Dagblaðið - 26.06.1979, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 26.06.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ1979. Tilboð þetta gildir út júniménuð. Áskrrftin giidir frá nsastu mánaðamótum og miðast við að graiðast innan ménaðar. GHptu simann, hringdu í 27022, fáðu samband við áskrifendaþjónustu Vikunnar og pantaðu nýju áskrrftina. Áskrifendasími 27022 Njarðvík-Víðir 3-3(l-0) Þetta var hörkuleikur eins og oftast þegar þessi lið eigast við. Fyrri hálf- leikurinn var þó fremur slakur og eina markið, sem þá var skorað gerði Gunnar Jónsson. Annars einkenndi miðjuþjóf og taugaspenna leikinn mest í fyrri hálfleik. Hafl áhorfendur eitthvað verið óánægðir með fyrri hálf- leikinn var svo sannarlega bætt úr því í þeim síðari, því þá voru gerð 5 mörk á aðeins 17 mín! Víðismenn hófu leikinn af miklum krafti og strax á 47. mínútu jafnaði Jónatan Ingimarsson eftir góðan sam- leik. Á 50. mín. komust Viðismenn síðan yfir með marki Guðjóns Guðmundssonar. Víðir sótti síðan um of — ætlaði að tryggja sigurinn — og áður en varði var Njarðvík komin yfir. Á 57. mín. jafnaði Baldvin Guðmunds- son og á 60. mín. skoraði Jón Haralds- son, 3—2. Aðeins tveimur mín. síðar var brotið á Guðmundi Jens Knútssyni innan vitateigs. Mjög góður dómari leiksins, Halldór Gunnlaugsson, dæmi umsvifalaust vitaspyrnu og úr henni skoraði Guðmundur Jens sjálfur. Eftir þetta datt hraðinn nokkuð niður, en liðin fóru að leika betri knattspyrnu. Undir lokin var mjög dregið af Njarðvíkingum og slapp mark þeirra þá oft naumlega. í heildina voru úr- slitin sanngjörn. Ármann-Víðir l-O(l-O) Ármenningar fengu Víðismenn í heimsókn á laugardaginn en leik þeirra var frestað á sínum tíma. Ármenningar sigruðu með eina marki leiksins, sem Þráinn Ásmundsson skoraði í fyrri hálfleik. Illgerlegt var að leika knatt- spyrnu í því veðri sem var og mótaðist leikurinn mest af því. Staðan i A-riðli er nú þessi: Armann Grindavík Njarðvík Stjarnan Víðir Grótta ÍK -SSv/emm. B-riðill Óðinn-Leiknir 3-l(l-0) Þessi úrslit koma geysilega á óvart og með þessu má segja að sigur Aftur- eldingar i riðlinum sé næsta vís, nema Óðinn taki upp á þvi að vinna þá líka. Greinilegt var á leik Leiknismanna að þeir töldu sér sigurinn vísan og slíkt kann aldrei góðri lukku að stýra. Snemma í leiknum urðu þeir fyrir því óláni að fá á sig sjálfsmark og við það virtist liðið brotna. í síðari hálfleiknum bættu þeir Konráð Árnason og Jóhann Sævarsson við mörkum fyrir Óðin en eina mark Leiknis skoraði Þorsteinn ögmunds- son. -PÓ/SSv. - 3. deild - 3. deild - 3. deild - 3. deild - 3. deild - 3. deild - 3. deild—3. deild—3. deild—3. deild Stefnir í hörkukeppni f A og E riðli! Af óviðráðanlegum orsökum ekki hægt að hafa C og E riðlana með í yfirlitinu yfir 3. deildina í gær og bætum við því hér með úr þessu hið snarasta. Auk þess fylgja hér á eftir úr- slit og umsagnir um þá leiki sem lciknir voru í 3. deildínni i gær. C-riðill Bolungarvík-Skallagrímur 1-4(1-1)' Borgnesingar ferðuðust vestur um helgina og léku tvo leiki í ferðinni. Fyrri leikurinn var gegn Bolungarvík og tóku Borgnesingar heimamenn heldur betur í karphúsið. í leikhléi var staðan jöfn, en í þeim síðari skoraði Skallagrímur þrívegis án þess að Bolvíkingum tækist að svara fyrir sig og stórsigur var í höfn. Hefur nokkuð komið á óvart hversu slakir Bolvíking- ar virðast vera eftir góða byrjun i vor. MarkBolvíkingagerði Þórður Ólafsson, þeirra langbezti maður, en fyrir Skallagrím skoruðu þeir Gunnar Jóns- son 2, Garðar Jónsson og Björn Jóns- soneitt hver. Stefnir-Skallagrímur 3-3. Skallagrímur lék þarna síðari leik sinn við Stefni, en þann fyrri unnu þeir 5—1. Leikmenn Stefnis börðust með kjafti og klóm og það kom Borgnesingum í opna skjöldu því, Stefnir náði að komast í 3—0 og þannig var staðan þar til aðeins 15 mín. voru til leiksloka. Síðasta stundar- fjórðunginn tókst Borgnesingum, sem fyrr í leiknum höfðu átt tvö stangar- skot, að jafna metin og kom jöfnunar- markið aðeins um mínútu fyrir leiks- lok. Mörk Stefnis gerðu þeir Jens Hólm 2 og Kjartan Ólafsson. Garðar skoraði tvívegis og Gunnar bróðir hans einu sinni fyrir Skallagrím. Staðan í riðlinum: Skallagrímur 3 2 10 12—5 5 Víkingur 110 0 4—0 2 Bolungarvík 3 10 2 2—8 2 Stefnir 2 0 11 4—8 1 Snaefell 10 0 1 0—1 0 E-riðill Þarna voru leiknir tveir leikir um helgina, og komu úrslit í öðrum þeirra nokkuð á óvart. HSÞ-Dagsbrún 2-0 HSÞ kom talsvert á óvart með því að sigra í þessum leik sannfærandi. Dagsbrun náði góðum leik gegn Ár- roðanum fyrir skemmstu en í þessum leik skoraði Jónas Þór Hallgrímsson, markakóngur þeirra Mývetninga, bæði mörkin í góðum sigri. Völsungur-Reynir 4-1 Völsungur vann þarna fyrirhafnar- lítinn sigur á Reyni, sem hefur slakasta liðinu á að skipa í riðlinum. Friðrik Jónasson, Magnús Hreiðarsson, Sigur- karl Aðalsteinsson og Björn Olgeirsson skoruðu mörk Völsungs, en eina mark Reynis gerði Svavar Guðmundsson. Staðan í riðlinum: Árroðinn 2 2 0 0 6—0 4 Völsungur 2 2 0 0 6—1 4 HSÞ 2 10 1 2—2 2 Dagsbrún 2 0 0 2 0—3 0 Reynir 2 0 0 2 1—9 0 Markahæstur: Örn Tryggvason, Árroðanum 3 mörk i M * við bjóðum nýja ásknft í 1/2 ár á adeins kr. 577emtakið Þannig sparar þú þér kr. 3.200 og færð Vik- una senda heim þér að kostnaðarlausu. Vikan flytur efni fyrir alla fjölskylduna: Forsíðuviðtölin frægu, myndasyrpur af mannamótum, smásögúr eftir innlenda sem ★ Sérstakir þættir nú: erlenda höfunda, framhaldssögur, popp- korn,tískufréttir,greinar um fróðlegt efni og furðulegt, myndasögur fyrir börnin, get- raunir, heilabrot, draumaráðningar, póstinn landsfræga, pennavinaþáttinn o.fl. ★ Ævar R. Kvaran ritar um: Undarleq atvik ★ Klúbbur matreiðslumeistara kennir matreiðslu nýstárlegra rétta.Nákvæmar leiðbein- inqar í máli oqTnyndum. Allt hráefni fæst í verslunum hérlendis. ★ VON Vikan oq Neytendasamtökin taka höndum saman í neytendamálum. ★ Oq svo er alltaf plakatið qóða í miðri Viku. ★ Jónas Kristiánssori ritstióri prófar víntequndirnar í Á.T.V.R. oq qefur beim einkunnir. ★ Mini Krimmi Willys Breinholst. ★ Börnin oq við. Guðfinna Eydal, sálfræðingur, ritar greinaflokk um uppeldismál oq samskipti barna oq fullorðinna yfirleitt. A-riðill í gærkvöldi voru svo leiknir tveir leikir í A-riðlinum, en auk þeirra var einn leikur á laugardag, sem DB vissi ekki um fyrr en í gær og fara úrslit og umsagrjir hér á eftir. Stjarnan-Grótta 3-10-1) Stjarnan vann þennan leik fyrst og fremst á miklu betri baráttu, en áhuga- leysi og deyfð virtist einkenna leik Gróttu. Strax á 7. mínútu náði Stjarnan forystu með fallegu marki Guðjóns Sveinssonar. Sú forysta stóð þó ekki lengi því á 17. mínútu jafnaði Grótta með marki Gunnars Lúðvíks- sonar og fannst heimamönnum nokkur rangstöðufnykur vera af því marki. Eftir markið færðist Grótta í aukana og var öllu sprækari fram undir leikhlé. í síðari hálfleiknum náði Stjarnan hins vegar öllum tökum í leiknum og miðjumenn þeirra réðu lögum og lofum lengst af. Mark lá í loftinu en það var ekki fyrr en um miðjan hálf- leikinn að nýliðinn Dagbjartur Harðar- son skoraði af stuttu færi og kom Stjörnunni yfir. Um 10 mín. fyrir leiks- lok bætti síðan Stjarnan þriðja marki sínu við er Dagbjartur skoraði gullfallegt mark af stuttu færi með þrumuskoti upp í þaknetið. Grótta var heppin að sleppa með ekki stærra tap og aðeins snilldarmarkvarsla Sverris Hafsteinssonar kom i veg fyrir enn stærra tap. Valur heppinn að tapa ekki 3ja leiknum í röð ,,Ég er ánægður með leikinn — en ekki með úrslitin. Við fengum tækifæri til að vinna Val — 3-4 opin færi í leikn- um og áttum auk þess skot i þverslá og mark var dæmt af okkur. Víkingur átti að vinna ef við berum saman tækifærin — en ég er ánægður. Víkingsliðið er farið að leika virkilega knattspyrnu,” sagði dr. Youri Ilitchev, þjálfari Víkings, eftir að þau félagslið, sem hann hefur þjálfað í islenzkri knatt- spyrnu, Valur og Víkingur, gerðu jafn- tefli á Laugardalsvelli i gær 0-0. Dr. Youri bætti við. „Dómararnir leyfa of mikið — það verður að vernda fram- herjana betur, og ég á þar ekki aðeins við Víkinga, heldur leikmenn annarra liða, gegn grófum varnarleik. Það er of mikil harka í varnarleiknum. „Það var jafnræði með liðunum í leiknum í gærkvöld, en þó voru Vals- menn heppnir að tapa ekki þriðja leikn- um í röð. Víkingar fengu mun fleiri tækifæri til að skora — knötturinn small í þverslá Valsmarksins. Þá tókst Víkingum að skora í leiknum en línu- vörðurinn Baldur Scheving veifaði — og dómarinn Villi Þór dæmdi markið af. Það var meira en litið vafasamt, svo ekki sé meira sagt. Á 49. mín. náði Víkingur fallegu upphlaupi — Sigurlás Þorleifsson lék á varnarmann Vals og komst inn í vítateiginn. Síðan gaf hann knöttinn aftur til Lárusar Guðmunds- sonar, sem komst frír að marki Vals og skoraði með föstu skoti. Ágætur mark- vörður Vals, Sigurður Haraldsson, átti ekki möguleika að verja. Það fór undrunarkliður um meðal áhorfenda, þegar markið var dæmt af. Valsmenn höfðu nú öllum beztu leik- mönnum sínum á að skipa nema Guðmundi Kjartanssyni. Hörður Hilmarsson og Guðmundur Þorbjörns- son komu inn á ný — en þeir Ólafur Danivalsson og Hálfdán örlygsson héldu stöðum sínum á kostnað Alberts Guðmundssonar og Jóns Einarssonar. Valsmenn voru sprækari í byrjun. Ingi Björn átti hættulegt skot utan af kanti — og skallaði síðan framhjá marki Víkings úr góðu færi aðeins síðar. En síðan komu Víkingar meira inn i myndina — Gunnar örn átti hörkuskot í þverslá á 10. mín. og minútu síðar skallaði Róbert Agnars- son aðeins yfir Valsmarkið eftir auka- spyrnu. Síðan dofnaði nokkuð yfir leiknum — Víkingar léku með þremur mönnum á miðjunni í vörninni og gáfu Valsmönnum talsvert eftir miðjuna. Valsmenn vildu fá víti, þegar Róbert renndi sér á knöttinn og felldi Hálfdán um leið — og síðar í leiknum vildu Jafntef li Víkings og Vals 0-0 á Laugardalsvelli í gær Víkingar fá víti, þegar Sigurlás spyrnti inn í vítateiginn og knötturinn kom í Sævar Jónsson. í lok hálfleiksins var mikill darraðardans í markteig Vals eftir aukaspyrnu. Þrívegis spyrntu Víkingar á markið af stuttu færi en Valsmenn urðu alltaf fyrir knettinum og að lokum varði Sigurður spyrnu Sigurlásar. HALLUR SIMONARSON.. Valsmenn gerðu eina breytingu á liði sínu í upphafi síðari hálfleiks. Jón Einarsson kom í stað Guðmundar sem ekki hafði náð sér á strik — greinilega ekki heill. Vikingar voru ágengir í byrjun síðari hálfleiks — Lárus sendi knöttinn í mark eins og áður er sagt frá, og rétt á eftir komst Sigurlás i færi en spyrnti knettinum beint í fang Sig- urðar. í leiknum reyndist Sigurlás vörn Vals mjög erfiður — og reyndar furðu- legt að þessi leikni miðherji skyldi ekki skora. Hann komst í dauðafæri en spyrnti framhjá — og lék nokkru síðar í gegnum Valsvörnina. Komst frír að markinu en Sigurður bjargaði með frá- bærri markvörzlu. Það var á stundum lika þungi í sókn Valsmanna — tækifæri þó heldur fá, því Víkingsvörnin var þétt fyrir. Diðrik Ólafsson þurfti varla að verja skot Valsmanna í leiknum. Ingi Björn komst í sæmilegt færi en spyrnti laust til Diðriks — Atli Eðvaldssn komst í opið færi en spyrnti himinhátt yfir. Þá skapaðist hætta við Víkingsmarkið eftir aukaspyrnu Vals. Knötturinn fór í varnarvegginn og síðan rétt framhjá Víkingsmarkinu. Lokakafla leiksins voru Valsmenn öllu ágengari án þess þó að skapa sér færi. Ómar Torfason kom í stað Gunnars Arnar hjá Víking — og nokkur dofi kom í leik Víkings eftir að Heimir Karlsson meiddist og var haltur undir lokin. Valsmenn voru meira með knöttinn í leiknum en ólíkt minni broddur var í sóknaraðgerðum þeirra en Víkings. Valsliðið er ekki nema skuggi miðað við getu liðsins undanfarin ár — krafturinn, hraðinn, leikgleðin miklu minni en áður hverju sem um er að kenna, því Valsmenn ættu jafnvel að vera með sterkara lið nú en undanfarin ár. Vörnin liðsins opnaðist oft illa og meira segja hinum snjalla leikmanni, Dýra Guðmundssyni, urðu á óskiljan- leg mistök. Það kom þó ekki að sök — Sigurður Haraldsson var snjall í marki Vals. Hörður lyfti talsvert framvarða- leiknum en mikillar þreytu virðist gæta hjá Atla. Framlínan bitlaus — en Hálf- dán bar þar af. Víkingar eru á réttri leið undir stjórn dr. Youri — og taktík hans var snjöll í þessum leik. Vörnin yfirleitt traust og þar vakti athygli snjall leikur Helga Helgasonar. Þessi unglingalandsliðs- maðuter nú að springa út. Mörg upp- hlaup Vals brotnuðu á dugnaðarforkin- um Jóhannesi Bárðarsyni. Sigurlás er skemmtilegasti sóknarmaður okkar nú — og hinn ungi Lárus var Valsmönnum erfiður með leikni sinni og hraða. Þjálfarinn lagði mikið á Hinrik Þór- hallsson og hann komst vel frá hlut- verki sinu. _______________________-hsim. Staðaní 1. deild Eftir leik Víkings og Vals í 1. deild í gær er staflan þannig. Keflavík Fram Akranes KR ÍBV Valur Víkingur KA Þróttur Haukar Einn leikur er á dagskrá i kvöld. Þá leika Fram og Akranes á Laugardals- velli kl. 20.00. Annað kvöld leika svo Þróttur og KR á sama stað. Heimsliðið vann Argentínu 2-1! Heimsliðið f knattspyrnunni sigraði Argentínu 2—1 í afmælisleiknum í Buenos Aires í gærkvöld. Heimsliðið verðskuldafli sigur í leiknum. Þó virtust heimsmeistarar Argentínu stefna í sigur framan af og hinn 18 ára Maradona skoraði hjá brasilíska markverðinum Leao. En í síðari hálfleiknum sótti heimsliðið í sig veðrið og á 68. mín. jafnaðist leikurinn. Galvan sendi knöttinn í eigið mark eftir mikinn darraðardans í víta- teig Argentínu. Brasilíumennirnir Zico og Toninho komu inn á eftir leikhléið og á 73.mín. léku þeir saman í gegn. Toninho lék á markvörð Argentínu, Fillol, og renndi síðan knettinum til Zico, sem skoraði sigurmarkið í leiknum. Þetta var fyrsti tapleikur Argentínu frá því liðið varð heims- meistari. Hafði áður leikið 6 leiki — unnið þrjá, gert þrjú jafntefli. Heimsliðið var þannig skipað í leiknum — 14 ieikmenn tóku þátt í honum. Leao, Brasilíu, Koncilia, Austurríki, Kaltz, V-Þýzkalandi, Cabrini, Ítalíu, Toninho, Brasiliu, Tardelli, Ítalíu, Pezzey, Austurríki, Krol, Hollandi, Causio, Ítalíu, Platini, Frakklandi, Zico, Brasilíu, Rossi, Ítalíu, Aseni, Spáni, og Boniek, Póllandi. í liði Argentínu léku Fillol, Galvan, Pasarella, Tarantini, Ardiies, Gallego, Maradona, Houseman, Luque, Valenciaogólguin. Fékk hlaupasting en setti samt ! Lilja Guðmundsdóttir keppti nýlega í 1500 m hlaupi við tvær þekktar hlaupakonur, Mary Stewart frá Englandi, sem hlaupið hefur vegalengdina á 4:06 'min. ,og K. Nemetz. Það var i Stokkhólmi. 12 stúlkur hófu hlaupið. Byrjunarhraðinn var frekar hægur en jafn. Lilja hélt sig lcngstum i þriðja sæti — var á eftir Nemetz og Stewart. Þegar um 500 m voru cftir hófst mikill endasprettur og þá tókst Lilju ekki að halda í við þær fremstu. Varð í sjötta sæti á 4:27.9 min. — tími, sem hún á að geta bætl mjög. Stewart vann auðveldlega á 4:17.7 mín. og Nemetz varð 1 öðru sæ|i á 4:19.7 mín. Hinn 21. júní keppti Lilja svo í 3000 m hlaupi i Sollentuna á nýlagðri Rubtan-braut. Þar kcppti mikill fjöldi og voru margir riðlar í sumum hlaupunum. Sex hlupu 3000 metrana þar á meðal ein sænsk, sem hlaupið hefur vegalengdina á 9:33.4 min. Þær Lilja lögðu á ráðin saman um að hjálpast að til að ná góflum árangri — skiptust á um forustu í hlaupinu. Byrjunarhraðinn var þó heldur mikill en siðan jafnaðist hlaupið og millítimar lofuðu góðu. Þegar þrír hringar voru eftir fékk Lilja hlaupasting en ekki svo mikinn að hún þyrfti að hætta. Sænska stúlkan náði þá sæmilegri forustu cn Lilja jafnaði sig. Tók góðan endasprett og varð jöfn sænsku stúlkunni á marklínunni. Báðar fengu sama tima, 9:45.0 mín. og sá timi er nýtt íslenzkt met á vega- lengdinni hjá Lilju. Eldra metið átti hún sjálf — 9:54.8 mín. Eftir hlauptið taldi Lilja að hún gæti náð mun betri tíma á vegalengdinni með mciri reynslu. Hefur hlaupið 3000 m sjaldan — svona einu sinni á ári i keppni — og í hlaupinu í Sollentunn dró hlaupastingurinn nokkuð úr árangri hcnnar. Önnur mesta sala á Englandi — Manch. City keypti lítt þekktan leikmannfráPreston Manch. City kom mjög á óvart í gær, þegar liðið keypti nær óþekktan leikmann úr 2. deild fyrir 750 þúsund sterlingspund, sem er önnur mesta upphæð, sem greidd hefur veriö fyrir leikmann á Englandi. Aðeins hærra, þegar Nottingham Forest keypti Trevor Francis frá Birmingham i vetur fyrir eina milljón sterlingspunda. Leikmaðurinn, sem Manch. City keypti, hcitir Michael Robinson frá Preston North End, Lanca- shire-liðinu kunna. Þetta er sterkur framvörður, sem undir stjórn Nobby Stiles, framkvæmdastjóra Preston og fyrrum heimsmeistara tók stórstígum framförum sl. keppnistimahil. Fáum datt þó i hug þessi risasala á leikmanninum en Preston gat ekki neitað tilboði City. Fjárhagurinn ekki alltof góður. Þá keypti Newcastle nýjan lcikmann i gær — Ian Davies, bakvörð, fyrir 175 þúsund sterlingspund. töpuðuígær Vikingarnir hans Tony Knapp i Noregi töpuðu sinum fyrsta leík í 1. deild i gærkvöldi. Léku þá við Rosenborg í Þrándheimi og Rosenborg sigraði 1-0. Crslit í öflrum lcikjum urðu þau, að Noregsmeist- arar Start unnu Lilleström 3-1 en í innbyrðislcik Osló-liðanna vann Valerengen Skeid 2-1. Staða efstu liða. Viking 11 7 3 1 17-7 17 Rosenborg 11 7 1 3 18—12 15 Start 11 6 2 3 23—10 14 Bryne 11 6 1 4 22-14 13 Moss 11 5 2 4 16—14 12 Valerengen 11 5 2 4 19—21 12 Bjöm Borg vann ífyrstulotu — en Arthur Ashvarslegiraiút Sænski tennlsleikarinn Björn Borg hóf vörn Wimbledon-titils sins i gær með öruggum sigri gegn einum kunnasta tennisleikara USA, Tom Gorman. Þó vírkaöi Björn, sem sigrað hefur í einliðaleik Wimbledon-mótsins þrjú siðustu árin — merkasta tennismót heims — talsvert taugaspenntur í fyrstu lotunni. Gorman sigraði með 6—3. I næstu lotu náði Björn sér á strik — sigraði með 6—4. Sú þriðja var mjög tvísýn en Björn vann aftur, nú mcð 7—5. i lokalotunni hafði hann hins vegar algjöra yfírburði, vann 6—1. Leikurinn var eiginlega nákvæm eftirliking á fyrsta leik Björns á Winmble- donmótínu í fyrra. Mest kom á óvart I gær, að bandariski blökkumaðurinn Arthur Ash, eini svertinginn, sem náð hefur heimsfrægð í tennis, var sleginn út. Nær óþekktur Ástralíumaður, Chris Kachel, sigraði Ash 6—4,7—6 og 6—3. Ash sigraðl í Wímbledon-keppninni 1975. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 1979. Sigurlás Þorleifsson, bezti maðurinn á vellinum i gærkvöld spyrnir á mark Vals en Sigurður Haraldsson varði. Dýri Guðmundsson, Sævar Jónsson og Grimur Sæmundsen fylgjast með. -DB-mynd Hörður.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.