Dagblaðið - 29.06.1979, Side 7

Dagblaðið - 29.06.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ1979. 7 Alltpott- þétthjá FR-liðinu —aldrei andartaks sambandsleysi við sjórallsbátana hvar sem þeir verða staddirviðlandið Félag farstöðvaeigenda hefur tekið Allan hringinn munu félagar í FR-sam- að sér mikilvægan hlekk í framkvæmd tökunum hafa samband við sjórallsbát- sjórallsins og hann ekki þann minnsta. ana. FR-menn munu fara allan hring- Álla ..móflursloðvar” FR-manna umhverfis landifl. Bílar o(* bálur verða sendir lil vmissa slafla lil afl kerfið verði ÖrURRl. Kerfi FR manna spannar allt landið. Sjórallsmenn í fyrra fengu smjörþefinn af þvi hvaða stuðningur er að þeim .í ár er hægt að fullyrða fyrirfram að allt mun bresta á undan öryggiskerfi FR manna. Glæsifleytan veróurí for- ustufyrir FR menn að undirbúa aðalstjórnkortið. Þarna verður allt sem fram fer merkt á kortið. Þegar DB-menn komu í gær á skrifstofu FR félagsins við Síðumúla var verið að setja nýtt gler á kortið. Á myndinni eru f.v. Júlíus Högnason, formaður FR manna i Keflavík, og Valtýr Einarsson, en hann og Reynir Einarsson, formaður Félags farstöðvaeigenda, verða lykilmenn í stjórnstöð í Reykjavík. DB-mynd Ragnar Th. inn í bifreið, sem mun hafa fast öryggissamband við sjórallsbátana á fyrirfram ákveðnum tíma. Samkvæmt áætlun á ekki að líða andartak á allri leiðinni umhverfis landið, sem ekki verður einhver FR-maður í sambandi við sjórallsbátana. Að vísu er enn ekki fullfrágengið um sambandið við Horn á Vestfjarðakjálkanum en FR-menn vinna að því að'Teysa það mál og verða vafalaust búnir þegar sjórallið hefst klukkan tvö á sunnudaginn. Höfuðstöðvarnar verða síðan í aðal- stöðvum Félags farstöðvaeigenda við Siðumúla í Reykjavík og þar verða þeir við stjórn Reynir Einarsson formaður samtakanna og Valtýr Einarsson. -ÓG. KJÆRNESTED RÆSIR SJÓRALLSKAPPANA „Nei ég hef aldrei stundað sjóinn sem íþrótt, aðeins sem atvinnu mína. Hitt er annað mál að ég tel sjósport af ýmsu tagi eiga fullan rétt á sér, enda góð og heilbrigð íþrótt,” sagði Guð- mundur Kjærnested skipherra, sem tekið hefur að sér að ræsa keppendur úr Reykjavíkurhöfn á sunnudaginn. ,,Ég heid,” sagði Guðmundur, ,,að sigjingum sem íþrótt hafi verið of lítið sinnt til þessa enda lítið gert fyrir þær, í það minnsta hér í Reykjavík þar sem ekki er einu sinni almennileg höfn fyrir þessa báta." -ÓG. Guðmundur skipherra hefur lent í mörgu strangara en að ræsa nokkra Snarfarabáta í kappi umhverfis land- ið. Myndin er tekin á dögum síðasta þorskastríðs og sjást skemmdir á þyrlupalli varðskipsins Óðins. DB-mynd Björgvin. Ordsendingfrá GumariogÁsgeiri áSignýju08: GETUR NOKKUR LÁN- AÐOKKUR10-20 HESTAFLA MÓTOR TILAÐFARAMEÐÍ SJÓRALUÐ? I forustu fyrir Snarfarabátunum, sem fylgja ætla keppendum í Sjóralli Dagblaðsins og Snarfara áleiðis að rás- marki verður einhver glæsilegasti far- kosturinn sem um getur hér í Reykja- vík. Það er Rolf Johansen stórkaup- maður sem stjórnar og á bátinn. Frá honum verður startinu stjórnað og þar verður startskotinu hleypt af undir yfir- stjórn ræsis, Guðmundar Kjærnested skipherra. -OG. Skipperinn um borð er tilbúinn i hvað sem er enda ekki á hverjum degi sem menn hafa forustu i hópsiglingu. Rolf Johansen við bát sinn. DB-mynd Ari Hafsteinn og RunóHiir veröa að hætta við þátttöku: VERKFALUD SETTISTRIKI REIKNINGINN Því miður — Sjóralli Dagblaðsins og Snarfara tókst ekki að snúa á allan þann vanda, sem þjáð hefur þetta þjóðfélag vegna tveggja mánaða verkfalls farmanna. Höggið lenti kannski þar sem sízt skyldi. Sigurvegararnir síðan i fyrra, Hafsteinn Sveinsson og Runólfur Guðjónsson, heltust úr lestinni. Þrátt fyrir mikla fyrirhöfn og ómælda vinnu og fjárútlát tókst þeim ekki að fá i tæka tíð ýmsa hluta vélarinnar nýju. Að vísu væri réttara að segja vélanna, í fleirtölu, því tvær skyldu þær vera og hvor 175 hestöfl. Við verðum þó að bíða næstu keppni til að fá að sjá glæsispyrnuna i þeim þvi verkfallið setti strik i reikninginn. Kannski er rétt að lita björtum augum á málið og þakka almættinu fyrir að ekki skyldi meira fara úrskeiðis en orðið er. Við skulum sleppa harmagrátinum vegna þeirra báta sem aldrei áttu möguleika vegna farmannaverkfallsins og þeirra er- lendu keppenda, sem ekki höfðu tækifæri til að komast til landsins i tæka tíð af sömu orsökum. Sjórallið verður og keppendur i því munu sigla á fullu vélarafli og um leið af fullri varúð og skynsemi umhverfis ísland og sá bezti sigrar. -OG. MMBlABm SNARFARI-% Sendist merkt: DAGBLAÐIÐ SJÓRALL 79 Síðumúia 12 105 Reykjavík Hver verður röð bátama? KEPPENDUR ERU: 03 ,— Bjarni Björgvinsson og Lára Magnúsdóttir 06 — Bjarni Sveinsson og Olafur Skagvfk 07 — Eirfkur Kolbeinsson, Hinrik Morthens og Tryggvi Gunnarsson 08 — Gunnar Gunnarsson og Ásgeir Ásgeirsson SKILAFRESTUR TIL MÁNUDAGSINS 2. JÚLÍ1979 PÓSTSKIL MÁNUDAGINN 2. JÚLÍ1979 í SÍÐASTA LAGI. Önnur svör gilda ekki 1 2 3 4 Sendandi: Nafn:..... Heimili: ... Sími:.....

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.