Dagblaðið - 30.06.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 30.06.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ1979. Hraðf rystihúsið Skjöldur Patreksf irði: LANGSTÆRSTIATVINNU- VEITANDISTADARINS um hundrað manns vinna ífrystihúsinu auk sjómanna á bátum og togara Stærsta atvinnufyrirtækið á Patreks- firði er hraðfrystihúsið Skjöldur. Húsið veitir um eitt hundrað manns vinnu í landi, auk sjómanna sem eru á bátum er leggja upp hjá húsinu og tog- ara þeirra Patreksfirðinga, Guðmundar í Tungu. Er Dagblaðið var á ferð á Patreks- firði nýlega ræddi blaðamaður við Ölver Jóhannesson verkstjóra hjá Skildi. Húsið var þá nýlega farið i gang aftur eftir rétt um þriggja vikna stopp sem réðst að mestu af greiðsluerfiðleikum vegna farmanna- verkfallsins og að afurðir hlóðust upp þannig að nánast allt geymslurými var nýtt. ölver sagði að afli hefði verið þokkalegur, en auk togarans leggja upp Ölver Jóhannesson verkstjóri i hrað- frystihúsinu Skildi. Byggingasamvinnufélagið Vinnan óskar eftir að ráða 3—4 smiði og 2 vana verkamenn í vinnu við þakklæðningu o. fl. Gott kaup og mikil vinna. — Uppl. gefur Pétur Einars- son í síma 51450 eftir kl. 19 frá og með mánudegi. Séð yfir vinnslusalinn í Skildi DB-myndir: JH afla sinn einn línubátur og þrír drag- nótabátar. Ölver sagðist vonast til þess að sæmilega gengi eftir að húsið fór aftur i gang. Daglega er unnið til 5 og stundum til 7 ef hráef ni er mikið. ölver sagði stöðvunina í maí til júní í raun fyrstu stöðvun frystihússins frá því að núverandi eigendur tóku við húsinu fyrir átta árum. Hlutafélag á húsið og sagði ölver að hreppurinn hefði ekki haft afskipti af stöðvuninni þrátt fyrir það að alvarlegt sé fyrir byggðarlagið ef svo stórt atvinnufyrir- tæki stöðvast. -JH. I SANDSPYRNA KVARTMÍLUKLÚBBSINS ^Í/BBUR'#* Kvartmíluklúbburinn heldur sandspyrnukeppni sína sunnu- daginn 1. júlí á söndunum við ósa Ölfusár í landi Hrauns. Keppnin hefst kl. 2. og verður keppt í 6. jeppaflokkum 4. fólksbílaflokkum og mótorhjólaflokk. Keppendur eiga að mæta kl. 11 f.h. Komið og sjáið hressilega bifreiðaríþróttakeppni. stjórnin. NATTURU- VERNDAR- MAÐUR ÍSENDI- NEFNDINA — semferáfund Alþjóða hvalveiðiráðsins Fjölgað hefur verið um einn mann í nefnd islands á fundi Alþjóða hval- veiðiráðsins. Hefur sendinefndin hingað til verið þriggja manna en verður á næsta fundi ráðsins sem hefst um miðjan júlí, fjórir menn. Sá sem nú tekur sæti í nefndinni er Eyþór Einarsson, formaður Náttúru- verndarráðs. „Eyþór tekur sæti í nefndinni að einhverju leyti vegna aukins áhuga á náttúru- og hvalaverndunarmálum,” sagði Þórður Ásgeirsson formaður Alþjóða hvalveiðiráðsins, þegar hann var inntur eftir hverju það sætti að fjölgað væri um einn í sendinefndinni. Aðrir sem sæti eiga í sendinefnd íslands er halda mun til fundarins eru, auk Þórðar og Eyþórs, þeir Jón Jónsson forstjóri Hafrannsókna- stofnunarinnar og Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf., sem greiðir allan kostnað af ferð sinni sjálfur. Rainbow Warrior, skip Greenpeace-samtakanna, hélt frá íslandi í fyrradag. Kváðust skipverjar hafa náð talsverðum á- rangri i því að opna augu íslendinga fyrir hvalvernd með komu sinni hingað til lands. Það hefði verið tilgangur fararinnar jafnhliða því að freista þess að draga úr hvalveiðum íslendinga. Er Rainbow Warrior lét úr höfn sendi starfshópur Náttúruverndar- félags Suðvesturlands um hvalavernd skeyti til áhafnarinnar þar sem þeim var þakkað framlag þeirra til þess að opna augu íslendinga fyrir nauðsyn hvalaverndar. -BH. Niðurfelling þungaskatts: Tugmilljóna sparaaðurSVR Ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fella niður frá og með 1. janúar 1980 þungaskatt af bifreiðum, sem stunda reglulegan áætlunarakstur í þéttbýli mun spara Strætisvögnum Reykja- vikur tugmilljóna króna útgjöld. Haraldur Þórðarson, á skrifstofu SVR, sagði DB að á sl. ári hefði fyrirtækið greitt 28 milljónir króna i þungaskatt eftir gjaldmæli. Á bessu ári verður upphæðin væntanlega um eða yfir 40 milljónir. Tap á rekstri strætisvagnanna nam rúmum 270 milljónum á síðasta ári.______________-GM. Dagblaðsbíó ámorgun í Dagblaðsbíói á morgun kl. 15 í Hafnarbíói verður sýnd myndin „AlaKazamhinn mikli,” ævintýraleg teiknimynd. 30 ARA ÞJÓNUSTA SENDIBILASTOÐIN H.F. BORGARTUNI21

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.