Dagblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 8
8 Sgl Borgarskrifstofur, ' |/ Austurstræti 16, óska eftir að ráða eftirtalda starfsmenn: 1. Skrifstofumann. Góð vélritunarkunnátta nauðsynlcg. Verzlunarskólamenntun eða hlið- stæð menntun æskileg. 2. Forstöðumann mötuneytis (matráðskonu) í mötuneyti Reykjavíkur- borgar, Austurstræti 16. Laun samkvæmt kjarasamningi borgarinnar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Um- sóknir með upplýsingum um fyrri störf og menntun sendist skrifstofustjóra borgarstjórn- arfyrir 10. ágúst nk. ÚTBOÐ Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir tilboðum í lagningu, 7. áfanga hitadreifikerfis. Útboðs- gögn eru afhent á bæjarskrifstofunum í Vest- mannaeyjum og Verkfræðiskrifstofunni Fjar- hitun hf., Reykjavík, gegn 30 þús. kr. skila- tryggingu. Tilboð verða opnuð í Ráðhúsinu, Vestmanna- eyjum, þriðjudaginn 7. ágúst kl. 16. Stjóm veitustofnana Vestmannaeyjabæjar Vestmannaeyjar 1 Skallí Lækjargötu 8, Hraunbæ102 Reykjavíkurvegi 60 Hf. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1979. Harðræðið og ofbeld- iö íSíðumúlafangels- inu enn í rannsókn Rannsóknin er „innanhússmál JLVl Enn er í gangi rannsókn sú sem ríkissaksóknari krafðist vegna kvart- ana um meint harðræði í Síðumúla- fangelsinu og að rannsóknarlögreglu- menn og fangavörður hafi lagt hendur á gæzlufanga þar sem inni sátu vegna Geirfinnsmálsins. Það er Þórir Oddsson vararannsóknar- lögreglustjóri sem skipaður var af dómsmálaráðuneytinu til að annast rannsóknina, eftir að rannsóknar- lögreglustjórinn, Hallvarður Einvarðsson, hafði vikizt undan að taka að sér rannsóknina þar sem hann hefði sem þáverandi vararíkis- saksóknari verið viðstaddur yfir- heyrslur gæzlufanganna. Kvartanir og ásakanir um þetta meinta harðræði og ofbeldi í Síðu- múlafangelsinu komu fram þá er Geirfinnsmálið og Guðmundarmálin svonefndu voru í meðförum undir- réttar. Fóru þá fram yfirheyrslur rannsóknarmanna, fangavarða og gæzlufanga, en niðurstaða fékkst nánast engin vegna þess að fullyring stóð gegn fullyrðingu. Ríkissaksóknari gerði sig ekki ánægðan með þessa rannsókn og fyrirskipaði frekari og nákvæmari rannsókn málsins og það er hún sem Þórir Oddssson vinnur nú að. „Þetta er mjög viðkvæmt mál,” sagði Baldur Möller ráðuneytisstjóri er DB ræddi við hann. „Geirfinns- og Guðmundarmálin eru nú við dyr Hæstaréttar og það er andstætt okkur í ráðuneytinu að hræra í máli sem fyrir dómi er, reka á eftir málum eða vera með puttana í meðferð rann- sóknar.” Baldur sagði að ráðuneytið hefði talið lögreglurannsókn á umkvörtunaratriðunum eðlilegri en að skipaður væri sérstakur setu- dómari til þeirrar rannsóknar sem ríkissaksóknari bað um. „Sterkar likur til sannleiksgildis umkvörtunar- atriða þyrfti til að sakadómsrann- sókn væri fyrirskipuð á aðra saka- dómsrannsókn.” Baldur kvað Þóri Oddsson hafa verið í Noregi þá er umrædd umkvörtunaratriði hefðu gerzt í Síðumúlafangelsinu og það hefði kannski ráðið úrslitum um að valið féll á hann til rannsóknarinnar. En ekki verður annað séð en Þórir sé i mjög erfiðri stöðu til rannsóknar- innar. Yfirmaður hans hjá RLR var viðstaddur þá er umkvörtunaratriðin áttu sér stað og í hlut eiga rann- sóknarlögreglumenn sem nú eru undir Þóri settir. Niðurstaða rannsóknar umkvört- unaratriða gæti raskað sönnunargildi undirréttardóms í Geirfinns- og Guð- mundarmálunum. Ríkissaksóknari óskaði nýrrar rannsóknar á umkvörtunaratriðun- um eftir að hafa fengið bréf frá Jóni Oddssyni, réttargæzlumanni Sævars Cicielskis. En áður en það bréf Jóns var skrifað hafði Jón Bjarman fanga- prestur tvívegis skrifað dómsmála- ráðherra um sömu umkvörtunar- atriði. Fyrra bréf Jóns var skrifað 24.9 1976, en efni þess áréttað í bréfi dagsettu 30. maí 1978. Afrit af því bréfi hefur legið hjá dómsmálaráð- herra, ríkissaksóknari, rannsóknar- lögreglustjóra og Réttarvernd og e.t.v. víðar í meira en heilt ár, að loks var hafizt handa um rannsókn. Um efni bréfa Jóns Bjarmans fangaprests vísast til annarrar fréttar hérásíðunni. -ASt. Séð eftir gangi Síðumúlafangelsisins. DB-mynd: Bjarnleifur. Gripið í hár gæzlu- fangans og hann hristur til og litlu síðar löðrungaður Fangaprestur sendi dómsmálaráðherra bænarbréf um að réttur gæzlufanga sé virtur að lögum Hinu háa ráðuneyti er að sjálf- sögðu kunnugt, að óeðlilegt ástand hefur ríkt í fangelsinu að Siðumúla 23 allt frá 23. desember 1975. Margir þeirra fanga, sem hafa verið í gæzlu- varðhaldi á þessu tímabili, hafa kvartað undan harðræði og því, að þeim hafi verið haldið í stöðugum ótta, bæði í sambandi við fram- kvæmd gæzlunnar svo og við yfir- heyrslur og rannsóknaraðgerðir í sambandi við mál sín. . . . Brýna nauðsyn ber til að kannað verði með prófunum af óvilhöllum aðila, hvort í þessum tilvikum og öðrum hafi verið beitt ótilhlýðilegri harð- ýðgi við gæzlufanga.” Þannig segir í fyrra bréti Jóns Bjarman fangaprests til dómsmála- ráðherra og vísað er til. V. og X. kafla laga nr. 74/1974. í síðara bréfinu segir Jón Bjarman að tilefni beiðni sinnar um rannsókn óvilhalls aðila á umkvörtunaratriðum sé ekki það að sakbomingarqir, Sævar Cicielski, Kristján Viðar Viðarsson og Erla Bolladóttir, hafi farið þess á leit við hann að hann hlutaðist til um eitt eða annað, sem að rannsókninni snýr, heldur hitt að þau hafi öll í sálgæzluviðtölum við hann greint frá, hvað gerðist 4. eða 5. maí 1976 i Siðumúlafangelsinu, án þess að hann fitjaði upp á málinu eða legði fyrir þau spurningar. Frásögn þeirra kveður Jón í meginatriðum samhljóða. Fangapresturinn bendir á að Erla hafi sagt honum frá atburðin- um í maí 1976, Sævar Marinó i janúar 1978 og Kristján Viðar í maí 1978. Segir Jón Bjarman að þessir sakborningar hafi ekki verið sam- vistum nema í samprófunum og í réttarsal frá þvi í desember 1975 og sæta Sævar Marinó og Kristján Viðar enn gæzlu. Aðalatriði frásögu gæzlufanganna er síðan lýst þannig: Að kvöldi umrædds dags (4. eða 5. maí 1976) voru leidd til samprófunar í viðtalsherberginu í Síðumúla 28 Sævar Marinó Cicielski, Kristján Viðar Viðarsson og Erla Bolladóttir. Viðstaddir voru rannsóknardómari, maður frá ríkissaksóknaraembætt- inu, þrír rannsóknarlögreglumenn og fangavörður (Allir viðstaddir eru nafngreindir þó nöfnum sé sleppt hér) í samprófuninni var lagt hart að Sævari að játa lýsingu Erlu á atvik- um, en hann virtist ringlaður og miður sín og ekki vita hvaðan á sig stóð veðrið. Meðan þessu fór fram greip tilgreindur rannsóknarlögreglu- maður í hár Sævars, kippti honum og hristi til og frá svo hann var nærri fallinn i gólfið og ógnaði honum. Seinna, þegar Sævar mótmælti einhverju, gekk tilgreindur fanga- vörður að honum og löðrungaði hann. Samprófunin endaði i upp- lausn við það að Erla fór að æpa í móðursýkiskasti. Var þá kallað á tvo fangaverði, sem drógu Sævar til klefa síns. 'Fangapresturinn segir og að tveir aðrir tilteknir gæzlufangar í Síðu- múlafangelsinu á þessum tíma hafa spurt sig hvort drukkið fólk væri hýst í Siðumúlafangelsinu, því þeir hefðu umrætt kvöld heyrt háreysti, óp og grát í húsinu. Fangapresturinn segir í bréfi sínu til ráðherra að nauðsynlegt sé að þetta atriði rannsóknarinnar verði kannað af óvilhöllum aðila, svo og öll framkvæmd rannsóknarinnar. Mikilsvert sé að lögum um rannsókn- ir og meðferð sakamála sé fylgt út í yztu æsar og þá gætt réttar þeirra, sem bornir eru sökum, hverjar svo sem þær sakir kunni að vera. -ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.