Dagblaðið - 02.05.1979, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 02.05.1979, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAl 1979. 19 Haldið upp á afmælið: „Utvarpið aldrei í meira fjársvelti en á 50 ára afmælinu" — segir í ályktun Utvarpsráðs „Sú fjárhagskreppa, sem nú ríkir, býður heim stöðnun við stofnunina, er sviptir Ríkisútvarpið þvi, að það gegni sínu menningarhlutverki og stofnunin verður ósamkeppnisfær á timum æ fullkomnari fjarskipta,” segir útvarpsráð um fjárhagsstöðu RÚV. Útvarpsráð víkur að þeim kröfum, sem gerðar eru til ríkisútvarpsins um efnisval og flutning auk mikilvægis þess í almannavörnum. Þá er minnt á fjölþjóðlegar skuldbindingar um skipti á dagskrárefni. „Nú er svo komið, að útvarpsráð verður að grípa til stórfellds niður- skurðar,” segir i ályktuninni. Lýsir útvarpsráð stjómvöld ábyrg fyrir þessarí stöðu og bendir á, að nú séu síðustu forvöð fyrir stjórnvöld að leiðrétta hlut ríkisútvarpsins svo að hægt sé að komast hjá niðurskurði. Niðurskurðurinn, sem talað er um, tekur til margra þátta, en einkum þó styttingar á dagskrártíma sjónvarps, lengri sumarlokun og takmörkun í gerð íslenzkra leikrita. Þá tæki hann og til hljóðvarps með auknum hlut endurtekins efnis, niðurfellingu á dýru efni og sam- drætti í leikritaflutningi, svo nokkuð sénefnt. „Útvarpsráð vísar öllum kvörtun- um til þeirra ráðamanna, er ekki hafa skilning á menningarhlutverki ríkis- fjölmiðlanna,” segir i ályktun út- varpsráðs. 50 ár eru liðin á þessu ári frá því útvarpsráð hélt sinn fyrsta fund. Á þessum tímamótum blasir við ráðinu einhver mesta fjárhagskreppa, sem það hefur átt við að stríða. Útvarpsráð hefur gagnrýnt fjár- málastjórn ríkisins fyrir að láta ekki ríkisútvarpinu eftir tolltekjur af inn- fluttum sjónvarpstækjum eins og verið hefur um langt skeið sam- kvæmt reglum, sem höfðu lagagildi. Menntamálaráðherra, Ragnar Arnalds, hefur lýst því yfir, að hann muni beita sér fyrir því, að þessar tekjur fáist til útvarpsins, enda sé það eðlilegt og fyrst og fremst nauðsyn- legt. Fjármálaráðherra, Tómas Árna- son, hefur ekki talið neina lagaskyldu til að afhenda útvarpinu þessar toll- tekjur. Þær nema rúmum 800 millj- ónum króna af innfluttum sjónvarps- tækjum 1978. -BS. Opið hús á geðdeild Á sunnudaginn gefst almenningi í fyrsta sinn kostur að skoða og kynnast starfsemi og aðbúnaði geðdeildar sjúkrahúss. Þá verður „opið hús” í Geðdeild Borgarspítalans i Arnarholti frá kl. 13—17. Bæði húsin verða opin svo hægt er að bera saman nýja og gamla tímann. Einnig verður hægt að fá kaffi og sölu- Arnarholt degi. opið hús á sunnudagssíð- sýning verður á hannyrðum vistmanna. -ÓV. Tveir 14áraáSlysa- deild eftir vodkaþamb Tveir 14 ára piltar fengu að sitja í bíl með 2 ungum mönnum í fyrrinótt og fengu þeir stuttu hina til að aka sér að dönsku skipi i Reykjavíkurhöfn, hvar þeir ungu festu kaup á vodka um borð og hófu drykkju. Áfram var ekið og leið fram á nótt- ina. Varð þá öðrum piltinum mjög illt og kastaði upp blóði. Óku ungu menn- irnir honum þegar á Slysadeildina og þaðan var hann fluttur á Landspítal- ann. Enn var ekið áfram unz hinn pilt- urinn varð fárveikur. Var honum þá einnig ekið á Slysadeildina, en fékk að haldaheim nokkru síðar ábatavegi. Að sögn lögreglunnar var ekkert at- hugavert við vínið. Fremur munu við- vaningslegir drykkjusiðir piltanna hafa leitt þá í vandann. -GS. Loðnufýla íLæragjá Einhver óprúttinn náunginn tók sig til á föstudagskvöldið og sturtaði úr a.m.k. einum fiskmjölspoka í heita lækinn í Nauthólsvík, sem öðru nafni heitir gjarnan Læragjá. Eftir því sem innihald pokans dreifð- ist í heitu vatninu jókst megn óþefur úr læknum og lyktaði hann um tima líkt og loðnubræðslustöð í fullum gangi. Margir þurftu því vonsviknir og óbaðaðir að snúa frá læknum á meðan hann var að hreinsa sig. V'ist er að læk- urinn var orðinn hreinn á laugardags- morgun því einn baðgesta, sem legið hafði þar í út- og innvortisbaði alla nóttina, réðst þá á aðkomumann. Bitnuðu slagsmál þeirra m.a. á nær- stöddum bíl. Eigandi hans hljóp þó ekki feginn í fang lögreglunnar til að kæra verknaðinn er lögreglan kom að, því hann var ölvaður. -GS. Nýju gangbrautarmerkingarnar 1 Hafnarfirði. DB mynd: Bj.Bj. Slysavaraafélagsmenn í Hafnarfirði reyna nýjar gangbrautarmerkingar: Fyrst er rauð rönd með „STANZ” áletrun „Það var í kjölfar umferðarviku Slysavarnafélagsins að okkur datt í hug að breyta eitthvað til í merkingum gangbrauta i þeim tilgangi að vekja gangandi fólk frekar til umhugsunar við þær og svo varð hörmulegt bana- slys á gangbraut hér í bænum í vetur ■enn frekari hvati til þessa,” sagði Einar Sigurjónsson, formaður Slysa- varnadeildarinnar Fiskakletts i Hafnar- firði, í viðtali við DB. Fiskaklettsmenn máluðu nær allar, eða 23 gangbrautir bæjarins um helg- ina. Sú nýbreytni er nú við merking- arnar að fyrsta röndin er máluð rauð og stendur „STANZ” skýrum stöfum á henni :il að vekja fólk til umhugsunar og aðgæzlu. Upphaflega ætluðu Slysavarnafé- lagsmennirnir aðeins að mála fyrstu röndina báðum megin gatnanna þann- ig. En eftir viðtöl við bæjarstjóra og bæjarvcrkfræðing tóku þeir einnig að sér að mála allar hvitu rendurnar á milli, þar sem þörf var á. GS. Glósulaus og þar með glóru- laus á prófdag Háskólanemi í matvælafræðum er nú heldur betur i klípu eftir að hafa glatað öllum glósum og minnismiðum sínum og ekki er nema mánuður í próf. Á föstudagskvöldið aðstoðaði hann við að taka niður markaðstjaldið á Lækj- artorgi og lagði frá sér skólatöskuna með bókum að verðmæti nokkurra tuga þúsunda. Að verkinu loknu var taskan horfin og syrgir hann ekki and- vþ-ði bókanna, heldur fremur glósur sinar og minnismiða. Hafi einhver fundið töskuna er cigandann að finna í síma 29376, en annars má koma henni til skila á ritstjórn eða afgreiðslu DB, sem mun koma henni i réttar hendur. -GS. SKYNMMYNDIR Vandaðar litmyndir i öll skírteini. bama&fjölsk/ldu- Ijosmyndir AUSTURSTRÆTI 6 SÍMI 12644 GLEÐILEGT SUMAR! Eru /ínurnar ekki í lagi? Viðleysum vandann. Ný 4ra vikna námskeið hefjast 2. maí. FRÚARLEIKFIMI — mýkjandi og styrkjandi. MEGRUNARLEIKFIMI — vigtun — mæling — holl ráð. SÉRTÍMAR fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. tnnrhun og upplýsingar alla virka daga kl. 13-22 ísíma 83295. Sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi — nudd. 0\ JúdódeildÁrmanns ~ * Ármúla 32 DregiÓ á morgun NÝTT HAPPDRÆTTISÁR 79-80 MIÐIER MÖGULEIKI Aöalumboöiö Vesturveri er opiö til kl. 7 í kvöld. Lausir miöar eru enn fáanlegir. Dregiö í 1. flokki á morgun kl. 17.30.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.