Dagblaðið - 06.07.1979, Síða 1
5. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 6. JtJLt 1979 — 151. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022.
Sjórall DB ogSnarfara 79:
ERFi MSl TA SIGLINGIN
ÍRAi LUNl 1FRAMUNDA N
—staöan á Akureyri ímorgun var 37:31, InguOGí vil — sjá nánar á baksíðu og bls. 9
Sjö ára
fangelsi
fyrir morð
áfyrr-
verandi
unnustu
sinni
Þórarinn Einarsson, Gyðufelli 12 í
Reykjavík, var í gær dæmdur í sjö ára
fangelsi fyrir að hafa orðið valdur að
dauða fyrrverandi unnustu sinnar þann
5. september síðastliðinn. Atburðurinn
átti sér stað í verbúðinni Regnboganum
á Flateyri.
Dómur þessi var kveðinn upp í
undirrétti. Hann gengur sjálfkrafa til
Hæstaréttar, svo sem aðrir dómar sem
kveða á um lengra en fimm ára fang-
elsi. Sakadómararnir Ármann
Kristinsson, Jón A. Ólafsson og Sverrir
Einarsson kváðu upp dóminn.
Auk sjö ára fangelsisins var Þórarni
Einarssyni gert að greiðá allan sakar-
kostnað, saksóknaralaun til ríkissjóðs
að upphæð krónur 300 þúsund og 500
þúsund krónur til Arnmundar Bach-
manns héraðsómslögmanns, sem
skipaður var réttargæzlumaður og verj-
andi Þórarins.
Féll niður
af svölum
Um kl. 2 í nótt var lögreglunni til-
kynnt um að stúlka hafi fallið niður af
svölum fjölbýlishúss í Hraunbæ. Féll
stúlkan af svölum á 2. hæð og niður á
svalir á jarðhæð. Aðsögn Rannsóknar-
lögreglunnar í morgun er stúlkan ekki
lifshættulega slösuð en mun hafa
meiðzt talsvert og er meðal annars rif-
beinsbrotin. Um nánari tildrög þessa
slyss var ekki vitað í morgun en málið
er í rannsókn.
-GAJ
Hætt kominn
Ungur Ólafsfirðingur var í gær hætt
kominn er bifreið hans fór út af vegin-
um í Ólafsfjarðarmúla og steyptist eina
180 metra niður í sjó. Tókst manninum
á síðustu stundu að henda sér út úr
bílnum þar sem hann vó salt á brún-
inni.
Bifreiðin er að sjálfsögðu gjörónýt
en talið er að bilun í stýri hafi valdið
slysinu.
- GAJ / ÁA, Ólafsfirði.
Fagnaðarfundur á Akureyri um hádegið i gær, þegar Bjarni Sveinsson og Ólafur Skagvik á Ingu 06 sigldu inn til móts við klukkur Akureyrarkirkju. Hér fagnar
Hrafnhildur kona Olafs manni sinum innilega.
DB-mynd: Ragnar Th.
Skelfing brauzt út á Borgarspítalanum:
Ottuðust hundaæði
Flugvél send utan eftir mótefni þegar sjúkur yrðlingur beit starf smann
í Sæd vrasaf ninu
„Þetta var lítið bit sem betur fer,
aðeins tannaför,” sagði Jón Kr.
Gunnarsson, forstöðumaður Sædýra-
safnsins i Hafnarfirði, í samtali við DB
i morgun um það atvik er átti sér stað i
safninu fyrir fáum dögum, að sjúkur
yrðlingur beit starfsmann.
Óttazt var um tíma að starfsmaður-
inn fengi hundaæði og var flugvél send
i hvelli utan til að útvega mótefni.
,,Það kom aldrei neitt slíkt tii greina.
Þetta var bara taugaveiklun í kandidat
á Borgarspítalanum,” sagði Jón Kr.
Gunnarsson.
Jón sagði að starfsmenn á Keldum
hefðu lógað yrðlingnum og úskurðað
að engin hætta væri á hundaæði. Atvik
af þessu tagi kvað Jón sjaldgæf í
Sædýrasafninu. -GM
Kúpling bil-
aðiíSignýOS
Sjórallsbátarnir Inga 06 og
Signý 08 voru ræstir af stað til
ísafjarðar á Akureyrarpolli kl.
09:50 i morgun. Inga tók þegar
strikið á fullri ferð út spegilsléttan
Eyjafjörðinn, en Signý08 varð að
snúa við aftur inn í höfnina þegar
í ljós kom bilun í kúplingu.
Þegar blaðið fór i prentun i
morgun var verið að kanna
bilunina og virtist sem ef til vill
þyrfti að lyfta bátnum upp til að
komast að til viðgerða.
Inga siglir ótrauðáleiðis til ísa-
fjarðar, enda eru rallkapparnir i
miklu keppnisskapi og engan
bilbug að finna á þeim, hvorki
áhöfn Ingu né Signýjar, sem
hefur þó fengið ómældan
skammt vandræða í rallinu.
Veðurspá er góð fyrir daginn,
hægviðri alla leiðina til ísafjarð-
ar, breytileg átt.ÓV/JR, Akureyri.