Dagblaðið - 29.06.1979, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 29.06.1979, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1979. J)LAÐIÐ frfálst,úháð datfblað Útgefandi: Dagblaðtð hf. "/ » íf* Framkvœmdastjón: Sveinn R. Eyjóifsson. Ritstjórí: Jónas Krístjónsson. Ritxljómarfulltrúi: Haukur Holgason. Skrífstofustjórí ritstjómar Jóhannos Roykdal. Fróttastjóri: Ómar Valdánarsson. 4>róttir Hallur Simonarson. Monning: Aðolsteinn Ingólfsson. Aðstoöarfróttastjórí: Jónas Haraldsson. Handrít: Ásgrímur Pálsson. Blaðamonn: Anna Bjarnason, Ásgoir Tómasson, Atli Stoinarsson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefónsdótt- ir, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Holgi Pótursson, Ólafur Goirsson, Sigurður Sverrisson. Hönnun: Guðjón H. Pálsson. Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurös- son, Sveinn Þormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkori: Þráinn Þorloifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing- arstjórí: Már E.M. Halldórsson. Ritstjóm Síðumúla 12. Afgreiösla, áskríftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þvorholti 11. Aðaftsimi blaðsins er 27022 (10 línur). Áskríft 3000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 150 kr. ointakið. Sc.-tning og umbrot Dagblaðið hf., Siðumúla 12. Mynda- og plötugorð: Hilmir hf. Siðumúla 12. Prontun: Arvakur hf. Skeifunni 10. Hneykslismál á döfínni Almenningur fær sífellt meiri fá upplýsingar um hneyksli, sem upp er komið í lagmetissölu. Samkvæmt skýrslu Rannsóknarstofnunar físk- iðnaðarins um rannsóknir á þremur sýnum af lagmetisvörum má ætla, að mörg heimilin hafi haft á borðum býsna vafasaman mat að undanförnu, því að telja verður, að hin gölluðu sýni gefi til kynna verulegt vandamál. Hér er á ferðinni nokkurs konar framhald af fyrri fréttum. Dr. Jónas Bjarnason, varaformaður Neyt- endasamtakanna, sem gengust fyrir könnun á sýnunum þrem, sagði í viðtali við Dagblaðið í gær, að vissulega væri hneykslismál á döfinni. Það tæki til þess, að framleiðendur hefðu notfært sér þau göt, sem eftirlit hins opinbera skilur eftir, og einnig til þess, að eftirlitið væri í molum. Af fyrri fréttum er mönnum kunnugt, að Sovét- menn endursendu mikið magn af gaffalbitum, vegna þess að varan var stórlega gölluð. Þegar það mál kom upp, varð töluverð umræða um, hvar ábyrgðin lægi, og vísaði hver á annan. Stofnanir hins opinbera, sem ætla mátti, að hefðu átt að fylgjast með tilurð þessarar vöru, þvoðu hendur sínar. Enginn þóttist hafa nægilega skýrt afmarkaða ábyrgð i málinu. Dagblaðið gat þess á neytendasíðu sinni hinn 20. þessa mánaðar, að skemmdir gaffalbitar væru enn í búðum. Einn lesandi blaðsins kom á ritstjórn þess með niðursuðudós frá K. Jónsson á Akureyri. Á loki var miði, þar sem upplýst var á íslenzku, að í dósinni væru gaffalbitar. Undir þessum íslenzka miða var svo rússnesk áletrun á dós þessari. Bitarnir í dósinni voru stórskemmdir. Talsmaður K. Jónsson sagði, að nokkrir kassar af síldinni, sem Rússar áttu að fá, hefðu farið á íslenzkan markað með nýjum miðum. Þessar dósir hefðu verið innkallaðar, þegar ljóst var, að innihaldið var skemmt. Hann gaf í skyn, að kaupmönnum væri um að kenna að hafa ekki skilað vörunni í tæka tið eða hafa ekki geymt hana við réttar aðstæður. Sýnin, sem rannsökuð voru á vegum Neytenda- samtakanna voru gaffalbitar frá K. Jónsson, kaviar frá Arctic á Akranesi og sjólax frá Eldeyjarrækjunni í Keflavík. Ö l reyndust þau gölluð en í mismunandi miklum mæli. í öllum tilvikum var merkingu stórlega ábótavant. ,,Svo virðist sem framleiðendum sé ekki kunnugt um þær reglur, sem gilda um þessi mál hér- lendis,” segir Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins um það atriði. Þær reglur, sem hérlendis gilda um þetta, eru mjög takmarkaðar og af skornum skammti. Það er býsna alvarlegt, þegar framleiðendur fara ekki einu sinni eftir þeim. Að sjálfsögðu verður að herða stórlega allt eftirlit með slíkum vörum hérlendis og sjá til þess, að einhver opinber aðili hafi raunverulega ábyrgð. Við núverandi aðstaéður flækjast slík mál milli aðila, og enginn gerir neitt. Neytendur verða að fylgjast sérstaklega með þeim lagmetisvörum, sem þeir hyggjast kaupa. Þeir verða að huga að því, að allar merkingar séu í samræmi við reglur. Minna má ekki vera. Rangar eða of óljósar merkingar vekja strax grunsemdir. Neytendur verða að ýta við heilbrigðiseftirliti og sjá til þess, að það geri að minnsta kosti hið takmarkaða, sem því er falið að gera. Þeir verða að reka gallaðar vörur aftur í kaupmanninn. Af slíku er alltof lítið gert hérlendis. Hið opinbera verður að læra af þessu hneykslismáli og skapa raunverulegt eftirlit með matvöru fólksins. t ‘ Nicaragua: HVERJIR SKYLDU ÞÐRVERAÞESS- IR SANMNISTAR? Vi K Hverjir eru þessir Sandinistar? Hver eru þessi samtök, sem berjast gegn Anastasio Somoza einræðis- herra Nicaragua. í fyrsta lagi eru þau nefnd eftir þjóðhetjunni Augusto Cesar Sandino en nafn hans bar hæst á árunum á milli 1920 og 1930. Hann var hers- höfðingi landsmanna, sem börðust gegn bandarísku landgönguliði sem réðst inn i landið árið 1926. Banda- ríkjamönnum tókst aldrei að handsama hann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Aftur á móti féll hann fyrir hermönnum Anastasio Somoza Garcia hershöfðingja árið 1933. Sá Somoza er faðir núverandi einræðis- herra i Nicaragua og útnefndur af Bandaríkjamönnum til að stjórna þjóðvarðliðinu, sem þeir komu á fót til að gæta hagsmuna sinna þar í landi. Siðar varð hann forseti lands- ins í skjóli áhrifa Bandaríkjamanna. Augusto Cesar Sandino varð sem sagt góði maðurinn í sögunni, Som- oza sá hinn vondi — sá sem studdi hið erlenda vald. Sandino hers- höfðingi var svo sem enginn engill og hann var svo sem ekkert yfir það hafinn að beita sömu bellibrögðum og Somoza. En hann barðist gegn erlendu valdi og minning hans lifir í hugum fólksins sem minning um bjargvættinn. Þetta er ástæðan fyrir þvi að and- stæðingar Anastasio Somoza Debayle núverandi forseti velja samtökum sínum nafnið Sandinistar. Formlega var hreyfingin stofnuð árið 1964 og heitir á spænsku Frente Sandinista de Liberacion Nacional, eða nokkurn veginn Þjóðfrelsissam- tök Sandinista. Hreyfingin varð sérlega öflug fyrst á þessum áratug en heimsathygli vakti hún ekki fyrr en í september síðastliðnum. Þá tóku skæruliðar hreyfingarinnar sjálfa þinghöllina I Managua höfuðborg Nicaragua, og tók þar fleiri hundruð gísla ef ekki þúsundir. Þar á meðal voru ráð- herrar og ættingjar Somoza forseta. Unnu skæruliðar þar frægan sigur, slepptu gíslunum en fengu stórar fjárfúlgur i lausnargjald. Þegar þeir yfirgáfu Managua voru þeir kvaddir eins og þjóðhetjur af almenningi en sjálfir sögðust þeir mundu koma aftur. Eðlilegar tekjur og sanngjarn umþóttunartími —stutt grein um langt mál Tímamót í landbúnaðarmálum Nú hefur það gerzt, að yfirskatt- heimtumenn þessa lands, hinir hefðbundnu landbúnaðartalsmenn, hafa verið stöðvaðir. Hingað og ekki lengra, herrar mínir! Þaðgerðist með útgöngunni frægu á Alþingi í lok þingsins. Siðan hefur mikið verið ritað og rætt um vandamál land- búnaðarins. Það, sem birzt hefur á prenti um tímamótaútgönguna, þeg- ar Alþingi hafnaði að ábyrgjast 3 1 /2 milljarða erlent lán til land- búnaðarins, hefur aðallega verið reiöi, sárindi, vonbrigði, ásakanir, vopnaskak, hótanir og tilfinninga- semi. Það er allt saman skiljanlegt, en það vantaði aðallega skilning, sanngirni og tillögur um úrbætur. Um skilning á vandamálum hefðbundins landbúnaðar Það hefur mikið verið skrifað um þann vanda, sem talinn er hafa skapazt vegna þess, að bændur fá nú ekki fullt grundvallarverð fyrir sínar sauðfjár- og nautgripaafurðir. Það hefur i sannleika sagt nánast eingöngu verið fjallað um þann vanda af talsmönnunum. Því hefur jafnvel verið haldið fram af þeim, að alþingismenn hafi neitað að leysa vandamál bænda. Lausn vandans er að þcirra mati að senda reikninginn fyrir ranga landbúnaðarstefnu alfarið til skattborgara þessa lands. — Það er að sjálfsögðu engin lausn. Allt að 30 milljarðar eru nú teknir af almannafé í niðurgreiðslur og út- flutninsbætur. Ástandið er að sjáif- sögðu komið út fyrir allt velsæmi, og aðeins er unnt að grípa til tregðulög- málsins og gífurlegs atkvæðamisréttis í landinu sem skýringu á því, að ekki er þegar búið að skera ósómann niður. Öllu skynsömu og óbrengluðu fólki gat verið það Ijóst fyrir meira en tiu árum, að landbúnaðurinn stefndi í algjört óefni. Haraldur Ellingsen, cand. oecon., nú hjá Framkvæmda- stofnun rikisins, ritaði t.d. grein i Búnaðarritið árið 1967, en hún hét „Áætlun um þróun landbúnaðar- framleiðslunnar 1967—1985”. Har- aldur segir m.a.: „Að framansögðu er Ijóst að ekki er þess að vænta að vöxtur landbúnaðarframleiðslunnar geti orðið hraðari á næstu árum en nemur fólksfjölguninni í iandinu”. Mikil offramleiðsla var í landinu, þegar þetta var skrifað. Þar við hefur bætzt, að fólksfjölgun i landinu hefur orðið minni en þá var talið, og neyzluvenjur hlutu að breytast, því ekki myndu íslendingar borða kindakjöt eins mikið og áður tiðkaðist, ef kjötframboð og verðlag þróaðist með eðlilegum hætti. — Hvar heyrðust vamarorð forystumanna sauðfjár- og mjólkur- framleiðslu? Þegar í óefni er komið, reyna menn að grípa til hálmstráa. Rætt er um útflutning. Allir vita, hvernig það gengur. Um 20—50% af fram- leiðslukostnaði fæst þá, og hefur hlutfallið farið lækkandi. Menn hafa sífellt verið að bollaleggja með út- flutning, og á sama tíma verður möguleikinn fjarlægari. Vitanlega er það fráleitt að rökstyðja hina gífurlegu offramleiðslu með því, að einhvern timann muni útflutningur verða hagkvæmur. Það er næsta óskynsamlegt að ætla, að hagkvæmt verði að framleiða landbúnaðar- afurðir á harðbýlu íslandi og selja þær í gróskumiklum landbúnaðar- héruðum erlendis. ,,lt is like carrying eoal til Newcastle” (eins og að flytja kol til Newcastle). Landbúnaðar- kontórar og blaðafulltrúar bænda- samtakanna eru vísir til að reikna það dæmi hagkvæmt. Þcir gætu reiknað túlipanarækt i Thule hagkvæma, hvað svo sem Hollendingar aðhafast! — Nei, þetta dæmi gengur ekki upp. Ef einhver Ijósglæta finnst fyrir út- flutning íslenzkra matvæla af land- búnaðartoga i framtiðinni, geta menn aukið framleiðsluna, þegar að þvi kemur. Allt rugl um sveltandi heim í þessu sambandi er dæmi um annað hvort fáfræði eða vitaverðan áróður. Menn geta aðstoðað svelt- andi þjóðir mun meira með því að gefa þeim þó ekki væri nema olíuna, sem notcð er við islenzka land- búnaðarframleiðslu, í stað kjötsins. Um sanngirni og ósanngirni Það er ósanngirni að ásaka al- þingsimenn eina fyrir þann vanda, sem nú ríkir í landbúnaðarmálura Forystumenn bænda bera mun meiri ábyrgð. Það er ósanngirni að krefjast þess, að vandamálunum verði alfarið vísað til skattborgaranna. Það er ósanngirni að halda því fram, að þessir 3 1/2 milljarðar hefðu leyst nokkum aðalvanda. Viö óbreyttar aðstæður hefðu þcir oröiö eins og ein sprauta í viðbót fyrir citurlyfja- sjúkling. Það er ósanngirni að halda „Viö óbreyttar aöstæöur heföu 3,5 mill- jarðarnir orðið eins og ein sprauta í við- bót fyrir eiturlyfjasjúkling.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.