Dagblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 1
5. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 27. JULl 1979 — 169. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÍJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGRKIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐAI.SÍMI 27022.
/•
Árvekni íslenzku f íknief nalögreglunnar:
KOM UPP UM HASS-
HRING í SVÍÞJÓÐH
Árvekni íslenzku fíkniefnalög-
reglunnar leiddi til handtöku átta
íslendinga í Gautaborg. Við húsleit
þar fundust hjá einum þeirra 4 kg af
hassi og hjá öðrum 1 1/2 kg af hassi
og eitthvað af kókaini.
Ungur maður, sem kom hingað til
lands frá Gautaborg í júnímánuði sl.,
var undir grun vegna dreifingar á
fíkniefnum. Var hann handtekinn við
komuna hingað á Keflavíkurflug-
velli. Hafði hann á sér grunsamlega
mikla fjármuni.
Við yfirheyrslur yfir honum feng-
ust upplýsingar um hassviðskipti
nokkurra íslendinga í Gautaborg. Á
miðvikudaginn í siðustu viku fór
Bjarnþór Aðalsteinsson, rannsóknar-
lögreglumaður við fikniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík, til Gautaborg-
ar með þær upplýsingar sem þá lágu
fyrir hér.
Strax daginn eftir voru tveir
íslendingar í Gautaborg handteknir
og síðan hver af öðrum. Sem fyrr
segir sitja nú í varðhaldi þar átta
íslendingar. Eru þeir allir sakaðir um
neyzlu og/eða dreifingu á hassi og
kókaini. Eftir upplýsingum sem
fengust við yfirheyrslur yfir þeim var
íslendingur, sem afplánaði 9 mánaða
dóm fyrir fikniefnasmygl í Helsing-
borg, sóttur þangað og situr hann nú
í fangelsi í Gautaborg.
Rannsókn málsins hefur þegar
leitt til Játningar einhverra hinna
handteknu. Meðal annars hefur
komið fram að frá Gautaborg hefur
nokkurt magn af hassi verið flutt til
Íslandsogdreift þar.
Fíkniefnalögreglan í Gautaborg
hefur krafizt að fá framseld-
an nanninn sem handtekinn var á
i cf avíkurflugvelli i júni og
— átta íslendingar
ívarðhaldií
Gautaborg
upplýsingarnar gaf, sem leiddu til
handtöku íslendinganna þar.
í Sakadómi Reykjavikur var í gær
kveðinn upp sá úrskurður að skilyrði
þættu til framsals mannsins sam-
kvæmt islenzkum lögum. Hefur úr-
sku.ðurinn verið kærður til Hæsta-
réttar. Hver sem niðurstaða Hæsta-
réttar verður, kemur til kasta dóms-
/málaráðuneytisins að ákveða hvort
manninn skuli framselja. -BS.
Ljósabilun
orsakaði
hörkib
árekstur
Umferðaljósabilun á mótum Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar er tal-
in aðalorsök hörkuáreksturs er varð
á níunda tímanum í morgun. Oliubif-
reið sem var á leið suður Kringlumýrar-
brautina lenti á amerískri fólksbifreið
sem var á leið austur Miklubraut.
Oliubillinn ýtti fólksbifreiðinni á
undan sér 10—12 metra vegalengd frá
gatnamótunum.
Ökumaður fólksbifreiðarinnar var
fluttur í slysadeild en ekki er kunnugt
um meiðsli hans er þetta varritað.
-ASt.
Olíuhillinn gekk inn í vinstri hlið fólks-
bifreiðarinnar og ýtti henni langa ieið á
undan sér. I innfelldu myndinni sést á
hjólförunum, hve langt olíubillinn ýtti
fólksbilnum.
DB-mynd Sv. Þorm.,
Dauðaslys við
Tíðaskarð í
gærkvöldi
54 ára Reykvíkingur lét lífið í bflveltu
Gunnar H. Gunnarsson íbyggingamefnd:
„Rétt að banna
Saltvíkursandinn”
Dauðaslys varð á þjóðveginum
rétt norðan Tiðaskarðs i Kjós kl.
rúmlega tíu i gærkvöldi. Tveir menn
voru þar á ferð áleiðis til Akraness er
bill þeirra fór út af veginum, enda-
stakkst og valt einar fjórar veltur.
Það var farþeginn, sem beið bana, en
hann var 54 ára gamall maður úr
Reykjavík.
Á staðnum þar scm slysið varð er
verið að gera við aðalveginn og um-
ferð er beint á gamlan veg i framhjá-
hlaupi við vegagerðarmenn. Var bif-
reiðin er valt komin á „framhjá-
hlaupsveginn” er slysið varð.
Bifreiðin sem valt er blæjubill, en
talið er að hinn látni hafi kastazt út
úr bílnum og orðið undir honum og
látizt samstundis.
/ -ASt.
Samkvæmt
skoðanakönnun DB:
Meiríhlutinn
andvígur
bruggfrumvarpi
Tómasar
— sjá bls. 9
Harðræði og ofbeldi í
Síðumúlafangelsinu
ennírannsókn
— sjá bls. 8
Ellertnærekki
milljón -sjábls.9
„Því miður tók ég þátt i að sam-
þykkja undanþágu fyrir notkun
byggingarefnis úr Saltvikurnámunni
á byggingarnefndarfundi 11. júli, en
lét bóka að oftar skyldi taka prufur
af efni af sjávarbotni. Enda lá fyrir
bréf frá borgarverkfræðingi þar sem
fram kom að tilraunir Rannsóknar-
stofnunar byggingariðnaðarins sýndu
litla alkalivirkni I Saltvíkurefninu.
Nú liggur hins vegar Ijóst fyrir að
sandur úr Saltvik er verulega alkalí-
virkur. Hið eina rétta er því að banna
þennan sand en möl úr Saltvikurnám-
um læt ég liggja á milli hluta þar til
nánarT rannsóknarniðurstöður liggja
’fyrir.”
Þetta hafði Gunnar H. Gunnars-
son verkfræðingur að segja i morg-
un, en á fundi byggingarnefndar
Reykjavíkur í gær lagði hann fram
tillögu um að fella úr gildi undan-
þágu fyrir sandi af sjávarbotni við
Saltvik. Tveir aðrir nefndarmenn
vildu samþykkja tillöguna og borgar-
verkfræðingur hélt fast við þá af-
stöðu sína að „Saltvíkurefnið virtist
skásti valkosturinn I stööunnir"
Fjórir nefndarmenn fóru fram á
frestun ákvörðunar i málinu og varð
úraðmálinuvarskotiðá frest.
- ARH