Dagblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ1979. ÚTBOÐ Orkubú Vestfjarða leitar eftir tilboðum í að fullgera undir málningu skrifstofuhúsnæði fyrirtækisins á ísafirði. Húsið er nú í fokheldu ástandi. Útboðsgagna má vitja hjá Tæknideild Orku- bús Vestfjarða, ísafirði, sími 3900, og Fjarhit- un hf., Álftamýri 9 Reykjavík, sími 82322, gegn 30 þús. kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skilað til Orkubús Vestfjarða, Hafnarstræti 7 ísafirði, og verða þau opnuð þar miðvikudaginn 15. ágúst kl. 14. Tæknideild Orkubús Vestfjarða Rannsóknastyrkir EMBO í sameindalíffræði Sarneindalíffræðisamtök Evrópu (European Molecular Biology Organi- zation, EMBO), hafa í hyggju að styrkja vísindamenn sem starfa í Evrópu og tsrael. Styrkirnir eru veittir bæði til skamms tíma (1 til 12 vikna) og iengri dvalar, og er jx:im ætlað að efla rannsóknasamvinnu og verklega framhaldsmenntun í sameindalíffræði. Skammtímastyrkjum er ætlað að kosta dvöl manna á erlendum rann- sóknastofum við tilraunasamvinnu, einkum þegar þörf verður fyrir slíkt samstarf með litlum fyrirvara. Langdvalarstyrkir eru veittir til allt að eins árs í senn, en umsóknir um endurnýjun styrks til eins árs í viðbót koma einnig til álita. Umsækjendur um langdvalarstyrki verða að hafa lokið doktorsprófi. Umsóknir um styrki til dvalar utan Evrópu og Israels koma til álita, en þær njóta minni forgangs. 1 báðum tilvikum eru auk dvalar- styrkja greidd fargjöld styrkþega milli landa. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá Dr. J. Tooze, Exe- cutive Secretary, European Molecular Biology Organization, 69 Heidel- berg 1, Postfach 1022.40, Vestur-Þýskalandi. Umsóknir um skammtímastyrki má senda hvenær sem er, og er ákvörðun um úthlutun tekin fljótlega eftir móttöku umsókna. Langdvalarstyrkjum er úthlutað tvisvar á ári. Fyrri úthlutun fer fram 30. apríl, og verða um- sóknir að hafa borist fyrir 20. febrúar, en síðari úthlutun fer fram 31. október, og verða umsóknir að hafa borist fyrir 31. ágúst. Menntamálaráðunaytið 19. júli 1979. '"“i Eigum fyrirliggjandi á góöu verði amerískar tré- smíðavélar sem eru: Hefill Beltislípivél Sög Borö Rennibekkur Mótor BALDURSSON HF. ARMULA7 — SÍMI 81711 Bandaríkin: Alexander Haig andvígur Salt II skorar á öldungadeild þingsins að f resta ákvörðun þar til öll vamarstef na Bandaríkjanna hafi verið endurskoðuð Alexander Haig, fyrrum æðsti maður herliðs Atlantshafsbanda- lagsins, hefur nú bætzt í hóp þeirra Bandaríkjamanna, sem leggjast gegn fullgildingu Salt II samkomulags Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Fjallar það um takmörkun á kjarn- orkuvígbúnaði stórveldanna. Vill Haig að öldungadeild þingsins í Washington fresti í það minnsta fullgildingu samningsins, sem þeir forsetarnir Cartcr og Brésnef hafa þegar undirritað þar til endurskoðun hefur farið fram á allri varnarmála- stefnu Bandaríkjanna í Ijósi nýrra áætlana um ný hernaðartilþrif. Áður hefur komið fram í ræðum hernaðarsérfræðinga fyrir nefndum öldungadeildarinnar að þeir telja nauðsyn á því að auka mjög annan vígbúnað jafnhliða fullgildingu Salt II samkomulagsins. Segja sér- fræðingamir þetta vera nauðsynlegt vegna mikillar hernaðaruppbygging- ar Sovétmanna. Hefur þessum skoðunum verið vel tekið meðal margra öldungardeildarþingmanna. Þykja líkur nú aukast fyrir þvi að Carter Bandarikjaforseti verði að lofa verulega auknum hernaðarút- gjöldum til endurgjalds fyrir að nægilegur fjöldi þingmanna fáist til að fullgilda Salt II samkomulagið. Þrátt fyrir að skilja mætti á Alexander Haig herforingja að hann teldi að ekki ætti að fullgilda sam- komulagið í núverandi formi og við núverandi aðstæður, gætti hann þess vandlega að taka sér aldrei slík orð beint í munn. Áður hefur komið fram að hugmyndir Haigs um aukinn herbúnað liggja bæði á sviði almennra vopna og kjarnorkuvopna. Hann hefur einnig bent á að Banda- ríkin ættu að leggja meiri áherzlu á hernaðaruppbyggingu Atlantshafs- bandalagsins. En þar telur hann skorta á að ríkið uppfylli skuld- bindingar sínar. Segir hann vanta 3% upp áað svo sé. Lffið f Las Vegas hefst með nóttinni og þar mun vera boðið upp á nánast allt sem fá má fyrir peninga. Þar var nýlega haldiö heimsmeistaramót f spilinu póker. Við vitum satt að segja ekki hvað sigurvegarinn heitir en ekki er pókerinn ennþá orðinn ólympiuiþrótt, en hver veit hvað framtfðin ber i skauti sér. Portúgal: Herinn mótmælir sakaruppgjöf Yfirstjórn hersins í Portúgal hefur lýst yfir mikilli óánægju með nýsett lög um sakaruppgjöf til þeirra sem brotið hafa stjómmála- og hernaðar- reglur þar í landi síðan i byltingunni árið 1974. í yfirlýsingu frá herstjórn- inni segir að lagasetningin muni hafa neikvæð áhrif á þá þróun sem verið hafi í þá átt að aðlaga her landsins borgaralegum lögum. Eanes forseti Portúgal og forseti herráðs landsins beitti neitunarvaldi sínu til að hindra framgang málsins þegar þing landsins samþykkti það í fyrra skiptið í maí síðastliðnum. Þingmenn sósíalista og kommúnista, sem samanlagt hafa meirihluta á hinu 263 sæta þingi Portúgals, tóku málið aftur upp og samþykktu það fyrir nokkrum dögum. Þeir sem njóta munu góðs af hinum nýju lögum um sakaruppgjöf eru bæði af vinstri og hægri kanti stjórnmálanna. Hægri menn höfðu frammi til- burði til rofs á stjórnarskrá landsins hinn II. marz 1975 og síðan reyndu vinstri menn hið sama 25. nóvember sama ár. Væntanlega munu hin nýju lög þá koma í veg fyrir að Spinola fyrrum hershöfðingi og fyrsti forseti Portúgals eftir byltinguna 1974 verði dæmdur fyrir þátt sinn í fyrri bylt- ingartilrauninni. Hann hefur um skeið dvalizt í höfuðborginni Lissa- bon og beðið réttarhalda i máli sínu. Samtímis því sem æðsti herforingi Portúgals lýsti lagasetningunni sem hnífsstungu í bak hers landsins sagði Soares, leiðtogi sósíalista og fyrrum forsætisráðherra, að afskipti hersins af málinu væru óviðurkvæmileg af- skipti af málefnum þings landsins.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.