Dagblaðið - 29.06.1979, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ1979.
-segirSigiirðurHelga
son forstjóri Flugleida
umuppsagnirstarfs-
fóiks, frestun fjárfest-
ingaogalmenntnn
samdráttaraðgerðir
félagsins
Vandi Flugleiða:
Eru vamaraðgerðir sem
berskylda til að framkvæma
illillí
„Til þess að halda i horfinu og til
að halda sínu sæti i Norður-Atlants-
hafsfluginu ákváðu Flugleiðir að
tækka fargjöldin og einfalda þau i
þeirri von að fljótlega mundi úr ræt-
ast. Fargjöldin mundu hækka á ný og
draga mundi úr samkeppni. Þessi von
hefur ekki rætzt til þessa. Hins vegar
hefur félagið haldið sinum hlut far-
þegalega séð.” Þetta er bein tilvitnun
i fréttatilkynningu Flugleiða hf. í til-
efni blaðamannafundar í gær um
vanda fyrirtækisins og framtiðar-
áform þar af leiðandi.
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða hf., sagði meðal annars að
ákveðið hefði verið að segja upp tvö
hundruð manns af stjórnunar- og
skrifstofuliði félagsins á Íslandi. Er
þetta um það bil 16% eða fækkun úr
. 1300 í I lOOmanns.
Meginhluti þess fólks sem sagt er
upp er félagar í Verzlunarmanna-
félagi Reykjavíkur, eða um það bil
130 manns. Flugmenn eru átján,
flugvélstjórar sjö og flugfreyjur 25.
Flugvirkjar eru Oórtán til tuttugu og
einn en flugvélstjórar munu eiga að
ganga fyrir um störf i landi eftir að-
stæðum. '
Sigurður Helgason forstjóri tók
fram að hér væri eingöngu um
varnaraðgerðir að ræða, miðaöar við
þær horfur, sem væru i dag. Engurn
þætti gott að standa í þeim sporum
að þurfa að segja upp starfsfólki og
ástæðan fyrir þvi að svo fljótt væri
tekið til þess ráðs hér á íslandi væri
sú að samkvæmt samningum væri
skylt að segja starfsfólki upp með
þriggja mánaða fyrirvara cn til
dæmis i Bandaríkjunum væri sá
Irestur aðeins ein til tvær vikur. Ilug-
leiðir ntiðuðu sinar áætlanir við I.
október, þegar vetraráætlun gengi i
gildi.
-ck;
EINUM FOKKER
LAGTOGDREGID
ÚR EYJAFLUGI
— verólagsyfirvöld gera ekki ráð fyrir neinni endur-
nýjun innanlandsflugflotans ívenði flugfarmiða
VIÐHALDIÐ EKKI
HAGKVÆMT HÉR
Er ekki hagkvæmara að viðhald
flugvéla Flugleiða fari fram á íslandi
heldur en annaðhvort í Bandaríkjun-
um eða í LuvemburgV
,,Nei”, svaraði Sigurður Hclgason
forstjóri félagsins. Slikl væri óhag-
kvæmara og þá fyrst og fremst af
þvi að viðhald og meginviógerðir
þurfa að fara fram á endastöð, sem
þá i tilviki Flugleiða er annað hvort i
Luxemburg eða einhverri þcirra
borga i Bandaríkjunum, sem flogið
er til.
,, Auk þess má nefna, að við höfum
enga skýlisaðstöðu hér á landi,”
sagði forstjórinn.
„Einnig hefur kostnaðarþróun
verið mjög óhagstæð hér á landi á
undanförnum árum,” sagði Sigurður
Helgason. -CK;.
fram að fargjöld í innanlandsflugi eru
mun lægr'i hér en til dæmis í Svíþjóð,
þegar miðað er við sömu vegalengdir.
lnnanlandsflug Flugleiða er nú rekið
með tapi að sögn forráðamanna þess.
í heimildum til verðlagningar á
flugfarmiðum hér innanlands er
ekki gert ráð fyrir neinni endurnýjun
flugflotans. Að sögn forráðamanna
Flugleiða væri til dæmis ekki von til
þess, að endurnýjun gæti orðið á
flotanum en núverandi Fokkervélar
munu að fullu afskrifaðar. -ÓG.
MISMUNUR A STARFSFOLKI?
SHC-5300
Fullkomnasta gerð
frá Crown.
1. útvarp með öllum bylgjum.
2. segulband með Dolby.
3. plötuspilari með segulþreifara.
4. magnari 2x 50 w.
5.2x hátalarar
Allar líkur eru á því að einni af
fimm Fokker vélum Flugleiða verði
lagt í vetur og nokkur samdráttur
verði í áætlunarflugi félagsins. Að
sögn Einars Helgasonar fram-
kvæmdastjóra innanlandsflugs, þá er
liklegast að dregið verði úr flugi til
Vestmannaeyja en nýting í áætlunar-
flugi þangað hefur versnað verulega
að undanförnu. Þá væntanlega vegna
tilkomu Herjólfs sem siglir milli
Þorlákshafnar og Eyja.
Á blaðamannafundi i gær kom
Ljóst er að uppsagnir Flugleiða
hf., koma mjög misjafnlega niður á
fólki og starfshópum eins og eðlilegt
er.
Ekki verður til dæmis annað séð
enn fyrrum starfsfólk Loftleiða verði
fremur fyrir barðinu á uppsögnum
en fyrra starfsfólk Flugfélags Íslands,
hvaðsemþvi kannaðvalda.
Sú er í það minnsta raunin hvað
varðar skrifstofufólk, flugfreyjur og
flugmenn Loftleiða, sem hafa fengið
reisupassann frá og með l. október,
eru mun eldri sumir hverjir heldur en
starfsfélagar þeirra, sem halda störf-
um sínum hjá Flugfélagi íslands. í
síðastnefnda tilvikinu mun fariðeftir
samningum við félög flugmanna, sem
enn eru tvö.
Við uppsagnir er ávallt farið cftir
starfsaldri nema hjá félögum
Verzlunarmannafélags Reykjavikur.
-ÓG.
Bjóðaaðstoð
þeimsem sagt er
uppstörfum
Starfsmannahaldi Flugleiða
hefur verið falið að koma upp að-
stoðarkerfi fyrir þá starfsmenn
félagsins, sem sagt hefur verið
upp störfum frá og með l.
september og l. október. Eru það
um það bil 200 manns eins og
annars staðar er skýrt frá. -ÓG.