Dagblaðið - 06.07.1979, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 06.07.1979, Blaðsíða 8
8 DAGBLADID. FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1979. SANDINISTAR HAFA BETUR ÍNICARAGUA Fréttir frá Nicaragua benda til þess að sandinistar hafi betur í baráttunni við þjóðvarðliða Somoza forseta um völdin í landinu. Heimildir í Managua segja að forset- inn sé að reyna að leita tryggingar fyrir öryggi hinna 15 þúsund þjóðvarðliða sinna áður en hann segir af sér. Vitað er að bandarísk stjórnvöld reyna að hafa áhrif í þá átt að nokkrir hægfarasinnar taki sæti í þeirri stjórn sem leysir Somoza af hólmi. Þegar hafa fjórir sérlegir fulltrúar Bandaríkja- stjórnar farið utan til viðræðna við Somoza, forystu sandinista og nokkrar ríkisstjórnir í grannlöndum Nicaragua. Bandaríkjastjórn óttast að samhliða falli stjórnar Somoza komist marxistar hlynntir kommúnistastjórninni á Kúbu til valda. Ákvörðunin að láta sendinefndina fara utan, en í henni á m.a. sæti Viron Vaky aðstoðarráðherra sem flaug skyndilega til Venezuela á miðvikudag- inn, þykir sýna þetta greinilega. Ríkisstjórnin í Panama hefur þegar viðurkennt stjórn sandinista og talið er að fleiri ríki fylgi í kjölfarið á næstunni þegar æ berara verður að stjórn Somoza er að falla. Munið frímerkjasöfnun Geðverndar Innlond og erlend frímerki. Gjama umslögin heil, einnig vólstimpluð umslög. Pósthólf 1308 efla skrífstofa fól. Hafnarstræti 5, simi 13468. Bílasala Eggerts auglýsir Höfum til sölu og sýnis eftirtalda bíla. Clark Olofsson á skólabekk að nýju: Bankaræninginn ger- ist blaðamaður Sænski bankaræninginn alræmdi, Clark Olofsson er setztur á skólabekk á nýjan leik — að þessu sinni í blaða- mannaháskólanum í Stokkhólmi. Námið þar tekur tvö ár, jafn langan tíma og Olofsson á eftir að sitja inni bak við lás og slá vegna fyrri mis- gjörða. Sænska dagblaðið Gautaborgar- pósturinn tók fyrir stuttu viðtal við Clark Olofsson. Hann var meðal annars spurður að því, hvers vegna hann hafl einmitt valið blaðamanns- starfið öðru fremur. Bankaræning- inn hafði svarið á reiðum höndum: „Blaðamannsstarfið á margt sameiginlegt með minni fyrri iðju. Maður skipuleggur vinnuna sjálfur og fylgir henni eftir til enda!” Volvo 264 GLE árg. 1976, sóllúga, leðursæti, sjálfskiptur, ekinn 50 þús. km. BMW 318 árg. 1978, ekinn 9 þúsund km. Mazda 929 árg. 1978, ekinn 12 þús. km. Austin Mini árg. 1978, ekinn 17 þús. km. Ford Fiesta árg. ’79, nýr, ekinn 400 km. Ford Fiesta árg. 1978, ekinn 19 þúsund km. BÍLASALA EGGERTS, BORGARTÚNI24. - SÍMI28255. v.; PMJTGCHb Hlé. Ms. Hekla fer frá Reykjavik miðvikudaginn 11. þ.m. austur um land til Vopna- Qarðar og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Vestmannaeyjar, Horna- fjörð, Djúpavog, Breiödalsvik, Stöðvarfjörð, Fáskrúðsfjörð, Reyðarfjörð, Eskifjörð, Ncskaup- stað, Mjóafjörð, Seyðisfjörð, Borgarfjörð eystri og Vopnafjörð. Móttaka föstudag 6/7 og mánudag 9/7. Skipaútgerð ríkisins Sumarið *79 Ekta hlööuball í hlöðunni að Þórustöðum við Selfoss l kvöld Baldur Brjánsson töfra- maður sker upp. Leikar- arnir Randver Þorláksson og Jálíus Brjánsson flytja skemmtiþœtti og hljóm- sveit Stefáns P. sér um tón- listina. Sœtaferðir frá BSÍ, Þor- lákshöfn, Stokkseyri og Hveragerði. Hestamannadansleikur annað kvöld, laugardags- kvöld, að Hvoli. Hefst með skemmtun kl. 21. Sumarið 79 Ræöa Carters um orkumál: Sérfræðingamir kváðu ekki nógu skýrtaðorði Líklegasta skýringin á því hvers vegna Carter Bandaríkjaforseti hélt ekki orkuræðu sína í sjónvarpi í fyrra- kvöld er talin sú að honum þóttu sér- fræðingar sínir ekki kveða nógu skýrt að orði við gerð hennar. Það olli al- mennri undrun víða um heim, er Carter hætti við að flytja ræðuna. Hennar var beðið með miklum spenningi blönduð- um ugg um nánustu framtíð. Ræðunni verður þó ekki pakkað með öllu niður i skúffu, því að á næstu dögum mun Carter skýra þjóðinni frá ráðstöfunum stjórnarinnar til að draga úr olíuinnflutningi. Reynt verður að halda innflutningnum innan 8.5 millj- óna olíufata á dag til ársins 1983. Það er í samræmi við þá ákvörðun sem tekin var á leiðtogafundinum í Tokyo fyrir um viku síðan. Hafnarfjörður Nýr umboðsmaður Dagblaðsins í Hafnarfirði er Ásta Jónsdóttir, Miðvangi 106, sími 51031. IBIAÐIB Bolungarvík Nýr umboðsmaður Dagblaðsins á Bolungar- vík er Guðmunda Ásgeirsdóttir, Hjallastræti 35, sími 94-7265. BIAÐIB

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.