Dagblaðið - 02.05.1979, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 02.05.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 1979. 2 Bömin og sveitasælan — það kostar peninga eins og annað að haf a börn f sveit Hrefna Ólafsdóttir, Bitru, skrifar: Tilefni þessa bréfs er kjallara- grein sem birtist í Dagblaðinu 18. apríl sl. Hér á landi hefur það tíðkazt að koma börnum í sveit og talað er um hvað þau hafi gott af því og sam- skiptin við blessaðar skepnurnar (dýrin) hefðu þroskandi áhrif. Það eru næstum engin takmörk fyrir því sem sumt fólk leggur á sig til þess að koma barni sínu i sveit, nema borga. Við sem búum næst þéttbýlinu verðum vör við þetta fólk sem fer bæ frá bæ með lítinn og mjóan snáða, 10—12 ára gamlan, og reynir að koma honum að sem talsvert vönum ávélarogreglulegaduglegum þó hann sé ekki hár í loftinu. Ef maður nú spyr nánar um reynslu þessa unga manns, þá, jú hafði hann verið í sveit í fyrra og þá var greitt með honum. Hann hafði fengið (eftir mikið suð?) að sitja á traktor á sléttu túni og að raka saman í rólegheitum. Hvað er greitt með börnum í sveit? í fyrrasumar voru greiddar 43.000 krónur á mánuði með barni í sveit. Mér er tjáð að í ár eigi gjaldið ekki að verða undir 60.000 krónum. Þetta er einhliða ákveðið af Félagsmálastofn- un Reykjavikurborgar. Innifalið er herbergi, þó oft með öðrum, fullt fæði og þvottar. Einnig er innifalin alls konar ánægja og skemmtanir sem börnin fá út úr sveitalífinu að ógleymdum þroskanum sem allir segja að fylgi sveitalífinu. En nú kemur það sem gerir mig bæði undrandi og reiða. Það er mis- munur á greiðslu eftir því hvort um sveit eða borg er að ræða og er skýr- ingin á því að um ódýrustu þjónust- una er að ræða. Hvað er greitt með börnum á dagheimili? í Reykjavík kostar 86.700 krónur á mánuði á dagheimili en ætlunin er að greiða sveitaheimili 60.000 krónur eða rúmlega það. En eins og allir vita eru bara fimm dagar í viku á dag- heimili, en sveitavikan er sjö dagar. Á dagheimili er enginn þvottur, eng- inn kvöldverður og ekkert kvöldkaffi og ef börnin veikjast eru þau heima. Ef þessi dagheimilisgreiðsla væri nú reiknuð út sem daggjald, t.d. í júlí, þá kæmu út 22 dagheimilisdagar. Það gerir 3.941 krónu á dag. Sveita- júlí með 31 dag gerði þá 122.171 krónu og er það sízt of mikið, þvi þetta er allt saman reiknað út frá 10 tíma dagheimilisdvöl á dag. Þeir gefaegginsín Margt fullorðið borgarbarnið heldur að það kosti ekki neitt að lifa i sveit og sem dæmi um það er þessi litla saga: Granni minn er lifir á eggjasölu fór með egg í bæinn sem oftar. Kom hann þá meðal annars til ættingja síns sem sagði við hann: „Aldrei gefur þú mér egg.” En bóndinn svar- aði: „Aldrei kemur þú með kaupið þitt til mín og gefur mér.” En þetta er einmitt það sem bændur gera sem hafa tekið að sér börn til sumardvalar og reyndar ársdvalar líka, því sam- kvæmt upplýsingum frá Skattstofu Suðurlands um hvað fengist frá- dregið til skatts af dvalargjaldi barna í sveit þá var svarið að það væri tvö- falt meðlag, sem er eingöngu fram- færslueyrir, en það var 44.080 krónur í fyrra. Greiddar voru 43.000 krónur eins og áður segir svo bóndinn borgaði með hverju barni sem hann tók 1.080 krónur. Þetta kalla ég að gefa eggin sín. Heimþráin þjakar suma Ég held að fólk geri sér yfirleitt ekki grein fyrir því hvað það getur verið mikil vinna að gera hressan krakka hagvanan í sveit, kenna honum að passa sig á þeim hættum sem hann þekkti ekki áður, t.d. vél- um og tækjum. Einnig er ýmislegt að varast í landslaginu, lækir, skurðir, tjarnir og jafnvel stórfljót. Öðrum börnum þarf að hjálpa yfir dýra- hræðslu og einstaka þarf meiri um- önnun en önnur vegna heimþrár til að byrja með. Nei, það er ekki hægt að setja bömin i girtan garð. Þau eru komin í sveitina til að njóta frelsis og ánægju sem sveitin hefur að bjóða. Og til þess að þetta geti haldið áfram, að krakkar geti fengið að kynnast sveit Raddir lesenda sins lands, þá þarf fullorðna fólkið að hætta að ætlast til þess að það geti endalaust fengið eggin gefins. Mörg börn vilja óð og uppvæg vera 1 sveit á sumrin. Blessað foreldralán í janúar sl. sendu samtök sem nefna sig 8. marzhreyfinguna 65 kvennasamtökum, stéttarfélögum, íbúasamtökum, skólafélögum og ýmsum öðrum hagsmunafélögum bréf þar sem dagvistarmá! voru til umræðu og hvöttu þau félög til að sameinast í aðgerðum, ekki hvað sízt nú á barnaári Sameinuðu þjóðanna. Þetta var byrjun á samstarfi hópa um dagvistunarmál, þar sem 12 félög endanlega sameinuðust um að starfa að þessum málum, þ.e. Fóstrufélag íslands, Iðnnemasamband íslands, Félag einstæðra foreldra, Nemenda- ráð Kennaraháskóla íslands, íbúa- samtök Vesturbæjar, íbúasamtök Þingholtanna, Rauðsokkahreyfingin, Framfarafélag Breiðholts, Sjúkra- liðafélag íslands, Stéttarfélag ís- lenskra félagsráðgjafa, Stúdentaráð íslands og 8. marzhreyfingin. Það sem þessir hópar vildu benda á voru m.a. þessar staðreyndir: 1. des. sl. voru 8166 börn í Reykja- vík á aldrinum 0—5 ára, en á sama tíma aðeins 866 dagheimilispláss. . . . að börn á aldrinum 6—12 ára voru alls 9696, en aðeins 108 pláss á skóladagheimilum. ... . að leikskólapláss voru 1710 en leikskólapláss eru ekki nein lausn fyrir foreldra sem vinna fullan vinnu- dag. . . . að á biðlista hjá dagvistun Rvkborgar um dagheimilispláss eru að semja starfsáætlun, undirbúa verkefni né þvíumlikt. Of langur tími fyrir börnin Að margra mati eru 9—10 klst. á dag allt of langur tími fyrir börnin að dveljast á dagheimili, a.m.k. miðað við aðstæður í dag. Einnig var bent á eftirfaraft^i: Að samkvæmt nýsamþykktri fjárhags- áætlun borgarstjórnar Reykjavikur er m.a. áætlað 34 pláss á árinu (Vest- urborg) en fjölgun skóladagheimilis- plássa 20 (Völvuborg). Til almenns rekstrar dagvistar- stofnana er um 30% hækkun að ræða og til leikfangakaupa 0% hækkun. (Við vitum svo sem hvað þessar hækkanir þýða í okkar verð- kröfugöngu 24. marz frá Hlemmi niður á Torg og var þar útiskemmt- un, sungið og leikið, en kannski Steinar Logi taki nú við: Segðu þeim, af því þú kannt að lesa, hvað stóð á kröfuspjöldunum og hvað fólk kall- aði upp? Fólk sagði: Fleiri dagvistarheimili strax. Gegn niðurskurði borgaryfir- valda á framlögum til dagvistarmála. Bætt kjör og vinnuaðstaða fyrir fóstrur (og þá um leið fyrir böm). Færri börn á hverja deild. Betri að- stöðu á gæzluvöllum. Börnin okkar gætu t.d. sagt sem svo: ,,Ég og systur mínar og pabbi fórum í bæinn á sumardaginn fyrsta með mömmu scr, var alltaf með þessa lista um bætta aðstöðu á gæzluvöllum að safna nöfnum þeirra sem vilja betri dagheimili eða leik- skóla eða það sem hentar bezt fyrir aðstæður hvers og eins. Sum þurfa að vera á skóladagheimili, aðrir pínu- litlir krakkar á dagheimilum. — Sumir skrifuðu á listann, aðrir ekki, mamma var oft dálítið hissa og hristi höfuðið, ég veit ekki alveg af hverju, veit ekki hvað fólkið var að segja við hana, ég var að skoða allt í kringum mig, fullt af fólki og krökkum í bæn- um — ég hugsa hún hafi verið hissa að ekki nærri allir skrifuðu undir. Það finnst mér skrítið — ef krakk- arnir komast ekki á góð barnaheim- ili, þar sem eru góðar fóstrur og helzt fóstrar, ekki alltaf alls staðar konurl, þá komast mömmurnar ekki út að vinna. í dag eru allir svo stressaðir Ég veit ekki hvað stress er — jú, stress er þegar allir öskra og eru að flýta sér. Það þarf ekki að vera svona ef fólk hefur ekki of mikið að gera og hefur nóg til að lifa af, það er dálítið skrítið, að karlmennirnir fara út að vinna oftast þar sem ég hef séð; hjá vinum mínum eru mömmurnar oft heima. Verður þetta svona þegar ég verð stór, eða verður þetta allt öðru- vísi? Mamma segist vona að öllum börnum og fullorðnum eigi eftir að líða betur, fullorðið fólk úti á vinnu- markaðinum ef það vill og börnin fái að læra og þroskast hluta dags hjá góðu fólki á góðum dagvistunar- lieimilum, með alls konar krökkum, >tórum, litlum, leiðinlegum og skemmtilegum; það er svo skemmti- legt fyrir alla að vera með alls konar fólki.” Samstarfshópur um dagvistarmál, Sokkholti, Skólavörðustíg 12, Rvk. Þar er opið á fimmtudögum milli kl. 17.30ogl8.30 og hægt að skrifa undir þar. Raddir lesenda* Að gefnu tilefni skal þeim sem senda Dagblaðinu les- endabréf bent á að þau eru ekki birt nema nafn og heimilisfang ásamt nafn- númeri sendanda fylgi með. nú 280 börn, um leikskólapláss 1337 börn. . . . að aðeins einstæðir foreldrar og námsmenn geta skráð sig á biðlista um dagheimilispláss. . . . að um 600 börn eru í gæzlu hjá dagmömmum sem hafa leyfi, en eng- in ætlar sér þá dul að gizka á fjölda barna í gæzlu þar fyrir utan. . . . Auk ofangreinds benti hópurinn á, í þar til gerðu dreifibréfi, að: Á dagvistarheimilum eru oft of mörg börn til þess að hægt sé að veita hverju barni þá umönnun sem þarf. Fóstrum er samkvæmt núgildandi kjarasamningum ekki ætlaður neinn tími til að undirbúa daginn, hvorki til bólguþjóðfélagi, þegar ríkisstjórnin „ætlar að reyna að koma verðbólg- unni niður í 30% á árinu). Ekki er gert ráð fyrir fjölgun starfsfólks á deildum. Ný undirskrifta- söfnun Hinn 8. marz sl. hófst undirskrifta- söfnun sem mun væntanlega standa í tvo mánuði, eða fram að 8. maí og er ætlunin að safna 15—20 þúsund undirskriftum fólks til styrktar kröf- unni Næg og góð dagvistarheimili fyrir öll börn og þær síðan afhentar borgaryfirvöldum. — Farið var í Þá var móðins að vera góðtemplari Siggi flug skrifar: Það er mikið ritað um áfengismál þessa stundina og ég er anzi hræddur um að það verði margir sem ekki eru mér sammála, en það er nú einu sinni svo að það er afar óvinsælt að segja sannleikann. Þegar talað er um bindindismál eru það venju fremur þeir er aldrei hafa bragðað áfengi sem eru að kenna hin- um hvernig þeir eigi að umgangast þennan voðadrykk. Ekki skal ég gera lítið úr drykkju- skap þjóðarinnar, því hann er mikill og væri betur að ástandið í áfengis- málum okkar væri betra. Við íslendingar erum stundum býsna fljótir til þess að taka upp ýmsar nýjungar, og eru bannlögir. 1914/16 glöggt dæmi um það. Árið 1921 eða svo var byrjað að flytja til landsins og selja Spánarvinin og má heita að frá þeim tima hafi verið um nokkurs konar opiun/lokun í áfengismálum þjóðarinnar að ræða. Um algert bann var aldrei að ræða, því allir þeir sem kærðu sig um gátu náð í áfengi hvenær sem var. Eftir að bannlögin voru sett minnkaði áfengisneyzla landsmanna, og eftir að Spánarvínin komu til sög- unnar hljóp mikil gróska í Góðtempl- araregluna, og það svo, að það var beinlínis móðins að vera félagi i regl- unni. Góðtemplarareglan er alls góðs makleg, en hún hefur staðnað í við- leitni sinni að koma á algeru áfengis- banni á íslandi. Reglan fær til út- breiðslustarfsemi sinnar álitlega fjár- fúlgu af hagnaði íslenzka ríkisins af áfengissölunni, og auk þess heldur ríkið uppi áfengisvarnarráðunaut. Nú vaknar sú spurning hvort þessir aðilar séu hinir réttu til þess að fara með áfengisvarnarmál. Ég held ekki. Þeir sem mest láta til sín taka áfengisvarnir eru þeir menn sem frá blautu barnsbeini hafa verið bind- indismenn. Þessir menn og konur hafa því litla reynslu af ofnotkun áfengis, nema þá af afspurn. AA-samtökin hafa náð undraverð- um árangri i baráttunni við áfengis- notkunina. Innan vébanda þessara samtaka eru menn sem af eiginj reynslu vita við hvað er aðglima. | Ég vil leggja það til að þessum samtökum verði falið að meira eða minna leyti það hlutverk sem Góð- templarareglan og embætti áfengis- varnarráðunauts ríkisins sinna nú, því á þeim vettvangi má búast við' meiri og betri árangri heldur en hjá þeim aðilum sem ekki koma auga á neitt nema nýtt aðflutningsbann. Nýlega gekk hópur barna um göturnar meó spjöld 1 bak og fyrir þar sem ritaðar voru á ýmsar kröfur þeirra til þjóðfélagsins.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.