Dagblaðið - 30.06.1979, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 1979.
7
Kavíarinn
f rá Arctic
Framleiðsludagur gefinn,
en vantar síðasta söludag
,,Ég reikna með að merkingunum á
kaviarnum sé ekki áfátt í öðru en því
að það vantar upplýsingar um síðasta
söludag,” sagði Þorsteinn Jónsson hjá
Fiskiðjunni Arctic hf. á Akranesi í
samtali við DB. En Neytendasamtökin
könnuðu nýlega framleiðslu Artic hf.
og tveggja annarra fyrirtækja. Hin tvö
fyrirtækin voru K. Jónsson og Co.
Akureyri og Eldeyjarrækjan sf. Kefla-
vík.
Sagði Þorsteinn að á hverri kavíar-
dós væri framleiðsludagurinn tiltekinn
en vissulega þyrfti einnig síðasti
söludagur að vera uppgefinn. Kavíar
geymist i u.þ.b. 6—8 mánuði ógeril-
sneyddur en í 12 mánuði ef hann er
gerilsneyddur. Bæði gerilsneyddur og
ógerilsneyddur kavíar er framleiddur
hér á landi. Strax eftir að framleiðsla
hefur átt sér stað er sýni hvers dags
sent Rannsóknarstofnun fisk-
iðnaðarins til rannsóknar. Biður fyrir-
tækið síðan eftir niðurstöðum þeirrar
rannsóknar í 21 dag og ef allt reynist í
lagi er kavíarinn settur á markað.
Þorsteinn Jónsson sagði sér ætíð
hafa komið það spánskt fyrir sjónir
þegar kvartað væri yfir að ekki wcri
íslenzk áletrun á vörunum sem þeii
framleiddu, ekki hefði hann orði.' ,.u
við að neinn gerði kröfu uni að
innfluttar niðursuðuvörur væru með
islenzkri áletrun. -BH
Mataríyst
Eins og oftsinnis hefur komið
fram í þessum dálki er undur
þægilegt að koma í matstofuna Á
næstu grösum, burtséð frá þeirri
myndlist sem þar kann að hanga
hverju sinni. Útsýni er gott og
maturinn hollur. En nú stendur þar
yfir sýning á myndverkum, sem
grandalaus gestur má gæta sin á að
læsa ekki tönnum í. Þar er m.a.;
súkkulaðiterta, apertíf, kjúklingar,
lauksúpa og fleira matarkyns, í takt
við umhverfið. En viti menn góð-
gætið er allt úr ull, silki, plasti og
málmþræði, sem eflaust færi ilia í
munni. Þar fylgir einnig risastór gólf-
tuska. Höfundurinn kallar sig því
óheppilega nafni „Gerla”, heitir
reyndar Guðrún Erla Geirsdóttir og
er að sögn á móti karlmönnum sem
gagnrýnendum. Ég ætla samt að
hætta á það að segja að hún hefur
fengist við alls kyns textilgerð í
Hollandi, svo og gerð leikmynda og
leikbúninga.
Prjónað
álegg
Þetta er önnur einkasýning
hennar, en nokkrar samsýningar á
hún einnig að baki, nú síðast í
Ásmundarsal með ungum list-
freyjum.
En í matarverkum hennar eru eng-
ar bumbur barðar fyrir einu eða
neinu, hvorki málstað manna eða
málleysingja, heldur er öll áhersla
lögð á hrein og klár skemmtilegheit.
Það er einatt einkennileg tilfinning
sem fylgir því að sjá hvunndagshluti
breyta um náttúru, — að sjá prjónuð
brauð og álegg, o.þ.u.l. og fyrir vikið
sér maður hinn upprunalega hlut í
nýju ljósi. Á þessari öld hefur
Gerla — Gólftuska.
skapast nokkurs konar hefð í
umbreytingum af þessu tagi. Súr-
realistar lögðu þetta sérstaklega fyrir
sig og má þar nefna hin mjúku úr
Salvadors Dali, kafloðinn kaffibolla
Meret Oppenheim og margt fleira, en
þeir spiluðu upp á hroll og undrun
áhorfenda. Síðar komu aðrir til
sögunnar, t.d. popplistamaðurinn
Claes Oldenburg, sem gerði bíla,
viftur, klósett og fleira, í fullri stærð
og yfirstærð, úr segldúki. En þar var
annað hugarfar og „analýtiskara” á
ferðinni.
En það má sem sagt hafa gaman
af þessu uppátæki Gerlu og verkin
geta jafnvel verið lystaukandi.
r
Myndlist
L. A
Gerla — Verk í matstofunni.
Frá inngarði Fjalakattarins sem
fæstir sjá, enda inni í miðju húsi.
DB-mynd Árni Páll.
Borginni stefnt
—vegna lítillar arðsemi Fjalakattarins
Þorkell Valdimarsson hefur nú
stefnt Reykjavíkurborg fyrir að
meina sér að byggja á lóðinni
Aðalstræti 8, lóðinni sem Fjala-
kötturinn stendur á. Upphæð sú er
Þorkell fer fram á að borgin greiði
sér er litlar 721 milljón króna með
30% ársvöxtum frá stefnudegi sem
var22.júní.
Krafa Þorkels byggist á því að
lóðar- og fasteignamat lóðarinnar að
Aðalstræti 8 er um 300 milljónir og
álagður fasteignaskattur og lóðagjöld
í samræmi við það. Hins vegar sé
eign sú er á lóðinni stendur ekki
nægjanlega arðbær svo að eig-
endurnir hafi frekar tap en tekjur af
eign sinni á þessum stað.
Lýðveldisárið, nánar tiltekið þann
23. febrúar 1944, ritaði Valdimar
Þórðarson, faðir Þorkels, borgaryfir-
völdum bréf og fór fram á að gengið
yrði frá skipulagi lóðarinnar svo af-
ráða mætti framtíð mannvirkja á
lóðinni. Var þessi ósk endurtekin
1967 og nokkuð reglulega síðan, en
allt kom fyrir ekki, enn er ekki ljóst
hvaða framtíð borgaryur. ,|<j hafa
hugsað sér með hús Þorkels Valdi-
marssonar, Fjalaköttinn við
Aðalstræti 8.
Fyrir tekjutap það er Þorkell
hefur orðið fyrir af þessum sökum er
borginni stefnt.
-BH.
OPNUM
JÚLlMARKAÐ
Á MÁNUDAGINN
Verð við allra hœfi t.d:
Barnapeysur frá kr. 1000.-
Telpnapils frá kr. 3900.-
Telpnakjólar frá kr. 4500.-
Barnagallasett kr. 4900.-
Barnasumarúlpur kr. 3900.-
Kvenkjólar frá kr. 8000.-
Kvenpils kr. 6500.-
Kvenpeysur frá kr. 1200.-
Morgunsloppar kr. 8000.-
Karlmannaskyrtur kr. 2500.-
Karlmannaföt (jakki, vesti, buxur) kr. 29.500.
Karlmannabindi kr. 1000.-
og margt margtfleira.
JÚLÍMARKAÐURINN
LAUGAVEGI 66 - 2. HÆÐ