Dagblaðið - 09.10.1979, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1979.
7
Þrumu- 1
m gnýrinn '
*W Robert
W Dennis
þeytir plötunum
meö eldingarhraöa
og kynmr nýjar
| videospólur
Borgaraf lokkamir sænsku með ótryggan þingmeirihluta:
Fertugur
bítill
Fjörutíu ára er í dag John
Lennon kúabóndi í New Jersey í
Bandaríkjunum, fyrrverandi liðs-
maður hljómsveitarinnar The
Beatles. John er sá þeirra fjór-
menninganna frábæru, sem hvað
minnst hafa verið áberandi á
síðustu árum. Hann neitar öllum
blaðaviðtölum og kveðst vilja fá
að halda einkalífi fyrir sig og fjöl-
skyldu sína.
Óttazt
öryggi
Castros
Gífurlegur öryggisráðstafanir
verða í New York, þegar Fidel
Castro forseti Kúbu kemur
þangað á morgun til að ávarpa
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna. Margar hótanir um að ráða
Castro af dögum hafa borizt til
lögreglu borgarinnar og mun
öryggisbúnaður verða með al-
mesta móti við komu forsetans.
Vitað er að þegar er nokkur
hópur kúbanskra öryggisvarða
kominn til New York starfsfélög-
um sínum þar til ráðuneytis og
trausts. Castro hefur ekki komið
til New York i nítján ár.
Norður-írland:
Hermaður
skotinn
Óeinkennisklæddur brezkur
hermaður var skotinn til bana í
gær í Belfast á Norður-írlandi.
Gerðist þetta um sama leyti og
þekktur brezkur leynilögreglu-
maður Sir Maurice Oldfield kom
til landsins til að taka við yfir-
stjórn öryggismála á Norður-
írlandi.
KRATARNIR FENGU
FORSETA MNGSINS
Palmefékkstuðningfrá hægrí
Erfiðlega ætlar að ganga að koma
saman ríkisstjórn borgaraflokkanna í
Svíþjóð. Þeir koma sér ekki saman um
efnahagsstefnuna og ekki heldur stefn-
una i kjarnorkuvæðingu Svía. Kjarn-
orkan varð banabiti stjórnar Thor-
björn Fálldins á sinum tíma og virðist
einn erfiðasti þröskuldur flokkanna að
komast yfir t stjórnarmyndunarvið-
ræðunum um þessar mundir. Þá segja
sænsku blöðin að foringjar flokkanna
séu ekki sammála um hver þeirra skuli
setjast í stól forsætisráðherra. Fullvíst
er þó að það verður annaðhvort Fálldin
eða Ola Ullsten, fráfarandi forsætis-
ráðherra. Þeir tveir eru sagðir hjartan-
lega sammála um að vera andvígir þvi
að Gösta Bohman, formaður Hægri
flokksins verði forsætisráðherra.
Bohman gerir að sögn minnst tilkall til
forsætis í nýrri stjórn.
1. október kom nýtt sænskt þing
iaman og 'valdi þingforseta, sem er
umtalsverð valda- og áhrifastaða.
Úrslitin komu á óvart. Þrátt fyrir að
sósíaldemókratar séu i minnihluta á
þinginu, þá unnu þeir forsetakjörið.
Gösta Bohman brást hinn versti við
þessum úrslitum mála, en krataleiðtog-
inn Palme var eitt sólskinsbros.
Eftir talsvert samningaþóf komu
borgaraflokkarnir sér saman um að
Fonngjar borgaraflokkanna voru óhressir með að missa út úr höndunum valdastöðu á borð við embætti þingforseta. (Frá
vinstri) Ola Ullsten úr Frjálslynda flokknum, Thorbjörn Fálldin úr Miðflokknum og Gösta Bohman úr Hægri flokknum.
?:■
þ<
Ingcmund Bengtsson, þingmaður
jafnaðarmanna, var kjörinn þingfor-
seti. Það er áfall fyrir samsteypu
borgaraflokkanna i Sviþjóð.
Skákmótið í Rio de Janeiro:
Toppmennimir
meðjafntefíi
Portisch enn í ef sta sæti eftir tólf
umferðir
Stórmeistararnir fjórir sem eru í
forustu á millisvæðamótinu í Rio de
Janeiro gerðu jafntefli i skákum
sínum i tólftu umferð. Er Portisch
þvi enn í efsta sæti með átta vinn-
inga. Það var Petrosjan, sem gerði
jafntefli við Portisch og Vaganian
einnig við Húbner.
Petrosjan virtist ákveðinn í að
hefna fyrir ósigur landa sins
Balashovs en hann tapaði fyrir
Portisch í elleftu umferð. Var mjög
grimmur í byrjun skákarinnar við
Portisch en bauð síðan jafntefli eftir
22 leiki í óvissri stöðu. Portisch sam-
þykkti.
Vaganian virtist hafa betri stöðu
eftir að hafa fórnað þrem peðum
fyrir mann en með því að fórna
fjórða peðinu og leika vafasömum
riddaraleik virtist hann missa af
vinningsmöguleikum.
Húbner er nú i öðru sæti með 7,5
vinninga en Vaganian sem hefur
fallizt á jafntefli í skák sinni úr
tiundu umferð gegn Bandarikja-
manninum Shamkovich er i þriðja
sæti með sjö vinninga.
Jaime Sunye frá Brasilíu, sem svo
óvænt hefur skotið upp á stjörnu-
himin skákarinnar er með 5,5 vinn-
inga. Hann á auk þess tvær biðskákir
og hefur setið yfir tvisvar vegna jress
að skákmenn hafa hætt þátttöku í
millisvæðamótinu.
Önnur úrslit í tólftu umferð voru:
Balashov á biðskák við Velimirovic,
Timman á biðskák við Torre, Sax
gerði jafntefli við Ivkov, Sunye jafn-
tefli við Kagan, Harandi á biðskák
við Luis Bronstein, Garcia tapaði
fyrir Shamkovich. Herbert og
Smejkal sátu yfir.
forseta
tngsins. Hernelius er Hægri flokks-
maður og hefur áður verið ritstjóri
Svenska Dagbladet. Kratar buðu fram
Ingemund Bengtsson, áður land-
búnaðarráðherra í stjórn Olof Palmes.
Kjósa þurfti í tvtgang um forsetann,
áður en komst á hreint hver hreppti
hnossið. Og i seinni umferð fékk
Bengtsson óvæntan liðsauka úr röðum
þingmanna Frjálslynda flokksins
og/eða Miðflokksins — og vann með
tveggja atkvæða mun.
Að það skuli finnast þingmenn i
borgaraflokkunum sem bregðast
foringjum sínum á slíkri örlagastundu
þykir þeim ekki gott. Ekki sízt þegar
þingmeirihluti þeirra veltur á aðeins
einum einasta þingmanni. Forseta-
kosningin sýndi þeim svart á hvítu að
það er ótraustur meirihluti í reynd. Ný
stjórn gæti því orðið valtari í sessi en
virðist í fljótu bragði.
Flestir áttu von á að stjórnarmynd-
un borgaraflokkanna gengi greiðar
fyrir sig en reyndin hefur orðið. Hægri
flokkurinn, sigurvegari kosningann,
hefur verið mun snúnari i viðræðun-
um en áður. Hægri menn eru síður
viljugir að gangast inn á málamiðlanir
við miðflokkana tvo. Samtimis óttast
frjálslyndir og Miðflokksmenn að
Hægri flokkurinn nái of miklum
itökum í nýju stjórninni. Yfirbragð
= Sjálflímandi
stafir, merki,
skilti o.fl.
Bílskreytingar
Skiltagerö
Auglysinga
stofa
hennar verði íhaldssamara en þeir
sætta sig við.
Ingemund Bcngtsson, nýkjörinn
þingforseti, hefur sett borgaraflokk-
unum úrslitakosti.
Hann krefst þess að þeir ákveði i
þessari viku hver skuli skipa embætti
forsætisráðherra i stjóminni. Ef hvorki
gengur né rekur hjá foringjunum að
ákveða það, íhugar þingforsetinn að
útnefna sjálfur forsætisráðherra og
láta svo þingheim greiða atkvæði um
hann.
Með þessu öllu hafa kratar náð að
segja borgaraflokkana í dálaglega
klemmu og Palme er drjúgt kátur með
tilveruna. Honum mistókst að ná þeim
árangri i kosningunum sem hann
vænti, en hugsar ltklega núna: ,.sá hlær
bezt sem síðast hlær. . .”
HREYFJli
Sími
8
22
55
obc
* Grensásveg 5 *
31644