Dagblaðið - 29.06.1979, Síða 14

Dagblaðið - 29.06.1979, Síða 14
14 i DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1979. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Paolo Rossi til Napólíígær Paolo Rossi, stjarna ítala úr HM-kcppninni i Argentínu, var í gær seldur frá félagi sínu, Lanerossi Vicenza, til stórliðsins Napólí. Ekkert var getið um hversu dýr kappinn væri, en tveir leikmenn Napólíliðsins munu ganga til liðs við Lanerossi í staðinn. Þykir óliklegt annað en fjárfúlgur hafi cinnig verið með í spilinu því strákurinn var í fyrra metinn á um 2 milljónir sterlingspunda. Svo eru menn undrandi yfir söiuverðinu á Trcvor Francis og Laurie Cunningham. Real Madrid keypti Cunningham Blökkumaðurinn Lurie Cunningham frá West Bromwich Albion gerði i gær einhvern þann stærsta samning við Real Madrid sem sögur fara af. Kaupverðið á Cunningham var ein milljón sterlings- punda og er það talsvert mcira en Barcelona borgaði fyrir Johann Cru.vff á sínum tíma. Þessi upphæð er að sjálfsögðu metupphæð á Spáni. Cunningham gerði samning til S ára og hann mun taka stöðu Danans Henning Jensen í liðinu. Samningur Jensens rcnnur út á sunnudaginn en þá leikur Real Madrid við Valencia í úrslitum spænsku bikarkeppninnar. Cunningham vakti fyrst verulega athygli 1975 er hann lék með 2. deildarliðinu Orient en fyrir tveimur árum keypti West Bromwich hann fyrir 100.000 pund, þannig að hagnaður félagsins á stráknum er ekki lítill. Cunningham tókst ekki að halda sæti sínu í aðaiiiði WBA undir lok keppnistímabilsins en þrátt fyrir það efast enginn um snilli þessa unga blökku- manns. AsaHartford seldurtilForest Brian Clough snaraði í gær hálfri millj. sterlings- punda á borðið fyrir miðvallarleikmanninn Asa Hartford frá Manchester City. Clough var lengi búinn að hafa augastað á Hartford en samningar tókust ekki fyrr en i gær. Hartford var keyptur til Manchester City 1972 en lék áður með West Bromwich Albion. Leeds ætiaði að kaupa hann á sínum tíma en hætti við á síðustu stundu vegna hjartagalla sem kom í Ijós við læknis- skoðun. City lét það hins vegar engin áhrif á sig hafa og Hartford hefur veriðdriffjöðrin í liði City síðustu árin. Manchester City hcfur á undanförnum mánuðum verið að fella helztu skrautfjaðrirnar því fyrir skemmstu seldi liðið Gary Owen til WBA fyrir 450.000 pund. Pcter Barnes cr einnig líklegur til að fara og má þá segja að Malcolm Allison og Tony Book hafi endanlega spilað rassinn úr buxunum — búnir að splundra bezta liði City í áratug. Afrekaskráin 1979 ffrjálsum íþróttum: Nehemiah nafn ársins—Hreinn Halldórsson f fimmta sætinu Mjög góður árangur hefur náðst í flestum greinum frjálsra íþrótta í heiminum á þessu ári. Hæst ber heims- met Bandarikjamannsins Renaldo Nehemiah í 110 m grindahlaupi. Hann hefur tvívegis sett heimsmet — fyrst 13.19 sek. og síðan 13.00 sek. Þá hefur Nehemiah einnig hlaupið á 12.91 sek. og 12.8 sek., en í of miklum meðvindi. Hann er einnig frábær spretthlaupari. Hefur hlaupið 100 m í ár á 10.1 sek., og 200 m á 20.38 sek. Hreinn okkar Halldórsson er í fimmta sæti í kúlu- varpi, þegar miðað er við vikugamla heimsafrekaskrá. Hún var tekin saman 21. júní sl. í einstökum greinum lítur afreka- skráin þannig út. Svo kann að fara, að Björn Borg, sem stefnir að sínum fjórða sigri í röð á Wimbledon tennismótinu, verði að hætta keppni í mótinu vegna meiðsla í hné. Borg lenti í mjög kröppum dansi á miðvikudag er hann keppti við Indverj- ann Vijay Amritraj. Meiðslin virtust nokkuð há Borg, en hann vann leikinn naumlega og komst i 3. umferðina. Hann hvíldi fótinn í gær, en fórsíðan á æfingu í gærkvöld og virtist þá vera I lagi. Mikið hefur verið um óvænt úrslit í Wimbledonmótinu, sem er óopinbert heimsmeistramót í tennis. Enginn hefur þó komið eins á óvart og ungur strákur frá Bandaríkjunum, Tim Wilkingson. 100 m hlaup Sanford, USA, 10.07 Leonard, Kúbu, 10.11 Edwards, USA, 10.15 Glance, USA, 10.15 Lattany, USA 10.16 King, USA, 10.16 200 m hlaup. Mallard, USA, 20.07 Sanford, USA, 20.19 Foster, USA, 20.20 Lattany, USA, 20.28 Evans, USA, 20.28 Edwards, USA, 20.33 400 m hlaup. Smith, USA 45.10 Tim sló í gær Argentínumanninn Guilermo Vilas út úr keppninni 5—7, 6—2 og 6—1. Manuel Oranted frá Spáni, einn af sterkari keppendunum á mótinu, a.m.k. fyrirfram álitið, varð einnig að þola það að vera sleginn út af lítt þekktum leikmanni, Gilles Moretton, frá Frakklandi. Jimmy Connors slapp þó nokkurn veginn áfallalaust í gegnum aðra umferðina er hann mætti landa sínum Marty Riessen og vann 6—7, 6—3, 7— 6 og 6—1. Nú eru eftir 32 kepp- endur, en úrslitin ráðast um helgina og verður gaman að sjá hvort Borg tekst, fyrstum manna, að vinna Wimbledon mótið fjórða árið í röð. Hassan, Súdan, 45.18 Rodgers, USA, 45.34 Coombs, Trinidad, 45.38 Kerr, USA, 45.51 Schmidt, V-Þýzkal. 45.54 800 m hlaup. Robinson, USA, 1:45.6 Paige, USA, 1:45.6 Scott, USA, 1:45.9 Kirov, Sovét, 1:46.2 Mania, Kenýa, 1:46.3 Coe, Bretlandi, 1:46.3 1500 m hlaup. Scott, USA, 3:36.4 Jakoviev, Sovét, 3:37.2 Paige, USA, 3:37.4 Plachy, Tékkósló. 3:37.5 Manontov, Sovét, 3:37.5 Tejirkov, Sovét, 3:37.8 5000 m hlaup. Nyanbui, Tansaníu, 13:12.3 Tyffel, Sviss, 13:13.4 Abramov, Sovét, 13:15.6 Antipov, Sovét, 13:17.9 Chapa, USA, 13:19.3 Gonzales, Frakki. 13:20.3 10000 m hlaup. Fleschen, V-Þýzkal. 27:36.8 Virgin, USA, 27:39.4 Zimmermann, V-Þýzk. 27.42.8 Motshavateu, S-Afríku, 27:48.2 Seko, Japan, 28:02.6 110 m grindahlaup. Nehemiah, USA, 13.00 Casanas, Kúbu, 13.23 Foster, USA, 13.28 Cooper, USA, 13.43 Edwards, USA, 13.48 Munkelt, A-Þýzkal. 13.56 400 m grindahlaup. Moses, USA, 47.69 Þarf Bjöm Borgað hætta á Wimbledon? —hann á við meiðsli að stríða Svfinn farinn úr landi —hreifst hér mjögaf nokkrum leikmönnum Það er ekki nýtt, að sænsk knatt- spyrnufélög leiti fyrir sér hér á landi um lcikmenn. Hér er möguleiki að fá „ódýra” leikmenn til að fylla í skörðin, því Svíar — eins og við íslendingar — missa marga sína beztu leikmenn til frægra félaga í Evrópu. Fyrir íslenzka leikmcnn er þó ekki cftir miklu að slægjast í Svíþjóð — sænsku félögin hafa litlum peningum úr að spila miðað við félög á „meginlandi” Evrópu — og Landslið Sovétmanna og Dana reyndu með sér í knattspyrnu í vináttu- landslcik er fram fór á Idrætsparken í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Sovét- menn sigruðu 2—1 en allir beztu leik- þar er aðeins eitt atvinnumannafélag, Malmö FF. Undanfarna viku hefur sænski þjálfarinn Sven Agne Larsson verið hér á landi og „njósnað” á nokkrum 1. deildarleikjum. Eftir leik Víkings og Vals á mánudag var það ljóst að Lars- son hafði áhuga á að fá þá Sigurlás Þorleifsson og Lárus Guðmundsson yfir til sín, en ekki er vitað til þess að hann hafi talað við leikmennina eða menn beggja liða voru með. Danir náðu forystu í leiknum rétt fyrir hálfleik, en um miðjan síðari hálf- leikinn tókst Rússum að jafna og sigur- markið kom rétt fyrir leikslok. félag þeirra, Viking. Larsson mun einnig hafa hrifizt mjög af Pétri Ormslev hjá Fram. Síðast í morgun var ekki til þess vitað að hann hefði sett sig í samband við einstaka leikmenn, enda yrði hann um- svifalaust kærður af íslenzku félögunum ef svo færi. Larsson fékk símanúmer formanns Víkings, Jóns Aðalsteins' Jónssonar, uppgefið og var búizt við því að hann myndi jafnvel hafa samband við Jón áður en hann færi út. Svo virðist hins vegar ekki vera því Larsson hélt af landi brott í morgun. Ekkert er þó líklegra en að Larsson geri sér aðra ferð hingað upp á Frón síðar í sumar. „Ég hef fengið augastað á ákveðnum leikmönnum,” sagði hann við DB á miðvikudagskvöld, ,,en ég nefni engin nöfn.” Eins og fyrr sagði vöktu þeir Sigurlás, Lárus og Pétur at- hygli hans og það ætti vart að koma á óvart þótt kappinn gerði sér aðra ferð hingað í sumar. Dómarinn fór fýluferð Birgir Óskarsson, dómari, frá Norðfirði, lenti í heldur óskemmtilegii reynslu á sunnudaginn. Honurp var fal- ið að dæma leik Hrafnkels Freysgoða og Sindra, sem fram átti að fara á Breiðdaisvík kl. 16. Lagði hann af stað eins og lög gera ráð fyrir tímanlega, en þegar hann mætti á völlinn var leikurinn að verða búinn. Varð Birgir að sjálfsögðu undrandi yfir þessu, en þá kom í Ijós að Hrafnkell hafði fært leikinn til kl. 14 með samþykki Sindra, án þess þó að gera dómaranum viðvart. Dómararmál á Austurlandi hafa ekki verið í allt of góðu lagi undanfarin ár. í ár hefur hins vegar mikið breytzt til batnaðar, en slík framkoma við dómara er einungis tii þess að fæla menn frá dómarastörfum. -VS. Tveir ungir piltar úr Árbænum, þeir Þorvaldur Þorvaldsson og Guðmundur Magnúsl son, settu snemma I vor nýtt Islandsmet I maraþonborðtennis. Léku þeir borðtennis I 22 klukkustundir og söfnuðu um leið fé til Árbæjarkirkju. DB-mynd. Þorri Rússar unnu Dani Walker, USA, 48.48 Wheeier, USA, 49.29 Otono, Nígeríu, 49.39 Byram, USA, 49.56 King, USA, 49.59 3000 m hindrunarhlaup. Rono, Kenýa, 8:18.0 Malinkowski, Póllandi, 8:22.0 Scartezzini, Ítalíu, 8:22.8 Korir, Kenýa, .8:23.2 Tuwel, Kenýa, 8:23.2 Clary, USA 8:26.8 Velitsjko, Sovét, 8:26.8 Hástökk. Bellschmidt, A-Þýzkal. 2.30 Mögenburg, V-Þýzkalandi, 2.30 Nagel, V-Þýzkalandi, 2.30 Tránhardt, V-Þýzkalandi, 2.30 Grigorjev, Sovét, 2.29 Wszola, Póllandi, 2.28 Langstökk Dombrowksi, A-Þýzkalandi, 8.29' King, USA, 8.22 Myricks, USA, 8.11 Paschek, A-Þýzkalandi, 8.10 Podlunsky, Sovét, 8.09 Corgos, Spáni, 8.09 Lewis, USA, 8.09 Þristökk. DeOliveira, Brasilíu, 17.39 Cooper, USA, 17.10 Tsou, Kína, 17.02 Sanejev, Sovét, 17.00 Jakovijev, Sovét, 16.95 Stangarstökk. Houvion.Frakklandi, 5.65 Abada, Frakklandi, 5.65 Jessee, USA, 5.53 Bellot, Frakklandi, 5.53 Tully, USA, 5.53 Ripley, USA, 5.52 Kúluvarp. Stahlberg, Finnlandi, 21.69 Beyer, A-Þýzkalandi, 21.66 Laut, USA, 21.11 Nosenko, Sovét, 20.61 Hreinn Halldórsson, ísl. 20.56 Schmidt, A-Þýzkalandi, 20.55 Anderson, USA, 20.55 Kringlukast. Wilkins, USA, 70.66 Hjeltnes, Noregi, 69.50 Stadel, USA, 69.26 Tuokko, Finnlandi, 68.12 Powell, USA, 67.34 Schmidt, A-Þýzkalandi, 67.18 Oerter, USA, 67.00 Sleggjukast. Gerstenberg, A-Þýzkalandi, 77.82 Steuk, A-Þýzkalandi, 77.64 Sedyhk, Sovét, 77.58 Litvinov, Sovét, 77.42 Saitsjuk, Sovét 76.98 Riehm, V-Þýzkalandi, 76.94 Spjótkast. Sinesaari, Finnlandi, 93.84 Hanisc, A-Þýzkalandi, 89.94 Lundmark, Svíþjóð, 89.92 Michel, A-Þýzkalandi, 89.74 Harkönen, Finnlandi, 89.16 Pihl, Sviss, 88.50 Tugþraut. Kratschmer, V-Þýzkalandi; 8484 Hingsen, V-Þýzkalandi, 8240 Dubois, Frakklandi, 8161 Steiner, Argentínu, 8125 Kaukis, Sovét, 8068 Coffman, USA, 8056 Síðan þessi skrá var samin hefur Litvinov náð bezta heimsárangrinum i sleggjukasti, 79.82 m, sem er þriðji bezti árangurinn í greininni frá upphafi. Willi Wúlbeck, V-Þýzkalandi, hefur hlaupið 800 m á 1:46.0 mín. — Steve Ovett, Bretlandi, hlaupið 1500 m á 3:37.9 mín. Að öðru ieyti hefur skráin ekki breytzt að því DB er kunnugt. -hsím. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1979. 19 Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir D Fyrsta mark FH staðreynd. Skot Benedikts Guðbjartssonar hefur lent I einum varnarmanna Þróttar og siglir yfir markvörðinn, sem er ekki fjarri því að verja. Sveinn Þormóðsson náði þessari stórgóðu mynd. FH 0G BRBÐABUK ERU AD STINGA MN UDIN AF —unnu bæði örugga sigra í gærkvöidi og eru langefst í 2. deildinni Tveir leikir voru háðir í 2. deildinni í gær og áttust þá toppliðin við aust- fjarðaliðin, Þrótt og Austra. I báðum tilvikum unnu toppliðin, FH og Breiða- blik, örugga sigra þótt sigur Breiða- bliks hafi ekki verið neitt allt of sann- færandi. Það verður nú greinilegra með hverjum deginum, að þessi tvö lið, sem fylgdust að niður úr 1. deildinni i fyrra, eru þau langsterkustu í 2. deild- inni og fá lið virðast megna að veita þeim nokkra keppni að ráði. Austri—Breiðablik 0-2 (0-1). Þessi leikur fór fram við erfiðar aðstæður — hávaðarok — og mótaðist leikurinn mjög af því. Austramenn léku gegn vindinum í fyrri hálfleiknum og kom liðið þá mjög á óvart fyrir stórgóða baráttu og áttu Blikarnir i vök að verj- ast. Sókn Austra var þó engan veginn nógu beitt og tækifæri af þeirra hálfu voru fá og lítt hættuleg Ekki er gott að geta sér til um hvernig leikurinn hefði þróazt ef Blikunum hefði ekki verið færð vítaspyr-na á silfurfati um miðjan hálfleikinn. Þótti þessi vítaspyrnudóm- ur í meira lagi vafasamur, en úr spyrn- unni skoraði Sigurður Grétarsson af öryggi — hans þriðja mark úr víta- spyrnum i sumar. í seinni hálfleiknum var um nær lát- lausa sókn af hálfu Austra að ræða, en sem fyrr létu tækifærin bíða eftir sér. Blikarnir áttu örfáar skyndisóknir og um miðjan hálfleikinn skoraði Hákon Gunnarsson úr einni slíkri. Þrátt fyrir mótlætið létu leikmenn Austra ekki bugast og börðust eins og ljón, en allt kom fyrir ekki og Blikarnir hófu sig til flugs með bæði stigin í pokahorninu í gærkvöldi. -VS. FH—Þróttur 3-0 (2-0). FH-ingar þurftu lítið að hafa fyrir sigri sínum gegp slöku liði Þróttara og er hreint ótrúlegt að ímynda sér að það sé sama liðið sem gerði jafntefli við Blikana fyrir skemmstu og það sem tapaði fyrir FH í gærkvöldi. Baráttan var í algeru Teitur Þóróarson sækir hér að markverði Hammarby i leik öster og Hammarby um helgina. lágmarki og sannast sagna stóð enginn hjá Þrótti upp úr meðalmennskunni. FH lék undan vindinum í fyrri hálf- leiknum og skoraði þá tvö mörk. Fyrra markið var hálf slysalegt. Benedikt Guðbjartsson átti þá skot að marki Þróttar af löngu færi. Knötturinn stefndi vel framhjá markinu þegar hann þaut í einn varnarmann og breytti stefnunni svo hrikalega að mark- vörðurinn átti ekki möguleika á að verja. Tiu mínútum fyrir ieikhlé bætti Pálmi Jónsson öðru markinu við er hann fylgdi vel eftir skoti frá Ásgeiri Arnbjörnssyni, sem fór i þverslá. í síðari hálfleiknum var FH mun hættulegra þótt við bæði Þróttarliðið og vindinn væri að etja. Skyndisóknir þeirra gáfu góða raun og upp úr einni slikri var Atla Alexanderssyni brugðið innan vítateigs eftir fallegan samleik hjá FH. Leifur Helgason átti sending- una á Atla. Úr vitinu skoraði Þórir Jónsson örugglega. Undir lokin leystist leikurinn upp í hnoð og vitleysu en sigur FH var afar sanngjarn. Staðan í 2. deildinni er nú þessi: Breiðablik 8 6 2 0 19—4 FH 8 6 11 19—9 Þór 7 4 0 3 11 — 11 Selfoss 6 3 12 13—6 Fylkir 7 3 13 15—13 ísafjörður 5 2 2 1 12—7 Reynir 7 2 2 3 4—9 Þróttur 7 2 14 6—h Austri 8 0 3 5 5—1' Magni ' 7 0 1 6 4—1 Marka hæstu menn: n Sumarliði Guðbjartsson, Selfossi Pálmi Jónsson, FH SigurðurGrétarsson, Breiðabliki Andrés Kristjánsson, ísafirði Guðmundur Skarphéðinsson, Þór Lands- hlaui — stuttgreinargerð fra Sigurði Helgasyni, formaimifram- kvæmdanefndar hlaupsins Vegna greinar í þessu blaði I hinn 21. júni sl. eftir Hall Simonarson, íþróttafréttaritara, sem bar yfirskriftina „Hvi þcssi óheilindi — FRÍ?” vil ég undir-1 ritaður taka fram eftirfarandi: „Staðreyndin er sú að utn I sama leyti voru tveir aðilar að undirbúa svipað verkefni, boðhlaup umhverfis landið. [ Hvorugum aðilanum voru kunn áform hins og báðir aðilar eru saklausir af að hafa stolið frá | hinum. Þeir urðu síðar samherjar í | framkvæmd. Ekki dettur mér i hug að ætla I mér meiri hlut í þessum merka | viðburði en öðrum. „Landshlaup F.R.Í 1979” varl framkvæmt af ungmenna- og[ íþróttafélögum um land allt með [ dyggum stuðningi landsmanna | allra, sem fylgdust af áhuga með [ hlaupinu frá upphafi til enda. Að leiðarlokum vil ég þakkaj öllum þátttakendum sa fylgdina. Ég harma þau skrif.l sem orðið hafa í sambandi vlð I hlaupin en ég held þau glcymist er | fram líða stundir en að þetla samátak æskufólks landsins muni| lengi verða í minnum haft. Sigurður Helgason. I Jafnframt óskaði Sigurðurl eftir þvi að meiri blaðaskrif yrðul ekki um þetta mál, því að hans| dómi mundi það aðeins skaða vel j heppnað hlaup. Það er einnig mat [ undirritaðs og ástæða er til að| óska honum til hamingju með| framkvæmd hlaupsins. -hsím. | Island komst í R-riðilinn —áEM ígolfi í Esbjerg Islenzka golflandsliðið, sem keppir nú á Evrópumeistaramótinu, sem fram fer í Esbjerg í Danmörku, vann það afrek í gærkvöldi að komast í fyrsta skipti í B riðil á EM í golfi. Eftir fyrri daginn í höggleiknum voru Finnar, Tékkar og Lúxemborgarar á eftir okkur í röðinni og tókst að halda þeim þar þannig að þær lentu í C riðli. ísland lék fyrri daginn á 426 höggum, en i gær léku strákarnir á 413 höggum — eða samtals 839 höggum. Englendingar sigruðu í þessari forkeppni léku samtals MJOG J0FN KEPPNI í ALLSVENSKAN Tólf umferðum er nú lokið i sænsku 1. deildarkeppninni — Allsvenskan — og er keppnin þar mjög jöfn og enn sem komið er hefur ekkert eitt lið skorið sig úr. Það sem einna mesta Halmstad 12 5 7 0 19—10 17 athygli hefur vakið það sem af er Elfsborg 12 7 2 3 16—10 16 keppnistímabilinu, er slakt gengi Norrköping 12 6 3 3 24—12 15 sænsku meistaranna, Öster, og svo Gautaborg 12 5 5 2 20—9 15 Malmö FF. Malmö hefur meira að Hammarby 12 6 2 4 20—17 14 segja ekki skorað mark i 425 mínútur í Malmö 12 5 4 3 11 — 11 14 Allsvenskan og liðið er i 6. sæti. Djurgarden 12 5 3 4 15—17 13 Úrslit í Allsvenskan urðu þannig um Öster 12 5 2 5 14—10 12 helgina: Kalmar 12 3 5 4 17—18 11 Elfsborg-Djurgarden 0-1 (0-1) Sundsvall 12 4 2 6 14—17 10 Halrnia-Gautaborg 0-1 (0-0) Atvidaberg 12 2 5 5 8—14 9 Hammarby-öster 1-0 (0-0) AIK 12 2 5 5 8—15 9 .Norrköping-Landskrona 4-1 (2-0) Landskrona 12 3 3 6 9—19 9 Sundsvall-Halmstad 1-1(1-0) Halmia 12 1 2 9 5—21 4 Kalmar-Atvidaberg Malmö-AIK 3-1 (2-0) 0-0 (0-0) 3taðan í deildinni er nú þessl: á 755 höggum. Björgvin Þorsteinsson og Sveinn Sigurbergsson iéku báðir á 79 höggum i gær, en enginn islenzku keppendanna komst niður fyrir 80 högg fyrri daginn, Jón Haukur Guðlaugsson lék á 84 höggum, Hannes Eyvindsson á 84 jeinnig, Geir Svansson á 87 og Sigurður Hafsteinsson lék á 92 höggum og hefur ekki náð sér á strik enn sem komið er. |Par vallarins er 71 en SSS 74 þannig að Ihann er afar erfiður að leika. í dag eiga íslendingar að leika við Svisslendinga og væri gaman að sigra þá og hefna ófaranna í knattspyrnunni frá í vor. í dag leika 5 landsliðsmann- anna í einliðaleik við Sviss en síðan verðureinnig keppt í tviliðaleik — tveir leikir eða alls sjö leikir. Verður ísland að sigra í a.m.k. fjórum þeirraef sigur áaðnást. Næstir á eftir Englendingum í röð- inni í gær komu nágrannar þeirra Walesbúar á 779 höggum. Svíar voru einnig á því skori, en írar komu næstir :með 783 högg. Þá komu Skotar á 787 höggum, Frakkar á 788, Danir á 802 og V-Þjóðverjar á 804 höggum. í keppninni í gær náðu íslenzku |strákarnir að skjóta aftur fyrir sig ekki lakari golfþjóðum en Spánverjum, ítölum, Austurríkismönnum, Dönum, Finnum og Lúxemborgurum, en þær tvær síðasttöldu hafa reyndar aidrei verið neinar stórþjóðir í golfi. Þessi árangur íslenzka landsliðsins undirstrikar enn frekar þá framþróun, ,sem hefur orðið í golfinu hér á landi undanfarin ár og verður fróðlegt að sjá, endanlega útkomu landsliðsins á EM.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.