Dagblaðið - 26.06.1979, Page 1
MBRIHLUTIRAÐHERRA
VILL FRIDA TORFUNA
Vi
( — ÓlafuroglVlagnúseinirámóti
)
Sex af níu ráðherrum í ríkisstjórn-
inni hafa lýst því yfír i samtali við DB
að þeir séu hlynntir friðun Bernhöfts-
torfunnar í Reykjavík. Þeir eru
Benedikt Gröndal, Hjörleifur Gutt-
ormsson, Kjartan Jóhannsson,
Ragnar Arnalds, Steingrímur
Hermannsson og Svavar Gestsson.
Aðeins einn ráðherra hefur í samtali
við DB tjáð sig andvígan friðun. Það
er Magnús H. Magnússon.
DB hefur ekki reynzt unnt að
kanna afstöðu Ólafs Jóhannessonar
forsætisráðherra og Tómasar Árna-
sonar. Heimildir DB segja aftur á
móti að Ólafur sé eindregið andvígur
friðun, en Tómas hlynntur.
Til stóðaðræðafriðunBernhöfts-
torfu á fundi ríkisstjórnarinnar síð-
degis í gær en málið komst ekki á
dagskrá. Það yerður væntanlega
tekið fyrir á næsta fundi.
-GM/BH.
gli
SS! i í i n
/
Landshlaupi FRl lauk I morgun. Tfmasetning stóðst upp á sekúndu i hinu 2500 km
boðhlaupi um tsland. Þátttakendur skiptu þúsundum. Siðasta spölinn á Laugardals-
velii f morgun hljóp hinn kunni iþróttafrömuður, Jóhann Jóhannesson, létt og með
reisn, þó kominn sé yfir sjötugt. Sfðan afhenti Jóhann Erni Eiðssyni, formanni FRt;
boðhlaupskeflið fagra. Það verður nú geymt á Þjóðminjasafninu og Þór Magnússon,
þjóðminjavörður, veitti þvf viðtöku á Laugardalsvellinum. hsfm.
Sprengi-
hætta af
Rainbow
Warrior
Á þilfari Rainbow Warrior eru
bensínbirgðir miklar á báta þá sem þeir
hafa um borð og notaðir eru til að
trufla hvalveiðarnar. Gerir þetta það
að verkum, að þeir fá ekki að leggjast
að bryggju, hvorki hérlendis né
erlendis, að sögn Einars Thorodd en ,
yfirhafnsögumanns. Hafa þeir hins
vegar notið eðlilegrar fyrirgreiðslu hér
og fengið olíu og vatn úr landi meó
bátum.
í dag má ætla að úrskurður verði
kveðinn upp í lögbannsmáli því sem
Hvalur hf. höfðaði til að koma í veg
fyrir veiðitruflanir Greenpeace manna
á hvalveiðunum. -BH.
ísland eina
sólskins-
landið?
Það er ekki á hverjum degi sem
íslendingar geta státað sig af meiri sól
en aðrar þjóðir. Þó gerist það þessa
dagana. í morgun var ísland eina
landið af tíu þar sem sólskin er annars
staðar er skýjað eða rigning, jafnvel á
Mallorka. Var einhver að tala um að
við hefðum ekki fengið sumar? -ELA.
f
Seölamir sópast inn!
Hver verður röð bátanna?
Mikill fjöldi svarseðla í Sjórallget-
raun Dagblaðsins er þegar kominn á
ritstjórn blaðsins og greinilegt er að
lesendur blaðsins æda ekki að láta
sitt eftir liggja til að gera hana sem
glæsilegasta. En skilafrestur er til 2.
júlí, eða mánudagsins næsta. Þeir
seðlar sem póststimplaðir verða þann
dag eða fyrr verða gildir. Einnig má
koma seðlunum hingað á ritstjórnina
Síðumúla 12.
Á blaðsíðu 9 er skýrt nánar frá
Sjórallsgetrauninni og þar er líka
seðill þar sem fylla á út hvernig röð
keppnisbátanna i Sjóralli Dag-
blaðsins og Snarfara verður. -ÓG.
Þarna rennur Fletcherinn þeirra
Gunnars Gunnarssonar og Ásgeirs
Ásgeirssonar Ijúflega í sjóinn inn við
Elliðavog í gær. Undir stýri situr
Gunnar og ekki ber á öðru en að nýi
bátvagninn reynist vel. Gunnar og
Ásgeir eru meðal keppenda í Sjórall-
inu og hafa eins og aðrir keppendur
lagt nótt við dag að undanförnu til
að allt verði klárt á sunnudaginn
kemur, þegar sjórallið umhverfis
landið hefst. DB-mynd: Árni Páll.
takið þátt í Sjórallgetraun
DB—Seðillinnábls.9
\