Dagblaðið - 02.05.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 02.05.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 1979. 9 Efnahagsbandalagið: Senda þarf þrjár milljónir kúa til slátrarans —til að losna við off ramleiðsluna — Mundi borga sig á fimm árum Þörf er á að slátra þrem milljónum kúa á meginlandi Evrópu ef takast á að losna við umframbirgðir af mjólkurafurðum í Efnahagsbanda- lagslöndunum. Þetta kemur fram í blaðinu The Financial Times, sem segir frá skoðun Jim Scott-Hopkins brezks fulltrúa hjá Efnahagsbanda- laginu. Scott-Hopkins verður leiðtogi brezkra íhaldsmanna á þingi Efna- hagsbandalagsins, sem kosið verður til í júní næstkomandi. Á fundi með bændum í Worcester- shire í Englandi sagði hann að kýr á meginlandinu væru þrem milljónum of margar. Nauðsynlegt væri að sjá svo um að þær hættu mjólkurfram- leiðslu innan eins árs. Mjög mikil- vægt væri, að greiðslur til þúsunda bænda fyrir að leiða mjólkurkýr sínar til slátrunar yrðu að vera ríf- legar til að árangur næðist. Taldi Scott Hopkins, að þeir peningar ættu að koma úr sameiginlegum sjóðum Efnahagsbandalagslandanna. í ræðu sinni sagði Hopkins, að sá sparnaður, sem næðist með fækkun mjólkurkúa í Efnahagsbandalags- löndunum væri gífurlegur. Hægt væri að losna við þann kostnað, sem væri af birgðahaldi mjólkurafurða. Mundi fækkun mjólkurkúnna borga sig á fimm árum þrátt fyrir miklar greiðslur til þeirra bænda sem létu slátra kúm sínum. Erlendar fréttir i REUTER HUNDALÍF FYRIR GRÍSINN Grisinn Lucky hrýtur værðarlega f stofunni hjá Ednu Lynn, sem býr 1 borginni Duncan i Oklahomafylki f Bandarikjunum. Ekki hefur DB tekizt að upplýsa hvernig stendur á þessu bílifi hins verðandi beikon og skinkuframleiðanda. Af einhverjum ástæðum tók Edna svo miklu ástfóstri við grfsinn, sem hún nefnir Lucky. Hundalífs- dagar Lucky eru þó brátt á lenda. Hreyfingar hennar munu ekki þykja nægilega fim- legar, þegar hún stækkar, til að hægt sé að leyfa henni að ganga um stofur með blómavösum og finiríi. Einnig mun lyktin af Lucky magnast öll með aldrinum og henni verður því brátt vísað aftur út í svfnastfuna. Bretland Kauphallar- bréfin féllu Verðbréf féllu i brezkum kauphöll- um i gær, þegar fréttist að skoðana- kannanir sýndu að Verkamanna- flokkurinn væri kominn með meira fylgi en íhaldsflokkurinn aðeins tveim dögum fyrir hinar almennu þingkosningar, sem verða á morgun. Er þetta í fyrsta skipti,. sem Verka- mannaflokkurinn er talinn fylgis- meiri í þessarri kosningabaráttu. í byrjun var íhaldsflokkurinn með allt að tuttugu af hundraði meira fylgi. Einnig kom i Ijós að James Callaghan formaður Verkamannaflokksins og foisætisráðherra nýtur mun meira persónulegs fylgis en Margaret Jhc'.her leiðtogi íhaldsflokksins. iJykir C allaghan mun léttari og við- kunnanlegri í samskiptum við fólk i kosningabaráttunni. Kalla sumir hann brosandi Jim. Hann hikar þó ekki við að svara fyrir sig og er einn blaðamanna spurði hann um tilncfn- ingu tengdasonar hans sem sendi- herra í Washington, svaraði Callag- han með þvi að spyrja hvort blaða- maðurinn hefði fleiri óþverra- spurningar á takteinum. Róm: Prestafækkun hrellir páfa —vill þó láta þá lifa áf ram í einlífi Jóhannes Páll annar páfi sagði i ávarpi í gær, að hann hefði vaxandi áhyggjur af stöðugri fækkun kaþólskra presta. Sagði hann mál þetta vera mjög iskyggilegt að þyrfti að hugleiðast gaumgæfilega af kardinálum og öðrum yfirmönr.um rómverskkaþólsku kirkj- unnar. Nú á dögum væri þörfin fyrir presta og aðra þá sem starfa vildu að trúmálum meiri en nokkru sinni fyrr. Væri bæði þörf á slíku fólki, til að starfa meðal sjúkra, við fræðslu og sálnaveiðar. Fyrir fimm dögum voru birtar tölur, sem sýndu að rómverskkaþólskum prestum hefur fækkað um tuttugu og þrjú þúsund i heiminum frá 1971 til 1977. Þá voru þeir 406.717 að tölu. Páfi hefur lagt á það áherzlu í fyrri ávörpum sínum, að prestar eigi að láta starf sitt ganga fyrir öllu og halda áfram að lifaeinlifi. Áður hefur komið fram, að mun erfiðara er en áður að fá hæft fólk til að ganga í ýmsar klausturreglur. Hefur nunnum og munkum þvi fækkað mikið á undanförnum ára- tugum. Kven- og bamaklippingar Permanent — Litanir Lagningar — Bllatur HALLA MAGNÚSDÓTTIR GOÐ DUNLOPDEKK UNDIR LYFTARANN Höfum allar venjulegar stærðir af lyftara- dekkjum. Afgreiðum pantanir fljótt og vel. Hringið og kynnið ykkur verð og þjónustu. Sérpöntum einnig massív dekk. M /ÍUSTURBAKKI HF SKEIFAN3A SÍMI 81411

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.