Dagblaðið - 31.10.1979, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979.
3
Ljósmyndari DB rakst á þessa ungu konu I Hveragerði I sumar þar sem hún var
að sprauta vatni á grunninn I væntanlegu húsi sfnu. Ekki var neinn uppgjafar-
tónn 1 henni en bréfritari segir að margir húsbyggjendur séu nú komnir að þvf að
gefast upp vegna hárra vaxtagreiðslna. DB-mynd Ragnar Th.
---------------------------------- ^ .............................— *
Húsbygjginga-
mál áoKom
ast í óefni?
Húsbyggjandi hringdi:
Mér finnst full ástæða til að vekja
^athygli á hvernig ástandið er að verða
í húsbyggingamálum.
Hin nýja vaxtastefna gerir það að
verkum að afborganir af lánum eru
að verða með öllu óbærilegar og
blasir ekkert annað við mörgum hús-
byggjendum en að þeir verði að
gefast upp með hálfbyggð hús.
Ég held að hér á landi vanti algjör-
lega nýja stefnu í húsnæðismálum.
Þessar gífurlegu vaxtagreiðslur gera
þörfina á því augljósa.
Lánin þurfa að verða til langtum
lengri tíma og afborgunum af þeim
háttað þannig að hægt sé að ráða við
þæránþess að svelta fjölskylduna.
Frábær
þjónusta
Húsmóðir við Jörfabakka i Breið-
holti skrifar:
Mig langar til að koma á framfæri
þakklæti til eigenda og starfsfólks
verzlunarinnar Valgarðs við Leiru-
bakka í Breiðholti fyrir frábæra
þjónustu og liðlegheit. Þannig er
mál með vexti að ég þurfti nauðsyn-
lega að fá sagaða sviðahausa sem ég
fékk senda utan af landi. Ekki vissi
ég nú hvert ég ætti að snúa mér en
tók það ráð að hringja i umrædda
verzlun og biðja um hjálp í þessu
máli. Ekkert var sjálfsagðara en að fá
þetta gert og það meira að segja
endurgjaldslaust. Ekki er öll sagan
sögð. Næst fékk ég sent hangikjöt
sem’einnig þurfti að saga. Hringdi ég
því aftur og bar upp vandræði mín.
Svarið var að þetta væri alveg sjálf-
sagt og einnig spurt hvort ég vildi
ekki fá eitthvað úrbeinað af þessu.
Ég tók því fegins hendi, sótti síðan
mitt kjöt og mætti kurteisi og elsku-
legheitum hjá öllu starfsfólkinu.
Langar mig til að endurtaka þakklæti
mitt til verzlunarinnar Valgarðs við
Leirubakka og svona þjónusta er
áreiðanlega til þess að auka viðskipti
fólks við verzlunina.
Tólfþús-
und nafa
borizt
Tólf þúsund krónur höfðu borizt
til gjaldkera DB í fyrradag vegna
söfnunar til styrktar einstæðri
tveggja barna móður í Kópavogi er
missti mest allt innbú sitt í bruna
aðfaranótt l.októbersl.
Gjöf frá S.J. 7000 kr.
GjöfráN.N. 5000 kr.
Dagblaðið mun áfram taka á móti
framlögum ef einhver vill liðsinna
hinni einstæðu móður. Framlögum
má koma til gjaldkera Dagblaðsins í
Þverholti 11.
Gripið simann
geriðsóð
kaup
Horfðir þú á þáttinn
hans Ladda í
sjónvarpi á
laugardagskvöldið?
Sigrún Ingibergsdóttir húsmóðir: Já,
mér fannst hann sæmilegur og átti ekki
von á meiru.
Árni Þór Árnason vélvirki: Nei, ég
missti af honum. Ég hefði örugglega
horft á hann ef timi hefði verið til þess.
Sigurður Sigurðsson sjómaður: Eg sá
seinna korterið af þættinum og þótti
hann nokkuð góður. Maður getur
alltaf brosað að Ladda.
Sunna Guðjónsdóttir, vinnur hjá Sjálf-
stæðisflokknum: Jú, ég horfði á hann
og þótti ægilega gaman. Það má vera
miklu meira af svona þáttum í sjón-
varpinu.
Raddir
lesenda
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
ÞverholtiH sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
Rannveig Garðarsdóttir húsmóðir: Þvi
miður missti ég af honum. Ég býst við
að ég hefði horft á hann ef ég hel'ði
getað. Það er alltaf gaman að léttum
þáttum í sjónvarpinu.
Kaj Larsen múrarí: Ég missti af þættin-
um. Ég var ekki heima á laugardags-
kvöldið og sá ekki þáttinn. Yfirleitt
reyni ég að missa ekki af skemmtiþátt-
um.