Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 02.05.1979, Qupperneq 16

Dagblaðið - 02.05.1979, Qupperneq 16
16 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAl 1979. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 1979. 17 Shuggie is the tops... WHO’S going to be the Scottish footballer of the year? That’s still a secret— but D. HARRISON, of Duke Street, Clasgow, has no doubt. He writes: { “He seldom gets a lot of praise —but he seldom plays a bad game. He isn’t a Scot—but to my mind he is the best player in Scotland. “He plays his he*rt out every game. He has no superiors. He’s vcrsatile and a good sport. He should be the Player of the Ycar. “He’s big Shuggie Edvaldsson of Celtic.” • Aye, there could be more than a few warm bursts of aoplause foij.the big man from Iceland. Liverpool vann í Bolton og þarf nú aðeins fjögur stig íf jórum síðustu leikjunum Liverpool vann stórsigur í Bolton i gærkvöld í 1. deildinni ensku, 1—4, og þarf því aðeins fjögur stig úr þeim fjór- um leikjum, sem liðið á eftir, til að tryggja sér meistaratitilinn. Hefur nú 60 stig en WBA, sem vann Everton í Liverpool 0—2, hefur 53 stig. Á eftir fimm leiki. Oft hefur enski meistara- titillinn unnist á þeirri stigatölu eða minni. Englandsmeistarar Nottingham Forest töpuðu á mánudag i Wolver- hampton 1—0 og eru nú alveg úr myndinni í sambandi við efsta sætið. Leikmenn Liverpool skoruðu öll mörkin í Bolton í gær. David Johnson það fyrsta á 11. mín. Síðan skoraði Ray Kennedy tvivegis og Kenny Dalglish fjórða markið. Þá sendi Graeme Souness knöttinn í eigið mark. WBA hafði yfirburði gegn Everton. Mills og Robson skoruðu mörkin — en John Richards skoraði sigurmark Úlfanna gegn Forest. Talsvert var um Jafntefli Breiðablik og Keflavík léku i Litlu bikar- keppninni f Kópavogi f gær. Jafntefli varð — ekkert mark skorað. Ritchie knattspyrnumaður ársins íþróltafréttamenn á Skotlandi kusu Andy Ritchie knattspyrnumann ársins og var kjör- ið tilkynnt i miklu hófi i Glasgow á mánu- dagskvöld. Jóhannes Eðvaldsson var þar en hann var meðal efstu manna í kjöri blaða- mannanna. Ekki var getið um röðina — að- eins að Ritchie hefði orðið efstur. Margir kappar fengu atkvæði en að sögn Evening Times komu þeir Colin Jackson, Rangers, Paul Heggerty, Dundee Utd. og Jóhannes i næstu sætum án þess þó að þetta sé röðin á þeim. Val Andy Ritchie kom ekki á óvart. Hann hefur mjög veriö í sviðsljósinu hjá Morton á leiktimabilinu — markhæsti leikmaðurinn i skozku úrvalsdeildinni með 28 mörk hingað til á leiktimabilinu. Hann lék áður með Celtic en Jock Stein lét hann fara til Morton í skiptum fyrir Baines markvörð fyrir um tveimur árum. Það reyndust slæm skipti. Jóhannes Eðvaldsson var mjög sð sviðsljós- inu í sambandi við þetta kjör — og í lesenda- bréfum til blaðanna kom oft fram að hann ætti að vera kjörinn knattspyrnumaður árs- ins. Það segir m.a. í greininni hér að ofan — D. Harrison segir Jóhannes bezta leikmann á Skotlandi. Shuggie er gælunafn, sem Jóhannes hefur meðal áhangenda Celtic. í kvöld leikur Celtic við Hibernian á heimavelli og það verður nóg að gera hjá leikmönnum Celtic á næstunni. Á laugardag leika þeir við Rangers á Hampden Park. Nk. mánudag við Partick á útivelli. Daginn eftir við Clyde í undanúrslitum Glasgow-bikars- ins. Rangers er þar í úrslitum. Á föstudag í næstu viku leikur Celtic við St. Mirren í Pais- ley — síðan á heimavelli við Rangers, senni- lega 16. maí og lokaleikur liðsins í úrvals- deildinni verður við Hearts á Parkhead í Glasgow 18. maí. Ef vel gengur ætti sá leikur að tryggja Celtic meistaratitilinn. Jóhannes Eðvaldsson getur tekið þátt í Evrópuleik íslands gegn Sviss í Bern 22. maí og getur einnig leikið fjórum dögum síðar gegn Vestur-Þýzkalandi í Reykjavík. leiki á mánudag og þriðjudag og úrsUt þessi. 1. deild Southampton-Man. Utd. / , 1 — 1 Wolves-Nott. Forest 1—0 Bolton-Liverpool 1—4 Everton-WBA 0—2 Man. City-Birmingham 3—1 Man. Utd. lék með sex varamönnum í Southampton en náði samt jafntefli. Pólverjinn Deyna skoraði tvö af mörkum Man.City gegn Birmingham. 2. deild Notts Co.-Wrexham 3. deild Southend-Walsall Tranmere-Mansfield Bury-Sheff. Wed. Hull-Plymouth Rotherham-Peterbro 4. deild Barnsley-Darlington Bradf ord-Doncaster Huddersfield-Torquay 1—1 1—0 1—2 0—0 2—0 1 — 1 1 — 1 1—0 1 — 1 Newport-Boumemouth Port Vale-Hereford Rochdale-Stockport Scunthorpe-Wigan |York City-Crewe Staða efstu liðanna í 1 'þannig. Liverpool ■WBA iNott.For. Everton Leeds 38 26 8 37 21 11 37 17 17 41 17 16 39 17 14 2—0 1—1 2—0 0—1 1—0 deild er nú 4 76—16 60 6 69—33 53 3 52—22 51 8 51—39 50 8 65 —44 48 ASDIS 0G ARNIÞ0R BEZT Innanfélagsmót Ármanns I svigi var haldið I Bláfjöllum 1 gær 1. maí. Sam- kvæmt áætlun átti stórsvigið að vera þennan dag en vegna hvassviðris varð að fresta því. Einnig var keppni i flokk- um 10 ára og yngri frestað af sömu ástæðu. I kvennaflokki mættu aðeins landsliðskonumar Ásdis Alfreðsdóttir og Ása Hrönn Sæmundsdóttir til keppni og var þetta þvi einvfgi á milli þeirra, en þvi lauk með sigri Ásdisar eftir tvisýna keppni. í karlaflokki var unglingalandsliðsmaðurinn Árni Þór Árnason i algjörum sérflokki, þar sem hans helzti keppinautur Helgi Geir- harðsson hætti keppni og þeir Jónas Ólafsson og Kristinn Sigurðsson mættu ekki til keppni. Í flokki drengja 13—14 ára sigraði Tryggvi Þorsteinsson með miklum yfir- burðum en hann er án efa einn efnileg- asti unglingurinn hér sunnanlands, var Árni Þór Árnason á fullri ferð I sviginu. DB-mynd Þorri. hann hvorki meira né ininna en 14,8 sek á undan öðrum manni. í drengja- flokki 11—12 ára sigraði Haukur Þorsteinsson með yfirburðum en hann er bróðir Tryggva. í flokki 15—16 ára drengja náði Einar Úlfsson mjög góðum tima i fyrri ferð var hann aðeins rúmlega hálfri sek. á eftir Áma Þór. Tveir gestir voru meðal keppenda, voru það Vikingamir Þórður Bjömsson og Guðrún Björnsdóttir. Úrslil urðu scm hér segir: Karíuflokkur: sek. 1. Aml Þór Ámason 71.70 2. Amór Guðbjarísson 83.11 3. SiguröurGuömundsson 87.48 Kvennaflokkur: se'k. 1. Asdís Alfreðsdóltir, 79.45 2. Ása Hrönn Sæmundsdóttir 81.99 Stúlkurll—12ára sek. 1. Ðýrlelf AmaGuömundsdóttir. 99.83 2. TlnnaTraustadóttir 100.04 3. Rúna Knútsdóttfr. 122.07 Drengirll—12 ára sek. l.llaukur Þorstelnsson 91.70 2. Sigurjón Sigurdsson 105.27 3. Baldvln Valdimarsson 105.46 Stúlkurl3—15úra sek. 1. Marta Óskarsdóttir 91.70 2. Bryndís Pétursdóttir 97.70 3. SlgrlOurSigurðardóttlr 99.44 Drengir 13—14 úra sek. 1. Tryggvi Þorsteinsson 79.26 2. Elnar Bjamason 94.06 3. Aml Alvar Arason 94.74 Drengir 15—16óra sek. 1. F.inar Úlfsson 82.60 2. Þórður Bjömsson 88.61 3. Hafliði Bárður Harðarson 92.14 ÞORRl. Islandsmeistararnir i bridge 1979. Talið firá vinstri Jakob Möller, Guðmundur Pétursson, Jón Hjaltason, Karl Sigurhjartar- son, J6n Ásbjörnsson og Simon Sfmonarson. DB-mynd Bjarnleifur. íslandsmótinu í bridge lauk í gær: SVEIT ÓDALS SIGURVEGARI Íslandsmótinu i bridge í sveitakeppni lauk að Hótel Loftleiðum i gær. Mikil spenna var i lokaumferðinni en þá spil- uðu innbyrðis þær tvær sveitir, sem efstar voru, og einar áttu möguleika á íslandsmeistaratitiinum. Það voru sveitir Óðals og Þórarins Sigþórssonar. Sveit Óðals náði 54 stiga forustu eftir fyrri hálfleikinn og sigraði i leiknum með 18— 2. Þar með var sveitin ís- landsmeistari. í sveitinni spiluðu Guð- mundur Pétursson, Jakob Möller, Jón Ásbjörnsson, Jón Hjaltason fyrirliði, Karl Sigurhjartarson og Simon Símon- arson, sem þama varð Islandsmeistari í sveitakeppni i níunda sinn. Hinir spil- ararnir hafa einnig allir orðið íslands- meistarar áður. Sveit Óðals hlaut 100 stig af 140 mögulegum. önnur varð sveit Hjalta Elíassonar með 90 stig. Sveit Þórarins 3ja með 86 stig. Sveit Helga Jónssonar fjórða með 86 stig. Sveit Sævars Þor- björnssonar fimmta með 69 stig. Síðan komu sveitir Þorgeirs Eyjólfssonar með 45, Halldórs Magnússonar 43 stig og Aðalsteins Jónssonar 14 stig. Mótið hófst á föstudag og voru flesta daga spilaðar tvær umferðir. Áhorfendur voru fjölmargir. Sveit Óðals vann fjóra fyrstu leikina og náði góðri forustu en sveit Þórarins sótti á og komst í efsta sætið í næst síðustu umferð. Hafði þá 85 stig en sveit Óðals 82 stig. Aðrar sveitir höfðu þá ekki lengur möguleika. Spilamennskan var talsvert ójöfn á mótinu og það er áreiðanlega met á Is- landsmóti að í átta leikjum fengu sveit- ir mínus-stig — reyndar allar sveitirnar nema Óðals og Halldórs. Þá heyrir það áreiðanlega til undantekninga að núllið kom aldrei fyrir i hinum 28 leikjum á mótinu. Sigurður Sveinsson fVíking Miklar líkur eru á þvi, að Sigurður Sveinsson, fyrrum landsliðsmaður í Þrótti, sem lék með sænska liðinu Olympia sl. vetur i Allsvenskan, gerist leikmaður hjá Víking. Hann er nú hér heima en mun fljótt fara aftur til Svíþjóðar til að ganga frá sinum málum þar — en er svo væntanlegur heim í sumar. Sigurður skoraði mikið af mörkum fyrir Olympia í vetur eins og skýrt var frá hér i DB en ekki tókst Aðalfundur Aðalfundur Glímufélagsins Ármanns verður haldinn I Snorrabx miðviku- daginn 9. mai kl. 8. Venjuleg aðalfundar- störf. Stjórnin. liðinu samt að verjast falli. Sigurður er 19 ára — vinstri handar skotmaður — og hann mun því hjá Viking fylla það skarð, sem Viggó Sigurðsson skildi eftir, þegar hann gerðist atvinnumaður hjá Barcelona. Ungverjar urðu heimsmeistarar í borðtennis í fyrrakvöld er þeir unnu Kínverja 5—1 í úrslitaleik keppninnar. Fyrr í mótinu höfðu þeir unnið Kín- verjana 5—2 þannig að um ótvíræða yfirburði var að ræða. Japanir hlutu þriðja sætið með 5—3 sigri yfir Tékk- um. Kinverjar urðu heimsmeistarar 1975 og 1977 en tókst ekki að vinna þriðja skiptið í röð. Ungverjarnir unnu Japani einnig 5—1 í undanúrslitunum. Neeskens ekki með Það verður víða hart barizt á knatt- spyrnuvöllum Evrópu I kvöld. Sex leikir eru á dagskrá í hinum ýmsu riðlum Evrópukeppni landsliða og flestir ef ekki allir stórmikilvægir. Það eru einkum þrír leikir, sem athyglin beinist að í kvöld. írar leika gegn Dönum í Dublin, Walesbúar fá V- Þjóðverja í heimsókn og Pólvcrjar og Hollendingareigast við i4. riðli. Írar hafa tilkynnt lið sitt en Johnny Giles, framkvæmdastjóri liðsins, hefur misst góða menn sökum meiðsla. Mark Lawrenson er handleggsbrotinn og David O’Leary getur heldur ekki verið með sökum meiðsla. Lið íranna verður þannig skipað í kvöld: Kearns, Walsall, Peyton, Fulham, Mulligan, WBA, Holmes, Tottenham, Grealish, Orient, Daly, Derby, Ryan, Brighton, Stapelton, Arsenal, Givens, Birming- ham, Heighway, Liverpool, McGee, QPR og Langan, Derby. Hollendingar verða án Johan Neeskens í kvöld en hann liggur heima í Barcelona með flensu. Að öðru leyti hafa Hollendingar alla sina beztu menn og takist þeim að sigra i kvöld standa þeir afar vel að vígi i riðlinum. Auk þessara liða leika íslendingar, Sviss- lendingar og A-Þjóðverjar i þessum riðli. Þriðji stórleikurinn verður i Wrex- ham í Wales þar sem Walesbúar og V- Þjóðverjar leiða saman hesta sína. Þjóðverjar hafa verið í vandræðum í undanfömum leikjum og aðeins náð markalausum jafnteflum gegn Móltu ogTyrklandiá útivelli. — Hver einasti leikur er að sjálf- sögðu mikilvægur en það lið, sem vinnur í kvöld stendur óneitanlega mjög vel að vígi, sagði Smith í gær- kvöldi. Mike Smith, framkvæmdastjóri Wales, tilkynnti lið sitt í gær og er það þannig skipað: Davies, Page, Berry, Phillips, Jones, Mahoney, Yorath, Thomas, Harris, Toshack (eða Edwards) og Curtis. Jupp Derwall tilkynnti einnig lið sitt í gær og er það þannig: Maier, Stielike, Kaltz, Förster, Dietz, Rummenigge, Bonhof Zimmermann, Múller (eða Cullmann), Fischer og Allofs (eða Hansi Múller). Þær fa vidor huGd HAFNARSTRÆT116.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.