Dagblaðið - 26.06.1979, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ1979.
íbúatala Patreksfjarðar staðið í stað í áratug:
„SÉ FRAM A FJÖLGUN”
—segir
sveitarstjóri
Patrekshrepps
„Fjárhagsstaða Patrekshrepps
mætti vera betri,” sagði Úlfar B. Thor-
oddsen sveitarstjóri er DB hitti hann að
máli fyrir skemmstu. „En staðan er
bæði góð og slæm. Innheimta gengur
vel hjá einstaklingum en erfiðar hjá
fyrirtækjum, sérstaklega þeim er tengj-
ast sjávarútvegi.
Mikil vinna hefur verið og mikill afli
hefur borizt að landi en afurðir hrönn-
uðust upp vegna farmannaverkfallsins.
Freðfiskur og saltfiskur hefur því legið
i húsunum og þau því ekki fengið fé
fyrir afurðir sinar.”
Framkvæmdir
á mörgum sviðum
„Það er i mörg horn að líta í
sumar,” sagði Úlfar. „Framkvæmdir
liggja á óvenju mörgum sviðum. Hafin
verður bygging grunnskólahúss og eins
verður hafin bygging barnadagheimilis.
Það hefur orðið andlitsly fting á
bænum hvað gatnagerð snertir. Á
árinu 1976 var lögð olíumöl á 2 km af
götum bæjarins og einnig á um 2 km i
fyrra en götur eru um 6 km að lengd.
Helztu samgönguæðar eru þannig frá-
gengnar. Á stöku stað hefur olíumölin
þó skemmzt en það er ekki vegna
malarinnar heldur jarðvegs. T.d. má
segja að olíumöl á Þórsgötu sé ónýt.
Þá er Unnið við að grafa upp úr
höfninni með krana. Höfnina á síðan
að fínkemba með dýpkunarskipinu
Gretti og hefur verið gefið vilyrði fyrir
komu þess en það er þó ótryggt. Það
kom fyrir nýlega að skuttogari Patreks-
firðinga, Guðmundur í Tungu, tók
niðri í höfninni þannig að Ijóst er að
grípa þarf til aðgerða. Sem betur fer
tók togarinn niðri á leirbotni þannig að
hann skemmdist ekki en hann sat fastur
í þrjá tíma.
Byggingu heilsugæzlustöðvar lýkur á
þessu ári en byggingin hefur staðið i
þrjú ár. Aðstaða batnar því mjög í
heilsugæzlumálum en sjúkrarúmum
við sjúkráhúsið fjölgar ekki.”
Úlfar B. Thoroddsen sveitarstjóri á Patreksfirði.
Patrekshöfn. Höfnin ergóð frá náttúrunnar hendi en nauðsynlegt að dýpka hana. M.a. sat togari Patreksfirðinga fastur
á leirbotni í höfninni fyrir skemmstu. DB-myndir JH
íbúafjöldi hefur
staðið í stað
íbúar Patreksfjarðar eru um eitt þús-
und og hefur engin fjölgun orðið í
u.þ.b. áratug. Ekki hafði sveitarstjóri
skýringu á reiðum höndum um orsök
þess. Þó má nefna sífelldan skort á hús-
næði þrátt fyrir miklar byggingar. Með
þeim byggingum hefur aðeins verið
haldið í þá stækkunarþörf sem nútíðin
krefst á húsnæði.
Einnig má nefna að fiskvinnslufyrir-
tækin hafa keypt gömlu húsin á eyrinn
og aukið þannig samkeppni við frum-
býlinga sem e.t.v. gætu ráðið við slík
húsakaup. Fiskvinnslufyrirtækin hafa
notað þessi gömlu hús sem verbúðir.
„Ég þykist sjá fram á að úr þessu
fari fólki að fjölga aftur,” sagði Úlfar.
„Byggingamálum er nú þannig háttað
að nýbyggingar mæta nú auknum
fólksfjölda. Við höfum nægjanlegt
landrýni til framtiðarbygginga. Svo
framarlega sem fiskur veiðist út af
Vestfjörðum er ég bjartsýnn á framtíð
þessarar byggðar.”
- JH
Auglýst fyrir hvalinn
SKAGFIRÐINGAR HRIFNIR
AF ÓLÖFU OG GARÐARI
Glæsilegir tónleikar voru haldnir i
Miðgarði 22. júní. Ólöf K. Harðar-
dóttir sópran og Garðar Cortes tenór
sungu og undirleikari var Jón
Stefánsson.
Garðar söng m.a. Mánaskm unr
Eyþór Stefánsson með miklum glæsi-
brag og Ólöf söng Lindina eftir
Eyþór við mikinn fögnuð áhorfenda.
Þau sungu einnig óperuaríur og dú-
etta. Undirtektir áhorfenda voru
mjög góðar enda eru Skagfirðingar
söngelskir og kunna að meta þegar
svona ágætt listafólk kemur i heim-
sókn. - GAJ / SS, Stcintúni.
GOLFTEPPI
fyrir
heimili—stigahús—skrifstof ur’
AXMINSTER
Grensásvegi 8 — Sími 82499
OPNUM í DAG
í nýju húsnœði að Smiðjuvegi 14
Kópavogi
FRIÐRIK ÓLAFSSON
Viðgerðaþjónustajyrir:
DATSUN, HONDA, SUBARU, TRABANT,
WARTBURG.
Nýtt símanúmer 77360
Tvær auglýsingar sem birtust í blöð-
um um helgina hvöttu íslendinga til
umhugsunar um hvali og hvalveiðar
Hvals hf. Önnur auglýsingin bar yfir-
skriftina „Ábendingar til íslendinga”
og var kostuð af „Whale Protection
Fund” í Washington. Var i auglýsing-
unni hvatt til þess að Islendingar athug-
uðu sitt mál varðandi hvalveiðarnar og
því lýst hvernig allur almenningur gæti
stuðlað að friðun hvala, ekki bara hér á
landi heldur og stuðlað að alþjóðlegri
hvalafriðun með atkvæði íslands hjá
Alþjóða hvalveiðiráðinu. - BH
1^0(3 snyrtivörur
Madam Dolores Fredon, sérfræðingur frá Roc í
París, leiðbeinir um val á Roc-snyrtivörum í apó-
tekinu kl. 2 til 5 á morgun, miðvikudag.
Athugið að Roc-vörurnar eru hannaðar fyrir við-
kvæma húð (ofnæmi).
LYKILLf
Bifreiðaverkstæði
Smiðjuvegi 20 — Kóp.
Sími 76650.
LADAÞJÓNUSTA
Vel stilltur bíll með fullkomnustu tækjum.
Af greiðsla - sölustarf
Óskum að ráða stúlku til afgreiðslu- og sölustarfa.
Framtíðarstarf.
Uppl., ekki í síma, gefur verksmiðjustjóri,
Vogafell h/f
Lystadúnverksmiðjan
Dugguvogi 8.