Dagblaðið - 27.07.1979, Side 5

Dagblaðið - 27.07.1979, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1979. 5 Skattskráin skoðuð: Ellert nær ekki milljón! —Albert efstur þingmanna Reykvíkinga Oft heyrist rætt um launakjör þing- manna og oft heyrist það gagnrýnt, að þingmenn séu í þeirri aðstöðu að ákveða eigin launakjör. Menn segja sem svo, að hver geti séð sjálfan sig i þeirri aðstöðu. Hver mundi ekki hafa launin sín rífleg ef hann ætti að ákveða þau sjálfur, og þar sem þingmennirnir eru vanir því að vera í sviðsljósinu þá hefjum við DB-menn rannsókn okkar á skattskránni í ár á því að athuga skatta þingmanna Reykjavíkur. í þessari athugun okkar eru aðeins teknir kjördæmakjörnir þingmenn. Þá eru skattar þingmannanna Svövu Jakobsdóttur, Ragnhildar Helgadóttur og Jóhönnu Sigurðardóttur ekki teknir með, þar sem framtöl þeirra eru sam- eiginleg með framtölum eiginmanna þeirra. Til samanburðar látum við fljóta með samanlögð opinber gjöld þessara sömu þingmanna á síðasta ári. Ellert B. Schram greiðir innan við 1 milljón í upinber gjöld i ár. Albert Guðmundsson er sem fyrr cfstur á blaði yfir hæstu skattgreiðendur í röðum þingmanna Reykjavíkur. Albert Guðmundsson, fyrsti þing- maður Reykjavíkur, er eins og í fyrra langefstur á blaði þó Geir Hallgrims- son hafi nokkuð dregið á hann. í fyrra , var Svavar Gestsson langneðstur en nú hefur Ellert B. Schram náð því sæti af honum, og athygli vekur að Ellert greiðir ekki milljón í opinber gjöld. Þykir vafalaust mörgum skrítið, að þingmaður greiði ekki meira i opinber gjöld en raun ber vitni hjá Ellert en vafalaust stendur það allt til bóta því siðustu fregnir herma, að Ellert hafi ráðið sig á togara í sumar. -GAJ- Flugfélag Sverrís Þóroddssonar: Ný flugvél í leiguflugid Flugfélag Sverris Þóroddssonar hefur fest kaup á tíu sæta Cessna 410 flugvél, í stað smærri vélar sem skemmdist á ísafjarðarflugvelli fyrir skömmu og sá sem skemmdunum olli keypti af félaginu. Þetta er langstærsta vél félagsins til þessa og með stórum vörudyrum til að geta tekið fyrirferðamikla hluti um borð. Verður hún, sem aðrar vélar félagsins, notuð til útsýnisflugs með ferðamcnn,leiguflugs með farþega og með vörur. Talsvcrt er um að vélar félagsins fljúgi ntilli landa, oft eftir varahlutum, svo sem í fiskiskip, og nokkuðer flogið til Grænlands. Vélin, sem kostar nálega 50 milljón- ir, er væntanleg til landsins um helgina. -GS. Flugleiðir: r Aætlunar- og leigu- f lug breytist Áætlunar- og leiguflug Flugleiða til Evrópulanda breytist nokkuð um næstu helgi. T.d. fellur niður aukaflug með DC-8 til Glasgow á föstudags- kvöld en í stað þess fara farþegar með LL-400 á föstudagsmorgun og með FI- 216 kl. 17.30 sama dag. Flug til Kaupmannahafnar með DC- 8 á laugardagsmorgun fellur niður og á sunnudag fellur einnig niður morgun- flugtil Kaupmannahafnar. í öllum tilvikum hafa farþegar verið bókaðir inn á önnur flug. Eftir helgina verður siðan flogið samkvæmt áætlun. -ELA KRAFLAIGANG UM EÐA EFTIR HELGI Raforkuframleiðsla við Kröflu verður komin i fullan gang um eða eftir næstu helgi. Vélarnar verða gangsettar i dageftir nærri átta vikna hlé. Einar Tjörvi Eliasson yfirverk- fræðingur sagði í samtali við DB í morgun að áætlað væri að framleiðslan yrði 6 megawött. Það er nokkru niinna en þegar bezt lét á tímabilinu janúar til marz sl., þegar raforkuframleiðsla var 8—9 megawött. Gufan sem nú fæst við Kröflu er 20—21 kílógrömm á sekúndu. Albert Guðmundsson Benedikt Gröndal Eðvarð Sigurðsson Einar Ágústsson Ellert B. Schram Geir Hallgrímsson Gunnar Thoroddsen Svavar Gestsson Vilmundur Gylfason íjuskattur Eignarskattur 5.380.785 1.046.186 2.188.781 77.519 1.388.952 0 3.110.810 397.536 828.644 69.617 4.708.781 1.154.042 1.950.926 101.226 781.295 0 1.794.881 0 Útsvar Barnabætur 1.546.600 0 850.500 0 600.400 0 1.221.600 0 519.300 553.618 1.451.200 0 1.202.700 0 802.300 402.632 1.007.400 100.600. Samtals Gjöld í fyrra. 8.958.048 5.590.295 3.284.061 1.629.202 2.090.361 1.202.812 4.973.242 3.232.362 968.586 1.948.813 7.604.300 3.569.814 3.477.594 1.501.865 1.340.415 336.896 2.905.271 1.467.758 7198 sjúkrahússjúklingar í Reykjavík árið 1978 Nýting sjúkrarúma varð 97.7% Á árinu 1978 komu alls 7198 manns til sjúkrahúsdvalar á Borgar- spítalanum í Reykjavík og öðrum sjúkrastofnunum Reykjavíkur- borgar. 228 sjúklingar áttu ekki afturkvæmt af sjúkrastofnununum. Er sjúklingafjöldinn á sl. ári talsvert meiri en árið á undan en þá komu alls 6378 manns til dvalar í stofnununum. Meðaltal sjúklinga á dag var á liðnu ári 414,6 sjúklingar á sjúkra- stofnununum öllum, en mcðaltalið á dag árið á undan var 381.3. Meðallegudagar hjá hverjum sjúklingi reyndust 20.9 dagar á sl. ári en var 21.8 dagur árið á undan. Nýting sjúkrarúma á sjúkra- stofnunum Reykjavíkur var árið 1978 97.7% en var 98.3% árið 1977. Við útreikning nýtingar rúma er tekið til- lit til lokunar deilda og legu sjúklinga slysa- og lyfjadeildar í rúmum skurðdeildar. Enn sem fyrr var skurðdcild mcð llesta sjúklinga á árinu cða 1997 en lyflæknisdeildarsjúklingar voru þó litlu færri eða 1922. Sjúkarúm I Rcykjavik voru í árs- byrjun 1977 382 að tölu en fjölgaði á ■því ári í 407 sjúkrarúnt. Á sl. ári fjölgaði sjúkrarúmum ekkcrt og voru í árslok sem fyrr 407. -ASt. MIXRMIVCQ-- Blaðberar óskast í nokkur hverfi. Upplýsingar Þórólfsdóttir í síma 93—18751 gefur Guðbjörg Mtmuam Kvartmflukeppni Miðsumarskeppni Kvartmíluklúbbsins verður haidin á braut klúbbsins v/Straumsvík laugardaginn 28. júlí og sunnudaginn 29. júlí. Meðal keppenda verða: Fyrri dagur: Biggi bjalla á Grænu pöddunni Forkeppni hefst kl. 4. Leifur Rosenbergs á 350 Vegunni Páll V-áttundi á Pústmann Pintónum Seinni dagur: Kristinn Ólafsson á Grœna hraðsuðukatlinum Aðalkeppni hefst ki. 2. Örvar Sigurðsson á 454 Camaronum Ólafur Grétarsson, á Kawasaki S1000 Harry Hólmgeirsson á 307 Camarónum auk alla hinna Þá munu kvartmílingar bregða á leik og m.a. mun Pálmi Helgason reyna að reykspóla upp einu setti af breiðum dekkjum. Stjórnin. -GM

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.