Dagblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1979. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR27. JÚLÍ 1979. 17 I Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Bþróttir Iþróttir Iþróttir D Þorvaldur með tveggja ára samning Þorvaldur Ásgeirsson hefur nú gerl tveggja ára samning við golffyrirtækið John Letters i Skotlandi um að nota eingöngu vörur frú því fyrirtæki. Á blaðamannafundi sem umboðsaðili John Letters, TAK hf., boðaði til í gær voru golfvörur frá John Lctters kynntar og skýrt frá samningi Þorvaldar, sem er einstakur i íslenzkri golfsögu. Aðeins tveir atvinnumenn á Norðurlöndum hafa gert slíkan samning við John Letters — Þorvaldur svo og cinn Dani. Alls munu um 150 atvinnumenn í golfi vera á snærum John Letters og má þar nefna t.d. Lee Trevino. Auk þess auglýsti Gary Player vörur fyrirtækisins í cin 7 ár en hcfur nýlega gert samning við annað fyrirtæki. Þorvaldur hefur verið farandkennari i fjöldamörg ár og hann hefur verið atvinnumaður í golfi um margra ára skeið. Á þessu ári einu hefur hann verið með 254 nemendur i kennslu hjá sér — þar af 128 sem aldrei höfðu snert á golfkylfu áður. Það hefur einkum verið athyglisvert hversu mikið af unglingum er að byrja golfleik en fram til þessa hefur þetta að mestu leyti verið „eldri manna sport” hér á landi. Undanfarin ár hefur þó orðið mikil endurnýjun í röðum kylfinga og nú er mikill fjöldi unglinga sem stundar golf af miklu kappi. TAK hf. hefur gefið púttera í verðlaun fyrir holu í höggi í opinberum keppnum og ails hefur fyrirtækið gcfið 15 slíka. Þá hefur fyrirtækið ávallt gefið landsliðum Íslands golfbolta og poka. Fótboltamenn á ferðalögum í morgun hélt fríður hópur knattspyrnumanna álciðis til Skotlands til æfinga og keppni. Voru þar á ferðinni 3. flokkar ÍR, Vals, Vikings, Þróttar, Fylkis og Selfoss. Valur og Víkingur farp í boði skozkra félaga en hin fjögur verða öll saman í Glasgow. Þá mun 3. flokkur ÍK halda til Skotlands í næstu viku, en 3. flokkur ÍBK, 2. flokkur Vals og 4. og 5. flokkur Hauka eru allir nýkomnir frá Svíþjóð. Þriðju deildar lið Grindvíkinga mun einnig leggia land undir fót í næstu viku en þá ferðast þeir alla leið lil Kanada og munu dvelja þar í um hálfsmán- aðartima og leika 5 lciki í ferðinni. Það verður því ckki annað sagt en að knattspyrnumenn þessa lands séu mikið á ferðinni. Franska 1. deildin hófstígær Franska deildakeppnin hófst að nýju í gærkvöldi og er þar með fyrst fyrstu deildakeppnanna í Evrópu til að byrja á hinu nýja keppnistímabili. Úrslit í 1. umferðinni urðu sem hér segir: Basfia — St. Etienne 0—1 Bordeaux — Strasbourg 1—3 Laval — Nantes 0—2 Lille— Nancy 2—0 Lyons — Paris St. Germain l—1 Marseillcs — Brcst 3—0 Metz—Lens 2—1 Nice — Nimes 1—2 Sochaux — Monaco 1—2 Valencicnncs —Angers 2—1 Johnny Rep og Michel Platini léku sinn fyrsta 1. deildarleik með sínu nýja félagi, St. Etienne, gegn Bastia en Rep lék einmitt með því félagi áður en Itann gekk (íl liðs við St. Eticnne. Franskir knatt- spyrnusérfræðingar telja líklegt að það verði St. Eti enne, sem sigri í 1. deildinni í vetur en sl. vetur varð liðið í 3. sæti á eftir Strasbourg og Nantes. Þessi þrjú lið byrjuðu öll mjög vel og virðast áþekk. Enn kaupir Forest Evrópumeistarar Nottingham Foresl hyggjast greinilcga halda í titil sinn ef marka má hamagang- Íiin í þeim í kaupum á leikmönnum. Um síðustu ncigi keyptu þeir Frankie Gray frá Leeds United fyrir 400.000 pund til þess að nota hann í vinstri bak- varðarstöðuna í stað Clark. Áður hafði Forest keypl Asa Hartford fyrir sömu upphæð og síðla vetrar keypti félagið Trevor Francis fyrir um 1 milljón punda. Auk þessa hefur félagið látið gera endur- bætur á leikvelli sínum fyrir um 2,4 milljónír punda. Alls hefur félagið þvi eytt um 4,5 milljón sterlings- punda á skömmum tima og greinilegt er að ekki eru blankheitin í þeim herbúðum. Svo eru smálið eíns og Liverpool að snapa auglýsingar á búningana sína. Það er af sem áður var. UMFÍ vann öruggan sigur —gegn dönsku f rjálsíþróttafólki í Kópavogi á miðvikudagskvöld Á miðvikudagskvöldið fór fram á Kópavogsvelli hin árlega bikarkeppni ungmennafélaga á íslandi og ung- mennafélaga frá Árhus og nágrenni. Tveir kcppendur frá hvorum aðila kepptu i hverri grein. Keppnin var hin skemmtilegasta og fór fram í blíð- skaparveðri. Að lokinni keppni bauð bæjarstjórn Kópavogs öllum keppend- um upp á hressingu. Dönsku keppendurnir eru nú á leið- inni austur að Eiðum þar sem þeir munu taka þátt í frjálsíþróttamóti um helgina, 28.—29. júlí. Og síðan munu þeir halda norður á bóginn og taka þátt í frjálsíþróttamóti á Akureyri fimmtu- daginn 2. ágúst. Danirnir sem eru hér í boði UMFI munu halda heim á leið 6. ágúst. Úrslit í bikarkeppninni urðu þessi: KONUR 100 m hlaup Hólmfríður Erlingsdóttir UMFÍ 12.7 Svava Grönfeldt UMFÍ 13.2 400 m hlaup Ragnheiður Jónsdóttir UMFÍ 60.4 Hólmfríður Erlingsdóttir UMFÍ 60.5 800 m hlaup Thelma Björnsdóttir UMFÍ 2:21.6 Guðrún Karlsdóttir UMFÍ 2.27.3 100 m grindahlaup Lene Kjelden AAG 16.1 Hólmfriður Erlingsdóttir UMFÍ 16.6 Hástökk íris Jónsdóttir UMFÍ 1.59 íris Grönfeldt UMFÍ 1.59 Langstökk Svava Grönfeldt UMFÍ 5.16 Hulda Laxdal UMFÍ 5.05 Kúluvarp íris Grönfeldt UMFÍ 11.15 Helga Unnarsdóttir UMFÍ 10.69 Krínglukast Elin Gunnarsdóttir UMFÍ 31.06 Vibeka Thomsen AAG 30.34 Spjótkast íris Grönfeldt UMFÍ 37.70 Lene Kjeldsen AÁG 31.26 4x 100 m boðhlaup UMFÍ 51.2 AAG 56.1 Úrslit í stigakeppni kvenna UMFÍ 62 stig AAG 36 stig KARLAR 100 m hlaup Jón Þ: Sverrisson UMFI 11.2 Per Lund Petersen AAG 11.5 400 m hlaup 51.8 Kristian Hansen AAG Þorsteinn Þcrsson UMFÍ 52.6 1500 m hlaup Keld Langberg AAG 4:16.8 Lúðvík Björgvinsson UMFÍ 4:19.4 110 m grind Bjarne Ibsen AAG 15.3 Stefán Hallgrímsson UMFÍ 15.3 Langstökk Sten Jensen AAG 6.67 Bjarne Ibsen AAG 6.62 Hástökk Karl West UMFÍ 1.90 Hafsteinn Jóhannesson UMFÍ 1.85 Kúluvarp Stefán Hallgrímsson UMFÍ 13.37 Einar Vilhelmsson UMFÍ 13.06 Þrístökk Bjarne Ibsen AAG 13.96 Helgi Hauksson UMFÍ 13.85' Stangarstökk Karl West UMFÍ 4.20 Lars Heprik Mathiasen AAG 3.20 Krínglukast John Solberg AAG 37.74 Einar Vilhjálmsson UMFÍ 34.76 Spjótkast John Solberg AAG 63.70 Einar Vilhjálmsson UMFÍ 60.32 4x 100 m boöhlaup UMFÍ 45.1 AAG 45.2 1000 m boðhlaup UMFÍ 2:02.8 AAG 2:04.2 Úrslit í stigakeppni karla. UMFÍ 60 stig AAG 57 stig Heildarúrslit UMFÍ 122 stig AAG 93 stig Nokkrir úr 4. flokki Hauka ásamt þjálfara sinum, Kristjáni Ellertssyni. DB-mynd Friðrik Á. Brekkan. K0MUSTIURSUTIN EN V0RU DÆMDIR ÚR LQK! —góður árangur fslenzkra knattspymuliða á Gothia Cup í síðustu viku I síðustu viku tóku þrjú íslenzk ungl- ingalið þátt í hinni árlegu keppni Gothia Cup í knattspyrnu í Gautaborg í Sviþjóð. Valsmenn sendu 2. flokk sinn í mótið, Keflvíkingar voru með þriðjs flokkinn og Haukar voru með 4. og 5. flokk sinn. Öllum íslenzku liðunum gekk vel í keppninni en Haukarnir í 5. flokki urðu að bíta í það súra epli að vera dæmdir úr leik í keppninni eftir að hafa unnið sinn riðil og komizt í úr- slitaleikinn. Vegna misskilnings voru Haukarnir of gamlir — máttu aðeins vera 11 ára en voru margir hverjir 12 ára eins og lög gera ráð fyrir hérlendis. Aldursskiptingin var öðru vísi þarna úti og því voru Haukarnir dæmdir úr leik. Þeir misstu því af sigurlaununum en að mati allra sem til sáu voru Hauk- arnir bezta liðið í þessum aldursflokki. Keflvíkingar komust í úrslit með 4. flokkinn en máttu þola tap þar. Vals- mönnum gekk mjög vel en ekki vitum við nákvæmlega hvar beir höfnuðu í sínum flokki. Við vitum þó að þeir voru þeir einu sem náðu jafntefli gegn unglingalandsliði íraka og það meira að segja eftir að hafa látið markvörð þeirra verja frá sér vitaspyrnu. Fjórða flokki Haukanna gekk einnig prýði- lega. Þeir unnu sinn riðil en töpuðu öðrum af tveimur Ieikjum sínum í milli- riðli. Blaðamaður DB á staðnum, Frið- rik Á. Brekkan, segir svo frá (ath! bréf hans er skrifað í fyrri viku): „Hér í Gautaborg stendur nú yfir í fimmta skipti hin alþjóðlega knatt- spyrnukeppni, Gothia Cup. í ár eru þátttakendur um 8000 talsins og skipt- ast þeir niður á 425 lið frá 18 löndum. Mótið var sett í Tívolíinu Liseberg sunnudaginn 15. júlí og fylktu þá fjöl- margir keppendur liði. Þátttakendur búa í skólum borgar- innar og snæða þar einnig. Hver þátt- takandi fær skírteini, sem veitir honum ókeypis far með strætisvögnum borgar- innar yfir mótstímann, ókeypis inn á söfn og í Tívolíið auk afsláttar í ýmsum verzlunum borgarinnar meðan á mót- inu stendur. Þrjú íslenzk lið taka þátt í mótinu en það eru Haukar, Keflavík og Valur. 1 dag, hinn 16. júlí, kepptu m.a. Haukar við sænska liðið Váxjö og unnu þá 2-0 í hörkuspennandi leik þótt blaðamanni fyndist að landarnir væru miklu, miklu betri. Haukar skoruðu fyrra mark sitt á síðustu minútu fyrri hálfleiks og síðara markið kom um miðjan síðari hálfieik- inn. Hvor hálfleikur var aðeins 20 mínútur að lengd. Að sögn drengjanna í Haukum er keppnisandinn frábær og eru þeir búnir að vinna alla leiki, en hinn 16. júlí, á öðrum degi keppninnar, var markatala íslenzku liðanna 18-0 samtals. „Við erum örugglega komnir í úr- slit,” segir Leifur, fyrirliði Haukanna, ög hvetur sína menn óspart. Þjálfari Hauka er Kristján Ellertsson. Keflavík keppti í morgun við IFK Kristianstad og vann 2-0. Valsmenn áttu í hörku- viðureign við unglingalandslið íraks og lauk þeim leik með markalausu jafn- tefli. Valsmenn áttu fjögur mjög góð upphlaup að marki íraka og fengu auk þess þrjár hornspyrnur auk vítaspyrnu, sem markvörðurinn varði, en allt kom fyrir ekki. Harkan var mikil og átti dómarinn fullt í fangi með að fylgjast með agabrotum á báða bóga. Menn komust upp með ýmislegt sem hefði verið dæmt á ef dómarinn hefði verið vel á varðbergi. írakar tróðust mikið fram fyrir íslendingana og stöðvuðu þá með höndum og toguðu í peysurnar og fleira og fieira. Mikill keppnishugur er i mönnum og eins og einn íslendinganna sagði: „Ég yrði hissa ef við ynnum þettaekki.” Að mínum dómi hafa islenzku liðin sýnt góðá leiki hvað varðar hraða og öryggi. Mótinu lýkur föstudaginn 20. júlí á gamla Ullevi íþróttavellinum. Úrslita i Gothia Cup 1979 verður væntanlega getið síðar í DB.” Gautaborg 16. júlí Friðrik Á. Brekkan. BLASK0GASK0KKIÐ FER FRAM Á M0RGUN —líkur á að iónas rítstjóri og Stefán úr Vorsabæ etji kappisamanaðnýju Bláskógaskokkið svoncfnda, sem naut mikilla vinsælda þegar það hófst fyrir 7 árum, verður haldið á morgun og hefst kl. 14 við Gjábakkahraun. Vegalengdin sem hlaupin verður er um 16 km löng og liggur frá Gjábakka- hrauni að I.augarvatni. Bláskóga- skokkið var fyrst haldið árið 1972 og var þá strax mikil þátttaka í því. Það árið hlupu 316 manns á öllum aldri. Keppninni verður skipt i flokka eins og venja er til og verður hlaupið i 5 aldurs- flokkum. Yngsti aldursflokkurinn eru unglingar 14 ára og yngri. í þeim flokki kepptu 59 1972. Þá er keppt í flokki 14—15 ára og 1972 kepptu 39 í þeim flokki. Næsti flokkur er 16—18 ára og 1972 hlupu 26 í þeim flokki. Flokkurinn 19—34 ára var langfjöl- mennastur í hlaupinu 1972 og hlupu þá 112 manns í þeim flokki og má búast við að þátttakan verði einnig mest nú í þeim flokki. í elzta aldursflokknum, 35 ára og eldri, kepptu árið 1972 80 manns, sem er mjög gott. Núna er gert ráð fyrir talsverðum fjölda og ekki er loku fyrir það skotið að þeir Jónas ritstjóri Dag- blaðsins Kristjánsson og Stefán Jasonarson úr Vorsabæ etji kappi i annað sinn á opinberum vettvangi. Það eru efiaust margir sem muna hvernig fyrsta viðureignin fór en ritstjórinir hefur stundað lilaup af kappi í langan tíma og er því vel undirbúinn ef af hlaupi hans verður. Hvort hann verður með eður ei fékkst ekki staðfest áður en þetta var skrifað. Væntanlegum þátttakendum er bent á að mæta nokkuð tímanlega en skrán- ing fcr fram á staðnum og hlaupið hefst kl. 14. Allir þeir er Ijúka hlaupinu fá viðurkenningarskjal og sigurvegarar hvers flokks fá farandbikar. Bláskógaskokkið féll niður í fyrra en nú er um að gera að fjölmenna austur á morgun og skokka sér til heilsubótar. Þessir félagar úr eru ánægðir á svip eftir að hafa gert jafntefli við unglingalandslið íraka. DB-mynd Friðrik Á. Brekkan. fc x +/SK ENDEMIS RUGL —svar til Þorvaldar Þórðarsonar Ekki get ég látið hjá líða að svara yessari grein Þorvaldar Þórðarsonar, því annað eins rugl hef ég ekki séð á prenti áður. Les ég nú samt blöðin -nikið. í upphafi greinar sinnar segir Þor- valdur orðrétt: „Snúum okkur að leik Stjörnunnar og UMFG. Fyrir þann leik bað háttvirtur dómari línuverði sína um að hafa góðar gætur á markverði Stjörnunnar. Hvers vegna veit ég ekki en það á eflaust rætur sínar að rekja til fyrri samskipta okkar.” Það skal tekið fram að fyrir um- íslenzka unglingalandsliðinu í golfi hefur gengið afieitlega á Evrópu- meistaramóti unglinga sem fram fer í Marianske Lazne í Tékkóslóvakíu þessa dagana. Eftir undankeppnina ráku íslendingarnir lestina með 841 högg eftir síðari daginn. Strákarnir léku fyrri daginn á 420 höggum og voru þá einnig neðstir — 6 höggum á eftir Austurrikismönnum. í gær gekk síðan enn verr en þá léku fjórir beztu á samtals 421 höggi. Austurrikismenn léku á 407 í gær og munurinn jókst því í 20 högg. Eftir undankeppnina var liðunum skipt í tvo hópa. Annars vegar 8 efstu og hins vegar þau lið sem voru í 9,- 15.sætinu. íslendingar leika að öllum líkindum gegn Belgum í dag, en Belgar urðu í 9. sæti. Eftir undankeppnina voru írar efstir á 742 höggum. Frakkar komu næstir á 751, þá Svíar á 758, ítalir á 762, Danir á 766, Spánverjar á 775, V-Þjóðverjar á 781, Belgar á 782, Finnar á 784, Svisslendingar á 796, Hollendingar á 796, Tékkar á 806, Austurríkismenn á 821 og íslendingar á 841 höggi. írar leika gegn V-Þjóðverjum í dag, Frakkar gegn Spánverjum, Svíar gegn Dönum og ítalir gegn Norðmönnum. Samkvæmt þessari reglu eiga Islending- ar að leika við Belga en ekki vitum við Ekkert óvænt á útimótinu Þrír leikir fóru fram á útimótinu í handknattleik við Lækjarskólann í Hafnarfirði í gærkvöld og ekki verður annað sagt en að úrslitin hafi verið ósköp „venjuleg”. I fyrsta leik kvöldsins bakaði Fram UMFN, 20—9 í kvennaflokki og var það mikil einstefna. Að þeim leik loknum léku Haukar og Ármann í meistaraflokki karla og þar unnu Haukarnir öruggan sigur — 22—15. Með þessum sigri sín- um má segja að Haukarnir séu svo gott sem búnir að tryggja sér sæti í úrslitum mótsins. Aðeins stórtap gegn KR getur hugsanlega komið í veg fyrir að Haukarnir komist áfram. Siðasti leikur kvöldsins var siðan á milli FH og Stjörnunnar. Þar kom ber- lega í ljós að FH er ekki ýkja sterkt iið án Geirs Hallsteinssonar. Hann byrjaði ekki inn á og um miðjan fyrri hálf- leikinn var staðan 5—5. Geir kom þá inn á og FH skoraði síðustu 8 mörkin í hálfleiknum og leiddi 13—5 í hléi. í seinni hálfleiknum var meira jafn- ræði með liðunum en Stjarnan náði aldrei að ógna verulega. Geir fór út af og ungu strákunum tókst vel að halda í horfinu eftir að vera komnir á bragðið, en lokatölur urðu 26—14. Haukar leika gegn KR á mánudagskvöldið og FH gegn Fram á þriðjudag. Reyndar eiga Framarar einnig möguleika á að komast í.úrslitin ef þeir vinna bæði Víking á morgun og svo FH. Þá er einnig sá möguleiki fyrir hendi að Víkingar komist í úrslit ef þeir vinna Fram á morgun og Fram vinnur síðan FH. Líklegast er þó að það verði Hafnarfjarðarliðin sem leika til úrslita. ræddan leik ræddi ég við línuverði mína og gaf þeim fyrirskipanir hvað þeir ættu að gera til þess að samvinna okkar á leikvelli yrði sem bezt. Þetta er alltaf gert fyrir Ieiki en að ég hafi sagt þeim að hafa góðar gætur á þér, Þor- valdur, er hrein fásinna. Þegar ég bar þessi ummæli þín undir línuverði mína komu þeir af fjöllum. Mér þætti einnig gaman að vita hver þessi fyrri samskipti okkar væru, ekki kannast ég við þau. Ég dæmdi fyrr í sumar leik Stjörnunnar og Gróttu. Ekki man ég hvort þú spilaðir með hvernig framhaldinu verður háttað í keppninni og kemur sér nú illa fyrir fjölmiðla hérlendis að hafa engin gögn i höndunum varðandi keppnina frá GSÍ. Þótt strákarnir séu neðstir eftir undankeppnina er árangurinn hjá þeim ekki svo slakur. Þeir hafa að meðaltali leikið 18 holurnar á 80 höggum. íslenzka unglingalandsliðinu gekk hins vegar mjög vel og mun betur í fyrra en þá voru aðrir kylfingar i því en nú. ’ Stepanovic tilCity Manchester Citv gekk í gærkvöldi frá kaupunum á júgósiavneska lands- liðsmanninum Dragoslav Stcpanovic fyrir 140.000 sterlingspund frá v-þýzka liðinu Wormacia. Stepanovic er 30 ára gamall og fellur því vel inn í ölduagalið City. þeim þá, alla vega gekk sá leikur vel fyrir sig, að öðru leyti hef ég ekki heyrt á þig minnzt. Um tiltalið sem þú segir að hafi aldrei borizt í þín eyru vil ég aðeins segja að í fyrri hálfleik dæmdi ég á þig og sagði við þig að þetta væri gróft brot og ég vildi ekki sjá svona aftur, hvort að þú hafir ekki heyrt þetta eða vildir ekki heyra þetta er ekki mitt mál. Lengi máttu bíða efþú ' tlar að sjá mig dæma aðeins á samstuð lcikmanna eins og þú segir að þarna hafi átt sér st ið. Einnig segir þú að ég hafi verið illa staðsettur þegar þetta atvik átti sér stað, mér þætti ekki gaman að sjá dómara standa við hlið markmanns, þegar hann spyrnti knettinum frá vita- teigslínu, góð staðsetning það eða hitt þó heldur. Ekki get ég séð það að ég hafi lagt þig, Þorvaldur í einelti í þessum leik þó að ég hafi dæmt á þig fyrir grófan leik og gaman hefði verið að fá að sjá eitt eða tvö af þessum dæmum þínum, sem þú segist hafa máli þínu til stuðnings, og einnig að fá nánari skýringu hjá þér á framkomu minni við þig eins og þú segir að hún hafi verið í umrætt skipti. Um það að ég og blaðamaður DB hafi lagzt á eitt um að gera sem rnesta skepnu úr þér, visast beint heim til föðurhúsa. Blaðamaðurinn greindi rétt frá öllu sem okkur fór á milli, er hann ræddi við mig eftir leikinn, og var sízt of stórorður, framkoma sú sem þú sýndir mér í umræddum leik er fyrir neðan allar hellur og skal engan undra að blm. skyldi blöskra. Ég sé enga ástæðu til að biðja þig, Þorvaldur, afsökunar eins og þú ætlast til, ég hefði frekar viljað að þú hefðir komið beint til mín og beðið mig af- sökunar, heldur en að þeysa fram á rit völlinn og skrifa um atvik sem bezt væri fyrir þig að gleyma sem fyrst. Eða eins og máltækið segir: Oft má nú ótamið trippi frekar heima sitja en þeysa út um allar trissur. Þökk fyrir birtinguna. Ragnar Pélursson, knattspyrnudómari. Bflhlass af kóki fyrir holu f höggi - á opna Coca Cola mótinu í golfi, sem fram fer í 19. skipti á Grafarholtsvellinum um helgina Opna Coca Cola keppnin fer fram nú um helgina á Grafarholtsvellinum og er keppt í 19. skipti. Þetta er lang- elzta opna mótið í golfinu en fyrst var keppt árið 1961. I upphafi voru alltaf leiknar 72 holur og var mótið mikið til hugsað sem góð æfing fyrir þá kepp- endur sem ætluðu að taka þátt í íslandsmótinu í golfi hverju sinni. Með árunum fannst mönnum svo að 72 holur væru of mikið og nú hin síðari ár hefur keppnin verið 36 holur með og án forgjafar og aðeins keppt í einum opn- um flokki. Á blaðamannafundi sem Vífilfell boðaði til í gærdag til að kynna verð- launin í mótinu kom fram að fari ein- hver holu í höggi á 17. braut fær hann heilan bílfarm af hinum sívinsæla drykk Coca Cola. í einum bílfarmi munu vera um 226 kassar af kóki þannig að verðmætið er um 1 milljón krónur. Það getur því verið einkar hentugt fyrir menn sem gjarnan fá gesti að vinna til þessara verðlauna. Þó svo að enginn fari holu i höggi verða menn leystir út með kóki í bak og fyrir. Þeir sem verða næstir holu á 2. og 17. braut hvorn keppnisdaginn fá hvor um sig 5 kassa af kóki. Auk þess fær sá sem á lengsta teighöggið á 18. braut 5 kassa af kóki í verðlaun. Það er þvi öruggt að 25 kassar af þessum annars ágæta þjóðardrykk okkar munu ganga út á mótinu auk hinna hefðbundnu verðlauna. f fyrra voru um 100 keppendur og er einnig búizt við mikilli þátttöku að þessu sinni. Keppni hefst í fyrramálið kl. 9 og munu rástímar liggja fyrir um kl. 20 i kvöld. Síðari daginn verður ræst út þannig að þeir sem hafa bezta skorið eftir fyrri daginn verða ræstir út síðast. Þetta er stigamót til landsliðs og væntanlegir þátttakendur þurfa að hafa skráð sig í siðasta lagi kl. 17 í dag á lista sem eru í skálum klúbbanna í ná- grenni Reykjavikur auk GR skálans. Siminn uppfrá hjá GR er 84735. Strakamir urðu langneðstir —í undankeppni EM ungf inga í golf i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.