Dagblaðið - 02.05.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 1979.
Hringið
í síma
27022
milli kl.
13 og 15,
eða skrifið
Pétur Pétursson þulur er einn af for-
sprökkum Andófs '79.
Gefum
ekki
eftir
—styðjum
Andóf’79
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Það er furðulegur fugl, Kristján
Thorlacius, og furðulegt, að þesáí’
maður skyldi verða kosinn ftílltrúi
starfsmanna ríkis og bæja, maður
sem hann, sem vinnur að þvi að
skerða kaup okkar láglaunafólks inn-
an þessa félagsskapar, þegar hann
samþykkir og vinnur að því að skerða
laun okkar um 3%. Á sama tímager--
ist það, að hálaunahóparnir fá sín
laun hækkuð, eins og t.d. flugmenn
og fleiri. Mér er engin launung á því
að ég er ríkisstarfsmaður og er með í
laun 214 þús. á mánuði, og við hverja
útborgun er tekið 82 þús. Á þessu
getur Kristján séð, hvað ég hef til að
lifa af. Viltu Kristján lifa á þessum
launum? Nei, ég skora á fólk að
fylkja sér um Andóf '79; stöndum
saman og fellum þetta.
Sér fólk það ekki, að frá því er
siðustu kaupgjaldssamningar voru
gerðir, er margsinnis búið að skerða
þá með hækkandi vöruverði og þjón-
ustu, sem auðvitað hefur komið
harðast niður á láglaunafólki? Og
enn á að fara fram á, að við gefum
eftir 3% af umsömdum launum. Nei,
nú finnst mér mælirinn fullur. Við
þessu hljótum við að segja nei i at-
kvæðagreiðslunni, sem verður á
næstunni.
Spurning
dagsins
Hver er uppáhalds-
maturinn þinn?
Björk Brynjólfsdótlir, 8 ára:
Kótelettur.
Þorgerður Marinósdóttir, 8 ára: Svið
með kartöflumús.
Júníus Ólafsson, 11 ára: Kjúklingur
með frönskum kartöflum.
Aðalsteinn Ingvarsson, 8 ára: Grillaðir
kjúklingar með kokkteilsósu.
Helgi Sigurðsson, 8 ára: Kjúklingar.
Sunna Gunnlaugsdóttir, 8 ára: Bjúgu
með jafningi.