marit
Grönhaug, Björn Endreson, Kjell Stor-
moen og Áke Lindman.
Sagan gerist um siðustu aldamót, í
norðurhéruðum Noregs og Svíþjóðar.
Verið er að leggja járnbraut frá Kiruna
til Narvíkur. Þetta er umfangsmikið
verk sem veitir mörgum atvinnu.
Ung norsk kona kemur norður í at-
vinnuleit. Hún kveðst heita Anna
Rebekka og enginn veit hvað hún heitir
fullu nafni. Hún hittir flokksstjórann,
Árdals-Lalla, sem býður henni ráðs-
konustarf hjá einum vinnuflokknum.
meðan hún biður þess að geta byrjað
kynnist hún lifsþreyttum sprengi-
manni, Söngva-Sveini. Hann styttir sér
Marit Grönhaug sem Anna Rebekka
sem allir kalla Svarta-Björn.
aldur en áður gefur hann Önnu
Rebekku nýtt nafn, kallar hana Svarta-
Björn. Þó Söngva-Sveinn sé látinn
tollir nafnið við Önnu Rebekku sem.
öllum finnst mjög dularfull.
Þýðandi flokksins er Dóra Haf-
steinsdóttir. - DS
G
&
Sjónvarp
Laugardagur
28. apríl
16.30 Iþróttir. Umsjónarmaöur Bjarni Fclixson
18.30 Hclða. Fjórði þáttur. Þýöandi Eirikur
Haraklsson.
18.55 Enska knattspyrnan. Hlé.
20.00 Fréttir or veður.
20.25 Auglýsingar og dagskri.
20.30 Aiit er fertugum fært. Lokaþáttur.
Þýðandi Ragna Ragnars.
20.55 Páskaheimsðkn i Fjðlleikahús Biily
Smarts. Sjónvarpsdagskrá frá páskasýningu i
fjöllcikahúsi. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
(Evróvision — ÍTV Thames).
21.55 Nútimastúlkan Millie. (Thoroughly
Modcrn Mitlie) Gamansöm handarisk dans
og söngvamynd frá árinu 1967. Leikstjóri
Gcorge Roy Hill. Aóalhlutvcrk Julic
Andrcws. Jamcs Fox og Mary Tykr Moore.
Sagan gcrist á þriðja áratugnum. Millie er ein
af þcssum saklausu sveitastólkum, sem koma
til stórborgarinnar i leit að rikum eiginmanni.
Hún kemst brátt að því, aö samkcppnin er
horð og hættur kynast við hvcr 'ótmál. Þýð
andi Hcba Júliusdóttir
00.10 DagskrArloK.
Sunnudagur
29. apríl
17.00 Húsið á siéttunnL 22. þáttur. I úlfa-
kreppu. Efni 21. þáttar. Ungur búfræðingur,
Jósef Coulter, kemur til Hnctulundar tii að
kenna bændum maisrækt. Hann kveðst geta
fengið sáðkorn á vægu verði og býðst til aö
sækja það. Þegar Coulter kemur ekki aftur á
tilteknum tima, telja margir bændurnir að
hann hafi svikið þá, og þeir láta reiði sina bitna
á konu hans, scm er bamshafandi. Kari Ingalls
fer aö kita Coulters og finnur hann ósjálf-
bjarga undir kornvagninum, scm haföi oltið.
Þegar bændurnir frétta hvernig í öllu liggur,
eru þeir boðnir og búnir að hjálpa Coulter
hjónunum. Þýðandióskar Ingimarsson.
18.00 Stundin okkar. Umsjónarmaður Svava
Sigurjónsdóttir. Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Gagn og gaman. Starfsfræösluþáttur.
Ingvi Ingvason tæknifrteðingur og Úlfar
Eysteinsson matsveinn lýsa störfum sinum.
Spyrjendur Gestur Kristinsson og Valgerður
Jónsdóttir ásamt hópi barna. Stjórn upptöku
örn Haröarson.
21.20 Alþýðutónlistin. 10. þáttur „Rythem &
Blues”. Meðal annars sjást i þessum þætti Bo
Diddky, Jerry Wexkr. Wilson Pickctt, The
Supremes. Aretha Franklin. Stevie Wonder.
Pat Boone, Ikc og Tina Turncr, Buddy Holly
o. fl.
22.10 Svarti-Björn s/h. Sjónvarpsmyndaflokkur
i fjórum þáttum, geröur i samvinnu Svía.
Norðmanna, Þjóðverja og Finna. Handrit
Lars Löfgren og Ingvar Skogsberg, sem einnig
er kikstjóri. Aðalhlutverk Marit Grónhaug,
Björn Endrcson, Kjcll Stormoen og Akc
Lindman. Fyrsti þáttur. Sagan gerist um
síðustu aldamót. Verið er að kggja járnbraut
frá Kiruna í Norður Sviþjóð lil hafnarbæjarins
Narvíkur I Noregi. Hingaö kcmur aiis konar
fólk úr öllum landshlutum i atvinnukit. Ung
kona. sem kveðst heita Anna Rebekka, gerist
ráðskona hjá einum vinnuflokknum. Enginn
veit, hvað hún heitir fullu nafni eöa hvaðan
hún kemur, og hún hlýtur brátt viðumefniö
Svarti Björn. Þýðandi Dóra Hafsleinsdóitir
(Nordvision — Sænska sjónvarpið).
23.10 Að kvöldi dags.
23 20 Dagskrárlok.
Flestir þekkja þau Sigríði Hagalín og Guðmund Pálsson aðeins á sviði. Hér eru þau ásamt fleirum í Refunum eftir
Lillian Hellman. En í kvöld fáum við að kynnast hinni hliðinni á þeim hjónum, hversdagshliðinni.
LÍFSMYNSTUR - útvarp í kvöld kl. 20.45:
Sigríður Hagalín og
Guðmundur Pálsson
,,í þessum þætti ræði ég við leikara-
hjónin Sigríði Hagalín og Guðmund
Pálsson og dóttur þeirra, Hrafnhildi,
sem er 14 ára,” sagði Þórunn Gests-
dóttir um þáttinn Lifsmynstur sem er á
dagskrá útvarpsins i kvöld.
„Við reynum að draga upp mynd af
hversdagsmynstri fjölskyldunnar,
starfinu, tómstundunum og fjölskyldu-
liflnu.
Ég vel hjón i þessa þætti með tilliti til
þess að þau hafi jákvæð viðhorf, ég er
að leita eftir því jákvæða í lífinu. Það
hefuræxlazt svoað það fólk sem ég hef
rætt við hefur verið nokkuð kunnugt
meðal annarra hér á jandi en ég hef
ekki sett það sem neina höfuðreglu i leit
minni að fólki. Það hefur einnig æxlazt
svo að þeir sem ég hef rætt við búa i
Reykjavík og nágrenni,” sagði
Þórunn.
Þáttur hennar í kvöld verður sá
næstsíðasti því breytingar verða á dag-
skrá útvarpsins með sumarkomunni.
Þórunn sagði að það væri ekkert
ákveðið ennþá hvort hún yrði með ein-
hverja þætti í sumar þar sem ekkert er
farið að ganga frá sumardagskrá út-
varpsins. - DS
HÚSID Á SLÉTTUNNI
— sjónvarp á morgun
kl. 17.00:
Ingalls
í óveðri
Húsið á sléttunni er á dagskrá sjón-
varpsins á sunnudaginn klukkan fimm
að vanda. Er sýndur 22. þáttur og er þá
syrpan langt komin. Til er samt önnur
syrpa sem sýnd hefur verið undanfarið
í Danmörku svo ekki er vist að menn
þurfi að sjá á eftir þessum vinum sínum
í bráð.
Enda þótt þættirnir séu óheyrilega
væmnir á köflum njóta þeir mikilla
vinsælda. Böm á aldrinum 6—10 ára
virðast sérstaklega hrifin og mikið af
kvenfólki einnig. Gráturinn og gnístran
tanna i hverjum þætti er þó meira en
nóg fyrir mikið af fólki.
í þættinum á morgun er greint frá
því er Ingallsfólkið lendir í óveðri.
Matur er af skomum skammti en fjöl-
skyldan finnur sér skjól i yfirgefnu
húsi. Indiáni kemur þeim til bjargar en
hann fær ekki þakkir utanaðkomandi
aðila sem skyldi.
Hvaó langar yfefeur
helstí....
....utanferdir?
NÝTT HAPPDRÆTTISÁR 79-80
MARGIR STÓRVINNINGAR
MIÐI ER MÖGULEIKI
300 utanlandsferðir á 250 og 500 þúsund krónur hver.
Auk þess vinningar til íbúðakaupa, fullbúinn sumarbú-
staöur, bílar og fleira.
Sala á lausum miðum og endurnýjun flokksmiöa og
ársmiða stendur yfir.
Dregiö í 1. flokki 3. maí.
Bilasprautunin Varmi s.f.
Borgarholtsbraut 86. Sími 44250.
Box 180. Kópavogi.
Bílamálun.
Óskum eftir að ráða, bílamálara og aðstoðarmenn, algert skilyrði að við-
komandi hafiáhuga ástarfinu. ¥T .
Upplysingar í sfma 44250.