Dagblaðið - 02.05.1979, Side 32

Dagblaðið - 02.05.1979, Side 32
* ..... * Aðal- fundur Olíu- malar hf. - Tillaga um að gefa fyrírtækið —en felld á aöalf undinum — Framkvæmdastof nun leggur til 100 milljónir kr. ogframkvæmdastjóra Aðalfundur Oliumalar hf. var haldinn á mánudag. Þar kom fram að tölur þaer sem DB birti á mánudag um tap fyrirtækisins eru réttar að því viðbættu að fyrirtækið skuldar sölu- skatt sem nemur 117,5 milljónum króna. Lausaskuldir eru þvi 836.661.714 kr. og heildarskuldir 1.150.877.703 kr. . Framkvæmdastofnun ríkisins gerðist aðili að Olíumöl hf. með 100 milljón króna hlutafjárframlagi og loforð liggja fyrir frá öðrum hluthöf- um um 107,6 milljón kr. framlag. Nokkrir hluthafar hafa neitað að leggja fram aukið hlutafé og aðrir eru enn óráðnir, en fyrirhugað var að auka hlutafé um 400 milljónir króna. Kosin var ný stjórn en i henni eru Björn Ólafsson Kópavogi, Ingólfur Falsson Keflavík, Helgi Þórðarson Framkvæmdastofnun, Guðmundur Kristjánsson Bolungarvík, Haukur Hannesson Miðfelli hf., Ólafur G. Einarsson Garðabæ og Tómas Sveinsson Framkvæmdastofnun. Tómas verður framkvæmdastjóri í eitt ár. Stjórnarformaður hefur ekki verið valinn, en taldar eru nokkrar líkur á þvi að Björn Ólafsson verði kosinn. Stjórnarformaður fráfarandi stjórn- ar var Ólafur G. Einarsson. öllu starfsfólki á skrifstofu félagsins hefurveriðsagt upp. Páll Hannesson verktaki i Hlaðbæ tilkynnti að Hlaðbær keypti ekki frekara hlutafé, þar sem Hlaðbær hefði afskrifað þetta fyrirtæki. Páll bar fram tillögu þess efnis að hluthaf- ar gæfu ríkinu Olíumöl hf. gegn því að ríkið ræki það áfram og tæki við skuldum. Tillagan var felld. -JH. Siglfirðingar hafa brugðið á það ráð í vetur að safna öllu þvi gifurlega magni af snjó, sem kyngt hefur niður, saman á íþróttavellinum. Að undanförnu hefur verið unnið við að aka snjónum í sjóinn — sem lengi tekur við. Eftir snjókomuna í gær og nótt má búast við að um tals- vcrðan tviverknað verði að ræða hjá Siglfirðingum. DB-mynd: BÁ, Siglufirði. Áf ramhaldandi sam- bandsleysi S.í. og FIDE Friðrik gekk út af „sátta- fundinum” Norðanáttin hægir á sér — 1. maí hátíðahöldin víðast hvar flutt í hiís vegna óveðurs „Norðanáttin fer heldur að minnka. En það er ekki hægt að lofa guð fyrr en hún er orðin verulega minni,” sagði Páll Bergþórsson veðurfræðingur í morgun. „Snjókoman á Norðurlandi fer eitt- hvað minnkandi og eins élin hér á Suðurlandi. En ekki get ég lofað miklu meiru. Við verðum víst að sætta okkur við það. Frost á landinu var i kringum 5 stig í morgun klukkan sex en eitthvað er búizt við að það minnki að sögn Páls. Kuldinn í gær olli frekar fá- brotnum hátíðahöldum og varð að flytja þau i hús nema á Suðurlandi. En strax og komið var svo norðarlega sem á Akranes fluttu menn hátiðahöldin i hús og á Norðurlandi datt vist engum íhug að hægt væri að gera eitteða neitt utan dyra. „Það hefur verið vitlaust veður,” sagði lögregluþjónn á Akur- eyri í morgun. ", -DS. Farmannaverkfallið: „MANAÐARVERKFALL ALGJÖRT LÁGMARK’ — enginn samningaf undur boðaður ,,Ég býst við því, að þetta verkfall dragist á langinn, þrjár vikur til mánuður er lágmark,” sagði einn samninganefndarmaður í deilu far- manna við atvinnurekendur sína í við- tali við DB i morgun. Fundur var haldinn í fyrradag, en upp úr honum slitnaði fljótlega og hefur annar fundurenn ekki verið boðaður. Fulltrúar útgerðanna hafa hingað til afdráttarlaust neitað að samþykkja nokkuð, sem fæli í sér kauphækkun og þar stendur hnifurinn í kúnni. Hafa farmenn lagt fram tilboð, þar sem gert er ráð fyrir kauphækkun, að vísu lítilli, samfara verulegri breytingu og einföld- • un á launastigum. í dag eru laun greidd samkvæmt ca 130 launatöxtum, en samkvæmt tilboði farmanna yrðu þeir tæplega fimmtíu sem þeir telja fela í sér mikinn sparnað fyrir útgerðina. -HP. „Ég er nokkuð ánægður n árangurinn miðað við hve aðdragat inn að framboði minu var stuttui sagði Bragi Halldórsson kennari s var í framboði gegn Einari S. Eína syni til embættis forseta S.í. og hl: þar 31 atkvæði gegn 45 atkvæðum Einars eins og DB hefur áður greint frá. „Sá stuðningur sem ég fékk sýnir, að það er óánægja á meðal skákmanna og vonandi verður tekið tillit til þess. Ég held að það hafi komið glöggt í ljós í samþykktum sem fundurinn gerði varðandi skýrslu um framboð og kosn- ingu til FIDE: Þessum kafla var mót- mælt á fundinum.” Kafli þessi i skýrsl- unni varð tilefni þess að Friðrik stóð upp á fundinum og spurði, hvort þetta væru þær sættir sem verið væri að bjóða uppaog gekk síðan af fundi en honum þótti sem sinn þáttur væri gerður scm minnstur i skýrslunni en þáttur ákveðinna manna sem mestur og átti þar vafalaust við þá Einar S. og Högna Torfason en Högni féll úr stjórninni í kosningum á fundinum. Framboð Braga var beinlínis tilkom- ið vegna óánægjunnar með sambandið eða öllu heldur sambandsleysið milli S.i. og FIDE. „c annleikurinn er sá, að menn voru ekkert æstir í þetta embætti,” sagði einn þeirra er stóð á bak við framboð Braga í samtali við DB. ,,En eins og sambandi S.l. og FIDE var háttað var Ijóst, að við urðum að koma með framboð gegn Einari S.” Nú þegar sýnt er að það framboð hefur farið út um þúfur og í Ijósi þess að Friðrik gekk út af „sáttafundinum” i mótmælaskyni þá er útlit fyrir áfram- haldandi sambandsleysi S.í. og FIDE. -GAJ- IBRtekuraf skariö: MARAÞONDELLAN VEREN EKKI STUNDUÐ í NAFM ÍÞRÓTTA íþróttabandalag' Reykjavíkur hyggst nú taka föstum tökum mara- þonæði unglinga í ýmsum greinum iþrótta. Samþykkt var i gær á fundi' stjórnar ÍBR að rita læknaráði, ÍSÍ og ef til vill fleiri aðilum í því skyni að setja nú þegar skorður við hættu- legum leik, sem stundaður hefur verið í nafni íþrótta. „Yngri flokkum er ætlaður skemmri leiktími i flokkakeppni en fullorðnum, þjálfuðum mönnum. Þessir sömu unglingar eru nú farnir að standa í einhvers konar keppni á annan sólarhring í þessum sömu greinum,” sagði einn fundarmanna. „Vitanlega á þetta ekkert skylt við heilbrigða iþróttaiðkun eða keppni, nema ef vera skyldi nafnið eitt,” sagði þessi sami maður. „Þetta eru auðvitað hvorki iþróttir né neitt annað skylt þeim. Þessi maraþon- della er íþróttunum ekki til fram- dráttar. Kapp ungra manna er skiljanlegt, en við viljum nú girða fyrir að slys hljótist af þessu tiltæki, sem fer eins og eldur i sinu um margar greinar íþróttanna.” -BS. irfálst, úháð dagbJað MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ1979, Samþykkt framkvæmdastjórnar Alþýðubandalagsins: Útvarpið fáitoll- tekjurnar Framkvæmdastjórn Alþýðubanda- lagsins samþykkti í fyrradag, að flokkurinn skyldi beita sér fyrir því, að ríkisútvarpinu yrði skilað hinum um- deildu tolltekjum af innfluttum sjón- varpstækjum. Alþýðubandalagsmenn sögðu í morgun, að þarna væri um að ræða nokkuð á annan milljarð króna. Ætti þetta að fara til tæknivæðingar sjón- varps, bæði aukinn tækjakost og dreifiketfi. Alþýðubandalagið vill, að þessu verði skilað á næstu árum en ekki öllu í einu. Rikisútvarpið naut þessara tekna áður, en þær voru af því teknar fyrir tveimurárum. HH Nýjasta hækkun íslenzkra sjávarafurða á Bandaríkjamarkaði: 3,7 milljarða búbót Miðað við hækkanir íslenzkra sjáv- arafurða á Bandaríkjamarkaði um allt að 10,6% á mánudaginn var, munu þær nema um 3,7 milljörðum króna í ár miðað við framleiðslu sl. árs, sé út- flutningur SÍS og SH lagður saman. Mest hækkaði steinbítsblokkin og vara í neytendaumbúðum svo sem þorskflök. Síðast hækkuðu þessar af- urðir í des. sl. og hafa þorskflök hækk- að um 22,3% samanlagt við þessar tvær hækkanir. Er þessi hækkun þeim mun betri ef tillit er tekið til ört harðnandi sam- keppni á Bandaríkjamarkaðnum, m.a. frá Kanada. -GS. Rólegurl.maí: „EINS0G ÍKIRKJU” 1. maí var fádæma rólegur um allt land í gær, „eins og í kirkju”, eftir því sem varðstjóri í Reykjavík sagði. Kalt var og varð víða að aflýsa fyrirhuguö- um útifundum og í þeim sem þó voru haldnir var fámenni. Kvöldið fyrir 1. mai leið einnig rólega og kom ekki til afskipta lögreglu umfram það sem vant er. -DS.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.