Dagblaðið - 29.06.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 29.06.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ1979. 3 Það virðist aldrei vera skortur á mönnum sem telja sér skylt að ala á tortryggni í garð lista og listamanna. Nýjasta dæmið mátti finna í Sand- korni Sæmundar Guðvinssonar í Vísi, en þar eru einhverjar tröllasögur um skammarlega frammistöðu íslenzkra listamanna hafðar eftir „íslendingi á ferð” um Holland. Til marks um það hve marktækt þetta slúður er má geta þess að umrædd sýning stendur yfir í Belgíu. Og hvers vegna reynir Vísir ekki að segja al- mennilega frá þessum viðburði og leggja verkin undir dóm lesenda, í stað þess að dreifa einhverjum kjaftasögum? Plebbi Vísir dreifir kjaftasögum, segir bréf- ritari. SÝNING A „LIST” tslendingur sem vj olla Moldarsvað í Austur- stræti er til skammar Jenný Jakobsdóttir skrifar: Hversu lengi áað bjóða fólki upp á það að horfa á moldardrulluna sem „prýðir” Austurstræti milli Reykja- víkurapóteks og aðalpósthúss Reykjavíkur? Þarna eiga þúsundir manna erindi daglega, íslendingar og útlendingar. Ég er í hópi þeirra sem fer þarna um daglega og finnst skömm að þvi að bærinn skuli láta þetta viðgangast. Er ekki tími til kominn að bæta úr? Göngugatan hefur þegar kostað bæjarbúa stórfé og þeir eiga heimt- ingu á að henni sé haldið sómsamlega við. Ófögur sjón I hjarta borgarinnar. Moldarsvaö I göngugötunni. DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson. Athuga þarf hvalveið- arnar betur Reykvíkingur skrifar: Mér virðast öll rök hníga að því að ástæða sé til þess að taka stefnu íslendinga varðandi hvalveiðar til gagngerrar endurskoðunar. í mál- flutningi um þessi efni á opinberum vettvangi hef ég orðið var við þver- sagnir. Hvernig stendur á þeim? Er ekki eitthvað gruggugt við þetta allt saman? Hvers vegna er opinber embættismaður í sjávarútvegsráðu- neytinu svo áfjáður í að vera mál- svari fyrir einkafyrirtæki? Og hvers vegna sitja fulltrúar Hvals hf. fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins? Sjálfur veit ég ekki hvort nauðsyn- legt sé að stöðva hvalveiðar. En mér finnst a.m.k. brýn ástæða til að athuga þessi mál öll betur og stöðva hvalveiðar eða minnka þær á meðan sú athugun fer fram. Leiðrétting Lítilsháttar brenglun varð í einni málsgrein í grein Björns Loftssonar á lesendasíðu DB s.I. þriðjudag. Rétt er málsgreinin svona: „Ég býst nú við, að það vefjist fyrir fleirum en mér að sjá eitthvað nýtt við þessa stefnu, en í hverju er hún frábrugðin þeirri stefnu sem fylgt hefur verið?” DB biðst velvirðingar á þessum mistökum. Ef hvalir deyja út þá er það glæpur sem ekki er hægt að réttlæta Pétur hringdi: Hvalurinn er ein gáfaðasta og merkilegasta skepnan á jörðinni. Vísindamenn segja að hvalir gangi Mér finnst full ástæða til að við hugsum okkur um tvisvar áður en við eyðum þessari skepnu með öllu, segir bréfritari. Frá hvalstöðinni f Hvalfirði. mönnum næst að viti og háþróuðu tilfinningalífi. Mér finnst þess vegna full ástæða til að við hugsum okkur um tvisvar áður en við eyðum þessari skepnu með öllu. íslendingar hafa áður staðið að útrýmingu dýra. Það hefur ekki verið þeim til sæmdar. Og ef við verðum þess valdandi að hvalastofnar hér við land deyja út þá er það glæpur sem ekki er hægt að réttlæta með nokkru móti. Ég legg til að sjávarútvegsráð- herra, Kjartan Jóhannsson, hafi forystu um það að breyta afstöðu íslands til hvalveiða. Fjárhagslegir hagsmunir mega ekki ráða ferðinni. Við eigum að slást í hóp þeirra þjóða sem friða vilja hvali með öllu í a.m.k. ;nokkraáratugi. Reykjavík — Grundartangi — Akrar á Mýrum — Deildartunga — Geldinga- dragi — Reykjavík Sumarferð Varðar er á sunnudaginn Lagt verður af stað frá Sjálfstæðishúsinu, Háaleitisbraut 1 kl. 8. Verð farmiða er kr. 7000.- fyrir fullorðna og kr. 5000.- fyrir börn. Innifalið í verði er hádegis- og kvöldverður. * Varðarferðir bjóða upp á traustar ferðir í góðum félagsskap. * IMotið tækrfærið og ferðizt um fagurt iandslag undir góðri leiðsögn Einars Guðjohnsen. * Allir eru velkomnir í sumarferð Varðar. * Tryggið ykkur miða. * Innifalið ■ fargjaldi er hádegis- og kvöldverður. * Miðasala alla daga frá kl. 9—21 ■ Sjálfstæðishúsinu, II. hæð. * Pantanir teknar í síma 82900. Athugið að rúta fer frá Breiðholti, húsi Kjöts og Fisks. Seljabraut 54 kl. 7.30. Frá Sjálfstæðishúsinu Hafnarfirði kl. 7.30. Frá Sjálfstæðishúsinu Garðabæ kl. 7.40. Frá Hamraborg 1 Kópavogi kl. 7.55. Landsmálafélagið Vörður, farðanefnd. Spurning dagsins Hjólar þú? Valborg Snævarr: Nei, aldrei. Eg á ekkert hjól. Reynir Gunnarsson: Já, stundum, svona eftir þörfum. Ég á nú hjól. Áslaug Aðalsteinsdóttir: Ég myndi hjóla ef ég ætti hjól, en ég býst ekki við að fá þaðánæstunni. Gestur Sigurðsson: Nei, ég hjóla drei. Þó væri hentugt að eiga hjól, þu yrði ég fljótari í mat. Katrín Sveinsdóttir: Nei, ekki núna, ég , gerði það þegar ég var yngri. Ég á hjól enþaðerbarabilað. Þórir Þórsson: Nei, ég á ekki hjól sem stendur en ég er góður á hjóli..

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.