Dagblaðið - 26.06.1979, Blaðsíða 10
10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 1979.
WBUWIB
ffrjilst'áhúð daffhlað
Utgefandi: Dagblaðifl hf.
FramkvaBmdastjflri: Sveinnj). EyjóHsson. RitstjóH: Jónas Kristjónsson.
RitmtjAniarfultiúi: Haukur Holgason. Sknfstofustjórí rltstjómar Jóhannos Reykdal. Fréttastjóri: Ómar
VaMmarsson.
Íþróttir HaHur Símonarson. Menning: Aðalsteinn Ingólfsson. Aflstoflarfréttastjóri: Jónas Haraldsson.
Handrit: Ásgrimur Pólsson.
BlaAamenn: Anna Bjamason, Ásgelr TómaésoQ, Atli Stoinarsson, Bragi Sigurflsson, Dóra Stefónsdótt-
ír, Gtssur Sigurósson, Gunnlaugur' A. Jónsson, Helgi Pótursson, Ólafur Goirsson, Sigurflur Sverrisson.
Hönnun: Guðjón H. PólssoW.
Ijósmyndir. Ámi PóH Jóhannsson, Bjamleifur Bjamlerfsson, Hörflur Vilhjólmsson, Ragnar Th. Sigurðs
son, Svoinn Pormóflsson.
Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þróinn Þorioifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. DreHing-
arsfjórc Mlór E.M. Halldórsson.
Ritstjóm Stflumúla 12. Afgreiflsla, óskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11.
AZlabimi blaflsins er 27022 (10 Ifnur). Áskrift 3000 kr. ó mónufli innanlands. I lausasölu 150 kr. eintakifl.
Setning og umbrot: Dagblaflifl hf., Siðumúta 12. Mynda- og pifltugerfl: Hilmir hf. Siflumúla 12. Prentun:
Arvakur hf. SkeHunni 10.
---- ~ - ~ ' *■
Skattgjald fyrir skammsýni
Rikisstjórnin undirbýr álögur áf/jg
landsmenn til að greiða spákaup-
mönnum á Rotterdammarkaði þeirra
okurverð.
Alþýðubandalagið ber fram tillögur
um innflutningsgjald, sem verði tíu
prósent í fyrstu en lækki síðan í tveimur
áföngum. Gjaldið verði til eins árs og falli siðan út.
Það eigi að færa ríkissjóði allt að fimmtán milljörðum.
Framsóknarmenn bera fram tillögur um tvö prósent
viðlagagjald, sem leggist ofan á söluskatt.
Alþýðuflokksmenn tvístíga. Ráðherrar flokksins
taka þátt í umræðum í ríkisstjórn um skattaálögur, en
Sighvatur Björgvinsson, formaður þingflokksins, telur
enga skattlagningu tímabæra. Vafalaust er í gangi enn
einn siagurinn milli ráðherrasveitarinnar og
uppreisnarmanna í þingflokki Alþýðuflokksins.
Róttækir pennar skrifa stundum, að þjóðin verði að
líða verulegt efnahagslegt áfall, áður en málum hér
verði komið í viðunandi horf. Hér verður sú stefna
yfirleitt ofan á, að reynt skuli að fleyta málum án þess
að breyta neinu, sem einhverju máli skiptir. Olíu-
kreppan getur orðið okkur mikilvæg lexía, ef við
bregðumst rétt við.
Við höfum fengið reikninga frá okrurunum í Rott-
erdam og fáum aðra hærri á næstu vikum. í því
verðum við að viðurkenna, að við höfum samið af
okkur fyrr á árum. Lúðvík Gizurarson hæstaréttarlög-
maður sagði í kjallaragrein í Dagblaðinu í fyrri viku,
að þessi mistök kostuðu okkur 30 þúsund milljónir.
Benti hann á mismuninn á verði olíuríkjanna,
svonefndra OPEC-ríkja og Rotterdamverðinu, sem
væri meira en tvöfalt hærra. Verð OPEC-ríkjanna
hefði hækkað um 50 prósent frá því í fyrra, en
Rotterdamverðið á gasolíu hefði á sama tíma hækkað
um yfir 200 prósent.
,,Við skort á olíu, sem byltingin í íran á meðal
annars þátt í að skapa,. . . breytist þessi út-
sölumarkaður í svartan markað og þangað fara þeir,
sem eru olíulausir og verða raunar að sæta hvaða okur-
kjörum, sem bjóðast,” segir Lúðvík Gizurarson um
Rotterdammarkaðinn.
Fyrsta viðfangsefnið hlýtur því að verða að leiðrétta
þessi samningamistök okkar. Það, sem heyrzt hefur af
viðræðum Svavars Gestssonar viðskiptaráðherra við
sendimenn Sovétríkjanna hér á landi, gefur til kynna,
að ekki verði auðvelt að fá Sovétmenn til að breyta
verðskráningunni. Þá verðum við að venda í önnur
hús, og hafa margar tillögur og hugmyndir komið fram
í því efni. Minna má á, að Dagblaðið hreyfði þeirri
hugmynd löngu áður en núverandi olíukreppa kom til,
að við ættum að athuga vandlega, hvort ekki mætti
kaupa olíu annars staðar, til dæmis í Nígeríu, og fá
hana hreinsaða í Portúgal.
Olíukreppan getur orðið okkur verðug lexía á fleiri
sviðum.
Sumt af því kemur fram í tillögum Hjörleifs
Guttormssonar iðnaðarráðherra um viðbrögð við
olíuhækkununum. Hjörleifur vill, að ríkið leggi fram
2—3 milljarða, einkum til að hraða raforku- og hita-
veituframkvæmdum og efla vísindalegar rannsóknir,
sem kynnu að leiða til orkusparnaðar.
Færir vísindamenn okkar í þessum efnum hafa
verið hafðir í öskustó, og við höfum verið svo seinir á
okkur að nýta eigin möguleika, að til ófarnaðar horfir.
Sennilega verður þjóðin því nú að þola skattlagningu
til að greiða olíu-spákaupmönnum okurverð vegna
skammsýni okkar í samningum og rétta hlut okkar
áorkuframkvæmdum og rannsóknum vegna skamm-
sýni stjórnvalda um langt árabil.
Formaður norskra nasista handtekinn:
Átti aðild að
morðtilræði 1. maí
Á fimmtudaginn handtók
lögreglan i Osló Eirík Bliicher, for-
mann Norsk Front (Norskur fram-
vörður), en svo nefnast samtök nýrra
og gamalla nasista í Noregi. Bliicher
er grunaður um að vera meðsekur í
sprengjukasti á kröfugöngu Faglig 1.
mai Front í Osló 1. maí sl. en þá
slasaðist einn göngumanna alvarlega.
Ýmsum kann að finnast ótrúlegt
að í Noregi skuli Finnast skipulögð
samtök manna sem hampa stoltir
kjarnanum úr hugmyndafræði þýzka
nasismans og færa hugmynda-
fræðina út í starf með morðtilræðum
við pólitíska andstæðinga sína,
líkamlegar árásir á litaða innflytj-
endur i Noregi, útbreiðslu kynþátta-
haturs o.s.frv. En staðreyndin er
samt sú að undanfarnar vikur hafa
átök nasistanna og andstæðinga
þeirra magnazt stöðugt sérstaklega
eftir að einn meðlimur Norsk Front,
Petter Kristian Kyvik, kastaði
sprengju á kröfugöngu með fyrr-
greindum afleiðingum. Sprengju-
varparinn komst undan eftir verknað
sinn 1. maí. Hins vegar vildi þannig
til að áhugaljósmyndarar, sem voru
önnum kafnir að ná myndum af
kröfugöngunum og áhorfendum,
náðu myndum sem síðar urðu
nasistum að falli. Dagblaðið norska
komst yfir mynd frá áhugaljósmynd-
ara sem tekin var yfir áhorfendaskara
fáeinum sekúndum áður en sprengj-
unni var kastað. Hún birtist á forsíðu
Dagblaðsins og varð sönnunargagn
lögreglunnar gegn Kyvik. Við yfir-
heyrslur hélt Kyvik því fram að Erik
Blilcher, formaður nasistasamtak-
anna, og fleiri hefðu skipulagt
árásina með sér. Þessu neitaði
Blúcher staðfastlega og hótaði
norskum fjölmiðlum málsókn og
fjársektum ef þeir héldu sliku fram.
Nú hefur hins vegar verið sannað á
Blucher að hann var potturinn og
pannan í öllu saman og var hand-
tekinn vegna þess. Jafnframt hefur
þeirri kröfu, að banna „Norsk
Front” með lögum, vaxið fylgi í
Noregi. Meðal annars hafa fjölmörg
verkalýðsfélög um allan Noreg tekið
undir kröfuna.
Norsk Front hefur starfað ötullega
að útbreiðslu hatursáróðurs gegn lit-
uðum innflytjendum í Noregi.
Félagar samtakanna líma upp vegg-
blöð sem endurspegla í myndum og
máli kynþáttastefnu nasimans, mála
hakakrossa á veggi og grindverk
nálægt íbúðum erlendra verkamanna
og hafa m.a.s. staðið að
likamsárásum á litaða verkamenn á
sporvögnunum í Osló og víðar.
Norsk dagblöð hafa upplýst að
Norsk Front sé í alþjóðlegum sam-
böndum við nasistahópa og hryðju-
verkasveitir víðs vegar um heim.
Brezku nasistasamtökin National
Front Þjóðfylkingin og Norsk Front
eiga ágætt samstarf og viða á megin-
landi Evrópu er að finna nasista og
Frásagnir hans hafa hjálpað mjög
mikið til við að afhjúpa nasistana.
Eitt af því sem brotthlaupsmaðurinn
frá Norsk Front hefur lagt fram er
grein sem Erik Blúcher nasistaleið-
togi skrifaði í innanfélagsblað sam-
takanna. Þar kynnir Blúcher þá
skoðun sína að núverandi valdhafar í
Sovétríkjunum séu að þróa áfram
kynþáttastefnuna sem Hitler sálugi
dó frá i miðri framkvæmd. Blúcher
telur að norskir nasistar eigi að horfa
með velþóknun mikilli á meðferð
sovézkra stjórnvalda á gyðingum.
Petter Kristian Kyvik, norskur nasisti sem kastaði sprengju á kröfugöngu f Osló
1. maí.
fasíska hópa sem Norsk Front er í
tygjum við. Einna mesta athygli
hefur þó vakið uppljóstrun um
vináttu og samstarf norsku nasist-
anna og „öryggisveita” Ian Smiths í
Ródesíu. Samband þeirra hefur
staðið í mörg ár og Norsk Front
hefur sent marga af meðlimum sínum
til þjálfunar í baráttusveitum Smiths
gegn frelsishreyfingunum í Ródesiu.
Tengiliðúrinn i Ródesíu kallast
Rhodesia Conservative Alliance.
Á síðasta ári gerðist það að fyrrum
þekktur leiðtogi í Norsk Front kom
fram opinberlega í Noregi og lýsti því
yfir að hann hefði sagt skilið við
Norsk Front og hugmyndafræði
nasismans. Hann hefur síðan verið
duglegur við að miðla upplýsingum
um innra starf samtaka nasistanna.
Erik Blucher: Nú bak við iás og slá
fyrir aðild að morðtilræöi.
Fórnarlamb nasistanna iþróttamaðurinn Ulf Anderson kom i veg fyrir að sprengjan spryngi f hópi barna. En um leið og hann
bjargaði Iffi barnanna, særðist hann sjálfur svo alvarlega aö vist er að hann getur ekki stundað fþrótt sfna á sama hátt og
áður.