Dagblaðið - 29.06.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 29.06.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1979. Engbmvar handtekinn — er blaðamenn DB könnuðu viöbrögðin við Rockville herstöðina á Miðnesheiði —yf irráðasvæði herstöðvarirmar nær út fyrir girðingu að sögn Uaðafulltrúa vamarliðsins Dagblaðið greindi frá því í siðustu viku, að bandariskir hermenn hefðu haft afskipti af tveimur Ísiendingum, karli og konu, töluvert utan við girð- ingu Rockville radarstöðvarinnar á Miðnesheiði. Blaðið hafði vegna þessa samband við Hannes Guðmundsson og greindi Blaðamenn stöðvuðu bíl sinn skammt frá stöðinni, en við afleggjara að stöðinni er aðeins skilti sem á stendur „Rockville” en greinir ekkert frá takmörkunum á mannaferðum. Við stöðina eru hins vegar skilti, þar sem á stendur að hér sé samningssvæði Nató- stöðvar, sem gætt sé af vopnuðum í þesu varðskýli innan girðingar Rock- ville-radarstöðvarinnar fylgjasl vopn- aðir varðmenn með öllum mannaferð- um við stöðina. sagði að ef til þess kæmi yrði að liggja fyrir leyfi blaðafulltrúa varnarliðsins, Perry Bishop. Aðspurður sagði maður- inn að verðir i Rockville skiptu sér ekki af fólki utan girðingar og fréttir af handtöku væru á misskilningi byggðar. Ekki dugði að gefast upp við svo búið og var því haldið á fund Perry Bishops blaðafulltrúa og aðstoðar- manns hans, Miks Magnússonar. Bishop ræddi málin lengi og skýrði hvað gerzt hafði frá sjónarmiði hersins. Hann sagði að fólkið hefði ekki verið handtekið, heldur tekið til viðtals. Það væri skýrt að samningssvæði stöðvar- innar næði út fyrir girðingu og vörðun- ◄ Perry Bishop, blaðafulltrúi varnarliðs- ins, og Mik Magnússon aðstoðarblaða- fulltrúi fylgdu blaðamönnum DB um Rockville-stöðina. sem hefði verið kennt að nota vopn og hefðu fyrirmæli um hvaða svæða ætti að gæta. í þessu tilviki var könnuð saga beggja og reynt að sjá hvað gerzt hefði. Það hefði gert málið erfitt að tilfinn- ingar hefðu blandazt í málið. Vera mætti að verðirnir hefðu ekki farið eins varlega og margítrekað hefði verið við þá. Bishop sagði að verðirnir vissu ekki hverjir væru á ferð utan girðingar. Það þyrftu ekki endilega að vera íslend- ingar. Þáeru loftnetsmöstrin óvarin og geta reynzt hættuleg ef klifrað er i þeim. Blaðafulltrúinn sagðist ekki geta ákvarðað nákvæmlega það svæði utan girðingar sem gætt væri sérstak- lega. Erfitt væri um vik, ef girða ætti allt það svæði, því þá yrði að girðast nánast allt þarna á skaganum. Ef fólk væri hins vegar þarna á ferli hann frá þvi að utan girðingar teldist íslenzk lögsaga. Rétt þótti að kanna nánar hvað hér byggi undir og því fóru blaðamaður og Ijósmyndari Dagblaðsins suður að Rockville-stöðinni til þess að kanna viðbrögð hermannanna við mannaferð- um. vörðum. Þetta er hins vegar með smáu letri og verður að fara alveg að skiltun- um til þess að lesa á þau. Varðmaður í skýli við hlið stöðvarinn- ar. Rockville-radarstöðin og eitt af mörg- um loftnetum í grennd við stöðina. Blaðamenn röltu síðan um stund þarna utan girðingar og fóru loks alveg að henni en ekkert gerðist. Enginn kom út og enginn var handtekinn. Því næst var reynd innganga, en við hliðið er varðskýli. Vörður þar kannaði skilríki fréttamanna og bað þá biða. Biðin stóð í 20—25 mínútur en þá kom hermaður, hærra settur, á vett- vang og sagði að því miður mætti hann ekki hleypa mönnum inn fyrir. Hann ◄ Skilríki blaðamanna könnuð i hliðinu en í fyrstu var neitað um inngöngu. DB-myndir Ragnar Th. um væri falið að fylgjast með öllum mannaferðum. Verðirnir hefðu þvi i nefndu tilviki verið að gera skyldu sína. Hann ítrekaði þó að mikil áherzla væri lögð á að kynna vörðunum og al- mennt bandarískum hermönnum sér- stöðu íslendinga, sem væru óvanir að umgangast vopnaða menn. Þar yröi að sýna sérstaka varúð. En vissulega yrðu menn að gera sér grein fyrir þvi að þarna væru vopnaðir hermenn, menn, ætti það skilyrðislaust að hafa sam- band við verðii.j, eða íslenzku lögregl- una, til þess að firra sig vandræðum. Að loknu viðtali fékkst siðan leyfi til þess að skoða Rockville radarstöðina í fylgd með Bishop og Mik. í raun var þar fátt að sjá nema ömurleg hús og nöturlegt landslag. Títtnefndir varð- menn eru þar í vel afgirtu skýli og fylgj- ast fráneygir með. - JH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.