Dagblaðið - 02.05.1979, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 02.05.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAl 1979. —segir garðyrkjubóndi íHveragerði SFISHER Samstæða Tölvuklukka með minni fyrir afspilun Útvarpsmóttakari (Tuner) Kraftmagnari 2x50 RMS wött Kontrolmagnari Kassettu segulbandstæki FISHER hljómtæki og myndsegulbönd eru talin þau fullkomnustu og bestu í heimi. Viö bjóðum möguleika fyrir alla í FISHER hljómtækjum. Hátalarar 50 -125 RMS wött Magnarar Útvarpsmagnarar Myndsegulbandstæki CA-2110 = 2x 55 RMS wött 2 x 40 — 2 x 180 RMS wött Betacord sama kerfi og CA-2310 = 2x70 RMSwött Sony, Toshiba, Sanyo o.fl. Plötuspilari Seguldrifinn (Direct Linear) Kassettu segulbandstæki 2og 3 hausa „Stjórn Sambands garðyrkjubænda hefur haft innflutning á blómum til umfjöllunar lengi og eins hafa einstök félög áður reynt að fá aðra skipan á þau mál,” sagði Þórður Snæbjörnsson garðyrkjubóndi sem verið hefur for- maður Félags garðyrkjubænda í Hveragerði þar til fyrir skömmu að for- mannaskipti urðu. „Við erum bændur og það er starfs- heiti okkar. Innflutningur er ekki frjáls á nokkrum framleiðsluvörum bænda — nema blómum. Grænmeti er flutt inn en það er ekki á frílista. Sölufélag garðyrkjumanna hefur flutt inn tómata, gúrkur o.fl. og fengið til þess framselt einkaleyfi Grænmetisverzlunar ríkisins,” sagði Þórður. „Á sama hátt viljum við ekki að blóm séu á frílista og þannig frjáls öllum til innflutnings.” Þórður sagði að blómainnflutningur hefði valdið garðyrkjubændum stór- tjóni. Með frjálsum innflutningi hefði það skeð að inn væru fluttar sömu teg- undir og hér hefði verið nóg til af. Nefndi Þóður íris í þessum efnum. Þá telja garðyrkjubændur að sannað sé að innflutningur blóma hafi valdið þeim stórtjóni. Sönnunina segja þeir vera að fyrir hefði komið að flugvélar með innflutt blóm hefðu flogið fram hjá landinu vegna veðra og þá hefði i ljós komið að miklu meira eða jafnvel öll framleiðsla íslenzkra bænda hefði selzt, sem ekki hefði gerzt þá er erlendu blómin væru á markaðinum. Þórður sagði að garðyrkjubændur hefðu skrifað Framleiðsluráði um þessi mál ,,en svör hefur gengið illa að fá. Við hefðum viljað að Framleiðsluráðið sneri sér beint til viðskiptaráðuneytis- ins, sem frílistanum ræður, með þessi mál okkar. Þeir skrifuðu hins vegar ráðuneytinu og eftir þvi sem okkur skilsfer boltinn þar,” sagði Þórður. - ASt. „Blómainnflutningur til íslands á sér ekki stað nema að vetrarlagi og þá er um að ræða innflutning þeirra tegunda afskorinna blóma sem ekki eru fáanleg hér á landi,” sagði Bjarni Finnsson í Blómavali en það fyrirtæki ásamt tveimur öðrum er stærsti aðili innflutn- ings blóma til íslands og dreifir þeim síðan til sölu í aðrar blómabúðir. „Uppistaðan í þessum blómainn- flutningi eru nellikur, lifandi grænar greinar frá Frakklandi og svo potta- blóm,” sagði Bjarni. „Birtuskilyrði hér til blómaræktar eru slæm í desember, janúar, febrúar og fram í marz. Á þess- um tíma fást ekki hjá framleiðendum hér nema laukblóm, páskaliljur og túli- panar og neytendur eru þreyttir á slíku í heilan ársfjórðung.” Bjarni sagði að síðasta sending af nellikum sem til landsins kom hefði kostað 600—650 krónur stykkið í út- sölu. Væri það svipað verð og væri á ís- lenzkum blótnum. Hins vegar væri inn- flutningurinn dýr. Greiða þyrfti 100% toll og allur innflutningur færi fram með flugvélum þar sem flutningsgjöld væru dýr. Ofan á allt legðist svo 20% söluskattur. Alls kyns aðrir annmarkar væru á innflutningnum, t.d. hefði það komið fyrir að flugvélar með blóm flygju yfir landið og þau blórn yrðu ekki seld siðar á íslenzkum markaði. Bjarni sagði að Blómaval hefði í fyrra reynt sölu blóma á útimarkaðin- um á Lækjartorgi. Komið hefði i Ijós að nijög erfitt væri að vera með blóm úti í íslenzkri veðráttu, þau krunip- uðust fljótt og yrðu ljót og veðurbarin. Bjarni kvað líklegt að ál'ram yrði gerð tilraun með sölu blóma á markað- inum á Lækjartorgi. Væri það meira til gamans því standandi markaður væri alla daga i Blómavali, eins og hann orðaði það. - ASt. 1500 tonna niður- skurður hjá Belgum Utanríkisráðuneytið stefnir að því að minnka afla Belga hér við land. Ráðuneytið heflr óskað eftir þeirri endurskoðun að í ár verði heildarafli Belga 5000 lestir en þorskveiðar „engar”, sem þýðir að þorskur má ekki verða meiri en 15% af afla skipa. Samkvæmt núgildandi samningi, frá 1976, má heildarafli Belga ekki fara fram úr 6500 lestum, þar af þorskafli 1500 lestir. Þetta kemur fram í skýrslu Bene- dikts Gröndal utanríkisráðherra um utanríkismál sem nú hefur verið dreift á Alþingi. -HH „Látið blómin tala” er frægt auglýsingaorðtak. Finnst garðyrkjubændum hart að það séu erlend blóm sem tali til ís- lendinga og vilja stjómun á innflutningnum. Blóm flutt inn með 100% tolli og flug-f lutningsgjöldum — Blómasala á útimarkaði erfið á íslandi, segir einn blómasalanna Blómainnflutningur hefur valdið garð- yrkjubændum stórtjóni

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.