Dagblaðið - 06.07.1979, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1979.
5
Lokun hadegisbarsms a ssx
pn QAfijr Imí bíkvspjb
m vii ocgii |iu janvcciNi
eftir að valda vandræðum
„Þessi nýja reglugerð hefur ekki
enn verið sýnd Sambandi veitinga- og
gistihúsaeigenda,” sagði Hólmfríður
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
sambandsins, i viðtali við DB i gær.
,,Ég get því lítið um hana sagt óséða.”
Eftir að blaðamaður hafði rakið at-
riði, sem til nýmæla má telja í hinum
nýju reglum, sagði Hólmfríður að
þarna væru vissulega margir jákvæðir
punktar. Hún teldi þá meðal annars
fram komna eftir um það bil þriggja ára
samfellda baráttu Sambands veitinga-
og gistihúsaeigenda fyrir auknu frelsi i
málum, sem varða opnunar- og af-
greiðslutíma veitingahúsa.
Meðal hins jákvæða vildi hún telja
niðurfellingu reglunnar um lokun
klukkan hálf tólf, lengingu þess tíma,
sem skemmtanir mættu standa, og
lengingu þess tíma sem afgreiða mætti
áfengi á herbergi gististaða.
Aftur á móti sagði Hólmfriður
Árnadóttir að erfiðara væri að skilja þá
nýbreytni að takmarka veitingar á
börum i hádegi. Þar væri um stórt
skref að ræða til baka.
,,Ég get ekki séð annað en þarna sé
verið að draga verulega úr þjónustu-
möguleikum hótelanna og þá sér-
staklega þeirra stærri,” sagði Hólm-
friður. ,,Þá hef ég bæði í huga lands-
menn sjálfa, sem að vísu eru ýmsu
vanir, en þó sérstaklega ferðamenn. Á
stóru veitingahúsunum er oft mikil ör-
tröð um hádegisbilið. Veitingasalir
anna ekki nema takmörkuðum fjölda í
mat í einu. Eru gestir þá oft beðnir að
doka við á barnum um stund.
Staðreyndin er sú að þú biður ekki fólk
— og þá sérstaklega útlendinga — um
að bíða á bar sem er lokaður,” sagði
Hólmfríður Árnadóttir framkvæmda-
stjóri.
Hún sagðist einnig geta dregið þá
ályktun að talið væri að veitingamenn
mundu hagnast mjög á þessari lengingu
afgreiðslutíma. Um slíkt væru aftur á
HÉR ER EKKERT GRÍN Á
FERÐINNI. Kannski lausnin á áfengis-
vandamálinu umrædda. Enda má sjá á
svip manna að hér er ekki flanað að
neinu. Aðstoðarráðherrann afhendir
blaðamönnum öll gögn málsins, sem
móttckin eru og könnuð með viðeig-
andi alvöru. Ráðherra sjálfur biður á-
tekta en greinilega tilbúinn að taka til
máls og tilkynna lokun hádegis-
baranna. Myndin er tekin á blaða-
mannafundi i ráðuneyti dómsmála í
gær. Á myndinni eru, frá vinstri:
Guðjón Friðriksson frá Þjóðviljanum,
Steingrímur Hermannsson dómsmála-
ráðherra, Eiríkur Tómasson, aðstoðar-
maður ráðherra og Sigurður Sigurðar-
son frá Vísi.
DB-mynd: Hörður.
móti skiptar skoðanir innan þeirrar
stéttar og höfuðástæðan fyrir kröfum
um rýmkaðan opnunartíma hefði verið
sú að gefa hinum ýmsu veitinga- og
skemmtistöðum tækifæri til að veita
gestum sínum meiri fjölbreytni.
„Við skulum ekki heldur gleyma þvi
að ferðamannaiðnaðurinn er orðinn
ein mikilvægasta atvinnugreinin á
íslandi,” sagði Hólmfríður Árnadóttir.
„Rúmlega sex af hundraði gjaldeyris-
tekna okkar koma frá honum og um
það bil 6% heildarvinnuaflsins hér á
landi starfar beint ög óbeint við mót-
töku erlendra ferðamanna. Hvaðgjald-
eyristekjur varðar er ferðamanna-
iðnaðurinn í fjórða sæti á eftir sjávar-
útvegi, iðnaði og álvinnslu. Við skulum
ekki gleyma því,” sagði Hólmfríður
Árnadóttir framkvæmdastjóri að
lokum.
-ÓG.
hAdegissjúss-
INN AÐEINS FYR-
IR MATARGESTI
— Nýjar reglur um áfengi og skemmtanir ganga
ígildi hinn 16. júlínæstkomandi
Timi hádegisbaranna er að renna út.
Frá og með mánudeginum 16. júlí
verður aðeins heimilt að veita vín til
matargesta á vínveitingarhúsum á
virkum dögum milli klukkan 12.00 og
14.30. Þar af má aðeins afgreiða áfengi
við bar á milli klukkan 12.00 og 13.00.
Dómsmálaráðherra, Steingrímur
Hermannsson, kynnti nýja reglugerð
um veitingahús, sem meðal annars fela
ofangreint í sér. Hingað til hafa barir
verið opnir alla daga nema
miðvikudaga frá klukkan 12.00-14.30
og afgreiðsla þar ekki bundin við mat-
argesti.
Þurrir miðvikudagar blautir á ný.
Með hinni nýju reglugerð falla úr
gildi reglur um að ekki megi afgreiða
sterk vín á vínveitingahúsum á
miðvikudögum. Gilda nú sömu reglur
um miðvikudagana og aðra virka daga.
Heimilt að hafa opið til þrjú á föstu-
dögum og laugardögum en eitt aðra
daga.
Samkvæmt hinum nýju reglum
verður heimilt að hafa skemmtistaði
opna til klukkan eitt eftir miðnætti
virka daga og sunnudaga í þeim sveitar-
félögum sem það hafa samþykkt. Á
föstudögum og laugardögum nær
heimild þessi til klukkan þrjú að
morgni næsta dags. Vínveitingar mega
standa þar til hálftima fyrir lokun eins
og áður hefur gilt.
Nú má byrja vínveitingar klukkan
18.00.
Við gildistöku hinnar nýju
reglugerðar er heimilt að hefja af-
greiðslu áfcngis á vínveitingastöðum
klukkan 18.00 alla daga vikunnar.
Ástæðan fyrir þessu mun vera sú að
rétt þykir að gefa þeim, sem vilja neyta
matar sins á vinveitingahúsum fýrr en
fyrri reglur hafa gefið kost á, færi á
því. Eru það til dæmis þeir sem vilja
borða á veitingahúsi áður en farið er í
leikhús.
Hálftólf reglan afnumin.
Ekki er skylt, eftir að nýja
reglugerðin gengur i gildi, að loka
veitingahúsum klukkan 23.30 að
kvöldi. í stað þess er aðeins skylt að
loka húsunum þegar húsrými er þrotið
samkvæmt reglum þar um.
Áfengi á herbergi hótela frá klukkan
12.00 (il lokunartíma að kvöldi.
Hingað til hefur ekki verið heimilt
að afgreiða vín á þeim hótelum, sem
vínveitingaleyfi hafa, eftir klukkan
14.30, og þar til klukkan sjö á kvöldin.
Þó ekki á miðvikudögum. Á þessu
verður breyting frá og með 16. júlí.
Heimilt verður eftir gildistöku nýju
reglugerðarinnar að afgreiða áfengi á
herbergi til fastra dvalargesta á
gistihúsi frá klukkan 14.30 til klukkan
18.00. Þetta táknar í raun að afgreiða
má áfengi á herbergi klukkan 12.00 á
hádegi til klukkan hálf eitt eða
klukkan hálf þrjú eftir gildandi
lokunartíma..
Skemmlanaleyfisgjaldið til áfengis-
fræðslu
Samkvæmt hinni nýju reglugerð á
formlega að krefjast sérstaks leyfis til
að halda dansleiki eða aðrar
skemmtanir sem standa lengur en til
klukkan 23.30. Að sögn dómsmála-
ráðherra er gjald fyrir skemmtanaleyfi
nú 7000 krónur en fjármálaráðherra
hefði verið send tillaga um að það
hækkaði í 14.000 krónur. Væri hug-
myndin að því fé, sem innheimtist á
þennan hátt, yrði varið til fræðslu um
hinn svokallaða áfengisvanda.
-ÓG.
erMARINER utanborðsmótorinn íessinu sínu.
BRUNSWICK COMPANY i Bandaríkjun-
um, eigandi Mercury og Yamaha (Sanshin)
verksmiðjanna, bætti MARINER við fram-
leiðslu sina og byggði á áratuga reynslu af
ofannefndum mótorum.
MARINER er sérstaklega hannaður fyrir
saltvatnsnotkun og erfiðar aðstæður.
Finnski herinn notar nú eingöngu
MARINER (yfir 100 mótora)
Danski sjóherinn notar nú MARINER,
(Danmörk, Færeyjar og Grænland) .
Gríski sjóherinn notar MARINER.
MARINER er sigurvegari í ótal rallkeppn-
um, allt frá Ástralíu til norðlægra slóða. j
Sending af MARINER er rétt ókomin til
landsins og þar sem mikið er þegar pantað úr
henni er ráðlegt að leggja inn pantanir sem
fyrst.
MARINER er, þótt ótrúlegt sé, langódýr-
asti utanborðsmótorinn á íslenzka markaðin-
um í dag.
007*00
53322
52277
BÁTA- OG VÉLAVERZLUN, LYNGÁSI 6, GARÐABÆ,