Dagblaðið - 27.07.1979, Page 15

Dagblaðið - 27.07.1979, Page 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1979. 19 r Eríendu vinsældaUstamir „Mérleiðast mánudagar” Irska hljómsveitin Boomtown Rats er tvímælalaust hljómsveit vikunnar í Englandi. Á einni viku fer nýjasta lag rottnanna; I Don’t Like Mondays, úr 24. sæti upp í það fyrsta. Lag þetta fjallar um unga stúlku sem skaut niður ellefu manns í skóla í Kaliforníu. Höfundur lagsins, Bob Geldof aðal- söngvari Boomtown Rats, segist hafa fengið innblástur, er hann heyrði skýr- ingu stúlkunnar á því, hvers vegna hún hefði skotið fólkið. Henni líkaði ekki við mánudaga. Þrjú ný lög til viðbótar eru á topp tíu í Englandi. Tríóið Police er i sjö- unda sæti listans með lagið I Can’t Stand Losing You. Einu sæti neðar eru Dooleys og Wanted. Belginn Patrick Hernandez rekur svo lestina að þessu sinni. Lag hans, Born To Be Alive, er nú númer tíu í Englandi. — Það lag er enn á toppnum í Þýzka- landi, og fikrar sig hægt og sígandi upp í Bandaríkjunum. Vestanhafs hefur staða þriggja efstu laganna ekki breytzt síðustu þrjár vik- urnar. Donna Summer nýtur enn gífurlegra vinsælda með breiðskífuna Bad Girls og lögin Hot Stuff og Bad Girls, sem bæði eru á þeirri plötu. Fleiri lög á plötunni eiga áreiðanlega eftir að komast upp á vinsældalista er þau verða gefin út á litlum plötum, til dæmis Dim All The Lights. Tvö lög komast á topp tíu í Banda- ríkjunum þessa vikuna. Kiss-lagið nýja, I Was Made For Loving You, er i áttunda sæti og Good Times með Chic er í tíunda sæti. Chic hefur nú tryggt sér þann titil að vera nokkurs konar renaissance hljómsveit diskósins með prýðisgóðum lögum, sem lyft hafa diskótónlistinni á hærra plan en áður þekktist. Lög eins og Le Freak, I Want Your Love og nú síðast Good Times staðfesta það. Vinsælustu litlu plöturnar ENGLAND 1. (24) 1 DON'T LIKE MONDAYS.........Boomtown Rats 2. (2) ARE „FRIENDS" ELECTRIC.........Tubeway Army 3. (1) SILLY GAMES........................Janet Kay 4. (10) GIRLS TALK....................Dave Edmunds 5. ( 4) GOOD TIMES...........................Chic 6. ( 9) LADY LYNDA......................Beach Boys 7. ( 3) C'MON EVERYBODY..................Sex Pistols 8. (26) CANT STAND LOSING YOU..............Police 9. (13) WANTED.............................Dooleys 10. (19) BORN TO BE ALIVE............Patrick Herandez BANDARÍKIN 1. (1) BAD GIRLS......................Donna Summer 2. (2) RING MY BELL......................Anita Ward 3. ( 3) HOT STUFF.....................Donna Summer 4. ( 5) SHE BELIEVESIN ME..............Kenny Rogers 5. ( 7) WHEN YOU'RE IN LOVE WITH A BEAUTIFUL WOMAN. ....................................Dr. Hook 6. ( 9) I WANT YOUTOWANTME..............CheapTrick 7. (10) GOLD...........................John Stewart 8. (11) IWAS MADE FOR LOVING YOU.............Kiss 9. (9) MAKIN' IT.....................David Naughton 10. (16) GOOD TIMES...........................Chic HOLLAND 1. (1) THEME FROM THE DEERHUNTER..........Shadows 2. ( 4) IWAS MADE FOR LOVING YOU.............Kiss 3. ( 3) WEEKEND LOVE..................Golden Earring 4. ( 7) RING MY BELL.....................Anha Ward 5. (5) LAVENDER BLUE....................Mac Kisson 6. (6) JUST WHEN INEEDED YOU MOST...Randy Vanwarmer 7. (2) REUNITED......................Peaches & Herb 8. (15) AAN DE GRENS....................Sunstreams 9. ( 9) TELLIT ALL ABOUT BOYS............Dolly Dots 10. (14) CHECK TO CHECK................Lowell George HONG KONG 1. (1) CAN YOU READ MY MIND.......Maureen McGovern 2. ( 4) LOGICAL SONG....................Supertramp 3. ( 2) BOOMERANG..........................Celi Bee 4. (13) KISSIN THE DARK.............. ....Pink Lady 5. (15) IFISAID YOU HAD A BEAUTIFUL BODY.Bellamy Brothers 6. ( 3) BAD GIRLS................... Donna Summar 7. (5) GEORGY PORGY..........................Toto 8. (8) UPIN THE ROOF.................. James Taylor 9. (19) GOLD...........................John Stewart 10. ( 6) MUSIC BOX.............Evelyn „Champagne" King VESTUR-ÞYZKALAND 1. (1) BORN TO BE ALIVE.............Patrick Hemandez 2. (2) DOES YOUR MOTHER KNOW................ABBA 3. (3) SOME GIRLS...........................Racey 4. (4) HEART OF GLASS......................Blondie 5. ( 5) SAVE ME.................... .........Clout 6. ( 6) IWAS MADE FOR DANCING...........LeH Garrett 7. ( 7) SHALLIDOIT...................Leslie McKeown 8. (10) HEREISTAND....\.....................Teens 9. (11) LET'S GET BACK TOGETHER...........Promises 10. (14) SUNDAY GIRL ....................Blondie A'"‘ p“ Rín breytír um svip Hljóðfæraverzlunin Rin hefur fengið andlitslyftingu jafnframt þvi sem nokkrar breytingar verða á rekstri hennar. í framtíðinni verður ekki síður lögð áherzla á að sjá al- menningi fyrir hljóðfærum, en at- vinnuhljómlistarmönnum. Hingað til hefur verzlunin aðallega sinnt at- vinnumönnunum. ,,Þó við förum meira inn á „fjöldamarkaðinn” en áður þá höld- um við áfram að taka notuð hljóð- færi i umboðssölu,” sagði Magnús Eiríksson hjá Rín, er DB ræddi við hann í tilefni breytinganna. „í fram- tíðinni ætlum við að innrétta efri hæð verzlunarinnar fyrir notuðu hljóðfærin.” Rín hefur um langt skeið haft um- boð fyrir Hammond orgel. Þau hafa hins vegar aðeins verið afgreidd gegn pöntunum þar til nú. Að sögn Magnúsar eru Hammond orgelin á mjög viðráðanlegu verði nú vegna hagstæðrar stöðu krónunnar gagn- vart dollar. Þá hefur Rín flutt inn svonefndar syndrums eða trommur, sem tengdar eru við synthesizcr. Hljóðfæri þetta er hið fyrsta sinnar tegundar, sem kemur hingað til lands. Nú orðið er það mikið notað erlendis, sérstaklega í plötuupptök- um, og getur framleitt hin ótrúleg- ustu hljóð. Að sögn Magnúsar Eiríkssonar hafa íslenzkir trommu- leikarar margir sýnt þvi áhuga að verða sér úti um syndrums. Slíkur gripur kostar um níu hundruð þúsund krónur. Breytingar á verzluninni Rín annaðist Finnur Fróðason arkitekt. Sambýliskona K&th Richards handtekin Anita Pallenberg, sambýliskona gítarleikarans Keith Richards var handtekin á heimili sínu úm siðustu helgi. Nágrannarnir höfðu kvartað vegna þess að hleypt hafði verið af skoti í húsi þeirra hjónaleysanna. Er lögreglan kom á staðinn fann hún sautján ára gamlan ungling, Scott Cantrell, nær dauða en lífi vegna skotsárs á höfði. Hann Iézt nokkru síðar ásjúkrahúsi. Keith Richards, sem leikur á gítar með Rolling Stones var staddur í París, er kona hans var handtekin. Hún fullyrðir að unglingurinn hafi framið sjálfsmorð. ! húsinu fundust tvær skammbyssur, önnur Colt 45 pístóla. Anita Pallenberg, sem er italskur ríkisborgari, var látin laus gegn fimm hundruð dollara tryggingu. Einnig varð hún að láta af hendi vegabréf sitt. Hún er forfallinn eiturlyfja- sjúklingur. ÚrNEW YORKTIMES. Gömul mynd af Anitu Pallen- berg, sem hér er í fylgd með Brian heitnum Jones. Hann lézt í júlíbyrjun árið 1969, þá nýbú- inn að segja upp í hljómsvcit- inni Rolling Stones. — Keith Richards sambýlismaður Anitu var staddur í París í Frakklandi er hún var handtekin. PETER FRAMPTON KEYPTIBENSÍNSTÖÐ Poppstjömur eiga því yfirleitt ekki að venjast að þurfa að hanga í biðröðum eins og hverjir aðrir kújónar. Til dæmis þótti Pétri Frampton súperstjörnu það ákaflega hvimleitt að þurfa að bíða klukku- stundum saman í bíl sínum til þess að fábensíntankinn fylltan. Einn daginn ók hann samt í röð- ina fyrir utan stöð í Beverly Hills i Los Angeles. Hann gafst þó fljótlega upp og ók burtu. Daginn eftir gekk allt hins vegar eins og í sögu og Frampton fékk bensín á bílinn sinn án nokkurrar biðar. Hann hafði nefnilega til að firra sig frekari leiðindum keypt bensinstöðina með öllum útbúnaði. Það fylgir ekki sögunni hvort fleiri Hollywood- stjörnur hyggist fara að dæmi Peters.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.